Þjóðviljinn - 07.01.1986, Page 15
________MINNING________
Geir Jónasson
borgarskjalavörður
Fœddur 5. september 1909
Dáinn 12. desember 1985
Með Geir Jónassyni er fallinn í
valinn mætur maður og drengur
góður sem gott er að minnast.
Geir var fæddur á Akureyri og
ólst þar upp. Foreldrar hans voru
af merkum austfirskum og norð-
lenskum ættum. Þegar ég kom
fyrst til Akureyrar þá var faðir
hans þar mikilsmetinn og þekkt-
ur húsasmíðameistari, í daglegu
tali meðal almennings jafnan
nefndur Jónas smiður og var það
sæmdarheiti.
Geir lauk stúdentsprófi árið
1930, meistaraprófi í sagnfræði
frá Fláskólanum í Osló 1936.
Geir Jónasson kom heim frá
námi í heimskreppunni niiklu. Þá
var víða þröngt í búi á Islandi og
atvinnuleysi landlægt en engar at-
vinnuleysisbætur greiddar.
Þessi ungi sagnfræðingur sett-
ist fyrst í stað að í heimabyggð
sinni, Akureyri, og hófst fljótlega
handa um að vinna að áhugamál-
um sínum á sviði bókmennta.
Hann kom með tvö bókaumboð
frá Noregi, frá Tidensforlag og
Framforlag í Osló, en þessi tvö
forlög stóðu þá framarlega í því
að birta þýðingar á verkum er-
lendra höfunda sem vöktu á sér
athygli.
A skólaárunum í Osló tók ekki
bara sagnfræðin hug Geirs allan
heldur líka úrvals skáldverk
heimsbókmenntanna. íslend-
ingasögunum unni hann ntjög og
sérstaklega minnist ég þess hvað
hann var hrifinn af höfundi Njáls-
sögu.
Geii Jónasson var maður vel af
Guði gerður, búinn margþættum
hæfileikunt m.a. mikilli skipu-
lagsgáfu. Hann var mikill kapp-
rnaður í hverju starfi sem hann
tók að sér og honum vannst allt
vel en þó var ekki neinn asi á
honum. En hvert verk hans var
þrauthugsað og hvernig best yrði
að því staðið.
Geir var mikill bókamaður í
þess bestu merkingu því hann
unni öllu sem honum þótti vel
samið og skrifað. Hann var mikill
íslenskumaður og gerði strangar
kröfur um nreðferð málsins.
Geir Jónasson var að eðlisfari
dulur maður en eftir því sem
maður kynntist honunt betur þá
mat maður hann meira. Þeir sem
urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að
kynnast honum vel, þeim hlaut
að verða ljóst að þar fór traustur,
góður mannkostamaður sem
ekki vildi vamnt sitt vita í neinu.
Við Geir urðunr málkunnugir
fljótlega eftir að hann kom frá
námi. En kynni okkar hófust ekki
fvrir alvöru fyrr en á árinu 1939.
Eg var þá nýkominn frá
Kristneshæli eftir margra ára bar-
áttu við berklana á sjúkrahúsum
og hælum. Ég hafði skrifað hand-
rit síðasta árið á Kristneshæli og
boðið einum bókaútgefanda það
til prentunar en hafði ekki áhuga.
Tími til bókaútgáfu var erfiður og
rnikil fjárhagskreppa í landi. Það
var þá sem ég fékk boð frá Geir
Jónassyni um að hann vildi
gjarnan hafa tal af mér, og erind-
ið var að hann langaði að fá að
lesa handrit mitt. Eftir þann lest-
ur bauð hann mér að gefa hand-
ritið út. Geir hafði árið áður
stofnað bókaútgáfuna Eddu á
Akureyri. Mér var strax Ijóst að
þetta var gott boð og útgáfa
handritsins var í góðurn höndum.
Þetta var fyrsta bók mín „ís-
hafsævintýri" sem kom út þetta
sama ár 1939. Þá gaf Geir út
næstu bók mína „Svífðu seglurn
þöndum” sem kom út 1940. Báð-
ar þessar bækur voru gefnar út í
óvenju stórum upplögum og seld-
ust vel þrátt fyrir krepputíma í
þjóðfélaginu. Frá þessum tíma á
ég góðar minningar sem oft koma
fram í hugann.
Geir Jónasson var elskulegur
maður sem gaman var að þekkja
og gott að skipta við. Ég fluttist
svo til Reykjavíkur 1941 og þá
skildust leiðir okkar Geirs í bili.
Hann hélt áfrarn störfum á Akur-
eyri.
Hann hafði nokkru eftir
heimkomuna frá Noregi tekið að
sér að skrifa sögu Ungmennafé-
lagsins á íslandi frá 1907-1937 og
kom sú saga út í Reykjavík 1938.
Þá sá Geir líka um útgáfu sem
fannst eftir lát Frímanns heitins
Arngrímssonar, eins fjölhæfasta
fræðimanns sem við íslendingar
höfum átt. En hann var á sínum
efri árum einsetumaður á Akur-
eyri. Þessi bók hét „Minningar
frá London og París" og gaf Edda
hana út.
Frá árinu 1941-1943 kenndi
Geir við Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar. Hann sat einnig í stjórnar-
nefnd Amtbókasafnsins á Akur-
eyri frá 1939-1943 en á námsárun-
um í Osló hafði hann verið feng-
inn til að útvega safninu ýmsar
erlendar úrvalsbækur.
Svo flytur Geir frá Akureyri til
Reykjavíkur og er ráðinn bóka-
vörður við Landsbókasafnið 1944
þar sem hann starfaði næstu 28
ár. En þá var hann ráðinn skjala-
vörður Reykjavíkurborgar.
Við Geir urðum svo nábúar á
Reynimelnum fyrst eftir að hann
flyst suður og kom þá Geir oft til
mín og við blönduðum geði sam-
an. Næstu árin hittumst við oft á
förnum vegi og tókum tal saman.
Það var alltaf jafn skemmtilegt að
hitta Geir. Hann var alltaf brenn-
andi í andanum gagnvart íslensk-
um fræðum og átti mörg áhuga-
mál á því sviði.
Geir var tvíkvæntur, fyrri kona
hans var Svava Stefánsdóttir. Þau
skildu. Síðari kona hans er
Kristín Jónasdóttir og lifir hún
mann sinn.
Fyrir nokkrum árum varð Geir
Jónasson fyrir því þunga áfalli að
missa starfsþrek sitt og heilsu og
verða sjúklingur. Hann dvaldi
síðustu árin á sjúkradeildinni við
Hátún.
Nú þegar þessari löngu baráttu
er lokið og Geir er lagður af stað í
þessa miklu ferð sem okkur
öllum er búin, þá vil ég að síðustu
þakka honum hjartanlega fyrir
gömul og góð kynni og trausta
vináttu.
Kristínu Jónasdóttur eftirlif-
andi konu hans votta ég mína
dýpstu santúð.
Jóhann J.E. Kúld
Umboðsmenn Happdrættis
Háskúla íslands 1986
Reykjavík:
Norðurland:
Aðalumboð, Tjarnargötu 4, sími 25666
Búsport, verslun, Arnarbakka 2-6, sími 76670
Bókabúðin Álfheimum 6, sími 37318
Bókabúð Fossvogs, Grlmsbæ, sími 686145
Bókabúð Jónasar Eggertssonar, Rofabæ 7, sími
83355
Frímann Frímannsson, Hafnarhúsinu, sími 13557
Griffill s.f., Síðumúla 35, c/o Teitur Gústafsson,
sími 36811
Neskjör, Ægissíðu 123, sími 19832
Rafvörur, Laugarnesvegi 52, simi 686411
Sparisjóður Reykjavikur og nágrennis, Skólavörðustíg
11, sími 27766
Sparisjóður Reykjavfkur og nágrennis, Seltjarnarnesi,
sími 625966
Sparisjóður Reykjavfkur og nágrennis, Hátúni 2b,
sími 12400
Cllfarsfell, Hagamel 67, sfmi 24960
Verslunin Straumnes, Vesturbergi 76, sfmi 72800
Videogæði, Kleppsvegi 150, sími 38350
Þórey Bjarnadóttir, Kjörgarði, sími 13108
Kópavogur:
Anna Sigurðardóttir, Hrauntungu 34, sími 40436
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sfmi 40180
Sparisjóður Kópavogs, Engihjalla 8, sfmi 41900
Garðabær:
Bókaverslunin Grfma, Garðatorgi 3, sími 42720
Hafnarfjörður:
Tréborg, Reykjavíkurvegi 68, slmi 54343
Reynir Eyjólfsson, Strandgötu 25, sími 50326
Mosfellssveit:
Bókaverslunin Snerra s.f., Þverholti, sími 666620
Vesturland:
Akranes
Fiskilækur
Melasveit
Grund
Skorradal
Laugaland
Stafholtst.
Reykholt
Borgarnes
Hellissandur
Ólafsvík
Grundarfj.
Stykkish.
Búðardalur
Mikligarður
Saurbæjarhr.
Bókaverslun Andrésar Níelssonar,
sími 1985
Jón Eyjólfsson, sími 3871
Davlð Rétursson, sími 7005
Lea Þórhallsdóttir, sími 7111
Dagný Emilsdóttir, sími 5202
Þorleifur Grönfeldt, Borgarbraut 1,
sfmi 7120
Svanhildur Snæbjörnsdóttir, Hellu,
sími 6610
Jóna Birta Óskarsdóttir, Ennisbraut 2,
sími 6165
Kristfn Kristjánsdóttir, sfmi 8727
Ester Hansen, Silfurgötu 17,
sfmi 8115
Versl. Einars Stefánsson, c/o Ása
Stefánsdóttir, sfmi 4121
Margrét Guðbjartsdóttir, sími 4952
Vestflrðir:
Króksfjarðarn.
Patreksfj.
Tálknafj.
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvik
Isafjörður
Súðavfk
Vatnsfjörður
Krossnes
Árneshreppi
Hólmavfk
Borðeyri
Halldór D. Gunnarsson, sími 4766
Magndfs Gfsladóttir, sfmi 1356
Ásta Torfadóttir, Brekku, sfmi 2508
Birna Kristinsdóttir, Sæbakka 2,
sfmi 2128
Margrét Guðjónsdóttir, Brekkugötu 46,
sfmi 8116
Steinunn Jónsdóttir, Hafnarstræti 3,
sfmi 7619
Sigrún Sigurgeirsdóttir, Hjallabyggð 3,
sími 6215
Guðríður Benediktsdóttir, sími 7220
Jónfna Einarsdóttir, Aðalstræti 22,
sfmi 3700
Dagrún Dagbjartsdóttir, Túngötu 18,
sfmi 4935
Baldur Vilhelmsson, sími 4832
Sigurbjörg Alexandersdóttir
Jón Loftsson, Hafnarbraut 35, sfmi
3176
Guðný Þorsteinsdóttir, sfmi 1105
Hvammst. Sigurður Tryggvason, sími 1341
Blönduós Sverrir Kristófersson, Húnabraut 27, sími 4153
Skagaströnd Guðrún Pálsdóttir, Röðulfelli, sími 4772
Sauðárkr. Elinborg Garðarsdóttir, Háuhlið 14, sími 5115
Hofsós Anna Steingrímsdóttir, sími 6414
Fljót Inga Jóna Stefánsdóttir, sími 73221
Siglufjörður Aðalheiður Rögnvaldsdóttir, Aðalgötu 32, sími 71652
Ólafsfjörður Verslunin Valberg, sími 62208
Hrfsey Gunnhildur Sigurjónsdóttir, sími 61737
Dalvfk Verslunin Sogn, c/o Sólveig Antons- dóttir, sfmi 61300
Grenivík Brynhildur Friðbjörnsdóttir, Ægissíðu 7, sfmi 33227
Akureyri Jón Guðmundsson, Geislagötu 12, sfmi 24046
Akureyri NT-umboðið, Sunnuhlfð 12, sími 21844
Mývatn Guðrún Þórarinsdóttir, Helluhrauni 15, sími 44220
Grímsey Vilborg Sigurðardóttir, Miðtúni, sími 73101
Húsavfk Guðrún Stefanía Steingrímsdóttir, sfmi 41569
Kópasker Óli Gunnarsson, Skógum, sími 52120
Raufarhöfn Hildur Stefánsdóttir, Aðalbraut 36, sími 51239
Þórshöfn Kaupfélag Langnesinga, sími 81200
Laugar Rannveig H. Ólafsdóttir, bóksali.
S-Þing. sími 43181
Austfirðir:
Vopnafjörður Kaupfélag Vopnfirðinga
Bakkagerði Sverrir Haraldsson, Ásbyrgi, sfmi 2937
Seyðisfjörður Bókaverslun A. Bogasonar og E. Sig- urðssonar, Austurvegi 23, sfmi 2271
Neskaupst. Verslunin Nesbær, sími 7115
Eskifjörður Hildur Metúsalemsdóttir, sími 6239
Egiisstaðir Aðalsteinn Halldórsson, Laufási 10, sími 1185
Reyðarfj. Bogey R. Jónsdóttir, Mánagötu 23, sfmi 4179
Fáskrúðsfj. Bergþóra Berkvistsdóttir, sími 5150.
Stöðvarfj. Ingibjörg Björgvinsdóttir, Mánatúni, sfmi 5848.
Breiðdalur Kristfn Ella Hauksdóttir, sími 5610
Djúpivogur Elfs Þórarinsson, hreppstjóri, sfmi 8876
Höfn Hornafirði Hornagarður, sími 8001
Suðuriand:
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson, sfmi 7624
Vík í Mýrdal Guðný Helgadóttir, Árbraut 3, sfmi 7215
Þykkvibær Hafsteinn Sigurðsson, Smáratúni, sími 5640
Hella Aðalheiður Högnadóttir, sfmi 5165
Espiflöt Biskupst. Sveinn A. Sæland, sími 6813
Laugarvatn Þórir Þorgeirsson, sfmi 6116
Vestm.eyjar Sveinbjörn Hjálmarsson, Bárugötu 2, sfmi 1880
Selfoss Suðurgarður h.f., c/o Þorsteinn Ásmundsson, sfmi 1666
Stokkseyri Oddný Steingrímsdóttir, Eyrarbraut 22, sími 3246
Eyrarbakki Þuríður Þórmundsdóttir, sfmi 3175
Hveragerði Þórgunnur Björnsdóttir, Þórsmörk 9, sfmi 4235
Þorlákshöfn Jón Sigurmundsson, Oddabraut 19, sfmi 3820
I Reykjanes:
Grindavfk
Hafnir
Sandgerði
Keflavík
Flugvöilur
Vogar
Ása Einarsdóttir, Borgarhrauni 7,
sfmi 8080
Guðlaug Magnúsdóttir, Jaðri, sfmi 6919
Sigurður Bjarnason, sími 7483
Jón Tómasson, sfmi 1560
Erla Steinsdóttir, sími 55127
Halla Árnadóttir, Hafnargötu 9,
sími 6540
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ISLANDS
vænlegast til vinnings
ARGUS.'SIA