Þjóðviljinn - 29.10.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 29.10.1985, Blaðsíða 6
FLÓAMARKAÐURINN Einstakt tækifæri Trommuheili á gjafverði Lítið notaður sem nýr Roland RT- 808 trommuheili, til sölu. Selst á að- eins 10.000 krónur. Upplýsingar í síma 36718 flestar stundir dagsins. Símaborð Símaborð með Ijósi og skáhillu fyrir skrifblokk, til sölu. Hringið í síma 35742. Svampdýna - hjónarúm Nýleg tvíbreið svampdýna fæst gef- ins. Nýlegt hjónarúm selst ódýrt. Sími 685423. Til sölu Hjónarúm með nýlegum springdýn- um, selst á 5.000 kr. Einnig stór, gamall ísskápur með frystihólfi, kælir mjög vel, á 2.000 kr. Upplýsingar á Digranesvegi 120, Kópavogi, eftir kl. 19. Herbergi óskast óska eftir að taka á leigu herbergi í Vesturbæ með aðgangi að eldhúsi og snyrtingu. Upplýsingar í síma 10172. Flygill til sölu Gamall, en nýuppgerður Hörung og Möller flygill til sölu. Upplýsingar í síma 671037. Ibúð óskast til leigu Eldri maður óskar eftir að taka 2ja herb. íbúð á leigu í miðbæ eða Vest- urbæ. Upplýsingar í síma 10172. Dúkkurúm tii sölu hvít, með handmáluðum rósum í tveimur stærðum. Rúmin eru skrúfuð og límd saman og er óhætt að fullyrða að þau endast í mannsaldur. Auður Oddgeirsdóttir, sími 611036. Flóamarkaður Dýraverndunarsambandsins að Hafnarstræti 17, kjallara, eropinn: mánudaga, þriðjudaga og miðviku- dagafrákl. 2-6 e.h. Fjölbreytturvarn- ingur á boðstólum. Gjöfum veitt mót- taka á sama stað og tíma. Ykkar stuðningur - okkar hjálp. Samband Dýraverndunarfélags íslands. Svefnbekkur til sölu með rúmfatageymslu í höfuðgafli, áfastri hlið öðrumegin með hillu. Lengd á dýnu 198 cm, breidd 85 cm. Selst á hálfvirði. Upplýsingar í síma 29498. Saumaskapur Saumastofa úti á landi tekur að sér saum ullarfatnaði og ýmsu öðru. Sími 99-7667 og 99-7641. Mig vantar pening í skólann Gott kvenmannsreiðhjól til sölu. Upp- lýsingar í síma 72900. Óska eftir að kaupa kvenmannsreiðhjól og barnastól á hjól. Hringið í síma 17087. Óska eftir 2-3 herbergja íbúð miðsvæðis í borg- inni. Góðri umgengni heitið. Einhver fyrirframgreiðsla ef óskað er. Nánari upplýsingar í síma 22346 eftir kl. 18. Eldgamall barnavagn Okkur vantar eldgamlan barnavagn (eða hjólin undan honum) frá því um aldamót, til að nota í leikmynd. Erum í síma 15813 eftir kl. 20 í kvöld eða í símum 15442 og 29125 næstu kvöld. Nemendur í leiklistarskóla ís- lands. Þvottavél til sölu Til sölu notuð Morty Richards 518 þvottavél og einstaklingsrúm, með springdýnum sett saman á hliðum. Upplýsingar í síma 19707, eftir kl. 20. Til sölu er gömul og góð Westinghouse þvottavél, getur tekið allt að 8 kg í einu. Einnig tvíbreiður svefnsófi. Hvorttveggja selst gegn vægu verði. Á sama stað óskast tvöfaldur vaskur til kaups. Frekari upplýsingar í síma 610316. Húsgögn til sölu Rúm, náttborð og skápur með inn- byggðu skrifborði til sölu. Upplýsing- ar í síma 83968 milli kl. 18 og 19 alla daga. Til sölu hekluð lopapeysa. Falleg gjöf til vina hérlendis sem erlendis. Upplýsingar í síma 79248. Barnfóstra - USA Tvítug stúlka óskast til barnfóstru- og heimilisstarfa í New York. Nánari upplýsingar í síma 77393. Vélritun - heimavinna Vanur vélritari getur tekið að sér vél- ritun í smáum og stórum verkefnum. Islenska, sænska, danska, enska. Upplýsingar í síma 15734. Verkstæöispláss óskast til leigu, 60-80 fermetrar. Verður að hafa vatn og rafmagn. Lofum góðri umgengni. Upplýsingar í síma 28321 og 44944. Ræstingar Þjóöviljann vantar starfsmann til ræstinga. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 81333. Leslu oðeins stjómarbloðin? Höfuðmálgagn stjórnarandstöðunnar Áskriftarsími (91)81333 FÓLK ÁFERÐ! \ Þegar fjölskyldan ferðast er mikilvægt að hver sé á sínum stað — með beltið spennt. mIumferðar j Mráð y FRÁ LESENDUM Jafnretti kynjanna Nú kemur brátt sá dagur sem markar þau tímamót að liðin eru 10 ár frá byrjun kvennaáratugar- ins títtnefnda. Við erfiðan mál- stað, er tekur í raun til allrar mannkynssögunnar, er eðlilegt að vakni sú spurning hvort eitthvað hafi áunnist í baráttu kynjanna að mætast og líta á hvort annað sem manneskjur með sama siðferðilegan rétt. Við skoðun á sögu þessa hnatt- ar, kemur í ljós að vinsælt hefur verið að flokka okkur í háa og lága, hvít og svört, misgul, heil og sjúk, spariklædd með stöðutákn ýmisskonar, með mislaunaða þræla í vinnu, en svona má áfram halda sem þið vitið innst inni. Ekkert vekur nefnilega meiri fögnuð í hjörtum velunnara mis- réttis heldur en að kynin deili sem harðast um það hvort skuli vaska upp, elda matinn, þurrka börn- um um munna, aka bílnum, versla í matinn, bera pokana og svo mætti lengi áfram telja nær endalaust. í fáum orðum virðist mest orkan fara í að loka augum og eyrum frá því sem ég tel orsök misréttis kynjanna. Hina raunverulegu orsök mis- réttis tel ég vera þá blindu í fólki almennt, að vera sífellt að kepp- ast við að vera meiri öðrum. Þessi hundgamla ást í veraldlegan auð, hlýtur að hafa það í för með sér að aðrir verða misrétti beittir. Sú náðargáfa sem umburðar- lyndi nefnist, virðast konur hafa í ríkara mæli en karlar. Blessaðar stúlkurnar hafa semsagt fórnað rétti sínum fyrir stundarfrið í formi undirgefni við skilnings- sljóa karla. Ef að við hugsum okkur skák, karl teflir við konu, karlinn gæti þess að halda henni frá þekkingu á leikfléttum er bera þann árangur að hann verði undir, semsagt særi karlmennsk- una. Hvenær í ósköpunum áttar fólk sig almennara á því að jafnrétti kynjanna snýst ei um rifrildi um verkefni, heldur hreina stéttabaráttu. Baráttuna um að auðurinn, afrakstur vinn- unnar, hætti að safnast á fáar hendur aurafíkinna, heldur fari að dreifast á allar hendur réttlát- lega. Þetta er spurning um áhersl- upunkt, því fram að þessu hefur orka jafnréttissinnaðra af báðum kynjum farið í að deiia um verk- efnaskiptingu, en ekki um rót meinsins, jafnrétti til lifibrauðs. Sú staðreynd, að konur hafa í gegnum allar aldir treyst í lotning körlum fyrir stjórn mála, hefur haft þá eðlilegu afleiðingu að þeir þykjast eiga heiminn og allt sem í honum er. Það þarf að fara að renna upp fyrir ykkur það ljós stúlkur mínar að karlarnir hafa brugðist trausti ykkar. Útkoman heitir: Ég ég ég. Hugsandi um mest sig, hafa karlarnir reist sér eigið samtryggingarbákn, rétt- nefni leiðtoga þeirra kerfiskallar. Þrælar vanans eru þeir réttnefnd- ir. En eitt skuluð þið athuga, þeir hræðast allar breytingar, þræða allar leiðir til réttíætingar stefnu sinni. Þið skulið bara fara að ræða þessi mál stelpur og fáíð til liðs við ykkur stráka réttsýna og þá detta vopnin úr höndum þeirra í áföngum sem ábyrgð bera. Karlarnir hópast til iðrun- ar, ef þið komið þessum leið- togum til þess að finna til sektar á réttan hátt. Á þessum áratug haf- ið þið bent þeim á margt, en þið verðið að athuga að stilla betur saman strengi ykkar. Stofnið al- vöru samtök um málstaðinn, hættið að rífast um leiðir, því ekkert gleður þá meir. Þetta er í raun svo einfalt mál að óska þess að karlar og konur eigi jafnan rétt til launa, náms, starfs, semsagt alla þætti samfélagsins. Við skulum öll muna að þjóðfélagið er eitt stórt heimili. Stjórn þessa heimilis hafa annast misvitrir menn í gegnum tíðina, þjáðir af fjarveru ykkar, stelpur. Það er nú einu sinni staðreynd, já og almennt viðurkennd meira- segja, að karlar og könur eru ekki alveg eins í allri hugsun og kemur það til af ýmsu sem við þekkjum öll. Karlarnir státa sig af því að hafa meiri líkamlega burði. En þorið þið að segja þeim almennt að þið eigið ei síðra fram að færa, tilfinningalegu hliðina. Sú hlið flytur nefnilega fjöll, að sagt er. Konur, fram nú allar, og farið að fletta þennan skrípaleik kerf- isins klæðum. Alveg er ég viss um að þið getið það með réttum spil- um. Nú hlýtur að vera komið að fæðingunni eftir tíu ára með- göngu. Þið hafið verið kúgaðar á svo margan hátt í gegnum aldirn- ar, órannsakanlegt umburðar- lyndið ykkar, víst er um það. Verið svo vissar um það að við erum margir sem blöskrar hátt- erni kerfisins, vitandi það að þið stelpur, komuð lítið nálægt bygg- ingu þess. Baráttukveðjur 17.10. Ágúst Oli. Símon Mámsson frá Siglufirði F. 3. október 1902. Símon Márusson er allur. Hann lést liðlega 83ja ára gamall. Hann var elstur af stórum barna- hópi föður síns og stjúpu. Hann ólst upp við kröpp kjör sveitalífs þeirra tíma og lærði því ungur að vinna og bera ábyrgð. Þessi uppvaxtarár mótuðu við- horf hans til lífsins enda varð honum tíðrætt um sveitina og sauðburðinn. Hann þekkti af eigin raun þá nálgun sköpunar- verksins að sitja yfir lambfé á sauðburði og sjá líf kvikna í kyrrð íslenskrar vornætur, þegar tím- inn verður afstætt hugtak og frumþarfir mannsins til hvíldar og svefns gleymast. Þessar stundir urðu honum svo hugleiknar að hann hélt áfram að annast um sauðfé eftir að hann hafði stofnað heimili í kaupstað og tekið sér starf daglauna- mannsins. Þessi fjárbúskapur á litlu lóðinni við Hlíðarveg í Siglu- firði veitti honum ótaldar ánægj- ustundir. Það var eins og þreytan gleymdist þegar hann kom heim að afloknu dagsverki og tók að snúast í kringum kindurnar sínar. Þær voru persónur með eigin skapgerð og vilj a, og urðu Símoni óþrjótandi umræðuefni allt til hans síðustu daga. Trúlega munu flestir minnast Símonar sem kyndara á ketilhúsi síldarverksmiðjanna í Siglufirði. Fáir hafa skilið þar eftir sig fleiri svitadropa en Símon. Starf kyndarans á fyrstu árum verk- smiðjanna var stöðugt strit við kolamokstur. Jafnframt því varð kyndarinn að þekkja katlana og þeirra viðbrögð við eldsmatnum. Símon þekkti þá. Hann heyrði jafnan á drunum ketilsins ef hleðsla múrsteinanna hafði hagg- ast. Símon kynti í tæp 40 ár og varð þess aðnjótandi að kynnast að eigin raun þeim breytingum sem urðu á störfum kyndarans við að hverfa frá kolakynding- unni til þess að fá eldsneytið rennandi sem olíu eftir leiðslum beint inn í ketilinn. Þá varð hægt D. 22. október 1985. að stjórna kyndingunni með því að skrúfa til krana í stað þess að moka kolum mismunandi hratt. Þetta kunni Símon að meta enda dáðist hann að hugviti mannsins og þeirri tækniþróun sem það leiðir af sér. Hann trúði því stað- fastlega að tæknin miðaði að því að gera mannlífið léttara og ánægjulegra. Alla tíð dáðist hann að fersk- leika og sjálfstæði æskufólksins og naut þess að hafa í kringum sig unglinga við störf og leik enda sóttust unglingar eftir því að fá að vinna undir leiðbeiningum og stjórn hans. Símon las mikið og var ótrú- lega fróður og minnugur á það, sem hann hafði lesið. Hann fylgd- ist því alltaf með atburðarás sam- tíðarinnar, ekki einungis þeirrar sem næst honum stóð, heldur einnig fjarlægra heimshluta. Bókin stytti honum stundir síð- ustu æviárin þegar hann undi glaður við sitt hlutskifti á heimili dóttur sinnar og tengdasonar í Hafnarfirði. Þar leið honum vel og var þakklátur fyrir hvert það lítilræði, sem fyrir hann var gert., Hann var sáttur við lífið og það að hafa skilað sínu starfi til næstu kynslóðar. „Vitur maður hefur sagt að næst því að missa móður sína sé fátt hollara ungum börnum en að missa föður sinn”, eru upphafs- orð merkrar bókar. Símon missti móður sína á ungbarnsaldri. í huga hans var móðir hans ímynd fegurðar og gæsku. Líklegt er að meðal annars þetta hafi orðið til þess að hann bar í brjósti óvenju- mikinn hlýhug til þeirra kvenna sem stóðu honum næst um ævina, til ömmu sinnar, stjúpu sinnar, eiginkonu og dætra sinna. Hann var stoltur af sínum afkomend- um, enda barngóður með af-' brigðum. Það var unun að sjá hann meðal barnanna. Þótt hann gæti lítið borið sig um á síðustu æviárunum hélt hann börnunum í nálægð sinni með viðmótinu einu saman. Það var eitthvað svo notalegt að skríða í holuna hans afa... En nú er afi dáinn og við verð- um að láta okkur nægja ylinn af minningunum. Við kveðjum þig Símon með söknuði og þakklæti. Atli Dagbjartsson. Okkar ástkæri afi, Símon Már- usson frá Siglufirði er kvaddur í dag frá þjóðkirkjunni í Hafnar- firði. Hann bjó lengst af í Siglufirði að Hlíðarvegi 23, með eftirlifandi konu sinni Ölöfu Bessadóttur. Það var margs að minnast er við komum saman systkinin, og ákváðum að skrifa nokkrar kveðjulínur. Okkar æskuár voru á Hólavegi 10 Siglufirði, og var stutt að hoppa yfir girðinguna til afa og ^mmu. Stundir okkar voru ófáar hjá afa í kjallaranum, er hann var að smíða handa okkur sleða eða skíði, svo eitthvað sé nefnt. Fengum við auðvitað að taka til hendinni með honum, og nutum þolinmæði hans. Ekki spillti það ánægjunni að fara svo upp til ömmu og fá eitthvað gott í magann. Síðustu ár æfi sinnar bjó afi hjá foreldrum okkar, og verður erfitt fyrir okkur og barnabarnabörn hans, sem áttu svo margar stundir hjá honum við spilamennsku og sögur, að trúa því að hann sé ekki lengur í herberginu sínu. Þar sem honum leið svo vel. En allt tekur enda. Þín ævi var björt og starf- söm. Og minninguna um þig munum við eiga. Hvíl þú í friði elsku afi. Barnabörnin þín, Særún,Stína, Ólöf, Símon Þór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.