Þjóðviljinn - 23.10.1985, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna
Fram
Vín í
Frarnarar mæta stórskotaliði
Rapid Wien á Gerhard Hanappi
leikvanginum í Vínarborg í
kvöld. Þetta er fyrri viðureign lið-
anna í 2. umferð Evrópukeppni
bikarhafa en síðari leikurinn fer
fram á Laugardalsvellinum mið-
vikudaginn 6. nóvember kl.
14.30.
Róður Framara í kvöld verður
leikur í
kvöld
mjög þungur. Rapid hefur ekki
tapað í fyrstu 14 umferðunum í
Austurríki - er efst með 25 stig og
markatöluna ógnvænlega, 55:8.
Hans Krankl og Júgóslavinn
Kranjcar eru tveir af markahæstu
leikmönnum Evrópu um þessar
mundir og hafa skorað rúmlega
30 af þessum mörkum.
- VS
Landsliðið
Tveir sigrar
íslenska karlalandsliðið í
handknattleik lék þrjá æfinga-
leiki gegn „íslendingaliðum“ í
Vestur-Þýskalandi um helgina.
Liðið vann Lemgo 26:16 á föstu-
dagskvöldið og Wanne-Eickel
26:22 á laugardaginn en gerði síð-
an jafntefli við Hameln, 26:26, í
fyrrakvöld.
Strax að loknum leiknum við
Hameln hélt íslenska liðið til
Sviss. Þar tekur það þátt í sterku
alþjóðlegu móti sem hefst í dag. í
fyrstu umferð mætast A.Þýska-
land og Sviss-b, ísland og Sviss,
og loks Svíþjóð og Rúmenía.
Mótinu lýkur á sunnudaginn.
Páll Ólafsson var markahæstur
í fyrsta leiknum, gegn Lemgo, og
skoraði þá 11 mörk. Alfreð
Gíslason skoraði flest mörk gegn
Wanne-Eickel, 6, og Atli Hilm-
arsson var síðan markahæstur
gegn Hameln með 6 mörk.
- VS
Handbolti
Fylkir vann tvo
Fylkismenn tóku vel við sér í 3.
deildinni í handknattleik um helg-
ina eftir að hafa tapað tveimur
fyrstu leikjum sínum. Þeir sigr-
uðu Völsunga 22-16 að Laugum
og síðan Þórsara 21-13 á Akur-
eyri.
Staðan í 3. deild er þá þessi:
lA...............3 2 1 0 68-54 5
ReynirS..........3 2 1 0 61-56 5
Þór A 4 2 1 1 83-76 5
UMFN 3 2 0 1 87-80 4
Týr 4 2 0 2 100-80 4
(BK 3 2 0 1 80-54 4
(H 3 2 0 1 85-83 4
Selfoss 3 1 2 0 71-65 4
Fylkir 4 2 0 2 76-66 4
Völsungur 4 1 0 3 94-100 2
Skallagrímur 3 1 0 2 62-75 2
Hveragerði 4 0 1 3 106-130 1
ögri 3 0 0 3 34-88 0
-vs
Handbolti
Valur-Fram í úrslitum
Valur og Fram leika til úrslita á
Reykjavíkurmótinu í meistaraflokki
karla í handknattleik. Valsmenn sigr-
uðu spútniklið ÍR 29-21 i gærkvöldi
og Víkingur vann Þrótt 37-27. Fram
var yflr gegn Ármanni þegar blaðið
fór í prentun. Það verða Víkingar og
ÍR sem leika um þriðja sætið á mótinu
en úrslitaleikirnir fara fram á sunnu-
daginn.
-VS
Atlamótið
TBR vann allt
Keppendur frá TBR sigruðu í
öllum greinum á Atlamótinu í
badminton sem fram fór á Akra-
nesi um síðustu helgi.
Wang Junie sigraði í einliða-
leik karla, Þórdís Edwald í ein-
liðaleik kvenna, Wang og Sigfús
Ægir Árnason í tvfliðaleik karla,
Þórdís og Elísabet Þórðardóttir í
tvfliðaleik kvenna og þau Jóhann
Kjartansson og Kristín Magnús-
dóttir báru sigur úr býtum í
tvenndarleik. Sigurvegararnir
eru á myndinni hér að ofan.
Kiwanisklúbburinn Þyrill og
Badmintonfélag Akraness sam-
einuðust um þetta minningarmót
en Atli Þór Helgason, sem lést af
slysförum fyrir fimm árum, var
mikilvirkur meðlimur í báðum fé-
lögum.
England
Upp-
reisn
æm!
Jafntefli South-
ampton og Liverpool
Southampton fékk nokkra
uppreisn æru eftir 7-0 skellinn
gegn Luton s.l. laugardag með
því að gera jafntefli, 1-1, við Li-
verpool í Super-Cup keppninni í
gærkvöldi.
David Armstrong kom Sout-
hampton yfir úr vítaspyrnu 12
mínútum fyrir leikslok en aðeins
tveimur mínútum síðar jafnaði
Paul Walsh fyrir Liverpool.
Sunderland og Millwall fjar-
lægðust hættusvæðið í 2. deild
með þýðingarmiklum sigrum.
Sunderland vann nágrannana frá
Middlesboro 1-0 og Millwall sigr-
aði botnliðið Carlisle 3-1.
Derby County komst í annað
sætið í 3. deild með 2-1 útisigri í
Gillingham. Walsall og Notts Co-
unty töpuðu sínum leikjum á
meðan og Wigan og Brentford
skutust uppí þriðja og fjórða sæt-
ið.
-VS/Reuter
Hreiðar Hrei&arsson átti góðan leik með Njarðvíkingunum í gærkvöldi og
hér skorar hann þrátt fyrir varnartilburði ívars Asgrímssonar. Mynd: E.ÓI.
Úrvalsdeildin
Stadan
I úrvalsdeildinni í körfuknattlelk:
UMFN...........4 4 0 343-293 8
(BK............4 3 1 303-309 6
Haukar.........4 2 2 292-296 4
Valur..........4 1 3 283-286 2
IR.............4 1 3 306-324 2
KR.............4 1 3 289-308 2
Stlgahæstir:
Valurlngimundarson, UMFN.
RagnarTorfason, |R.........
BirgirMikaelsson, KR.......
Jón Kr. Gíslason, IBK......
Pálmar Sigurðsson, Haukum.
Haukar og KR leika annað kvöld f
Hafnarfírði kl. 20 og á föstudags-
kvöldið mætast efstu liðin, ÍBK og
UMFN, f Keflavík.
Heljartökum haldiö
Njarðvík vann með 19 stigum í Hafnarfirði. Alltaf yfir.
Njarðvíkingar hafa enn helj-
artök á Haukum. Þau eru teljandi
á fingrum annarar handar þau
skipti er Haukar hafa unnið
Njarðvík. Og á þessu varð engin
breyting í gær. Njarðvíkingar
unnu auðveldan sigur á slöku liði
Hauka 96-77.
Það sem einkenndi fyrri hálf-
leikinn var taugaveiklun. Leik-
menn beggja liða gerðu sig seka
um tvígrip og skref trekk í trekk.
Auk þess var sóknarnýtingin
mjög léleg, sérstaklega hjá
Hafnarflörður 22.10.
Haukar-UMFN 77-96 (33-
43)
5-12, 16-26, 24-41, 33-43, 39-59, 51-
61, 53-70, 65-79, 77-96.
Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 18,
Viðar Vignisson 16, (var Webster 13,
Henning Henningsson 12 og (varÁs-
grímsson 12, Eyþór Árnason 2, Ólafur
Rafnsson 2 og Kristinn Kristinsson 2.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson
33, Jóhannes Kristbjörnsson 18, Helgi
Rafnsson 12, Ámi Lárusson 11, (sak
Tómasson 8, Kristinn Einarsson 6 og
Hreiðar Hreiðarsson 6, Ingimar Jóns-
son 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Bergur Steingrímsson, - sæmilegir.
Maður leiksins: Valur Ingimundar-
son, UMFN.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Haukum. Njarðvíkingar náðu á
þessum tíma 10 stiga forskoti,
sem þeir höfðu nær allan leikinn.
Staðan í hálfleik var 43-33 Njarð-
vík í vil.
í byrjun síðari hálfleiks náðu
Njarðvíkingar að auka forskotið
og ná 20 stiga mun. Þá tóku
Haukarnir kipp og leit allt út fyrir
að þeir næðu að jafna. En þá kom
aftur slakur kafli hjá þeim og
Njarðvíkingar bættu aftur við
forskotið og sigruðu með 19 stiga
mun.
Fyrirfram var búist við hörku-
leik, þar sem þetta eru tvö topp-
liðin og urðu menn því fyrir von-
brigðum. Leikurinn náði því
aldrei að verða spennandi.
Hjá Njarðvík var Valur Ingi-
mundarson mjög góður, en auk
hans áttu þeir Jóhannes Krist-
björnsson og Hreiðar Hreiðars-
son góðan leik.
Hjá Haukum var Pálmar Sig-
urðsson bestur. fvar Webster átti
góðan leik í vörninni, en var mis-
tækur í sókninni. - Logi.
A tvinnumennska
Omartil Luzem?
Rangers sýnir honum einnig áhuga
Ómari Torfasyni, markakóngi
1. deildarkeppninnar í knatt-
spyrnu, hefur verið boðið til
æfínga hjá svissneska 1. deildar-
félaginu Luzern, liðinu sem Sig-
urður Grétarsson leikur með.
Ómar fer til Sviss að loknum
Evrópuleik Framara í Vín í kvöld
og dvelur í nokkra daga hjá Luz-
ern en félagið hefur hug á að
bjóða honum atvinnusamning.
Skoska stórliðið Glasgow hefur
einnig sýnt áhuga á að fá Ómar til
liðs við sig.
-VS