Þjóðviljinn - 29.10.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 29.10.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Bónussamningar Þarf einfaldara kerfi GuðmundurJ. Guðmundssonformaður VMSÍ: Fráleittað taka eitt afbrigðið út og alhœfa útkomuna yfir alla línuna. Harma viðbrögð norðanmanna Allar kannanir sem gerðar hafa verið eftir að þessir nýju bón- ussamningar tóku gildi, sýna að atvinnurekendur þurfa að borga mun meira en áður. Það væri ákaflega merkilegt ef ekki kæmi fram einhver galli á þessu nýja kerfi. Ég tel að þetta þurfi um 2ja mánaða reynslutíma. Samning- arnir eiga að endurskoðast fyrir 1. aprfl n.k. og sú endurskoðun er þegar byrjuð, segir Guðmundur J. Guðmundsson formaður Vcrkamannsambands íslands. Miklar umræður hafa verið um bónussamninga sem VMSÍ gerði fyrr í sumar en þó nokkur verka- lýðsfélög hafa fellt samningana og forsvarsmenn verkalýðsfélaga á Akureyri hafa gagnrýnt að samningarnir komi illa út fyrir þá sem skila lágmarksvinnuaf- köstum. „í þessum samningum erum 30 afbrigði við úteikninga að ræða og það er fráleitt að taka út eitt afbrigðið og alhæfa þá útkomu yfir alla línuna eins og gert hefur verið. Eg harma þessi viðbrögð norðanmanna, mér finnst ófé- lagslegur tónn í þeim. Allar breytingar á bónus hafa ávallt kostað deilur innbyrðis en að taka eitt afbrigði samninganna útúr og sleppa því að um veru- legar hækkanir hafi verið að ræða á öllum grunnum er ekki sann- gjarnt,“ sagði Guðmundur. -Ig Bónussamningar Mismunurinn of mikill Þóra Hjaltadóttir formaður Alþýðusambands Norðurlands: Viljum grundvallarbreytingar á VMSÍ-samningnum Það er mikil óánægja hjá fólki. Því líkar ekki að það sé verið að brcikka bilið enn meira á milli þess. Við viljum fá fram grund- vallarbreytingu á þessum bónus- samningi Verkamannasambandsins, segir Þóra Hjaltadóttir formaður Al- þýðusambands Norðurlands. Verkalýðsfélagið Eining á Ak- ureyri hefur lagt fram kröfur wmsmm sínar um breyttan bónussamning en félögin fyrir norðan tóku ekki þátt í samningagerðinni með VMSf í surnar. Lítið hefur enn þokast í samningunum en í sl. viku héldu nokkur félög á Norð- urlandi ásamt forystumönnum Alþýðusambands Vestjfarða samráðsfund þar sem staða bón- ussamninga var rædd. „Ef ekkert gengur í okkar þreifingum á næstu dögum þá verður að blása til samstarfs með þessum fé- lögum,“ segir Þóra. Verkalýðsfé- lögin á Hornafirði og í Þorláks- höfn hafa sýnt slíkri samstöðu áhuga. Þóra segir að í bónussamningi VMSÍ ríkti hraðinn mun meira en nýtingin við kaupútreikning. Ef vinnuafköst séu í lágmarki en nýtingin góð fáist lítill sem enginn bónus en ef hraðinn er t.d. mikill en nýtingin léleg fáist mun meiri bónus. „Þessi mismunur á botninum er mjög mikill og við viljum að miðað sé við gamla fyrirkomu- lagið þar sem hraði og nýting voru metin jafnara við út- reikningana,“ sagði Þóra. -lg BSRB þingið Ný stjóm Kristján Thorlacius endurkjörinn formaður. Örlygur Geirsson annar varaformaður. Varastjórn riðlaðist Aðalstjórn BSRB var sjálfkjör- in á lokadegi þingsins á laugar- daginn, og sömuleiðis formaður og varaformaður. Kristján Thorlacius var endurkjörinn for- maður, Albert Kristinsson fyrsti varaformaður, og Örlygur Geirs- son var kosinn annar varafor- maður. í aðalstjórn sitja nú: Ásta Sig- urðardóttir, Einar Ólafsson, Haukur Helgason, Hólmfríður Geirsdóttir, Sjöfn Ingólfsdóttir, Sæmundur Guðmundsson og Þorgeir Ingvason. Varastjórn varð nokkuð frá- brugðin því sem kjörnefnd lagði til í upphafi, þ.e.a.s. röð stjórnar- manna breyttist. Eftir að kjör- nefnd hafði kynnt tillögur sínar, var stungið upp á Ragnari Stef- ánssyni út úr sal og var þá kosið upp á nýtt. Þá má segja að röð varamanna hafi snúist við og er hún nú skipuð þannig: í fyrsta sæti Þorgerður Jóhannsdóttir, 2. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, 3. Oddur Pétursson, 4. Ragna Ól- afsdóttir, 5. Helgi Andrésson, 6. Sigrún Aspelund og í sjöunda sæti varð Ólafur Jónsson. Kjör- nefnd hafði lagt til að Sigrún Aspelund yrði fyrsti varamaður. Ragnar Stefánsson hlaut 88 at- kvæði í kosningunni og dugði það ekki til. Utbreiðslunefnd var einnig kosin á laugardaginn. Hana skipa Úlfar Teitsson, Jóhannes Gunn- arsson, Erlingur Aðalsteinsson, Gísli Baldvinsson og Ögmundur Jónasson. Varmenn eru Randver Þorláksson og Lilja Guðmunds- dóttir. Þá á stjórn BSRB eftir að tilnefna tvo menn í nefndina. Út- breiðslunefndin er nýtt fyrirbæri í BSRB og er talið að hún geti haft talsverð áhrif, en hún á að sjá um öll áróðursmál fyrir bandalagið. -gg Vfsindi og stjórnmál. Þingmenn Alþýðubandalagsins fóru í náms- og kynnisferð í Rannsóknastofnun landbúnaðarins í gærdag og var forkunnarvel tekið af vísindamönnum og starfsfólki. -Ljósm. Sig. M. Öryggismálin Ólafsvík Óttast fólksflótta Kvótinn búinn. Hraðfrystihúsinu lokað. Yfir50 manns án atvinnu. Sjávarútvegsráðherra harðlega gagnrýndur. Kvótakerfi og gengisstefnu stjórnarinnar kennt um hvenær og hvort frystihúsið kom- ist í rekstur á ný. „Þetta er mjög svart og það er ekki auðvelt að koma hlutunum í gang aftur þeg- ar búið er að stoppa." Á almennri ráðstefnu um at- vinnumál sem haldin var í Ólafs- vík á laugardag var kvótakerfinu Þetta er skammarlegt Óskar Vigfússonformaður Sjómannasambandsins: Það er til háborinnar skammar að7% fiskiskipaflotans skuli vera án haffœrisskírteinis Þetta er mjög alvarlegt ástand og það eru engar lausnir í at- vinnumálum sem maður eygir í augnablikinu. Það fólk sem hefur misst atvinnuna hefur ekki í neitt annað að hverfa hérna og maður óttast að fólkið hreinlega flýi héð- an, segir Bárður Jensson formað- ur verkalýðsfélagsins Jökuls í Ól- afsvík. harðlega mótmælt og hart deilt á sjávarútvegsráðherra sem sat ráðstefnuna. Var nýframlögðu kvótafrumvarpi mótmælt og skorað á ráðherrann að gefa línu- veiðar heimabáta frjálsar til ára- mó.ta, til að bjarga atvinnulífinu á staðnum. -Ig Pað er vissulega margt að í ör- yggismálum sjómanna, en það er að mínum dómi til hábor- innar skammar að 7% fiskiskipa- flotans skuli reynast vera án haf- færissklrteinis við skyndiskoðan- ir á 12 mánuðum, sagði Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambands íslands, er Þjóðviljinn leitaði álits hans á frétt blaðsins sl. laugardag um að 7% flotans reyndist vera án aff- Á sjötta tug manna er á atvinnuleysisskrá í Ólafsvík eftir að stærsta fyrirtækinu í bænum, Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur h/f var lokað í sl. viku. „Þessi rekstrarstöðvun er fyrst og fremst afleiðing af kvótakerf- inu og gengisstefnu ríkisstjórnar- innar. Þessum atvinnuvegi er haldið í bullandi tapi, þannig af ef maður er ekki í fullum afköstum til að velta vandanum á undan sér, þá stoppar þetta sjálfkrafa," segir Guðmundur Björnsson framkvæmdastjóri Hraðfrysti- hússins. Hann segir alveg óvíst Grikklandsvinir Hellas með fund Grikklandsvinafélagið Hellas, sem stofnað var í fyrravetur, byrjar vetrarstarf sitt að þessu sinni með fundi í Oddfellowhúsinu, Vonarstræti 10, flmmtudaginn 31. október kl. 20.30. Þar mun Kristján Árnason menntaskólakennari flytja fyrirlcstur um Grískar menntir á íslandi og einkum fjalla um þýðing- ar eldri og yngri skálda á forngrískum bókmenntum. Viðar Eggertsson leikari mun lesa valda kafla úr þessum þýðingum. f framhaldi af því mun síðan Þor- steinn Þorsteinsson menntaskólakennari fjalla um grískar nútímabókmcnntir á fundi í byrjun janúar og kynna íslenskar þýðingar á þeim. Á fundinum á fimmtudaginn verður ennfremur sýnd stutt vídeómynd um Aþenu og helstu sögustaði á nágrenni hennar, svo sem Delfí, Mýkenu, Epídavros og eyjarnar sem ferða- ntenn heimsækja gjarna í dagssiglingu frá Aþenu. Loks kemur á fundinn grískur ferðamálafrömuður, Basil Nakos, forstjóri KM Travel&Tourism, og skýrir fyrir félagsmönnum hugmyndir st'nar um heppilegustu tilhögun á fyrirhugaðri menningarferð urn Grikkland á vori komanda undir leiðsögn formanns, Sigurðar A. Magnússonar. Milli atriða verður leikin grísk tónlist af hljómböndum. Bornar verða fram veitingar meðan á fundi stendur. Allir velunnarar Grikklands eru vel komnir á fundinn. ærisskírteinis við skyndiskoðun Landhelgisgæslunnar á 12 mán- aða tímabili. Óskar sagði að ástandið í ör- yggismálum sjómanna hefði vissulega batnað mikið á tiltölu- lega stuttum tíma, en samt væri enn mjög margt að. Og ef menn vildu vera raunsæir þá væri mjög erfitt að lagfæra þetta. Lög og reglugerðir duga skammt, það er fyrst og fremst hugarfarsbreyting hjá sjómönnum sjálfum sem verður að koma til, sagði Óskar. Hann benti á að tíð áhafna- skipti á fiskiskipum væru eitt það versta í þessu efni. Menn væru á tveimur jafnvel þremur bátum yfir árið. Fyrir bragðið vissu menn ekki hvar öll björgunar- tækin væru geymd í skipunum og skipstjórnarmenn væru kæru- lausir um að kynna nýjum mönnum hvar þau væri að finna. í þessu máli eiga margir sök en ég geri mér grein fyrir því að erfitt er að leysa það í eitt skipti fyrir öll, nema allir sjómenn leggist á eitt um það, aðrir leysa vandann trauðla fyrir þá, sagði Óskar. -S.dór ÞJOÐVILJINN - SIÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.