Þjóðviljinn - 23.10.1985, Síða 1
Hugmyndir um nýtt BSRB
Spenna á BSRB-þingi. Hugmynd Porsteins Óskarssonar um starfsgreinafélög vekur mikla
athygli. Konursœkja ísig veðrið á þinginu.
Ögmundur Jónasson: Baráttutœkin þurfa að híta vel
Nokkur spenna var á BSRB
þinginu í gær, í kjölfar tillögu
Þorsteins Óskarssonar símvirkja
um möguleika á breyttu skipulagi
BSRB með starfsgreinafélögum.
„Ég trúi varla að þessi tillaga
muni mæta verulegri andstöðu á
þinginu þar sem hún miðar að því
að koma í veg fyrir frekari flótta
úr BSRB“ sagði Þorsteinn í sam-
tali við Þjóðviljann í gær. Ög-
mundur Jónasson sagði í ræðu á
þinginu í gær að hugmyndin um
starfsgreinafélög væri í raun í
samræmi við þróun sem þegar
hefði orðið. Á þinginu í gær tóku
konur höndum saman um
breytingar m.a. á kjörnefnd, þar
sem tillaga um Einar Ólafsson
SFR var dregin til baka og í hans
stað kom Guðrún Árnadóttir
meinatæknir úr SFR. Þar með
eru konur komnar í meirihluta í
kjörnefnd.
Þetta þýðir grundvallar-
breytingu á BSRB, sögðu
heimildarmenn blaðsins um
starfsgreinafélögin, „nýtt BSRB
gæti verið í uppsiglingu“. „Hug-
myndin um starfsgreinafélög
myndu tvímælalaust styrkja
heildarsamtökin, og breytingar
eru í raun nauðsynlegar nú“ sagði
Kristján Thorlacius formaður
BSRB í samtali við blaðið í gær-
kvöldi.
Sú hugmynd var rædd í bak-
sölum í gærdag að koma tillögu
um sérstakt aukaþing BSRB eftir
nokkra mánuði, þar sem fjallað
verði um skipulagsbreytingar
með það fyrir augum að allir
verði áfram innan heildarsamtak-
anna.
„Samtök eru ekki takmark
heldur tæki, baráttutæki. Það
þarf jafnan að sjá til þess að það
bíti vel“ sagði Ogmundur í ræðu
sinni.
Að undanförnu hafa konur hist
innan BSRB. Þær eru víða í
meirihluta meðal aðildarfélaga,
en hafa ekki haft áhrif í því hlut-
falli.
Síðustu fréttir um það leyti
sem blaðið fór í prentun eru þær
að lögð var fram tillaga um auka-
þing BSRB í júní á næsta ári sem
fjalla á um skipulagsmál. Flutn-
ingsmenn tillögunnar voru Ög-
mundur Jónasson, Haukur
Helgason, Guðrún Árnadóttir og
Sjöfn Ingólfsdóttir.
gg/óg
Kvennasmiðja
Áhersla
á launa-
kjör
Sýning kvenna í
Seðlabankahúsinu
opnuð á morgun
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
formaður Sóknar opnar sýn-
inguna kl. 11 á fimmtudaginn,
sagði Jóhanna Sigurðardóttir ai-
þingismaður og ein sjö kvenna í
undirbúningshópnum fyrir að-
gerðir 24. október.
Kjörorð sýningarinnar í Seðla-
bankahúsinu eru Konan - Vinnan
- Kjörin og er markmið hennar að
sýna fram á mikilvægi vinnufram-
lags kvenna. Rúmlega 70 starfs-
stéttir taka þátt í sýningunni og
mynda starfsgreinarnar ákveðnar
heildir, uppeldisstétt, heilbrigð-
isstétt og svo framvegis.
Að sögn Jóhönnu mun sýning-
in gefa góða mynd af því hvar
láglaunastéttirnar er að finna og
verður megináhersla lögð á
launakjör og þann gífurlega mis-
mun sem ríkir milli kynjanna í
þeim efnum.
Á sýningunni verður ýmislegt í
gangi og munu konur vinna þar
að störfum sínum. Meðal annars
ætla konur úr blaðamannastétt
að gefa út blöð alls sjö að tölu
með fréttum af sýningunni. Á
kvöldin verður einnig ýmislegt
um að vera og seldar veitingar
meðan á sýningunni stendur.
Kvennasmiðjan er opin frá kl.
16 - 22 og um helgina verður opið
frá kl. 14 - 22 en sýningunni lýkur
31. október.
Aðrar aðgerðir sem undirbún-
ingshópurinn hefur unnið að er
útifundur á Lækjartorgi kl. 14 og
vinnustöðvun allan daginn 24.
október. - aró.
Hluti undirbúningshópsins í bás uppeldisstéttanna. Fr.v.: Elísabet Cochran
hönnuður sýningarunnar, Ragnheiður Harvey, framkvæmdastjóri sýningarinn-
ar, Þórunn Gestsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
Jóhanna Sigurðardóttir og Ingibjörg Sólrún Gfsladóttir úr undirbúningshópnum
og Ólöf Þorvaldsdóttir hönnuður. Ljósm.: E.ÓI.
24. október
Konur leggja niður vinnu
Askorun til reykvískra kvenna
um að leggja niður vinnu 24.
október hefur hlotið mjög góðar
Hjúkrunarfrœðingar hvetja tilþátttöku. Dagvistarstofnanir
að mestu lokaðar. Búist við góðriþátttöku verkakvenna
Kvennafrí
Rúta frá Selfossi
Konur á Selfossi hafa komið
sér saman um að fjölmenna á úti-
fundinn á Lækjartorgi sem hald-
inn verður á morgun í tilefni aí
lokum kvennaáratugarins. Fund-
urinn á Lækjartorgi hefst kl. 14
og konumar á Selfossi fara til
Reykjavíkur með rútu kl. 12.45.
Allar konur eru hvattar til að
mæta á útifundinn.
gg-
undirtektir, sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir aiþingismaður, sem
sæti á í undirbúningsnefnd fyrir
aðgerðirnar á morgun.
Hjúkrunarfélag fslands og Fé-
lag háskólamenntaðra hjúkmn-
arfræðinga hvetja til að félags-
menn taki þátt í dagskrá kvenna-
frídagsins og hagræði störfum
þannig að sem flestir komist á
fundi dagsins. Dagvistarheimilin
verða að mestu eða öllu leyti lok-
uð þar sem fóstmr og aðrir starfs-
menn munu ekki mæta til vinnu.
Á skrifstofu Verkakvennafélags-
ins Framsóknar fengust þær upp-
lýsingar að konur í félaginu hefðu
verið hvattar til að leggja niður
störf og mæta á útifundinn og bú-
ist er við góðri þátttöku verka-
kvenna. Talsmaður VR í Reykja-
vík sagði að samkvæmt ákvæðum
samninga ættu konur að mæta í
vinnu þennan dag en taldi það
siðferðilega rétt að konur legðu
niður vinnu og bjóst við mjög al-
mennri þátttöku í aðgerðum
dagsins,
Dagskrá útifundarins á Lækj-
artorgi er birt í auglýsingu á bls. 2
en hann hefst kl. 14. „Kvenna-
smiðjan" verðuropnuð kl. 11 f.h.
og verður opin allan daginn nema
á meðan á útifundinum stendur.
- aró.