Þjóðviljinn - 07.01.1986, Blaðsíða 5
Afmœli
Guðmundur
Magnússon
60 ára
Guðmundur Magnússon,
fræðslustjóri Austurlands,
Mánagötu 14 Reyðarfirði, verður
60 ára fimmtudaginn 9. janúar
nk. Hann hefur gegnt fræðslu-
stjórastarfi Austurlands undan-
farin 9 ár, en var áður m.a. skóla-
stjóri Breiðholtsskóla og Lauga-
lækjarskóla í Reykjavík.
Guðmundur og kona hans,
Anna Frímannsdóttir, taka á
móti gestum í Félagslundi,
Reyðarfirði, laugardaginn 11.
janúar kl. 4-7.
FREITIR
Fiskveiðistjórnun
Ahersla á soknarmark
Að öðru leyti eru ekki miklar breytingar ástjórnun fiskveiða milli ára
Sjávarútvegsráðherra hefur
lagt fram reglugerð um
stjórnun botnfískveiða fyrir árið
1986. Reglugerðin grundvallast á
lögum um stjórnun
botnfískveiða, sem samþykkt
voru á Alþingi í desember sl. í
sjálfu sér eru ekki miklar
breytingar á stjórnun veiðanna
frá fyrra ári.
Mesta breytingin er sú, að afli
smábáta er miðaður við sóknar-
mark ístað aflamarks. Með því er
komið til móts við óskir smábáta-
eigenda, sem staðið hafa í stríði
við sjávarútvegsráðherra allt sl.
ár og sem leiddi til stofnunar
Landssambands smá-
bátaeigenda.
Önnur breyting frá fyrra ári er
skertur þroskkvóti loðnuveiði-
skipa. Litlar breytingar eru á sölu
kvóta milli skipa. Þó er óleyfilegt
að selja kvóta skips, sem ekki var
á veiðum 1985 og eins er loðnu-
veiðiskipum sem einnig hafa
rækjuveiðileyfi óheimilt að selja
kvóta sína.
Ný skip fá ekki veiðileyfi,
nema að sambærileg skip séu
tekin úr umferð fyrir þau. Und-
antekning frá þessu eru þó rað-
smíðaskipin fimm, sem nú er
stefnt að sölu á. Kvóti þeirra hef-
ur þó ekki enn verið ákveðinn.
-S.dór
Með vífið í lúkunum var aftur tekið til sýninga í Þjóðleikhúsinu á föstudagskvöld
eftir mánaðarhlé. Sigurður Sigurjónsson og Þórunn Magnea Magnúsdóttir í
hlutverkum sínum.
Kennslushind í mannasiðum
í Helgarpóstinum birtist þann
2. janúar sl. klausa um forval Al-
þýðubandalagsins þar sem meðal
annars stóð eftirfarandi: .... Uóst
er nú að unga fólkið stefnir í hall-
arbyltingu með Kristínu Á. Ól-
afsdóttur í fyrsta sæti, Össur
Skarphéðinsson og Skúla Thor-
oddsen í öðru, þriðja eða fimmta
Vegna þessa vill ÆFAB benda
á að engin slík ákvörðun hefur
Um forvals siðfrœði
verið tekin af ungu fólki innan
Alþýðubandalagsins. Fram-
kvæmdaráð ÆFAB vill vekja at-
hygli þeirra sem svona kosninga-
baráttu stunda á að ungt fólk í
Alþýðubandalaginu er ekki ein-
litur hópur sem lætur draga sig í
dilka.
í væntanlegu forvali taka þátt
22 góðir og gegnir Alþýðubanda-
lagsmenn og úr þeim hópi velur
hver og einn eftir eigin
sannfæringu. Þetta val verður
erfitt sökum þess að fleiri hæfi-
leikamenn gefa kost á sér en
kjósa á. Þess vegna skal slúður-
berum HP bent á að rógur og
slúður um flokksbræður sína er
hreyfingunni ekki til framdráttar
og á ekkert skylt við heiðarlega
kosningabaráttu.
Æskulýðsfylkingin vill þess
vegna í lokin benda á að hún hef-
ur valið úr sínurn hópi sveit
vaskra manna til þátttöku í þessu
forvali. Þetta eru fulltrúar unga
fólksins. Við leitum eftir stuðn-
ingi Alþýðubandalagsfólks við
þessa sveit og lýsum því jafnframt
yfir að við erum tilbúin til að
vinna með hverjum þeim sem vill
leggja fram krafta sína til að
mynda þá samstöðu sem þarf til
að fella íhaldsmeirihlutann.
Samþykkt á Framkvæmdaráðs-
fundi Æskulýðsfylkingar Al-
þýðubandalagsins5. janúar 1986.
Þjóðleikhúsið
Þrjár
sýningar
hafnar á ný
Um þessar mundir eru þrjár
uppfaerslur Þjóðleikhússins að
koma á sýningaskrána að nýju
vegna mikillar aðsóknar, en að-
sókn að Þjóðleikhúsinu hefur ver-
ið með allra besta móti á þessu
hausti.
Á föstudag hófust á ný sýning-
ar á gamanleiknum „Með vífið í
lúkunum" eftir Ray Cooney, eftir
mánaðarhlé. Þess ber að geta að
nú styttist í það að hægt sé að
skemmta sér yfir leiknum á mið-
nætursýningum í Þjóðleikhúsinu,
en fyrsta miðnætursýningin á
„Vífinu“ verður laugardaginn 11.
janúar nk.
Milli jóla og nýárs hófust á ný
sýningar á „Kardemommubæn-
um“ eftir Thorbjörn Egner. 60.
sýning Kardemommubæjarins
verður laugardaginn 4. janúar,
en nú styttst í það að sýningar
verði einungis á sunnudögum.
Þá er fyrirhugað að hafa 6
aukasýningar á „íslandsklukk-
unni“ eftir Halldór Laxness, en
gífurleg aðsókn var að þeirri sýn-
ingu nú í haust. Fyrsta aukasýn-
ingin verður 12. janúar og er vak-
in sérstök athygli á að aukasýn-
ingarnar verða einungis sex tals-
ins.
MINNING
Sigurður
Grímsson
fv. verkamaður
Fœddur 24. ágúst 1906.
- Dáinn 31. desember 1985
Kolbrún
Sigurðardóttir
garðyrkjubóndi, Braut, Borgarfirði
Fœdd 25.4. 1953 - Dáin 23.12. 1985
Árið 1985 er mér minnisstætt
fyrir marga góða hluti. Eitt er þó
sem skyggir á, en það er þegar ég
frétti á gamlársdag að Sigurður
Grímsson væri dáinn. Þó svo frá-
fall hans kæmi mér ekki alveg á
óvart, þar sem hann átti við van-
heilsu að stríða, átti ég ekki von á
því þar sem hann hafði náð sér
sæmilega eftir áfall sl. sumar.
Sigurður var fæddur að Brekku
á Álftanesi 24. ágúst 1906 en ólst
upp í Hafnarfirði. Hann var
sonur hjónanna Gríms Jónssonar
og Vilborgar Böðvarsdóttur og
yngstur fjögurra systkina, sem öll
eru nú látin. Á yngri árum stund-
aði Sigurður sjómennsku ásamt
annarri vinnu. Um 1950 kom
hann alkominn í land og vann
lengst af hjá Eimskip við skipaaf-
greiðslu og einnig nokkur ár sem
næturvaktmaður í skipum félags-
ins. Sigurður eða Siggi Gríms,
eins og hann var oftar kallaður,
var mjög vinsæll maður og mjög
vel látinn af sínum vinnufélögum
og öðrum sem honum kynntust.
Þann 24. apríl 1943 kvæntist
hann Ragnheiði Guðmundsdótt-
ur og einuðust þau þrjár dætur og
barnabörnin eru fjögur. Árið
1947 fluttust þau hjónin í nýtt hús
að Kaplaskjólsvegi 60 og hafa
þau búið þar síðan.
Móðir mín, en hún var systir
Ragnheiðar fluttist þangað árið
eftir með okkur tvo bræðurna.
Vil ég þakka Sigurði innilega
fyrir hversu vel hann reyndist
okkur og sérstaklega okkur
bræðrum eftir fráfall móður okk-
ar 1962.
Eftir að ég fluttist af Kapla-
skjólsveginum 1971 og eignaðist
eigin fjölskyldu héldust náin fjöl-
skyldubönd milli fjölskyldna
okkar. Alltaf var jafn ánægjulegt
að hitta Sigga Gríms, og sérstak-
lega fannst börnunum okkar
vænt um að hitta hann, því alltaf
gaf hann sér tíma til að sinna
þeim. Ennfremur er okkur minn-
isstætt hversu mikla umhyggju og
áhuga hann sýndi okkar heimili,
ekki síður en sinna eigin barna.
Alltaf var gott að fara að hans
ráðum og ekki vantaði að hann
var ávallt reiðubúin að rétta
hjálparhönd ef á þurfti að halda.
Nú þegar ég kveð hinstu
kveðju vil ég fyrir hönd okkar
hjóna og barna okkar þakka þér
allan þann hlýhug og vináttu sem
þú hefur sýnt okkur á liðnum
árum.
Ennfremur sendum við Ragn-
heiði, dætrum, tengdasonum og
barnabörnum okkar bestu sam-
úðarkveðjur við fráfall ástvinar.
Trausti Guðjónsson,
eiginkona og börn.
Okkur setti hljóð þegar harma-
fregnin barst og var sagt að Kolla
frænka væri dáin, horfin sjónum
okkar. Vil fyllumst vonleysi og
spyrjum. Hvers eiga þau að
gjalda börnin tvö og Steini,
Magga og Siggi, já þau öll sem
standa nú uppi harmi slegin við
fráfall hennar? Hvaða almætti er
það sem ræður í þessum heimi og
getur verið svona miskunnar-
laust?
Spurningin stendur, kannski
ósanngjörn og lýsandi um skiln-
ingsleysi á framgang lífsins.
Við stöldrum við og blöðum í
bókum til þess að finna eitthvað
fallegt sem hefur verið ort og gæti
átt við, en lendum í vandræðum,
því öll erum við mannanna börn
sérstök, sum frekar en önnur og
Kolbrún eitt þeirra.
Þegar við minnumst Kollu
frænku vakna upp endurminn-
ingar, já ótalmargar, flestar
bundnar æsku og leik í Fögruhlíð
heima hjá foreldrum hennar, sem
eru okkur svo kær og einnig hjá
pabba og mömmu á Digranes-
veginum, þar sem hún var eins og
eitt af okkur systkinunum.
Heimsóknir og samverustund-
ir bæði í gleði og sorg síðar á lífs-
leiðinni, eftir að Kolla og Steini
voru komin með fjölskyldu og
börnin þeirra yndislegu sem
endurspegla hið góða og saklausa
sem við trúum á.
Lífið verður að halda áfram,
það er lögmál og við mennirnir
fáum ekki miklu ráðið þegar
staðið er frammi fyrir svo alvar-
legum sjúkdómi sem hér var um
að ræða.
Við verðum að treysta á að tím-
inn lækni það sár sem við berum
og minningin um Kollu verður
ætíð ljós sem lýsir.
Það skarð sem hér var höggvið
verður ekki fyllt, en við systkinin
vottum öllum ástvinum hennar
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning þín elsku
Kolla. Heiða og Siggi.
kki
að ge
j. tilv a
rast
ás
krVndl?
DJÓÐVILIINN
Þriðjudagur 7. januar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5