Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 7
LJÓÐABÆKUR ÆVISÖGUR OG MINNINGAR LJÓÐ NÁMU LAND Sigurður Pálsson. Fjórða Ijóðabók Sigurðar sem fyrir margt löngu hefur skipað sér í fremstu röð íslenskra Ijóð- skálda. Hver ný bók frá hans hendi má teljast bók- menntaviðburður. í bókinni speglast allir bestu kost- irskáldskaparSigurðar. Hnitmið- að Ijóðmál, hlaðið óvæntum samlíkingum, ísmeygilegt í glettni sinni og fjarskylt predikunum og forystugreinum. í Ijóðunum tog- ast á ofsafengið fjör og sárasta alvara og skáldið er hvorttveggja ( senn, sjáandi og þátttakandi. 94 blaðsíður. Útg. Forlagið. Verð: 875 kr. m. sölusk. ILLGRESI Örn Arnarson Ljóðabók skáldsins vinsæla, Arnar Arnarsonar, lllgresi, sem ekki hefur verið fáanleg um ára- bil, er nú komin út aukin og endurbætt. Auk upphaflegrar út- gáfu lllgresis eru í bókinni þýdd Ijóð og ýmis önnur Ijóð sem safn- að hefur verið saman eftir lát skáldsins. 260 bls. Útg. Vaka — Helgafell. Verð: 1.398 kr. m. sölusk. JÓNAS ÁRNASON - VIÐTALSBÓK Viðtölin tók Rúnar Arthúrsson, blaðamaður. I þessari bók ræðir Jónas um lit- ríkan feril sinn, menn og málefni. Hann talar af hreinskilni um átök á stjórnmálasviðinu, jafnt við samherja sem andstæðinga. Hann segir frá kynnum sínum af skemmtilegu fólki og fjörugu leikhúslífi. Lesandinn fær að kynnast skáldinu, þingmannin- um, rithöfundinum, blaðamann- inum, sjómanninum og kennar- anum Jónasi Árnasyni og þeim óborganlega húmor sem hann er þekktur fyrir. 260 blaðsíður. Útg. Svart á hvítu. Verð: 1.398 kr. m. sölusk. gyrðir elíasson einskonar höfuð lausn EINSKONAR HÖFUÐLAUSN Gyrðir Elíasson Gyrðir Elíasson er tilraunamaður í skáldskap. Ljóð hans segja ekki sögu heldur bregða upp leiftur- myndum úr hugarheimi nútíma- manns. Tungutak hans er í sam- ræmi við þetta eins konar „skipu- legt ofbeldi gagnvart venjulegu talmáli", en það er stundum tal- inn vera aðall nútímaljóðlistar. Gyrðir leikur sér að margs konar klisjum úr tækniheimi og borg- armenningu og leggur auk þess mikið upp úr umgjörð Ijóðanna, svo segja má að þau séu myndir í tvenns konar merkingu, bæði hvað varðar innihald og útlit. Einskonar höfuðlausn er þriðja Ijóðabók Gyrðis, en hann er af mörgum talinn einhver efnileg- asti og frumlegasti höfundurinn í hópi ungra Ijóðskálda hérlendis. Utg.: Mál og menning Verð: 503 kr. m. sölusk. TÍUNDIR Jóhann S. Hannesson Kristján Karlsson bjó til prentunar og ritar formála. Skáldskapur Jó- hanns S. Hannessonar er í heild sérkennilegt og merkilegt fram- lag til íslenskrar Ijóðagerðar á okkar tima. í kvæðum hans fara einatt saman skörp hugsun, vitsmunaleg dýpt og rík tilfinning. En fyndni hans og formlist njóta sín víða sérstaklega vel í þessari bók. 84 bls. Útg.: Örn og Örlygur. Verð: 795 kr.m. sölusk. Jóhann S. Hannesson TÍUNDIR KVÆÐi SJÓMANNSÆVI Lokabindi endurminninga Karvels Ögmundssonar í þessu bindi segir Karvel frá sjó- sókn sinni á Hellissandi, ísafirði og Njarðvíkum. Mikill fengur er að tveimur síðustu köflunum, leiftrandi frásögn af Ólafi Thors og frásögnum af yfirnáttúru- legum fyrirbærum, draumum, dulheyrn, hugboðum og aðvör- unum, en Karvel er gæddur dul- rænum hæfileikum, sem hann kann að nýta sér og öðrum til góðs. Fjöldi sögulegra Ijós- mynda. 240 bls. Útg.: Örn og Örlygur Verð 1.298 kr. m. sölusk. AF MONNUM ERTU KOMINN Einar Bragi Einar Bragi skáld er alinn upp á Eskifirði og þar er helsti vettvang- ur endurminninga hans þótt hann fari víðar um Austfirði og allt suður í Skaftafellssýslur. Hann byrjar að minnast næst sér í timb- urhúsinu Skálholti á Grundinni þar sem hann fæddist, en fer svo um þorpið, hús úr húsi, og rifjar upp íbúa þeirra í lifandi og skemmtilegri frásögn. Ótal per- sónurspretta upp á síðum bókar- innar. Ævi og kjör höf undar verða lesanda ógleymanleg. Af mönnum ertu kominn er hyllingaróður um hetjur hvers- dagslífsins eftir eitt listfengasta skáld samtímans. Útg.: Mál og menning Verð 1290 kr. m. sölusk. Eínar Bragi monnum ertu kominn íMx’h.Vun'viwí.vh í FÓSTRI HJÁ JÓNASI - Halldór E. Sigurðsson rekur minningar sínar, fyrra bindi. Andrés Kristjánsson bjó til prentunar. Halldór er þjóðkunnur áhrifa- maður í islensku stjórnmálalífi. Hann hefur frá mörgu að segja. Forvitnilegasti kafli bókarinnar er án efa frásögn Halldórs af fóst- rinu sem hann naut hjá Jónasi f rá Hriflu um tvítugsaldurinn. Lýsing- in á Jónasi og fjölskyldu hans á árinu 1936 og síðar er.merkilegt framlag til skilnings á gerð og lífs- starfi umdeildasta stjórnmála- manns aldarinnar. 255 bls. Útg.: Örn og Örlygur. Verð: 1.298 kr. m. sölusk. íRfenaHJ4j(fo\si MLLDOR E rekur minnlngar sínar LÍFSSAGA BARÁTTUKONU - Saga Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur. Inga Huld Hákonardóttir. Inga Huld Hákonardóttir rekur hér feril baráttu- og jafnréttiskon- unnar Aðalheiðar Bjarnfreðsdótt- ur. Þetta er mögnuð lífsreynslu- saga konu, sem ólst upp ásamt 19 systkinum í sárri fátækt, barð- ist síðan lengi við kröpp kjör og veikindi og varð eins konar tákn- mynd alþýðukvenna í jafnréttis- og kjarabaráttu. í bókinni má lesa um baslið á kreppuárunum og baráttukvenna og annars lág- launafólks um þessar mundir. 230 blaðsíður. Útg. Vaka - Helgafell. Verð: 1.398 kr. m. sölusk. LÍFSSAGA BARÁTTUKONU Inga Httld Hákonardóttir rekur feril AÐALHEIÐAS BJARNFKEÐSDÓTTUR MINNINGAR HULDU Á. STEFÁNSDÓTTUR - BERNSKA Hulda Á. Stefánsdóttir er ein þeirra kvenna sem sett hafa svip á öldina og þjóðin öll þekkir og ann. Frásögn hennar stendur djúpum rótum í þjóðlífi og sögu. Mannlýsingar eru skýrar og hisp- urslausar, yljaðar kímni og næm- um lífsskilningi. Minningar Huldu munu, ef að líkum lætur, skipa henni á bekk með nokkrum þeim löndum hennar sem samið hafa merkastar minningabækur síð- ustu áratugina. 214 bls. Útg.: Örn og Örlygur. Verð: 1.198 kr. m. sölusk. í>s GUÐMUNDUR SKIPHERRA KJÆRNESTED Sveinn Sæmundsson Þetta er saga hatrammra átaka, taugastríðs og ofbeldisverka; saga um harðfylgi og þrautseigju íslenskra varðskipsmanna og óumdeildan foringja þeirra í bar- áttunni við ofurefli, sem að lokum laut í lægra haldi. Hámarki náði baráttan við breska Ijónið er her- skip reyndi að sökkva varð- skipinu Tý. Breskir útgerðar- menn kröfðust þess að Guð- mundur yrði rekinn í land og her- skipamenn óttuðust hann og hötuðu. Þetta ritverk er ómetan- leg heimild um baráttu þjóðar fyrir tilvist sinni. 140 sögulegar Ijósmyndir. 279 bls. Útg.: Örn og Örlygur. Verð: 1.298 kr. m. sölusk. SAGAN AF SIGRÍÐI STÓRRÁÐU Játvarður Jökull Júlíusson Játvarður Jökull Júlíusson er þjóðkunnur maður fyrir fræði- mennsku og ritstörf. Sagan af Sigríði stórráðu hefst á Skarðs- verjum og eru ættir hennar síðan raktar og saga hennar sögð þangað til hún kveður þennan heim í Kaupmannahöfn, eftir stormasama ævi konu sem aldrei lét bugast og vildi helst sjálf ráða ferðinni hvar sem leið henn- ar lá. Bókin er full af fróðlegum sögnum af merkilegu fólki öld eftir öld. Hún er skemmtileg og fróðleg og stíll og frásagnarháttur höfundar er með ágætum. 213. bls. Útg. Víkurútgáfan. Verð: 1.188 kr. m. sölusk. Bernska ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.