Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 17.12.1985, Blaðsíða 6
SÆLUSTUNDIR í PARÍS Anne-Marie Villefranche. Frönsk kona tekur upp á því aö skrifa frásagnir af kynferðis- legum uppátækjum ættingja sinna og vina. Djarfar og nautna- fullar frásagnir af hinum ýmsu til- brigðum kynlífsins. Sögurnar hafa vakið óskipta athygli og höfundinum líkt við Anais Nin, hinn mikla meistara erótískra sagna en bækur hennar hafa notið vinsælda á íslandi. Anne- Marie Villefranche er ekki síður hispurslaus. - María Gunnlaugs- dóttir þýddi. 211 blaðsíður. Útg. Forlagið. Verð: 800 kr. m. sölusk. UNfíÐUR fíSTfíRINNfíR UUfflfi OG SfifflfiÍKfiR MiNNINGflfi fiNN6-MflRI€ VIU€ffiftNCH6 SŒtUSTUNDIR í PfíRÍS LESTARFERÐIN T. Degens. Þetta er fyrsta bókin sem valin hefur verið til útgáfu í nýjum bókaflokki sem nefnist „Úrvals- bækur fyrir ungt fólk“. Þetta er margverðlaunuð unglingasaga, óvenju áhrifamikil, raunsönn og spennandi, blandin notalegri kímni. Sagan gerist í Þýskalandi rétt eftir síðari heimsstyrjöldina. 138 blaðsiður. Útg. Vaka - Helgafell. Verð: 898 kr. m. sölusk. Iðf ÆTTAREINKENNIÐ Grant Alle Ættareinkennið kom út fyrir mörgum árum hjá Sögusafninu en hefur verið ófáanleg æði lengi. Mikið hefur verið spurt um hana hjá forlaginu og gefst nú fólki kostur á að eignast hana. Þetta er ein af þessum gömlu góðu sögum, sem margir lesa aftur og aftur. 157 bls. Útg. Sögusafn heimilanna. Verð: 695 kr. m. söiusk. ORAHT AU.M SÖGUSAFN HEIMIIANNA ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR LJÓÐABÆKUR (OXtACiO \j rz IANDSMÓÐUR1N.N.AR CÖ\Íl JJ AF JARÐARFÖR LANDS- MÓÐURINNAR GÖMLU Gabriel García Márquez. Makondó - þorpið þar sem menn þrauka og bíða. Þorpið þar sem grimmdin og niðurlægingin ríkir. ibúar Makondó skapa enga sögu - þeir þrauka aðeins og bíða. Andrúmsloftið mettað raka - hit- asvækjan óbærileg. Af meistaralegri íþrótt fléttar skáldið saman sögu þjóðar sinn- ar, hvunndagsleika hennar, kjaftasagnir og goðsagnir. Þessi veröld er allt í senn, jarðbundin og smámunasöm, full af undrum og stórmerkjum. Þorgeir Þor- geirsson þýðir verkið af einstakri snilld. 139 blaðsíður. Útg. Forlagið. Verð: 1.087 kr. innb., 850 kr. kilja m. sölusk. ÁST í SKUGGA FORTÍÐAR V.E.D. Ross Solveig Jónsdóttir íslenskaði Enid er vel menntuö ung stúlka, sem kynnist manni á myndlistar- sýningu. Þau kynni leiða til þess að hún fer með honum til heimkynna hans. En hún kemst að raun um að þar er ekki allt sem sýnist. Hún er kjarkmikil og dug- leg og lætur ekki erfiðleikana buga sig. Spennandi og heillandi ástarsaga. 170 bls. Útg. Sögusafn heimilanna. Verð: 695 kr. m. sölusk. RAUÐA HÚSIÐ Victor Bridges Saga þessi er eftir sama höfund og Strokumaður og Grænahafs- eyjan, sem Sögusafnið hefur gef- ið út og notið hafa mikilla vin- sælda. Sagan fjallar um hlé- drægan, ungan lækni, sem dregst óvænt inn í dularfulla at- burði. Þetta er barátta um auð og völd, en ástin skipar sinn sess í sögunni, eins og í lífinu sjálfu. 179 bls. Útg. Sögusafn heimilanna. Verð: 695 kr. m. sölusk. MERKI SAMÚRÆJANS Katherine Peterson Katherine Peterson er margfald- ur verðlaunahöfundur í heima- landi sínu, Bandaríkjunum. Þessi hörkuspennandi unglingabók lýsir ævintýralegri leit drengs að föður sínum, glæsilegum stríðs- manni keisarans, sem hann hef- ur aldrei séð. Vel skrifuð bók sem öll fjölskyldan hefur ánægju af að lesa. Þýðandi: Þuríður Baxter. Úr erlendum blaðadómum: „Áhirfa- mikil og heillandi” (Library Jour- nal). „Einstaklega hrífandi og spennandi bók” (Publishers We- ekly). „Fögur bók” (Best Sellers). 144 bls. Útg.: Bókaútgáfan Nótt. Verð: Innbundin 775 kr. m. sölusk., kilja 575 kr. m. sölusk. SIKILEYINGURINN Mario Puzo Skáldverk eftir hinn víðfræga höfund Mario Puzo sem öðlaðist heimsfrægð með bók sinni „Guð- faðirinn". Umsagnir gagnrýn- enda erlendis um bók þessa hafa verið á einn veg - að með bókinni takist Puzo tvennt í senn: Að skila frá ser bókmenntaverki sem er þess eðlis að það heldur lesand- lanum í helgreipum spennu. Trú- veröugar atvikalýsingar, stað- arlýsingar og mannlýsingar auka á áhrif amáttinn - færa lesandann inn f þann heim sem Puzo er að segja frá, enda byggir Puzo sögu sína á raunverulegum atburðum, vefur söguþráð í kringum það sem átt hefur sér stað í raun og veru. 301 bls. Útg.: Frjálst framtak hf. Verð: 995 kr. m. sölusk. ilarío puzo •Listin ad lifa •med •kranscEdasjúhddm Það som þú og fiölskylda þin þunfa að vita um hjariakvaisu LISTIN AÐ LIFA MEÐ KRANSÆÐASJÚKDÓM Bandaríska heilbrigðisstofnunin MIPI Hér eru upplýsingar um það sem þú og fjölskylda þín þurfa að vita um hjartakveisu. 100 sjálfstæðar efnisgreinar með 16 leiðbeinandi myndskýringum. Bók þessi er hvatning til almennings um það að hafa gát á lífi sínu og lifa með opinni vitund um hin dýrmætu líf- færi sem tilheyra hverjum og ein- um. 88 blaðsíður. Útg. Þjóðsaga. Verð: 450 kr. m. sölusk. TRÖLLEYKIÐ Torfi Ólafsson íslenskaði. Desmond Bagley. Trölleykið er önnur bókin sem kemur út að höfundinum látnum, en hann átti nokkur óútgefin handrit, þegar hann féll frá. Ein þeirra bóka var í næturvillu, sem kom fyrir síðustu jól og seldist upp, en er nú komin út í nýrri útgáfu. Trölleykið sem hér segir er feiknastórt, um það bil 20 metrar að lengd og 550 tonn að þyngd. Það er notað til að flytja sprennu- breyti inn í Nyala, sem er ríki í Vestur-Afríku, auðugt að olíu. Trölleykið er saga um hugdirfs- ku og dauða, um fyrirsát og ógn- anir. í henni nær Desmond Bagl- ey hámarki í frásagnarsnilld sinni: hraða í frásögn, baktjald- amakki og unnum sigri. 271 blaðsíða. Útg. Suðri. Verð: 888.- kr. m. sölusk. GÖNGIN Ernesto Sabato. Á yfirborðinu óhugnanleg og spennandi morðsaga. Undir niðri er Göngin saga um mannlega einsemd og örvæntingu þess sem ferðast einn um sín eigin dimmu göng. Ernesto Sabato, hinn heimsfrægi argentínski rithöfundur, hlaut á síðasta ári Cervantes-verð- launin, virtustu bókmenntaverð- laun spænskumælandi þjóða. Guóbergur Bergsson þýðir þessa áhrifamiklu bók og ritar ít- arlegan eftirmála. 120 blaðsíður. Útg. Forlagið. Verð: 981 kr. m. sölusk. HLYJA SKUGGANNA Sigfús Bjartmarsson í þessari bók skiptast á stuttar Ijóðmyndir og lengri frásagn- arljóð. Sigfús leitar víða fanga og sum Ijóð hans eru eins konar skáldlegur vitnisburður um ferðir hans til Rómönsku Ameríku og fleiri framandi landa. Ljóð hans eru tregablandin án þess að vera neitt svartagallsraus. Hann höfð- ar ekki síður til vitsmuna en til- finninga. Útg.: Mál og menning Verð: 503 kr. m. sölusk. UNDIR SKILNINGSTRÉNU Gunnar Dal. [ bókinni eru tuttugu Ijóð, sem skáldið hefur ort á þessu ári. „Komið þið hingaö dúfurnar min- ar og kroppið korn“, er eins konar viðlag í kvæðinu: Heilaþvottur í Vatnsmýrinni. Ljóð þessi vekja ótal spurningar og umhugsuna- refni, sem knýja fast á hjá samtíð okkar. 51 blaðsíða. Víkurútgáfan. Verð: 750.- kr. m. sölusk. UPÍDIR SKIWMGS TRÉNU Vlkurútgáfan LJÓSAHÖLD OG MYRKRAVÖLD Ingimar Erlendur Sigurðsson Þetta er tíunda Ijóðabók höfund- ar, sem löngu er orðinn þjóð- kunnur. Hann hefur fengið mjög lofsamlega dóma fyrir bækur sínar, enda er hann af mörgum talinn eitt af snjöllustu Ijóð- skáldum okkar í dag. 101 bls. Útg. Víkurútgáfan. Verð: 750 kr. m. sölusk. Iitgimarftriendur Sigurúnson Ljósahöld myrkravöld [i Vikutútgáfan 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.