Þjóðviljinn - 28.12.1985, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 28.12.1985, Blaðsíða 20
FRÉTTIR Veiði Risableikja Á síðasta sumri veiddist risa- bleikja í Skorradalsvatni. Hún vó 22 pund og var 87,5 sm löng. Jón Kristjánsson hjá Veiðimálastofn- un áætlaði að bleikjan væri um 15 til 20 ára gömul. Ekki er vitað til þess að stærri bleikja hafi veiðst hér á landi. Aður munu hafa veiðst í Skorra- dalsvatni, sem er þekkt fyrir stór- ar bleikjur, 17 punda bleikja og Davíð hreppstjóri Pétursson á Grund telur að þar hafi einnig veiðst 18 punda bleikja áður. (Ur ,,Veiðimanninum“). Alþingi Jón Baldvin á móti LÍN Formaður Alþýðuflokksins lagðist gegn hækkun áframlagi til LÍN. 30% skerðing lána staðreynd Formaður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, greiddi atkvæði með stjórnarlið- um gegn hækkun á framlagi til Lánasjóðs íslenskra námsmanna þegar tiilaga frá Ragnari Arnalds og fleirum var felld með nafna- kalli á alþingi fyrir jólahlc. Pað vakti athygli að annar þingmaður Alþýðuflokksins, Kjartan Jóhannsson, sat hjá við þessa afgreiðslu en aðrir þing- menn krata svo og allir aðrir þingmenn stjórnarandstöðunnar studdu tillöguna. Sem kunnugt er þýða skert framlög til LÍN á næsta ári annað tveggja: Að lánin verða skert um 30% frá áramót- um, eða að sjóðurinn verður upp- urinn á miðju ári. - ÁI. Bókagerðarmenn Bíða dóms Magnús E. Sigurðsson formaður FBM: Höfum frestað aðgerðum gegn þinginu þar til dómur fellur Biðstaða er nú í deilu Félags bókagerðarmanna við Alþingi um tölvusetningu á texta. Að sögn Magnúsar E. Sigurðssonar for- manns félagsins hefur aðgerðum verið frestað samkvæmt beiðni frá Alþingi. „Við bíðum bara eftir dómi í málinu og sáum ekki ástæðu til annars en að verða við beiðni al- þingis um trestun", sagði Magnús ígær. Eins og kunnugt er kærði VSÍ aðgerðir félagsins fyrir hönd FÍP og átti Magnús von á að dómur félli fljótlega á næsta ári. Félagið hefur fastmótað kröfur sínar fyrir næstu kjarasamninga. „Við höfum þetta í svipuðunt farveg og ASI, leggjum megin- áherslu á aukningu kaupmáttar og verðtryggingarákvæði. Annað sem okkur er mikið kappsmál er réttur foreldra til að vera heima hjá börnum sínum í veikindum". sagði Magnús. Flann átti von á að kröfumar yrðu kynntar FÍP innan skamms. -gg- jr m 3r t ' )•* £ :' m . Allir geta verið með, bara að tásér miða og leikurinn er hafinn. Þetta er æsispennandi leikur. vinningshlutfallið hefur aldrei verið hærra - nú er það meira en fjórði hver miði sem vinnur. Hundrað og tíu milljónum króna verður dreift til nítjári þúsund miðaeigenda á riæstu 12 mánuðúm og þremur bifreiðum svona aukreitis: PAJERO SUPERWAGONIFEBRÚAR VOLVO 740 GLE fSEPTEMBER PEUGEOT 205 GR í JÚNf MIÐIÍ Sf BS - OG Í>Ú ERT MEÐ NÝTT HAPPDRÆTTISÁR SÍBS, GLÆSILEGRA EN NOKKRU SINNIFYRR -DREGIÐ 14. JANÚAR- 20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 28. desember 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.