Þjóðviljinn - 23.10.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 23.10.1985, Blaðsíða 8
MENNING Þjóðleikhúsið Víf í lúkum Þjóðleikhúsið sýnir Með vífið i lúkunum eftir Ray Cooney Leikstjóri: Benedikt Árnason Leikmynd: Guðrún S. Haraldsdóttir Þýðing: Árni Ibsen Fátt er skemmtilegra en að hlæja, en alræmt er hversu mis- jafnt það er sem mennirnir hlæja að. Það er dálítið skrítin tilfínn- ing að sitja í leikhúsi og hlusta á fólk skellihlæja allt í kringum sig en stökkva varla bros sjálfum. Þetta kom alloft fyrir mig á frum- sýningunni í Þjóðleikhúsinu um daginn, og held ég þó ég hafí ver- ið almennt heldur jákvætt stemmdur og alveg tilbúinn að láta skemmta mér. En það tókst ekki nema stundum. Og þá fer ég að hugsa, hvemig stendur á SVERRIR HÓLMARSSON þessu? Var ég í rauninni svona neikvæður þetta kvöld? Var þetta mér að kenna? Þykja mér farsar almennt leiðinlegir? Er ég kannski með einhver merkileg- heit gagnvart försum? Svona hlýt ég að spyrja, en þegar út í málið er gruflað minn- ist ég þess að hafa séð alveg bráð- fyndna farsa og hlegið heil lifand- is býsn. Þeir hafa að vísu oftast verið eftir Feydau og Dario Fo, sem líklega eru mestir snillingar farsans fyrr og síðar. Farsinn er nefnilega vandasöm listgrein, bæði hvað ritun og leik snertir. Það þarf að feta einhverja hárfína slóð alveg út á ystu nöf geggjun- arinnar og vega þar salt lengi án þess að detta fram af. Þett er furðu mikill vandi. Mér fannst þetta ekki takast nema endmm og sinnum í þessari sýningu. Sumpart hygg ég það stafa af því að verkið er ekki nógu vel skrifað. Farsinn er eins og flókið gangverk þar sem hvert tannhjólið grípur í annað og allt gengur vel smurt, en hér hrikti í gangvirkinu á köflum. Það er ekki nema sjálfsagt að farsinn byggi á dálítið fáránlegum for- sendum og ótrúlegum tilviljun- um, en þessi vesalings leigubíl- stjóri sem hafði komið sér upp tveimur eiginkonum teygði ein- hvern veginn einum um of á trú- verðugleikatilfínninguna. Hins vegar batnar verkið þegar frá líð- ur og flækjurnar verða sífellt óra- kenndari og verkið er orðið frjálslegur hugarburður um margvísleg kynlífstilbrigði, þá kemst verkið nægilega langt frá öllu vemleikaskyni til að verða skemmtilegt um hríð. En það var líka ýmislegt bogið við uppsetninguna. Farsinn krefst mikillar nákvæmni í stíl, útfærslu og tímasetningu. Allt verður að smella saman eins og hjól í vél, því að það er einmitt Eitt verka á sýningu Bjargar á Gallerí Borg. Því miður komast litir ekki til skila í dagblaðssvertunni. Gallerí Borg Björg sýnir krít Á morgun hefst sýning Bjarg- ar Þorsteinsdóttur í Gallerí Borg á30 þurrkrítarmyndum, í litog svarthvítu, og stendur sýningin til 5. nóvember. Þetta er níunda einkasýning Bjargar, en hún hefur að auki sýnt með öðmm heima og er- lendis. Björg er fædd 1940 og menntúð í Reykjavík, Stuttgart og París. Síðasta einkasýning Bjargar var í Norræna húsinu í apríl og sýndi hún þar „collage“- myndir. Verkin á sýningunni í Gallerí Borg em flest frá þessu ári. Sýn- ingin er opin frá tólf til sex virka daga, tvö til sex um helgar. Sigurður Skúlason, örn Árnason og Þórunn Magnea Magnúsdóttir á fjölum Þjóðleikhússins með ýmislegt í lúkunum. Mynd J.Ó. eðli farsans að sýna manninn haga sér vélrænt. Það vantaði al- gerlega heildarstíl á þessa sýn- ingu. Tímasetningar voru mjög á reiki og leikarar léku á mjög ólík- um hraða. Það var t.d. erfítt að átta sig á hvað Örn Árnason var að gera. Hann var allan tímann eins og út úr takt við alla hina, lék á sínum eigin hraða með mjög skrítnar tímasetningar, og náði aldrei neinum föstum tökum á hlutverki sínu. Eini leikarinn sem mér þótti sýna leíkmáta sem hæfði verkinu var Sigurður Sigurjónsson. Hann hefur ekki aðeins óbrigðult tíma- skyn, heldur einnig framúrskar- andi vald yfir réttum hreyfingum, vit á að gera ekki of mikið, og það sem kannski skiptir mestu máli, hann getur komið þjáningu til skila, en farsinn verður nefnilega marklaus ef þjáninguna vantar í hann. Hinir leikaramir voru eins og sitt úr hvorri áttinni. Randver Þorláksson lék hommann á loft- inu vel á sinn hátt, en manngerð- in var einum of augljós skrípa- mynd. Anna Kristín Arngríms- dóttir og Þómnn Magnea Magn- úsdóttir léku ærslaleik með mikl- um fyrirgangi á köflum, og gerðu það stundum prýðilega. Sigurður Skúlason og Pálmi Gestsson voru lögreglumenn og léku á allt öðr- um nótum. Það er því varla hægt að tala um markvissa leikstjórn í þessu tilviki, og þegar við bætist að leik- myndin er skelfilega ljót og lítil- fjörleg - að vísu sama leikmynd og notuð var á ferðalagi, og slíkt fer alltaf illa - þá verður að segj- ast að vinnubrögð við þessa sýn- ingu eru ekki nægilega vönduð. Þýðing Árna Ibsens var hins vegar afbragð, á lifandi máli og oft alveg bráðfyndin. Sverrir Hólmarsson. Kvikmyndir Meistaraverk Heiður Prizzianna/Prizzi’s Honor Bandaríkin 1985 Leikstjóri: John Huston Handrit: Richard Condon og Janet Roach. Kvikmyndataka:Andrzej Bartkowiak Leikarar: Jack Nicholson, Kathlecn Turner, Robert Loggia, Anjelica Huston, William Hickey ofl. ofl. Bíóhöllin Kvenrödd syngur Ave Maria og á tjaldinu birtast freskur með dýrlingum, myndavélin færist aft- ar og í ljós koma grátur í kirkju, hægt aftar, og við sjáum kaþólsk- an prest ásamt hjálparmönnum. Ave Maria heldur áfram, mynda- vélin líka og nú sjást brúðhjón, síðan svaramenn og sveinar og meyjar, og síðan aftar, kirkju- gestir, fyrstur gamall maður sof- andi, svo fleiri, loks Jack NichoJ- son aftarlega, hann fer að kíkja í kringum sig og kemur auga á Kathleen Turner uppá svölum; og síðan fer af stað kvikmyndin Heiður Prizzianna/Prizzi’s Honor, ein besta mynd sem ég hef séð lengi. Kvikmyndir ■ ■ Omurlegt Ástríðuglæpir/Crimes of Passion Bandaríkin 1984 Leikstjóri: Ken Russel Handrit: Barry Sandler, Ken Russel Leikarar: Kathleen Turner, Anthony Perkins ofl. Nýja bíó Bretanum Ken Russel hefur sem fleirum þótt forvitnilegt hvernig tvær andstæðar fylk- ingar, klámiðnaðarmenn og trú- arofstækismenn grassera í Bandaríkjunum, hlið við hlið. í Ástríðuglœpum fylgjumst við með vændiskonu sem kallar sig China Blue og geðveikum predikara, John Shayne, sem smýgur um melluhverfið eins og grár köttur. John Shayne er mik- ið í mun að frelsa China Blue, sem í rauninni heitir Joanne Cane og lifir tvöföldu lífi sem vændis- kona á kvöldin og fatahönnuður hjá virtu fyrirtæki á daginn. Upp úr dúrnum kemur að John Sha- yne álítur að þau séu ein og sama persónan, a.m.k. að hann sé hún (sbr. nöfnin - John Shayne - Jo- anne Cane). Þessi litli sálfræðimoli er kann- ski það eina sem nokkurt hald er í, í mynd sem er jafn ömurleg og hún er vitlaus. Ken Russel gengur feti framar í samlíkingu sinni og gerir China Blue að eins- og vitlaust konar líknara allra þeirra per- verta og vonlausra undirmáls- manna sem til hennar leita. Pre- dikarinn er hinsvegar rekinn áfram af eyðileggingarhvöt: í svörtu töskunni sinni geymir hann gríðarstóran járndildó með hvössum oddi. Örskotsmyndir af þessum dildó, alblóðugum, eru klipptar inn í atburðarásina með vissu millibili, ásamt myndum af nakinni konu sem liggur í blóði sínu. Tvískinnungurinn sem Ken Russel leikur sér að í þessari mynd er hræðilegur. Joanne Cane er kona sem er ekki öll þar sem hún er séð, svo mikið er víst í upphafi myndar- innar. Áhorfandinn býst við að hún búi yfír einhverju ægilegu leyndarmáli. Síðar kemur á vett- vang ungur maður, fagurlega iim- aður, og hrífst af China Blue og hún af honum. Ken Russel hefur fundist að kvenhetja sín ætti skilið að verða loks hamingjusöm í lífinu. í ljós kemur að Joanne Cane á engin hræðileg leyndar- mál, hún hefur bara aldrei kynnst manni áður sem þótti pínulítið væntum hana sjálfa, en ekki t.a.m. háhæluðu skóna hennar eða ljósu hárkolluna. Með sam- bandi þeirra Bobbys (unga mannsins) og Jóhönnu hefst síð- asti kapítulinn í persónulýsingu hennar. En myndin rennur sitt skeið á enda áður en áhorfandinn fer nokkuð að botna í þessari konu, eða þeim skötuhjúum yfir- leitt. Þó berst Kathleen Turner til þrautar. Þetta er einfaldlega verst skrif- aða handrit sem maður hefur lengi komist í kynni við. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 23. október 1985 Hér hjálpast allt að. Fyrst hæfí- leikar og gríðarleg reynsla gamla leikstjórajaxlsins John Huston, svo frásagnartækni skrifuð á sama reikning, töfrabrögð í kvik- myndatöku, frábær filmutónlist, og góður leikur í öllum hlutverk- um: Kathleen Turner ástfangið MÖRÐUR ÁRNASON glæpakvendi, Robert Loggia kaldtempraður guðfaðir, Anjel- ica Huston útfarin afbrýðis- fammfatal. Að ógleymdum og síðast en ekki síst Jack Nicholson sem er besti leikari í Ameríku og fer hér á þeim kostum að meiraaðsegja mig vantar lýsingarorð. Efnið er innanhússraunir mafí- ósa þar sem peningar toga í eina rófu, ástin í aðra og heiður Fjöl- skyldunnar í þá þriðju. Húmor frá upphafi til endis en geirnegld- ur í innrabyrðið á áhorfendum með nokkrum yfirþyrmilegum byssutörnum. Fjölskyldan er að lokum sigurvegarinn; þetta gæti þessvegna verið brosmild nú- tímaútgáfa af íslendingasögum. Ekki fleiri orð um Prizzi og Nicholson. Að þeim er hvorteðer h'tið gagn annað en að geta bent lesendum á leiðina upp að Bíó- höllinni í Breiðholti. Bœkur Endur- minningar Einars Braga Mál og menning hefur nú gef- ið út endurminningar Einars Braga rithöfundar, og nefnist bókin Af mönnum ertu kom- inn. Einar Bragi fæddist og ólst upp á Eskifirði og Eskifjörður er helsta sögusvið þessarar bókar, en einnig eru raktar minningar af Austfjörðum öðrum og Skafta- fellssýslum. Fjölmargir Eskfirðingar koma við sögu, en í frásagnarmiðju eru foreldrar skáldsins, Sigurður Jó- hannsson skipstjóri og Borghild- ur Einarsdóttir, lífsbarátta þeirra og kjör.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.