Þjóðviljinn - 28.12.1985, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 28.12.1985, Blaðsíða 19
ÍÞRÓTTIR s Island-Danmörk Danimir gleymdu Sigurði! Einbeittu sér að Kristjáni og Sigurður jafnaði með skoti langt utanaf velli á síðustu sekúndu. Köflóttur leikur en spennandi. Leikið á Akranesi í dag og í Höllinni annað kvöld „Það var greinilegt að Danirnir hugsuðu bara um að stöðva Kristján svo ég kallaði í Óttar og bað hann að senda á mig. Það var óhemju sætt að skora þarna og jafna,“ sagði Sigurður Gunnars- son hetja íslenska landsliðsins í samtali við Þjóðviljann í gær- kvöldi. Hann skoraði jöfnunar- mark íslands gegn Danmörku í Laugardalshöllinni á allra síðustu stundu 20-20. ísland fékk auka- kast utanvið punktalínu þegar 4 sekúndur voru eftir. Þorgils Ótt- ar Mathiesen bjó sig undir að senda á Kristján Arason og Dan- irnir bjuggu sig undir að stöðva hann. En Óttar blekkti þá með því að senda á Sigurð sem óvald- aður til hliðar, hann þrumaði á markið, vel utan við punktalínu og í bláhorninu hafnaði boltinn. Leikur sem virtist tapaður endaði með jafntefli og Sigurði var að vonum vel fagnað. Leikurinn í gærkvöldi var köfl- óttur. Talsverð harka var í hon- um, Danir léku geysiharða vörn og tóku mesta broddinn úr sókn- arleik íslenska liðsins á löngum köflum. „Þeir voru grófir, héngu mikið í okkur og við misstum yfir- vegunina í sóknarleiknum,“ sagði Þorgils Óttar. Fyrstu 15 mínúturnar voru mjög slakar af íslands hálfu. Lið- ið skoraði aðeins 2 mörk gegn 5, og það þó Danir væru alls í 8 mín- útur utan vallar á þessum kafla. Fimmta mark sitt gerðu þeir tveimur mönnum færri. Á 15.mínútu var Klaus Sletting Jensen rekinn útaf fyrir fullt og allt fyrir að stöðva Pál Ólafsson óþyrmilega í hraðaupphlaupi. Uppúr því kom mjög góður kafli hjá íslenska liðinu, það breytti stöðunni úr 2-5 í 9-6 á átta mínút- um. Þarna skiluðu sér þrjú hraða- upphlaup og Páll fór á kostum. En Danir settu loksins fyrirliðann Morten Stig Christensen inná og hann átti drjúgan þátt í að minnka muninn i 9-8 fyrir hlé. Fyrstu 10 mínútur seinni hálf- leiks voru svipaðar fyrsta korteri leiksins. Þorgils Óttar kom ís- landi að vísu í 10-8 en Morten Stig sá öðrum fremur til þess að Danir breyttu stöðunni í 11-13 sér í hag á skömmum tíma. Steinar Birgis- son fékk að líta rauða spjaldið fyrir samskonar brot og Klaus Sletting fyrr og rétt á eftir var Gjöls-Andersen útilokaður fyrir sína þriðju brottvísun. ísland jafnaði 13-13 og síðan komst liðið yfir 17-16. Þarna fór Kristján hamförum og það var ekki fyrr en Danir tóku hann úr umferð að þeir sneru leiknum sér í hag á ný. Eftir 18-17 fyrir ísland komu þrjú dönsk mörk í röð, 18-20, og Dan- ir fengu færi á að gera endanlega útum leikinn. En heilladísirnar voru með íslenska liðinu og 1,56 mín. fyrir leikslok skoraði Þorgils Óttar glæsilega af línunni eftir sendingu Páls, 19-20. Möguleiki á ný, en hann virtist úr sögunni þegar Sörensen varði frá Kristj- áni úr hraðaupphlaupi mínútu síðar. En ísland náði boltanum enn á ný, Danir virtust þó ætla að ná að verjast til sigurs en þeir sáu ekki við Sigurði — 20-20. Það er ekki hægt að segja að íslenska liðið hafi leikið vel, til þess var það of köflótt. Vinstra megin vantaði skyttu, Atli og Al- freð fjarri góðu gamni, og Sigurð- ur náði sér ekki á strik í þeirri stöðu. Kristján, Páll og Þorgils Óttar áttu allir góðan leik. Krist- ján kraftmikill og ógnandi, Páll alltaf jafn lunkinn og óútreiknan- legur fyrir varnir mótherjanna og Þorgils Óttar vann mjög vel úr því sem inná línuna barst. Hins- vegar var sóknarleikurinn í heild stirður og í vörninni mynduðust oft ljótar glufur. Kristján Sig- mundsson og Ellert Vigfússon náðu sér ekki á strik í markinu, Kristján tók samt nokkra bolta vel. Samanburður við leikina við Vestur-Þýskaland og Spán? Dan- ir leika öðruvísi handknattleik, léttari og meira fyrir augað. „Erf- iðara að leika gegn þeim en hin- um tveimur,“ sagði Þorgils Óttar. Morten Stig, Erik Veje Rasmuss- en, Michael Fenger og Jan Erik Röpstorff eru allt stórgóðir leik- menn sem erfitt er að verjast, sér- staklega í því frjálsa spili sem ein- kennir danska handboltann. Mörk íslands: Kristján Arason 5, Páll Ólafsson 5, Þorgils Óttar Mathiesen 4, Sig- urðurGunnarsson 3, Bjarni Guðmundsson 2 og Guðmundur Guðmundsson 1. Mörk Danmerkur: Morten Stig Christ- ensen 5, Michael Fenger 5, Erik Veje Rasmussen 3, Kjeld Nielsen 3(2v), Jan Erik Röpstorff 2, Hans Hattesen 1 og Jörg- en Gluver 1. { dag kl. 13.30 mætast þjóðirn- ar aðnýju, á Akranesi. Það vekur upp fjögurra ára gamlar minning- ar síðan ísland sigraði þar 32-21 í einstökum leik. „Það verður tæp- lega endurtekið en við reynum, maður skyldi aldrei segja aldrei. Það verður líka án efa mikil spenna í Höllinni á sunnudags- kvöldið,“ sagði Þorbjörn Jensson fyrirliði. Sá leikur hefst kl.20 og er sá þriðji og síðasti í þessari jólaheimsókn Dana. Allt stefnir í tvo hörkuleiki í viðbót, for- smekkurinn að því sást vel í gær- kvöldi. —VS Sigurður Gunnarsson reynir fyrir sér gegn sterkri vörn Dana. Hann kom henni skemmtilega á óvart á örlagastundu, þá komu Danirnir ekki svona vörnum við. Mynd: E.ÓI. VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK SUÐURLANDSBRAUT 30. REYKJAVÍK Umsóknir Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á 108 tveggja tilfjögra herbergja íbúðum, sem eru í byggingu í Grafar- vogi í Reykjavík. Ennfremur er óskað eftir umsóknum um u.þ.b. 100 eldri íbúðir sem koma til endursölu síðari hluta árs 1986 og fyrri hluta árs 1987. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúðagilda lögnr. 60/1984. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, frá mánudeginum 6. janúar 1986, og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga -föstudaga kl. 9 - 12 og 13 - 16. Umsóknum skal skila eigi síðar en 7. febr. 1986. Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.