Þjóðviljinn - 12.02.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 12.02.1986, Blaðsíða 2
Auglýsingad. Þjóðviljans FRÉTTIR A Iþýðuflokkurinn Svona samstarf óeðlilegt Fulltrúaráð Alþýðuflokksins tekurekki afstöðu til erindis SigurðarE. Guðmundssonar. Björgvin Guðmundssonformaðurfulltrúaráðsins: Persónulega tel ég kosningabandalag óeðlilegt. Búið aðeyðileggja kjörgögn. Ekki hægt að úrskurða hvortflokksbundnir íöðrumflokkum kusu Við reisum okkar úrskurð á reglunum, segja má að svarið sé tæknilegs eðlis, sagði Björgvin Guðmundsson formaður fulltrú- aráðs Aiþýðuflokksins í Reykja- vík, en ráðið hefur úrskurðað í máli því sem Sigurður E. Guð- mundsson borgarfulltrúi vísaði til þess vegna prófkjörsins á dögun- um. „En hins vegar get ég sagt persónulega að mín skoðun er sú að það sé óeðlilegt að hafa svona samstarf einsog gert var í próf- kjörinu í Reykjavík,“ sagði Björgvin. í svari fulltrúaráðsins við er- indi Sigurðar E. Guðmundssonar er annars vegar bent á að ekkert ákvæði sé í gildandi reglum sem banni kosningasamstarf tveggja frambjóðenda gegn hinum þriðja. Og hins vegar er sagt að ekki sé framkvæmanlegt að kanna hvort félagsbundnir menn í öðrum stjórnmálaflokkum hafi tekið þátt í prófkjörinu. Björgvin kvað tvennt hafa valdið því að fulltrúaráðið gæti ekki skorið úr um hvort flokks- bundnir menn í öðrum flokkum hefðu kosið eða ekki. Annars vegar hefðu menn ekki gögn um það frá öðrum stjórnmálaflokk- um hverjir væru þar flokks- bundnir og hins vegar væri kjör- gögnum, þ.e. upplýsingum um það hverjir hafi kosið ekki haldið til haga. Um hitt atriðið, þ.e. hvort kosningabandalag tveggja fram- bjóðenda gegn hinum þriðja samræmdist hefðum í Alþýðu- flokknum, þá vísaði Björgvin til reglna þar sem hvorki er getið um Hafnarfjörður Sparað hjá fogeta Skúringakonunum hjá bœjarfógeta sagt upp. Mega ráða sig afturfyrir lœgri laun. Guðríður Elíasdóttir, Framtíðinni: Sparað meðþvíað skera niður hjá þeim sem hafa lœgstu launin Skúringakonum sem starfa hjá embætti bæjarfógeta í Hafn- arfirði og á lögreglustöðinni í bænum hcfur verið sagt upp störfum þar sem ákveðið hefur verið af hálfu hins opinbera að taka upp nýjar vinnurcglur við hreingerningar í þessum stofnun- um. Jafnframt hefur konunum verið tjáð að þeim sé hcimilt að sækja um störfin að nýju þegar nýju reglurnar verða komnar á, en launagreiðslur munu þá verða eitthvað lægri fyrir þrifín. Guðríður Elíasdóttir formaður Verkakvennafélagsins Framtíð- arinnar sagði í samtali við Þjóð- viljann í gær að hér væri sem jafn- an áður byrjað að spara í ríkis- kerfinu með því að skera niður hjá þeim sem væru lægst launað- ir. „Þetta hefur verið uppmælt pláss sem unnið hefur verið eftir en nú á að breyta þessu í tíma- mælda ákvæðisvinnu. Konunum hefur verið sagt upp með lög- legum fyrirvara og það er því ekkert hægt að aðhafast í málinu. Konurnar verða að gera upp við sig sjálfar hvort þær vilja halda vinnunni áfram og það getur ver- ið nokkuð mismunandi hvernig þetta kemur út. Tímaskyldan lækkar eitthvað og líklega tekj- urnar þá um leið,“ sagði Guð- ríður. -lg- hvort slík bandalög eru heimiluð eða bönnuð. Á hinn bóginn kvað hann eitt sinn hafa verið rætt um það í flokknum hvort heimila ætti listakosningu í prófkjöri. Frá því var horfið og ákveðið að hafa skyldi einstaklingskosningar. f svari fulltrúaráðs er því ekki tekin afstaða til þess hvort kosn- ingabandalag Bryndísar og Bjarna P. Magnússonar hafi sam- ræmst eðli og inntaki slíks próf- kjörs hjá Alþýðuflokknum, eins- og Sigurður E. Guðmundsson fór fram á í sínu erindi. -óg Einar Einarsson gítarleikari leikur á Háskólatónleikum í Nor- ræna húsinu í hádeginu í dag. Á dagskrá eru verk eftir þrjú ensk tónskáld sem samið hafa fyrirgítar og lútu; endurreisnarmann- inn Dowland og þá Berkeley og Rawsthorne sem heyra til 20. öldinni. Einar lærði hér við Tónlistarskólann og er nú í fram- haldsnámi í Manchester á Englandi. Tónleikarnir hefjast klukk- an hálf eitt og standa í um það bil hálftíma. (mynd: gæi) Verður ekki að fara að athuga með þessa þriðjudagsveiki fjármálaráðherrans? Banaslys Fónstí fjallgöngu Banaslys varð skammt fyrir innan Bolungarvík sl. sunnudags- kvöld. Rúmlega þrítug stúlka, Guðlaug Pálsdóttir hrapaði til bana í fjallgöngu og mun hafa lát- ist samstundis. Slysið varð í svokölluðu Tunguhorni inn af Bolungarvík. Guðlaug var ein á ferð, vel búin til gönguferða. Hún hafði mælt sér mót við félaga sína um kvöld- ið og þegar ekkert hafði spurst til hennar um miðnæturbil var björgunarsveit Slysavarnarfé- lagsins kölluð út. Lík Guðlaugar fannst undir mánudagsmorgunn í Vindaskál. _*_____________— Norðlendingar Hafið samband! Eins og skýrt var frá í Pjóðvilj- anum í gær hefur verið ráðinn fréttamaður fyrir blaðið á Norð- urlandi. Sá heitir Guðlaugur Arason og hefur hann aðsetur að Eiðsvallagötu 18. Um leið og les- endur blaðsins nyrðra eru ein- dregið hvattir til að hafa samband við hann um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta skal minnt á að símanúmer hans er 96-21875. Baráttudagar gegn ríkisstjórninni Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins og Alþýðu-1 Vinnustaðaheimsóknir, félagsfundir og almennir bandalagið efna til baráttudaga gegn ríkisstjórninni | stjórnmálafundir. 13. til 15. þessa mánaðar - fimmtudag til laugar- dags. Reykjavík: Félagar úr Æskulýösfylking- unni, frambjóöendur til borgarstjórnar og aörir talsmenn flokksins heimsækja vinnu- staöi í Reykjavík á fimmtudag og föstudag. Reykjanes: Félagar úr Æskulýösfylking- unni og forystumenn flokksins heimsækja vinnustaöi á Suðurnesjum á fimmtudag og föstudag. Vesturland: Vinnustaöaheimsóknir í Stykkishólmi. Félagsfundur í verkalýðshús- inu á föstudagskvöld. Þar sitja fyrir svörum þeir Skúli Alexandersson alþingismaöur, Tryggvi Þór Aðalsteinsson framkvæmda- stjóri MFA og Ragnar A. Þórsson verka- maður. Vestfirðir: Vinnustaöaheimsóknir á Pat- reksfirði. Almennur stjórnmálafundur á laugardag. Málshefjendur: Rögnvaldur Bjarnason, Kristinn H. Gunnarsson og Ólaf- ur Jens Daðason. Norðuriand vestra: Vinnustaöaheimsókn- ir á Sauðárkróki á fimmtudag. Opiö hús í Villa Nova um kvöldið. Pálmar Halldórsson, ritari Alþýðubandalagsins og framkvæmda- stjóri Iðnnemasambandsins, og Ragnar Arnalds alþingismaöur og Sölvi Ólafsson bókageröarmaður sitja fyrir svörum. Norðuriand eystra: Vinnustaðaheimsókn- ir á Húsavík. Almennur stjórnmálafundur á föstudagskvöld. Svavar Gestsson formaö- ur Alþýðubandalagsins, Aðalsteinn Bald- ursson og Kári Arnór Kárason. Alþýðubandalagið Austurland: Djúpivogur, Höfn í Hornafirði. Almennir stjórnmálafundir. Framsögu- menn: HjörleifurGuttormssonalþingismað- ur og Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrif- stofumaður. Suðurland: Vestmannaeyjar - vinnu- staðaheimsóknir og almennur fundur í Al- þýðuhúsinu á laugardaa. Framsaga á al- menna fundinum Kristín Á. Ólafsdóttir vara- formaður AB, Helgi Hjörvar nemi og Elías Björnsson formaður Sjómannafélagsins Jötuns. Tekið skal fram að vinnustaðaheimsóknir verða einnig skipulagðar á öðrum stöðum. Allir fundirnir verða auglýstir nánar á við- komandi stöðum og í fjölmiðlum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.