Þjóðviljinn - 28.12.1985, Blaðsíða 13
Ásgeir Matthíasson ritari í fyrstu stjórn Blikksmiðafélagsins og Einar Gunnarsson núverandi Þrír á tali frá v.: Hannes Alfonsson, Hörður Helgason og Guðjón H. Þorvaldsson. Mynd: Sig.
formaður þess. Mynd: Sig.
Afmœli
Hefur ekki brugðist
brautryðjendunum
Félag blikksmiða 50 ára
A þessu ári er liðin hálf öld síð-
an Félag Blikksmiða í Reykjavík
var stofnað. Ástæðan til þess að
því var komið á fót mun ekki hvað
síst hafa verið óánægja með
kauþ og kjör. Um þessar mundir
voru nokkrir blikksmíðanemar
búnir að Ijúka námi. Þeim sóttist
hinsvegar seint að komast af
lærlingskaupinu, sem var mjög
lágt en þeir févana eftir námsár-
in. Loforð voru gefin um leiðrétt-
ingu en efndirnar létu á sér
standa.
Og „hvað má höndin ein og
ein?“. Eina leiðin til þess að
knýja fram breytingar sýndist sú,
að taka höndum saman um stofn-
un félagsskapar. Undirbúnings-
fundur var haldinn í Iðnskólan-
um í Reykjavík 25. maí 1935. Þar
var m.a. kosin nefnd til þess að
undirbúa og boða til stofnfundar
og semja drög að lögum fyrir
væntanlegt félaga.
Stofnfundur var svo haldinn í
Iðnskólanum 12. júní 1935. Var
þá endanlega gengið frá stofnun
félagsins, því kosin stjórn, sam-
þykkt lög fyrir það og því geíið
nafn. Stofnendur voru átta. For-
maður var kosinn Kristinn Vil-
hjálmsson, ritari Ásgeir Matt-
híasson og gjaldkeri Helgi Hann-
esson.
Félagið samþykkti samnings-
tilboð í nokkrum liðum. Kaupið
skyldi vera kr. 1,50 á klst. en því
höfðu sumir félagsmenn þegar
náð, aðrir ekki. Voru kaupkröfur
þannig í upphafi miðaðar við það
að koma á samræmingu og hækka
þá í launum, sem minnst báru úr
býtum. Vinnuvikan væri 56
stundir, 10 tímar 5 daga vikunnar
og 6 tímar á laugardögum eða til
kl. 1. Væri unnið umfram það
yrði tímakaupið kr. 2,00. Sumar-
leyfi 1 vika á fullu kaupi.
Tilboðið var sent vinnu-
veitendum sem svöruðu með
gagntilboði, er um sumt þótti frá-
leitt. Samningar tókust ekki og
boðaði félagið verkfall. Eftir viku
tókust samningar en jafnframt
var tveimur félagsmönnum til-
kynnt að nærveru þeirra á vinnu-
stað væri ekki óskað eftirleiðis.
Var annar þeirra formaður fél-
agsins. Lýsti félagið því þá yfir að
verkfalli yrði ekki aflétt fyrr en
uppsagnirnar væru dregnar til
baka. Lyktir urðu þær, að svo var
gert og jafnframt gengið að kröf-
um félagsins.
Hér er auðvitað ekki hægt að
rekja 50 ára sögu þessara merku
samtaka. Mjór er mikils vísir. Fé-
lag áttmenninganna stóðst sína
fyrstu eldraun. Þar með hafði það
sannað tilverurétt sinn og þýð-
ingu. Síðan hefur félagið marg-
faldast að afli og áhrifum. Á þess-
um tímamótum getur það með
stolti litið yfir 50 ára sögu. Það
hefur ekki brugðist brautryðj-
endunum.
Minnt skal á að fyrir 10 árum
síðan var Gunnar M. Magnúss
rithöfundur ráðinn til þess að rita
Blikksmiðasögu íslands. Hún
kom út í tveimur bindum árið
1980, og var hennar þá getið all-
rækilega hér í blaðinu. Þar er
m.a. rakin saga allra blikksmiðja
á landinu, og birt blikksmiðatal
auk þess sem Gunnar grefur upp
margskonar fróðleik, sem áður lá
utan alfaraleiða. Er bók Gunnars
ómetanleg heimild um iðn-
greinina og þá, sem þar hafa
komið við sögu með einum eða
öðrum hætti.
Félagið minntist 50 ára afmælis
síns með myndarlegu hófi í risinu
á Hverfisgötu 105 þann 30. nóv.
sl. Við það tækifæri var m.a.
nokkrum gömlum félögum veitt
sérstök viðurkenning fyrir vel
unnin störf.
í Félagi blikksmiða eru nú 109
fullgildir félagsmenn. Félagið er
aðili að Málm- og skipasmiðas-
ambandinu og í Alþýðusambandi
íslands. Skrifstofa þess er nú flutt
að Suðurlandsbraut 30 og er opin
allan daginn á venjulegum skrif-
stofutíma. Allir stjórnarmenn
félagsins eru í fullri vinnu en
augljóst er að erfitt er að reka,
jafnvel hin fámennari félög, án
þess að hafa sérstakan skrifstofu-
mann, sem sinnt getur daglegum
störfum í þágu félagsins.
Meðal helstu verkefna félags-
ins á síðustu árum eru útgáfa
Blikksmiðasögunnar og bygging
tveggja sumarbústaða fyrir fé-
lagsmenn. Eru þeir í landi
Klausturhóla í Grímsnesi.
í örstuttu spjalli við Einar
Gunnarsson, formann Blikk-
smiðafélagsins, lét hann þess get-
ið, að eitt brýnasta verkefni iðn-
aðarmannafélaganna yfirleitt,
væri að efla og auka menntun
iðnaðarmanna og bæri þá að hafa
hvorttveggja í huga, Iðnskólann
og endurmenntunina. Þá væri og
mjög nauðsynlegt að menn
fengju góða þjálfun í verkalýðs-
og félagsmálum og þar gæti þátt-
taka í félagsmálaskóla alþýðu í
Ölfusborgum komið að ómetan-
legu gagni.
Stjórn Félags blikksmiða skipa
nú: Einar Gunnarsson, formað-
ur, Guðjón H. Þorvaldsson,
varaformaður, Friðbjörn Steins-
son, ritari, Hallgrímur Atlason,
gjaldkeri og meðstjórnendur
Konráð Ægisson, Guðmundur
Jónsson og Friðrik Guðmunds-
son. -mhg
Ungir blikksmiðanemar lyftaglösum. Frá v.: Guðmundur Einarsson, Ævar Örn Ævarsson, Finnur
E. Finnsson og Agúst Sumarliðason. Mynd: Sig.
Laugardagur 28. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13