Þjóðviljinn - 28.12.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.12.1985, Blaðsíða 2
Um áramótin losnar staða bankastjóra við Seðlabank- ann, þar sem Davíð Ólafsson fer á aldursmörkin 29. apríl 1986. Da- víð getur hætt um áramót en hann getur líka setið út árið. Tveir menn eru helst orðaðir við seðla- bankastjóraembættið, Geir Hall- grímsson, sem nú er hættur sem utanríkisráðherra um áramótin og Matthías Á. Mathiesen al- þingismaður sem stóð upp fyrir Þorsteini Pálssyni í ríkisstjórn- inni og gerðist fríherra. Þjóðviljinn hefur fyrir því ör- uggar heimildir að Geir Hall- grímssyni var boðin þessi seðla- bankastjórastaða þegar hann ákvað að hætta ráðherradómi um áramótin, svo Þorsteinn gæti haldið stólnum. Geir hefur enn ekki gefið ákveðið svar, enda hefur hann hug á að halda áfram í pólitík, þrátt fyrir allt. Matthías Á. Mathiesen hefur einnig verið orðaður við þetta embætti og að Geir frágengnum getur hann fengið embættið. Þá er eftir að vita hvort Matthías vel- ur heldur að taka nú aftur við ráðherradómi í þá 16 mánuði sem þessi ríkisstjórn getur setið fram að kosningum, eða að taka þarna vellaunað og afar róleg embætti, sem hann gæti setið í makinda- lega í mörg ár, þar sem Matthías er ekki nema 55 ára gamall. -S.dór Hvenær fæ ég þriðja bílinn? FRETTIR Seðlabankinn Geir eða Matthías? Geir Hallgrímssyni hefur verið boðin bankastjórastaða við Seðlabankann. MatthíasÁ. Mathiesen kemur næstur að Geir frágengnum TORGtÐ' Tónlist Tónlistarsaga íslands Viðamikil sýning í Norrœna húsinu um sögu tónlistar á íslandi Útvegsbankinn Jólahraðskák á sunnudaginn 18 þátttakendur þar á meðalfremstu skákmenn landsins Jóiahraðskákmót Útvegsbank- ans verður haldið í aðalbankan- um við Lækjartorg á sunnudag- inn og hefst kl. 14.00. Meðal þátt- takenda verða fremstu skákmenn landsins, þeirra á meðal, Helgi Ólafsson, Friðrik Ólafsson, Guð- mundur Sigurjónsson, Jón L. Árnason og Karl Þorsteins, en alls taka 18 skákmenn þátt í mótinu. Þetta er í 5. sinn sem jólahrað- skákmót Útvegsbankans er hald- ið. Mótið hefur ávallt vakið mikla athygli og er áhugamönnum vel- komið að fylgjast með keppn- inni. -•g- Amorgun verður í Norræna húsinu sýning sem nefnist Tónlist á íslandi og er þetta viða- mesta sýning sem sett hefur verið upp í því húsi. Sýningin spannar sögu tónlist- ar á íslandi og er í báðum sölum hússins. í sýningarsölunum niðri er stiklað á ýmsum helstu við- burðum í tónlistarsögu íslands í ljósmyndaröð. Þar má sjá elstu ljósmynd sem til er á Norður- löndum, en hún er frá 1848. Á myndinni sést fyrsti barnaskóli í Reykjavík, sem var til húsa í gamla lóskurðarhúsinu, þar sem Pétur Guðjohnsen kenndi söng. í sýningarsölunum eru einnig ýmsir sögufrægir munir sem kom- ið hafa við sögu tónlistarinnar. Sem dæmi má nefna leifar af elsta orgeli Dómkirkjunnar, píanó úr eigu Péturs Guðjohnsen frá 1855, flauta Sveinbjarnar Sveinbjörns- sonar, kornett Helga Helga- sonar, ferðaorgel Jóns Leifs o.m.fl. JÓLATRÉS- SKEMMTUN Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmtun að Hótel Sögu Súlnasal, föstudaginn 3. janúar 1986 kl. 15.00. Aðgöngumiðar verða seldir á skrif- stofu félagsins á 8. hæð húss verslun- arinnar á skrifstofutíma. Miðaverð kr. 300 fyrir börn og kr. 175 fyrir fullorðna. Miðar verða ekki afhentir við inn- ganginn. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Einnig má sjá þar gömul hljómflutningstæki, t.d. spilasós úr fórum Péturs biskups Péturs- sonar sem hann eignaðist rétt eftir miðja síðustu öld og hand- trekktan'grammófón með geysi- stórum lúðri frá Árbæjarsafni. Þessi grammófónn mun hafa ver- ið notaður til að leika danslög á böllum og er því eins konar fyrir- rennari nútímadiskóteka. Þá geta gestir hlustað á margs konar tóndæmi í hljómflutnings- tækjum, elstu stef sem dæmi eru um, grallarsöng, einsöngs- og kórlög, hljómsveitarverk, popp- tónlist, jass og elekróníska tón- list. í tengslum við sýninguna byrj- ar þann 11. janúar, 1986 fyrir- lestraröð þar sem tónlistarsögu íslands verða gerð skil með er- indum og tóndæmum. Norræna húsið hefur fengið sérfræðinga á ýmsum sviðum til þess að ræða um m.a. íslensk þjóðlög, rímna- kveðskap, hljómsveitarleik á ís- landi, íslenska píanóleikara, djass á íslandi, dægurtónlist o.fl. IH Fyrirrennari diskótekanna. Þessi var áður fyrr notaður á dansiböllum til að halda uppi fjörinu. Mynd. Sig. Bíladella Tveir bílar á tveimur árum Matthías Á. Mathiescn, nú utan ráðuneytis,fékká þessu ári nýjan Audi fyrir tæpa miljón sem ríkissjóður greiddi. Á árinu 1983 fékk Matthías nýjan Toyota CreSsida fyrir tæp 550 þúsund með sama hætti. Þetta kemur m.a. fram í svari við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar- dóttur um bifreiðafríðindi ráð- herrra sem dreift var á alþingi fyrir jólahlé. Á árinu 1983 fengu 5 ráðherrar sér nýja bíla á kostn- að ríkissjóð fyrir samtals 3,7 milj- ónir króna á verðlagi þessa árs.. Auk Matthíasar voru það Alex- ander Stefánsson, Jón Helgason og Sverrir Hermannsson. Enginn ráðherrabíll bættist í flota ríkis- sjóðs á árinu 1984 og á þessu ári aðeins nýi Audíinn fyrir Matthí- as. _ÁI Urvalið aldrei fjölbreyttara Ánanaustum Grandagarði 2 Símar 28855 og 13605

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.