Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 2
BARNABÆKUR
DÓSASTRÁKURINN
Christine Nöstlinger.
Frú Bertafærdag nokkurn stóran
pakka með póstinum. í honum er
niðursuðudós og upp úr henni
sprettur drengur. Það er Konráð,
sjö ára, verksmiðjuframleiddur
og óskabarn allra foreldra,
prúður og hlýðinn. Raunar alltof
hlýðinn að mati frú Bertu.
Dósastrákurinn er leiftrandi
fjörug barnasaga, sögð af næm-
um skilningi á draumum og til-
finningum barna. Höfundurinn
hefur hlotið virtustu verðlaun
þýskumælandi þjóða fyrir barna-
sögu.
Þýsku barna- og
unglingaverðlaunin.
128 blaðsíður.
Útg. Forlagið.
Verð: 588 kr. m. sölusk.
JÓLAUÓS
SÍGILDAR JÓLASÖGtlR
JÓLALJÓS sígiidar jólasögur
Höfundar: Margir, íslenskir og
erlendir.
í bókinni eru sígildar jólasögur og
ævintýri um jólin. Úrval þess
helsta sem birst hefur af slíku efni
á íslensku. Sumar sögurnar eru
góðvinir úr æsku ömmu og afa og
pabba og mömmu, aðrar eru
fáum kunnar. Bókin er prýdd
listaverkum eftir Snorra Svein
Friðriksson. Myndir hans flytja
með sér helgiblæ jólanna og
gera bókina einstæða. Jólaljós á
erindi til lesenda á öllum aldri og
lætur engan ósnortinn.
112 bls.
Útg.: Örn og Örlygur.
Verð: 790 kr. m. sölusk.
SUMAR Á FLAMBARDS
K.M. Peyton
Sumar á Flambards, nýja bókin
eftir K.M. Peyton. Kristína snýr
aftur heim til Flambardssetursins
í heimsstyrjöldinni miðri og líst
ekki á blikuna. Setrið er í niður-
níslu og besta ráðið væri að selja
það og fara burt hið bráðasta. En
margt fer öðruvísi en ætlað er, og
Kristína ákveður að verða sjálf
bóndi á Flambards og skapa
heimili þar handa sjálfri sér og
öðrum, bæði gömlum kunning-
jum og óvæntum gestum...
Útg.: Mál og menning
Verð: kr. 698 m. sölusk.
k.M. PKVfON
Fíambards setríð 3
★
LAGT ÚT í LÍFIÐ
Ármann Kr. Einarsson.
Ný bók eftir hinn vinsæla höfund,
Ármann Kr. Einarsson. Lagt út í
lífið segir frá ungum pilti, sem er
uppfullur af framtíðardraumum
og er að byrja að feta sig út í lífið.
Ástin er að kvikna í brjósti hans
og hann að leggja út á lista-
brautina og tekst honum það erf-
iðlega í byrjun. Þetta er lífleg og
skemmtileg unglingasaga í létt-
um dúr, sem lesendur Armanns
kunna eflaust vel að meta.
140 blaðsíður.
Útg. Vaka - Helgafell.
Verð: 640 kr. m. sölusk.
LAGT ÚT í
\ WA
Kári litli
i sveit
KÁRI LITLI í SVEIT
Stefán Julíusson
— Myndir: Halldór Pétursson
Kári litli í sveit er þriðja og síðasta
bindið í sagnaflokki Stefáns um
snáðann Kára, fjölskyldu hans
og félaga, að ógleymdum trúnað-
aravininum Lappa.
Kára-bækurnar hafa notið ein-
stakra vinsælda og selst upp
hvað eftir annað. Höfundur hefur
hlotið einróma lof gagnrýnenda
fyrir þessar bækur sem hann
samdi ungur kennari „vegná
barnanna sinna, með börnunum
sínum og handa börnunum sín-
um“.
Kári litli í sveit er sannkallað lista-
verk í máli Stefáns og myndum
Halldórs.
Sígild sagnaperla.
168 bls.
Útg. Æskan.
Verð: 690 kr. m. sölusk.
Heimsmeíabók dyrannt
HEIMSMETABÓK DÝRANNA
Annetta Tison og Talus Taylor
Óskar Ingimarsson þýddi. Hvaða
dýr er fljótast? Stærst? Mest
hægfara? Með lengstu tennurn-
ar? Á mestu dýpi? Með lengstu
fjaðrirnar? Þetta er einstæð bók
fyrir alla aldursflokka. Öll litprent-
uð og í stóru broti. Litmyndir í rétt-
um hlutföllum af öllum dýrunum.
93 bls.
Útg.: Örn og Örlygur.
Verð: 995 kr. m. sölusk.
GÚMMÍSKÓR MEÐ GATI
Ýmsir höfundar.
Gúmmískór með gati er safn af
smásögum handa krökkum eftir
marga höfunda. Sögurnar voru
valdar úr safni smásagna sem
barst í samkeppni Samtaka móð-
urmálskennara. Hér eru bráð-
skemmtilegar sögur af hænsnum
á fylliríi, óstýrilátum tölvuspilsapa
og vélmenningu Nú-tí-minh og
klaufalegum helgarpabba en líka
átakanlegar sögur af sjóslysi,
snjóflóðum og skógarbruna. Höf-
undar sagnanna eru: Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson, Ása Sólveig,
Benóný Ægisson, Elísabet Þorg-
eirsdóttir, Guðjón Sveinsson,
Herdís Egilsdóttir, Jórunn Sö-
rensen, Kristín Steinsdóttir,
Njörður P. Njarðvík, Oddný Guð-
mundsdóttir og Svanhildur Frið-
riksdóttir.
Útg. Mál og menning.
Verð: 595.- kr. m. sölusk.
SAGAN AF DIMMALIMM
Guðmundur Thorsteinsson,
Muggur.
Ein mesta perla íslenskra barna-
bóka, Sagan af Dimmalimm,
kemur nú út í nýrri útgáfu og
breyttu broti. Myndirnar af litlu
kóngsdótturinni, svönunum og
kóngssyninum unga þykja nú
einhverdýrlegustu listaverk, sem
Muggur lét eftir sig.
Sagan af Dimmalimm kemur nú
út á fimm tungumálum, íslensku,
dönsku, ensku, þýsku og
frönsku.
32 blaðsíður.
Útg. Vaka - Helgafell.
Verð: 375 kr. m. sölusk.
Sagan af
Dimmalimm
m\s mkiSGios
cBlómin á bakinu
im.hwm, sia'Ru\Ki*jrriii
BLÓMIN Á ÞAKINU
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Gunnjóna er skrítin kona, ég verð
að segja ykkur söguna af henni.
Hún flutti í blokkina mína einn
daginn af því hana langaði til að
prófa að búa í borg - en samt fór
henni strax að leiðast. Henni
fannst hún ekki hafa nóg að gera.
Ég fór með henni f sund og á
Þjóðminjasafnið og á traktora-
sýningu og ég veit ekki hvað, en
þaðvarekki nóg. „Þú verðurbara
að ná í dýrin þín upp í sveit og
hafa þau í barnaherberginu, þá
leiðist þér ekki“, sagði ég. Óg
það gerði hún!
Blómin á þakinu er saga um konu
sem flytur úr sveitinni í bæinn, en
flytur svo eiginlega borgina upp í
sveit! Skemmtileg saga um
merkilega konu með frábærum
teikningum eftir Brian Pilkington.
Útg. Mál og menning.
Verð: 690.- kr. m. sölusk.
Þú átt gott, Einar Óskell
Uuftilú lk;gx«1ir.
ÞÚ ÁTT GOTT, EINAR ASKELL
Gunilla Bergström.
Hann er líka strákur sem gaman
er að þekkja þó að hann sé
stundum óþekkur.
Bækurnar um hann eru geysi-
lega vinsælar og bráðum byrjar
hann líka í sjónvarpinu.
Nýja bókin heitir Þú átt gott, Ein-
ar Askell og er jólabók. Þegar
jólin eru búin finnst Einar Áskeli
og pabba hans ofsalega leiðin-
leg. En amma segir að þegar
manni finnist allraleiðinlegast þá
gerist bráðum eitthvað skemmti-
legt. Hvað skyldi það vera? Sig-
rún Árnadóttir þýðir.
Útg. Mál og menning.
Verð: 385.50 kr. m. sölusk.
RASMUS KLUMPUR
í UNDIRDJÚPUM
Carla og Vilh. Hansen
Andrés Indriðason þýddi. Rasm-
us Klumpur og félagar hans eru
orðnir vel kunnugir yngstu les-
endunum því alls eru komin út 15
teiknisöguhefti með hinum fjöru-
gu og saklausu ævintýrum
þeirra.
32 bls.
Útg.: Örn og Örlygur.
Verð 190 kr. m. sölusk.
RASMUS KLUMPUR
í KYNJASKÓGI
Carla og Vilh. Hansen
Andrés Indriðason þýddi.
32 bls.
Útg.: Örn og Örlygur.
Verð: 190 kr. m. sölusk.
RASMUS KLUMPUR
Á PÍNUKRÍLAVEIÐUM
Carla og Vilh. Hansen
Andrés Indriðason þýddi
32 bls.
Útg.: Örn og Örlygur.
Verð 190 kr. m. sölusk.
*
OHK 00 OBLVGUn
CMÍH.A 4 vn.M MÁNStH
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN