Þjóðviljinn - 07.01.1986, Síða 2
FRETTIR
Smyglarar
Flestir
án
atvinmi
Lagt hald á tœplega 9 kg
afhassi á sl. ári
A síðasta ári lagði fíkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík
hald á tæplega 9 kíló af hassi, tæpt
kíló af amfetamíni og 2223
skammta af ofskynjunarefninu
LSD. Þegar þeir sem kærðir eru
dragast í dilka eftir atvinnu kem-
ur í ljós að flestir þeirra reyndust
án atvinnu eða 114 talsins og
næstir koma sjómenn, alls 89.
Flestir kærðra eru á aldrinum 21-
30 ára.
Af öðrum tegundum sem lagt
var á hald í fyrra má nefna marí-
húana 573,5 gr, 0,2 gr af hassolíu,
27 kannabisplöntur og 24 gr af
kókaíni. Auk þess var lagt hald á
mikið magn fíkniefna sem átti að
smygla til landsins frá Amster-
dam, einkum hassolíu.
Mest reyndu menn að smygla
fíkniefnum sjóleiðis, en
allnokkuð kom í gegnum Kefla-
víkurflugvöll. Flest efnin komu
frá Hollandi.
Stjórnvöld ætla að ná inn 150
miljónum á þessu ári með
1986
Ár
heilbrigðis
og
bindindis
Vakin athygli á áfengis-
og eiturlyfjabölinu
Nokkrir aðilar hérlendis hafa
ákveðið að hclga árið 1986 heil-
brigði og bindindi. Segja þeir höf-
uðtilganginn vera þann að vekja
athygli á áfengis- og eiturlyfjaböl-
inu. Haldnar verða þrjár ráð-
stefnur á árinu undir forystu
landlæknis auk 3-4 samkomna
með blandaðri dagskrá. Ætlunin
er að stuðla að aukinni fræðslu
um vímuefni í skólum. Þá hyggst
hópurinn standa fyrir viku gegn
vímuefnum á árinu.
Þeir sem standa að ári
heilbrigðis og bindindis eru bisk-
up íslands, landlæknir, Átak
gegn áfengi, Landssambandið
gegn áfengisbölinu, áfengisvarn-
aráð, Stórstúka íslands, ÍSÍ,
UMFÍ og Kvenfélagasamband
íslands.
-v.
TORGIÐ
Vatn og vellíðan?
auknum álögum á sjúklinga. Frá
og með gærdeginum hækkuðu lyf
og læknisþjónusta um allt að 33%
og hafa þá hækkað á valdatíma
stjórnarinnar um 340-733% á
sama tíma og meðallaun verka-
manns hafa hækkað um 114%.
Við afgreiðslu fjárlaga þessa
árs á alþingi fyrir jólin vakti at-
hygli að það vantaði 150 miljónir
uppá framlög til almannatrygg-
inga. Engin svör fengust hvar
taka ætti þá peninga en nú hafa
stjórnvöld loks svarað með stór-
auknum álögum á sjúka.
Mikillar reiði gætir vegna þess-
ara hækkana sem ekki síst munu
bitna harðlega á fullorðnu fólki
• og öryrkjum. Einn hópur sjúkl-
inga sem mikið þarf á lyfjum að
halda eru gigtveikir en stærsti
hluti þeirra er fullorðið fólk.
Sveinn Indriðason formaður
Gigtarfélagsins sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að það lægi í
augum uppi að þessar hækkanir
myndu koma illa við þá sem
mikið væru lasnir. Hans Jörgen-
sen hjá Samtökum aldraðra tók í
sama streng og sagði að þessar
hækkanir kæmu illa við, fólki
ekki síst gamalt fólki, sem þyrfti
mikið á lyfjum og læknishjálp að
halda.
->g-
Fyrir helgina var samlestur hjá Leikfélagi Reykjavikur á leikgerð Brietar Héðinsdóttur á „Svartfugli” Gunnars
Gunnarssonar. Þar segir sem kunnugt er frá morðunum á Sjöundá, en presturinn, séra Eyjólfur Kolbeinsson, segir
söguna. Þau Bjarni og Steinunn á Sjöundá voru dæmd til lífláts árið 1805 og var Bjarni tekinn af lífi i Kaupmannahöfn
en Steinunn lést í fangelsi. Hún var grafin í Skólavörðuholtinu, en árið 1915 voru bein hennar tekin upp og hún jörðuð í
Gamla kirkjugarðinum. Á myndinni sjáum við leikstjórann, Bríeti Héðinsdóttur ásamt Margréti Helgu Jóhannsdóttur
og Sigurði Karlssyni sem leika Steinunni og Bjarna, en þeir Jakob Þór Einarsson og Þorsteinn Gunnarsson leika
báðir séra Eyjólf Kolbeinsson. Mynd. Sig.
Sjúklingaskatturinn
Við mótmælum
Ríkisstjórnin œtlar að taka inn 150 miljónir með stórhœkkun
fyrir lyfog læknishjálp. Talsmenn sjúkra og aldraðra
mótmœlaþessum hækkunum
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
í 1. FL. B 1985
Hinn 10. januar 1986 er annar fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskirteina rikissjoðs með vaxtamiðumti tl. fl. B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 2 verður fra og með 10. januar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiðimeð 5.000,-kr. skirteini kr. 223,72
Vaxtamiðimeð 10.000,-kr. skírteim kr. 447,45
Vaxtamiöi með 100.000,- kr. skírteini_kr. 4,474,50_
Ofangreindar fjárhæðir eru vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1985 til 10. janúar 1986 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985
til 1364 hinn 1. janúar 1986.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 2 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Hafnarstræti 10, Reykjavík, og hefst hinn 10. januar n.k.
Reykjavík, 7. janúar 1986
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Samnmgar
Skýrari línur
„Má ekki dragaþað of lengi að móta skýra stefnu i
okkar kröfugerð, ” segir Hrafnkell A. Jónsson á
Eskifirði
p g a nú ekki von á öðru en að
C svar Vinnuveitendasam-
bandsins við þeim kröfum sem
verða lagðar fram, verði þvert
nei,” sagði Hrafnkell A. Jónsson,
formaður verkalýðsfélagsins Ár-
vakurs á Eskifirði í samtali við
Þjóðviljann.
Annars sýnist mér vera nokk-
uð óljós staða í þessum málum í
dag. En mér finnst að það megi
ekki dragast fram yfir mánaða-
mót að móta skýra stefnu í okkar
kröfugerð. Ég sé engan ávinning
af því að draga það eitthvað fram
eftir vetri.
Mér fannst að sú formannaráð-
stefna sem haldin var nú í des-
ember :hafi borið of mikinn kaim
af málamiðlun innan heildarsam-
takanna frekar en að borin væri
fram ákveðin kröfugerð. Og það
er ekki vitað nú hvort næst fcam
heildarsamstaða um ákveðna
málaflokka. Ég get nefnt sem
dæmi lífeyrismál. Það er komin
fram tillaga um að greiðslur í líf-
eyrissjóðina hækki upp í 100% af
heildarlaunum á ákveðnu tíma-
bili. Mér sýnist hins vegar vera
almenn andstaða nú við þessa
hugmynd. Það er ekki hægt að
auka þetta hlutfall eins og
launamál eru í dag. Þetta er dæmi
um ákveðið mál sem þarf að fá
skýrari línur í áður en settar
verða fram kröfur.
Þá má nefna þetta með 8%
kaupmáttaraukninguna. Mér
finnst vera rennt nokkuð blint í
sjóinn með þessa hugmynd. Það
er nauðsynlegt að útfæra hana
nánar áður en blásið verður í
herluðra.
En .við eigum von á Ásmundi
Stefánssyni í fundaferð um eða
upp úr næstu helgi og þá munum
við leggja orð í belg. Það er ljóst
að á næstu vikum þarf að móta
ákveðinn ramma sem notaður
verður í kjarabaráttunni og þá
verður aðaláherslan sjálfsagt
lögð á kaupmáttarkröfuna,”
sagði Hrafnkell. _IH
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 7. janúar 1986