Þjóðviljinn - 12.02.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663.
Miðvikudagur 12. febrúar 1986 35. tölublað 51. árgangur
DJOÐVILJINN
Olíusamningurinn
1,5 miljón króna tap á dag!
Flotinn tapar miljónum vegna hœrra olíuverðs hérá landi en ínágrannalöndunum.
Hjörleifur Guttormsson: Verðlœkkun verður að skila sérstrax að einhverju leyti.
Brýntað endurskoða innkaupin og auka áhœttu olíufélaganna íþessari verslun
Islenski fiskiskipaflotinn tapar
1,5 miljón króna á dag um þess-
ar mundir vegna hærra gasolíu-
verðs á íslandi en í nágrannalönd-
unum! Árið 1984 notaði fiski-
skipaflotinn 111 þúsund tonn af
gasolíu en tonnið er nú um 5 þús-
und krónum dýrara hér en í Bret-
landi og í Danmörku.
Nú er í viðskiptaráðuneytinu
verið að leita ráða til að olíuverð-
lækkunin komi til framkvæmda
hér á landi áður en allar dýru
birgðirnar verða uppseldar um
sumarmál. Þetta kom fram á al-
þingi í gær í utandagskrárumræð-
um, sem Hjörleifur Guttormsson
hóf.
Hjörleifur benti á að engin
verðbreyting hefði orðið á gasol-
íu til fiskiskipa frá 23. október s.l.
þegar hver lítri var hækkaður um
80 aura. Hver lítri er um 5 krón-
um dýrari hér en í nágrannalönd-
unum og umframkostnaður hvers
skips væri að meðaltali 25 þúsund
krónur á hvern sóknardag vegna
þessa. Ef gert er ráð fyrir 270 út-
haldsdögum á ári er umfram-
kostnaður hvers togara 6,75 milj-
ónir króna.
Hjörleifur sagði skiljanlegt að
útgerðarmenn reyndu að komast
að hagkvæmari olíukaupum með
því að sigla með fiskinn en það
leiddi aftur til þess að atvinna í
landi drægist saman og skortur
væri á unnum freðfiski í Banda-
ríkjunum. Það væri ekkert nýtt
að olía væri dýrari hér en í ná-
grannalöndunum en nú yrði að
láta lækkunina koma fram strax
að einhverju leyti og endurskoða
innkaupakerfið þannig að þessi
saga endurtæki sig ekki sífellt. Þá
sagði hann að olíufélögin væru
ekki févana þegar um fjárfesting-
ar og samkeppni væri að ræða og
eðlilegt væri að auka hlut þeirra í
áhættunni af þessari verslun.
Kjartan Jóhannsson sagðist
vilja „frelsi" í þessum við-
skiptum, í stað bundinna samn-
inga við Sovétmenn, en Kjartan
var upphafsmaður að olíukaup-
unum frá Bretlandi um árið sem
snerust í öndverðu sína, eins og
bæði Hjörleifur og Matthías
Bjarnason viðskiptaráðherra
bentu á. Spunnust hvöss orða-
skipti milli Kjartans og Matthías-
ar um olíukaupin af Rússum
vegna þessa og tók Valdimar Ind-
riðason undir vörn ráðherrans
fyrir þau. - ÁI
1 - A 1 B C“~ * A f' c 1 H
Reykjavikurskákmótið, hið tólfta í röðinni, hófst með pompi og pragt á Hótel Loftleiðum rétt fyrir fimm í gær. Par tefla alls
74 frá 14 löndum, þaraf 22 stórmeistarar. Myndin er frá mótsbyrjun og þeir sem á henni sjást eru allir nokkuð sérstæðir
þátttakendur: Guðmundur Arnlaugsson yfirdómari ráðgast um klukkuna við stigahæsta mann mótsins, Tony Miles, sem
býst til keppni við þann sem lengst er að kominn, Indónesann Adianto, en hjá stendur elsti þátttakandinn, Samuel
Reshevsky. Úrslit, skýringar og frásögn í blaðinu - önnur umferð hefst í dag kl. 16.30. (Mynd Sig.) - Sjá síðu 9.
Akureyri
Uppsögnum
mótmælt
Brottrekið starfsfólkfataverksmiðj-
unnar Heklu á Akureyri mótmœlti í
gœr. 2140 Akureyringar undirrita
bréfþarsem skorað er á bœjaryfir-
völd að tryggja rekstur verksmiðj-
unnar
Frá fréttaritara Þjóðviljans á Ak-
ureyri:
Eins og fram kom á fundi versl-
unardeildar fataverksmiðj-
unnar Heklu föstudaginn 24.
þ.m. var stefnt að lokum verk-
smiðjunnar í lok apríl nk. vegna
langvarandi rekstrarörðugleika.
Öllu starfsfólki fataverksmiðj-
unnar Heklu er sagt upp störfum
samtímis og miðast starfslok hjá
öllum við 30. aprfl 1986.
Þannig byrjar uppsagnarbréf
sem starfsmenn fataverksmiðj-
unnar fengu fyrir skömmu. A
bæjarstjórnarfundi á Akureyri í
gær mættu starfsmenn Heklu og
I
Erlendar skuldir
Aldrei
meiri
Þorsteinn Pálsson, fjármála-
ráðherra hcfur í skriflegu
svari á alþingi staðfest stóraukna
skuldasöfnun ríkisstjórnarinnar
erlendis, sem hann afneitaði
harðlega í sjónvarpi fyrir
skömmu.
í svari Þorsteins vegna fyrir-
spurnar frá Guðrúnu Helgadótt-
ur kemur fram að sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu jókst
greiðslubyrði erlendra skulda úr
7,5% 1982 í 9% á fyrsta ríkis-
stjórnarárinu, í 10,4% á árinu
1984 og í fyrra í 8,9% samkvæmt
áætlun.
í svarinu kemur fram að 1979
nam þessi greiðslubyrði 5,3%,
árið 1980, 5,3%, árið 1981 6,1%
árið 1982 7,5% en hér er aðeins
um greiðslubyrði afborgana að
ræða, ekki vaxta. - ÁI
Kvikmyndir
Kaírórósin sýnd
í Háskólabíói
Ein besta mynd Woody Allen - um að verða ástfangin íkvikmyndum.
Allsstaðarsýnd við mikla hylli. Ein aftíu bestu hjá Time
Háskólabíó tekur í dag til sýn-
inga nýjustu mynd Woody Allen
The Purple Rose of Kaíró/Kaíró-
rósina purpurarjóðu.
Kaírórósin er ein af allra bestu
myndum bandaríska snillingsins
Woody Allen, og raunar ein af
þeim sem hann leikur ekki í sjálf-
ur: aðalleikarar eru Mia Farrow
(sem ásamt Diane Keaton hefur
verið helsti kvenleikari Allens)
og Jeff Daniels.
í stuttu máli fjallar myndin um
unga konu í heldur óhrjálegri
bandarískri borg og enn óhrjá-
legra hjónabandi, - sú á sér að-
eins leið hins hvíta tjalds til
ánægju í lífinu; og einn góðan
veðurdag, þegar sýnd er kvik-
myndin Kaírórósin rjóða í bíóinu
vill svo til að föngulegur auka-
leikari stekkur af tjaldinu og
verður ástfanginn af konunni, -
með æsilegum eftirleik fyrir
stúlkuna, kvikmyndapersónuna,
leikarann, leikstjórann, eigin-
manninn og svo fram alla vegu.
Kaírórósin hefur alstaðar
hlotið góða aðsókn og mikið
hrós. Hún er ein af tíu að áliti
bandaríska tímaritsins Time í
uppskerunni í fyrra, og hjá hinu
virta kvikmyndarit frakka, Cahi-
ers du Cinema er hún í öðru sæti á
lista yfir bestu filmur 1985, - og
þykja þeir á Cahiers vel kresnir á
kvikmyndirnr.
- m
afhentu Sigurði Jóhannessyni
forseta bæjarstjórnar mótmæli
2140 Akureyringa sem höfðu rit-
að nöfn sín undir áskorun í fyrra-
kvöld. Þarsegirm.a. aðskorað er
á bæjarstjórn að hún gangist fyrir
því að rekstri Heklu verði haldið
áfram enda sé það óhæfa að
verksmiðjunni skuli lokað og um
60 manns sviptir atvinnu sinni.
Bæjarfélagið megi ekki við því að
hæft starfsfólk flytji í burtu.
Af þeim fjölda sem sagt var
upp störfum eru 8 karlar. Hitt eru
konur. Þjóðviljinn náði tali af
nokkrum þeirra eftir að bæjar-
stjórnarfundi lauk í gær. Fram
kom í máli þeirra að ákvörðun
um að segja fólkinu upp störfum
hefði legið fyrir í nóvembermán-
uði en líklega hefði stjórnendum
fyrirtækisins ekki þótt hæfa að fá
því uppsagnarbréfin í jólagjöf.
„Talið eðlilegra að færa okkur
atvinnuleysi að gjöf 1. maí, svona
í tilefni dagsins,“ sögðu þær.
Konurnar töldu fullvíst að
auðvelt væri að reka fataverk-
smiðjuna með hagnaði ef rétt
væri á málum haldið. „En það er
ekki von á góðu þegar Samband-
ið flytur inn ódýran fatnað frá
Hong Kong í beinni samkeppni
við okkur Akureyringa."
Sumt af því starfsfólki sem sagt
hefur verið upp á að baki allt að
40 ára starf hjá fyrirtækinu.
Starfsmenn sögðu í gær að allt
væri í óvissu með atvinnu eftir
þennan skell. Rætt hefði verið
um aðra vinnu hjá Sambandinu
en ekkert frá því gengið.
Þess má að lokum geta að for-
stjóri Iðnaðardeildar Sambands-
ins heitir Jón Sigurðsson en hann
er jafnframt formaður atvinnu-
málanefndar Akureyrar.
- GA/Akureyri