Þjóðviljinn - 19.12.1985, Qupperneq 5
ÞJÓÐMÁL
Iðnaðarnefnd
Mjólkursamsalan
Leit ekki á álmálið!
Stjórnarliðar í efri deild létu sér nœgja að rétta upp hönd. 4-0
fyrir Alusuisse með 4rða viðbótarsamningnum sem varð að
lögum ígær
Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson, formaður iðnaðarn-
efndar efri deildar, afsakaði
það í löngu máli í gær að
nefndin hefði ekki haft tíma til
að gera úttekt á nýjum samn-
ingi um skattaskil Alusuisse
hér á landi. Það hefði ekki ver-
ið hægt því svo mikið lægi á
afgreiðslunni fyrir jólahlé.
Þessi 4. viðaukasamningur við
upphaflega álsamninginn
varð við svo búið að lögum í
Listamannalaun
Fækkar
um einn
í heiðurshópi
Ekki gerð tillaga um
nýjan mann ístað
Guðmundar heitins
Hagalín
Þingmenn úr öllum flokk-
um hafa gert tillögu um út-
hiutun heiðurslauna lista-
manna á næsta ári. Er gert ráð
fyrir að 15 manns hljóti lista-
mannalaun, 275 þúsund krón-
ur hver og eru það sömu menn
og í fyrra. Einn þeirra, Guð-
mundur G. Hagalín, féll frá á
árinu og er ekki gerð tillaga
um nýjan mann í þennan hóp í
hans stað.
Samkvæmt tillögunni fá
eftirtaldir heiðurslaun lista-
manna á næsta ári: Finnur
Jónsson, Guðmundur Daní-
elsson, Halldór Laxness,
Hannes Pétursson, Indriði G.
Þorsteinsson, Jóhann Briem,
Jón Helgason, Jón Nordal,
María Makan, Matthías Jo-
hannessen, Olafur Jóhann
Sigurðsson, Snorri Hjartar-
son, Stefán íslandi, Svavar
Guðnason og Valur Gíslason.
Samtals verður veitt 4 miljón-
um 125 þúsund krónum í lista-
mannaslaun og er það sama
upphæð og í fyrra að viðbætt-
um verðlagsbreytingum.
- ÁI.
gær með atkvæðum stjórnar-
liða í efri deild.
Þorvaldur Garðar sagði
gildar ástæður fyrir því að
flýta afgreiðslunni m.a. það
að hefja yrði samningavið-
ræður um stækkun álversins
strax eftir áramót en það væri
háð samþykkt alþingis á
samningnum. Hann benti á að
ýmis atriði í samningnum taka
til yfirstandandi árs, en viður-
kenndi að frestur alþingis til
að afgreiða hann væri fram til
Á sama tíma og framlög til þess
að sinna hernaðarmálefnum í
utanríkisráðuneytinu er aukið
um 3 nýjar stöður og um 4,4 milj-
ónir að raungildi á næsta ári
hækkar framlag til jöfnunar
námskostnaðar um núll komma
ekki neitt og rýrnar sem verð-
hækkunum nemur!
Geir Gunnarsson rifjaði upp
nýlegan sjónvarpsþátt þar sem
forsætisráðherra og menntamála-
ráðherra sátu fyrir svörum hjá
ungu kynslóðinni. Yfirskrift þátt-
arins var „Hvað bíður okkar?“ í
þættinum var mikið rætt um
jafnrétti til náms og þegar unga
fólkinu þótti ekki nógu vel
tryggður framgangur þess svaraði
forsætisráðherra: „Aðalatriðið er
að þoka þessu í rétta átt á hverju
ári.“
Geir benti á að í fjárlagafrum-
varpinu fyrir næsta ár eru framlög
til jöfnunar á námskostnaði, þ.e.
húsnæðis- og fæðisstyrki nem-
enda, óbreytt að krónutölu eða
20 miljónir króna. „Skyldi þetta
þokast í rétta átt á næsta ári í 30%
verðbólgu?,“ spurði Geir. Hann
sagði útilokað að afsaka þennan
niðurskurð með því að lítið fé
færi til ráðstöfunar og benti á að
framlög til Varnarmálaskrifstofu
11. febrúar á næsta ári. For-
maðurinn fjallaði lítt um inni-
hald samningsins en vísaði í
niðurstöðu meirihluta neðri
deildar og sagði meirihlutann
í efri deild telja að samningur-
inn væri til bóta.
Helgi Seljan mælti eindreg-
ið gegn samningnum og
gagnrýndi málsmeðferð
deildarinnar harðlega. Hann
sagði að reynslan myndi sýna
hver hefði rétt fyrir sér í dóm-
um um samninginn og benti á
að saga samskipta okkar við
utanríkisráðuneytisins hækka uni
86,8% milli ára.
Hann sagði:
„Ef þróun fjárveitinga til þess-
ara tveggja liða er borin saman í
stjórnartíð forsætisráðherra, sem
vill þoka jafnrétti til nárns í rétta
átt á hverju ári, og fjárveitingar
árið 1983 eru settar 100 þá hefir
verðgildi framlaga til þessara
tveggja liða breyst með þessum
hætti:
1984:
Varnarmálaskrifstofan 168
Jöfnun námskostnaðar 114
1985:
Varnarmálaskrifstofan 188
Jöfnunnámskostnaðar 86
Fjárlagafrumv. 1986:
Varnarmálaskrifstofan 269
Jöfnunnámskostnaðar 66
Yfirskrift þessa þáttar sem
hæstv. ráðherrar áttu með unga
fólkinu var: Hvað bíður okkar?
Það virðist nokkuð ljóst hvað bið-
ur liðarins jöfnun námskostnað-
ar, ef skilningur hæstv. fors.r.h.
á því, hvað það er að þoka
jafnréttinu í rétta átt á hverju ári,
fær að njóta sín með sama hætti
framvegis og í stjórnartíð hans til
þessa“.
Alusuisse væri ein samfelld
aðvörun. Þá ítrekaði Helgi að
án sérstakrar vinnu Hjörleifs
Guttormssonar að þessum
málunt væri alþingi ekki að
ræða þau mál nú. Þar til Hjör-
leifur setti fram kröfuna um
að auðhringurinn skilaði ráns-
feng sínurn hefði hvorki
heyrst hósti né stuna urn of
lágt raforkúverð eða of lága
skatta. í nefndaráliti sínu
gagnrýnir Helgi santninginn
lið fyrir lið og leggur til að
hann verði felldur.
Stefán Bencdiktsson og Sig-
ríður Dúna Kristmundsdóttir
gagnrýndu einnig þá rýru upp-
skeru sem samningurinn færir
íslandi en Framsóknarmaður-
inn Davíð Aðalsteinsson sló úr
og í, sagði samninginn
reyndar ekki nógu góðan en
þó nógu góðan til að sam-
þykkja hann.
-Ál.
Sverrir
gagnrýndur
r
a
alþingi
ÓlafurP. Pórðarson:
Ráðherrann tekursér
fjárveitingavald. Engin
svör við spurningum
Svavars Gestssonar um
afskipti
fjárveitinganefndar af
málinu
Ólafur Þ. Þórðarson vakti at-
hygli á því á alþingi í gær að
menntamálaráðherra hefði tekið
sér fjárveitingavald alþingis þeg-
ar hann ákvað að kaupa Mjólkur-
samsöluhúsið fyrir Þjóðskjala-
safn Islands. Ólafur sagði það
sérkennilegt að sá maður sem
segðist blóðugur upp fyrir axlir í
niðurskurði gengi þannig fram
fyrir skjöldu. Svavar Gestsson
tók undir gagnrýni Ólafs og
spurði ráðherrann hvaða ákvarð-
anir fjárveitinganefnd hefði tekið
varðandi þessi kaup. Engin svör
fengust við þeirri spurningu.
Forgangsverkefnin
Hemaður eða
jafnrétti til náms?
Varnarmálaskrifstofan hœkkar um 62%
meðan jöfnun námskostnaðar lœkkar um
42%!
Alþingi
Kratar ánægðir
með sölu Kröflu
Kaupverð virkjunarinnargagnrýnt
Kratar greiddu atkvæði með
stjórnarliðinu í gær þcgar yfir-
taka Landsvirkjunar á Kröflu var
afgreidd sem lög frá neðri deild
alþingis. Þrír þingmcnn voru á
móti, Guðmundur Einarsson,
Ellert Schram og Framsóknar-
maðurinn Ólafur Þ. Þórðarson
sem taldi réttara að Rarik keypti
Kröflu á því lága verði sem upp
væri sett. Aðrir stjórnarandstæð-
ingar sátu hjá við afgreiðsluna.
Kjartan Jóhannsson gerði þá
grein fyrir atkvæði stnu að með
þessum samningi hefðu mistökin
sem kratar hefðu gagnrýnt frá
upphafi verið verðlögð á 2,5 milj-
arða króna. Staðfesting á
gagnrýni krata væri sér ánægju-
efni og því segði hann já.
í nefndaráliti Svavars Gests-
sonar er bent á að útreikningur á
söluverði Kröflu sé mjög um-
deilanlegur þar sem í þeim sé
ekki reiknað með að seinni vél
virkjunarinnar fylgi með í kaup-
unum. Kaupverðið myndi hækka
um tæpar 400 miljónir ef tillit
væri tekið til fullra afkasta
tveggja véla að frádregnum
kostnaði við orkuöflun. Þá bend-
ir Svavar á að Rarik hafi ekki ósk-
að eftir því að Landsvirkjun yfir-
tæki Kröflu og Landsvirkjun hafi
heldur ekki óskað eftir því. Ekki
hafi Reykjavíkurborg óskað eftir
samningnum og því sé ljóst að
eini aðilinn sem óskaði eftir þess-
ari breytingu sé ríkið og forráða-
menn þess sem hefðu auk þess
ákveðið að taka á ríkissjóð stóran
hluta af lánum Kröfluvirkjunar.
Þá sé missmíð á frumvarpinu og
að þessu athuguðu treysti hann
sér ekki til að mæla með sam-
þykkt þess.