Þjóðviljinn - 07.01.1986, Qupperneq 1
7janúar
1985
þriðju-
dagur
4. tölublað 51. örgangur
MANNLÍF
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
Þýsk-íslenska
Gripnir í skyndiúthlaupi
Eittstœrsta innflutningsfyrirtœki landsins grunað um að hafa dregið á annað hundrað
miljónir kr. undan skatti. Víðtœk rannsókn nœr tilsíðustu ára. Fyrrum stjórnarformaður
ogframkvœmdastjórifyrirtœkisins var Guðmundur G. Þórarinsson
fyrrum þingmaður Framsóknar og gjaldkeri flokksins
Eitt stærsta innflutningsfyrir-
tæki landsins Þýsk-íslenska er
grunað um að hafa svikið á annað
hundrað miljónir undan skatt-
greiðslum, ýmist með röngum
innflutningsskýrslum eða undan-
drætti á söluskatti. Kom þetta í
Ijós við skyndirannsókn skatt-
rannsóknaremhættisins. Starfs-
menn skattrannsóknarstjóra hafa
farið ýtarlega ofan í skattaskil
fyrirtækisins að undanförnu og
Ijóst er að mikið er enn órannsak-
að í málinu en rannsóknin á bók-
haldi Þýsk-íslenska nær nokkur
ár aftur í tímann.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans vaknaði grunur á misferli í
bókhaldi fyrirtækisins við skynd-
ikönnun skattrannsóknarem-
bættisins á fjölmörgum fyrirtækj-
um sl. haust. Síðan hefur verið
unnið að rannsókn málsins en
Garðar Valdimarsson skattrann-
sóknarstjóri vildi ekkert láta uppi
um málið að svo stöddu í samtali
við Þjóðviljann í gær. Málinu
verður vísað til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins til ýtarlegri rann-
sóknar á brotum á bókhalds-
lögum þegar frumniðurstöður
skattrannsóknarembættisins
liggja fyrir.
Ekki náðist í Ómar Kristjáns-
son stjórnarformann og fram-
kvæmdastjóra Þýsk-íslenska í
gær en Guðmundur Þórðarson
fjármálastjóri og stjórnarfor-
maður fyrirtækisins vildi sem
minnst segja en gat þess að ýmsar
sögur hefðu farið af stað eftir
heimsókn skattalögreglunnar sl.
haust. Aðspurður hver hefði séð
um endurskoðun á reikningum
fyrirtækisins sagði Guðmundur
að endurskoðunin hefði farið
fram innan fyrirtækisins. „Öll
endurskoðun reikninga hefur far-
ið fram hér innandyra,“ sagði
Lífsbarátta
Rotaði
hákarl með
krikketkylfu
Wellington — Á baðströnd á
Nýja-Sjálandi gerðist það á dög-
unum að faðir bjargaði syni sín-
um og vini hans frá því að lenda í
gini hákarls er hann réðst til at-
lögu við skepnuna með krikket-
kylfu eina að vopni.
Kevin Samson lék krikket í
makindum á ströndinni þegar
hann sá hákarl stefna að drengj-
unum tveimur þar sem þeir léku
sér á sjóskíðunr. Hann tók á rás
og barði hákarlinn tvívegis í höf-
uðið með kylfunni. Hákarlinn
virðist hafa rotast því Kevin tókst
að draga hann á sporðinum upp á
land. Á leiðinni Syrjaði hann að
bylta sér og hélt því áfram í þrjá
stundarfjórðunga þar sem hann
lá á ströndinni.
—ÞH/reuter
Guðmundur.
Uppgangur Þýsk-íslenska hef-
ur verið mjög hraður á síðustu
árum og hefur fyrirtækið byggt
yfir sig gríðarstórt skrifstofu- og
lagerhúsnæði ofan við Vestur-
landsveg. Stjórnarformaður
fyrirtækisins og annar fram-
kvæmdastjóri þess fram á
haustdaga 1984 var Guðmundur
G. Þórarinsson fyrrv. alþm.
Framsóknarflokksins og núver-
andi gjaldkeri flokksins. Hann er
einn af stærstu hluthöfum fyrir-
tækisins ásamt Ómari Krist-
jánssyni hálfbróður sínum.
Þýsk-íslenska hefur verið að
færa út kvíarnar á síðustu misser-
um og í haust keypti fyrirtækið
m.a. 38% af hlutafé ferðaskrif-
stofunnar Útsýnar sent breytt var
íhlutafélagnú um áramótin. Auk
þess keypti Ómar Kristjánsson
8% í Útsýn, Helgi Magnússon
endurskoðandi, sem ma. endur-
skoðaði reikninga Hafskips
keypti 2% og Magnús Gunnars-
son framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambandsins keypti
einnig2%. Stjórnarformaður Út-
sýnar er Einar Kristjánsson.
-lg-
Þýsk-íslenska býr vel í nýju og glæsilegu húsnæði ofan við Vesturlandsveginn. Eins og sjá má hefur fyrirtækið umboð fyrir margar vörutegundir sem eru vel
þekktar úr auglýsingatíma sjónvarpsins. Mynd - E.OI.
✓
Kl gjöldin
Til ráðherra í dag
Guðmundur Arnason varaformaður KI: Þolum ekki til lengdarað vera sviptir
félagsgjöldum. Rœðumþetta við ráðherra. HöskuldurJónsson ráðuneytisstjóri:
Förum varlega í að ganga á laun manna án þeirra samþykkis
Við þolum alls ekki að vera
sviptir þessuin tekjuni okkar
til lcngdar. Þetta niál cr í athugun
hjá okkur, við munum ræða þetta
við fjármálaráðherra á morgun,
sagði Guðmundur Árnason vara-
formaður Kennarasambands ís-
iands í samtali við Þjóðviljann í
gær.
„Það er grundvallarregla hjá
okkur að innheimta ekki félags-
gjöld fyrir stéttarfélög nema um
það séu skýr ákvæði í lögum eða
kjarasamningum og svo er ekki í
þessu tilviki. KÍ er ekki lengur
okkar samningsaðili," sagði
Höskuldur Jónsson ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu þeg-
ar Þjóðviljinn leitaði skýringa á
því í gær að félagsgjöld Kennar-
asambandsins voru ekki inn-
heimt um áramótin og það þann-
ig svipt tekjum sínum. „Við för-
um ákaflega varlega í það að
ganga í laun manna og taka af
þeim gjöld sem ekki eru
samnings- eða lögbundin. Þetta
er ákvörðun ráðuneytisins og
reyndar ekkert einsdæmi," sagði
Höskuldur.
KÍ hefur allar sínar tekjur af
félagsgjöldum og ef ráðuneytið
heldur fast við þessa ákvörðun
sína virðist ekki annað fært en að
innheimta þessi gjöld milliliða-
laust, en að sögn Guðmundar
Árnasonar er það rnjög flókið og
erfitt í framkvæmd. í lögum urn
opinbera starfsmenn segir að fé-
lagsgjöld þeirra einstaklinga sem
standa utan heildarsamtaka skuli
renna til þess félags sem viðkom-
andi ætti að vera í eins og það er
orðað og samkvæmt því ættu
þessi félagsgjöld að renna til
BSRB.
Guðmundur sagðist ekki geta
sagt um hvernig KÍ bregst við
þessum vanda ef ekki finnst lausn
á málinu næstu daga.
-gg