Þjóðviljinn - 19.12.1985, Page 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími:81663.
DJOÐVILJINN
Fimmtudagur 19. desember 1985 293. tölublað 50. árgangur.
Eimskips-einokun
Hafnarstjóm óttaöist
völd skiptaráðandans
Skiptaráðandi íHafskipsbúinu hefurfullan rétttil að ráðstafa hafnarleigusamningi
Hafskips sem hverri annari eignþrotabúsins. Gunnar Guðmundsson hafnarstjóri:
Vildum ekki að hann úthlutaði samningnum óbreyttum.
Hafnarstjórinn í Reykjavík
Gunnar Guðmundsson segir
að það hafi ekki síst verið vegna
pressu frá skiptaráðanda í Haf-
skipsmálinu að hafnarstjórn gekk
snarlega frá samningi við Eim-
skip um yfirtöku á fyrrum hafn-
araðstöðu Hafskips. Skiptaráð-
andi, Markús Sigurbjörnsson
borgardómari, hafi iýst því yfir,
að hann hefði fulla heimild til að
ráðstafa leigusamningi Hafskips
við hafnarstjórn sem átti að gilda
til ársins 2001, sem hverri annari
eign þrotabúsins.
„Hafnarstjórn taldi betra að
ganga til samkomulags um ein-
hverskonar tryggingu varðandi
notkun aðstöðunnar heldur en að
láta á það reyna að skiptaráðandi
færi að úthluta þessum samningi
alveg óbreyttum“, sagði Gunnar
Guðmundsson hafnarstjóri í
samtali við Pjóðviljann.
Gunnar sagði að leigusamning-
urinn við Eimskip til 1991 væri
háður því að tilboði Eimskips í
þrotabúið yrði tekið og hann
sagðist ekki hafa trú á því að
skiptaráðandi myndi gera
breytingar á samningnum.
Eins og skýrt var frla í Þjóðvilj-
anum í gær ýtti Davíð Oddsson
borgarstjóri mjög á eftir því að
flýtt yrði samningum við Eimskip
um einokun á hafnaraðstöðu í
Reykjavík. Hafnarstjórn er sjálf-
stæður ákvörðunaraðili en borg-
arstjóri hefur heimild til að sitja
fundi stjórnarinnar. Formaður
hafnarstjórnar er Ingibjörg Rafn-
ar og varaformaður Guðmundur
Hallvarðsson formaður Sjóm-
annafélgs Reykjavíkur. -lg.
Kvikmyndir
Löggur
á kreik
Pór og Danni í nýjum
œvintýrum, Löggulíf
frumsýnt í Nýja bíói
Þór og Danni eru núna gcngnir
í lögguna eftir ýmislegt brall í
Mosfellssveit og Vestmannaeyj-
um. Það fer ekki miklum sögum
af aðdáun samstarfsmanna, en
hinn almcnni borgari er ágætlega
hress með vasklcga framgöngu
liðsaukans frá Nýju lífi í laganna
sveit: Frú Friðbjörg, Sóley næt-
urdrottning, Koggi útigangsmað-
ur, cg og þú.
Sumsé: í kvöld verður frum-
sýnd í Nýja bíói kvikmyndin
Löggulíf eftir Þráin Bertelsson,
um þá Þór og Danna sem venju-
iega heita Eggert Þorleifsson og
Karl Ágúst Ulfsson.
Löggulíf var kvikmynduð í júlí
og ágúst í sumar eftir handriti
Þráins leikstjóra og Ara Kristins-
sonar tökumanns og klippara.
Hljóð: Sigurður Sæberg; tónlist:
Guðmundur Ingólfsson, Lárus
Grímsson.
Skipafélögin
Flytja
sig til
Hafnar-
fjarðar
4 minni skipafélögin flýja
úr Reykjavíkurhöfn.
Ljóst er að minni skipafélögin
fjögur munu flest byggja upp
aðstöðu fyrir sína þjónustu í
Hafnarfirði eftir að þeim hefur
endanlega verið úthýst úr
Reykjavíkurhöfn. Hafnarstjórn
Reykjavíkur hefur samþykkt
fyrir sitt leyti að Eimskip taki yfir
fyrrum athafnasvæði Hafskips
við Austurbakka. Þar með er
Eimskip komið með einokun á
allri hafnaraðstöðu í Reykjavík
utan aðstöðu SÍS við Holtagarða.
„Það eru allar líkur á því að
minni félögin færi sína flutninga
yfir til Hafnarfjarðar. Menn hafa
viljað sameinast um aðstöðu í
Reykjavík, en eftir þessa ákvörð-
un verða menn að halda sínu
striki í Hafnarfirði“, sagði Finn-
bogi Kjeld framkvæmdastjóri
Víkurskipa í samtali við Þjóðvilj-
ann. Már Gunnarsson hjá Nes-
skipi sagði að félagið væri að
rýma skemmur sem það hefði
haft í Reykjavík og myndi flytja
alla sína aðstöðu í nýtt húsnæði í
Hafnarfirði við suðurhöfnina.
-*g-
Úr Löggulífi: Danni sinnir skyldustörfum við erfiðar aðstæður. Mynd: Valdís.
Mjólkursamsalan
2 miljónir
í sölulaun?
Eins og fram hefur komið
keypti ríkið hús Mjólkursamsöl-
unnar við Laugaveg til afnota
fyrir Þjóðskjalasafn íslands.
Kaupverð hússins var 110 miljón-
ir. Leitað var upplýsinga um það
hversu há sölulaunin væru við
slík fasteignaviðskipti.
Hjá Fasteignaþjónustunni sem
annaðist söluna fengust þær upp-
lýsingar að við sölu á fasteignum
væru sölulaunin yfirleitt 2 prós-
ent af kaupverðinu. í þessu tilviki
myndu því sölulaunin vera um
það bil 2,2 miljónir króna.
-m
BSRB
A fund
Þorsteins
Kristján Thorlacius formaður
BSRB og varaformenn banda-
lagsins munu ganga á fund fjár-
málaráðherra í dag og ræða við
hann um komandi kjarasamn-
inga.
„Við munum eiga við hann ó-
formlegar viðræður. Það er ekki
um það að ræða að við ætlum að
kynna honum kröfugerð BSRB
fyrir samninga, kröfur eru enn
ekki fullmótaðar og ég á ekki von
á að það verði alveg á næstunni",
sagði Kristján í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra sagði í sjónvarpsþætti í
fyrrakvöld að mjög lítið svigrúm
verði til aukins kaupmáttar
starfsmanna ríkisins á næsta ári.
-gg
Útgáfufélag Þjóðviljans
Sameiningu hafnað
Stjórn Utgáfufélags Pjóðviljans áfundi ígœr: engar hugmyndir enn
komið upp sem gefa ástœðu til breytinga á núverandi útgáfu ogrekstri
blaðsins. Villskoða samvinnu umfjölmiðlun á öðrum sviðum
Afundi í stjórn Útgáfufélags
Þjóðviljans í gær kom skýrt
fram að ekki komi til greina að
leggja blaðið niður og að hafnað
verði öllum hugmyndum um
stofnun sameiginlegs daghlaðs á
grunni Þjóðviljans, NT og Alþýð-
ublaðsins. Segir í álvktun stjórn-
arinnar að „engar hugmyndir
hafa enn komið upp sem gefa ást-
æðu til breytinga á núverandi
stjórn og útgáfu Þjóðviljans. Út-
gáfustjórnin er alfarið andvíg því
að Þjóðviljinn verði lagður nið-
ur, eða gerður að hluta að nýju
dagblaði“.
Svavar Gestsson formaður Út-
gáfufélags Þjóðviljans sagði í
samtali í gær að þessi niðurstaða
stjórnarinnar svo og starfsmanna
blaðsins frá í fyrradag væri í sam-
ræmi við það sem hann hefði
strax lagt áherslu á í könnunar-
viðræðum sínum við forystu-
menn Framsóknarflokks og Al-
þýðuflokks í síðustu viku. Þjóð-
viljinn hefði sögulegu hlutverki
að gegna og nú væri nauðsynlegra
en nokkru sinni að velunnarar
blaðsins stæðu því fast að baki.
Formanni Útgáfufélagsins var
falið að halda áfram viðræðum
við útgefendur NT og Alþýðu-
blaðsins um „stóraukna sam-
vinnu dagblaðanna sem eiga að-
ild að Blaðaprenti" og einnig um
„stofnun nýs fjölmiðlafyrirtækis,
sem hafi fjölmiðlun í víðtækum
skilningi á verkefnaskrá sinni“.
Var jafnframt kosin baknefnd í
þeim viðræðum, skipuð fulltrú-
um stjórnar Útgáfufélags Þjóð-
viljans og starfsmanna blaðsins.
Ályktun útgáfustjórnarinnar
hljóðar svo í heild: „Stjórn ÚÞ
vill aðgefnu tilefni vekja athygli á
því, að engar hugmyndir hafa enn
komið upp sem gefa ástæðu til
breytinga á núverandi útgáfu og
rekstri blaðsins. Útgáfustjórnin
er alfarið andvíg því að Þjóðvilj-
inn verði lagður niður, eða gerð-
ur að hluta af nýju dagblaði, sem
ýmsar stjórnmálahreyfingar ættu
aðild að, eins og hugmyndir eru
uppi um.
Þjóðviljinn hefur átt sögulegu
hlutverki að gegna í hálfa öld og
það hlutverk er engu minna nú en
áður. Hins vegar lýsir stjórnin
yfir vilja sínum til að taka þátt í
viðræðum um stóraukna sam-
vinnu dagblaðanna sem eiga að-
ild að Blaðaprenti. Stjórn Út-
gáfufélagsins er ljóst að rekstrar-
erfiðleikar NT og hugsanleg
breyting á því blaði muni gera
rekstur Blaðaprents óhagkvæm-
ari en nú er og þar með fjárhags-
stöðu Þjóðviljans erfiða. Það er
því nauðsynlegt að velunnarar
blaðsins standi áfram þétt saman
um Þjóðviljann og sýni það nú
með öflugu átaki fyrir happdrætti
blaðsins.
Að síðustu vill útgáfustjórnin
lýsa þeim vilja sínum að taka þátt
í viðræðum við aðstandendur NT
og Alþýðublaðsins um stofnun
nýs fjölmiðlafyrirtækis, sem hafi
fjölmiðlun í víðtækum skilningi á
verkefnaskrá sinni“.