Þjóðviljinn - 12.02.1986, Síða 3
Hvað þarftu í laun?
FRÉTTIR
Kennarar í Vesturbæjarskóla munu hvergi gefa eftir í baráttunni við ríkisvaldið. Mynd: E.ÓI.
Kennarar
Abyrgðin er stjómvalda
Kennarar íReykjavík og á Vestfjörðumfunduðu um sín mál í gœr:
Tilmœli umfrekari aðgerðir. Gífurlegur baráttuhugur
Sigrún Ágústsdóttir: Það er með endemum að ráðamenn skuli ekki hafa
minnstu áhyggjur af því upplausnarástandi sem skapast hefur. Mynd: E.ÓI.
r
Afundum grunnskólakennara í
skólunum víða um land á
mánudaginn og í gær hefur komið
berlega í Ijós að gífurlegur bar-
áttuhugur er kominn í fólk og í
sumum skólum eru kennarar til í
nánast allt eins og Sigrún Ágústs-
dóttir formaður Kennarafélags
Reykjavíkur orðaði það við
biaðamann í gær.
Kennsla féll niður í grunn-
skólum í Reykjavík og á Vest-
fiörðum í gær. Að sögn Rögnu
Ólafsdóttur kynningarfulltrúa KÍ
var þátttaka mjög almenn bæði
vestra og syðra, fyrir þó utan það
að kennarar á ísafirði taka ekki
þátt í þessum aðgerðum heldur
Kennarar
Beðið í ofvæni
Ákvörðunarfjármálaráðherra að vœnta í dag. Stjórn KÍkemursaman
Kennarar eru löglega forfallað-
ir frá kennslu í dag, öskudag, en á
morgun leggja grunnskólakenn-
arar í Reykjaneskjördæmi og á
Austurlandi niður vinnu, hafi þá
enn ekki náðst samkomulag um
leiðréttingu á kjörum kennara í
KÍ.
Kjaramál kennara liggja hins
vegar langt í frá í láginni í dag.
Stjórn Kennarasambandsins
kemur saman eftir hádegið og
menn bíða í ofvæni eftir við-
brögðum frá fjármálaráðherran-
um. Hann hefur tilkynnt Kenn-
arasambandinu að ákvörðunar
hans um þann 5% launamun sem
deilt er um, sé að vænta í dag, en
þá eiga hann og aðstoðarmenn
hans fund með samninganefnd
BSRB. Á morgun fundar að-
gerðanefnd KÍ og verður þá
væntanlega fjallað um tilmæli
kennara um frekari aðgerðir, fá-
ist ekki lausn á þessari deilu
þeirra við ríkisvaldið.
-gg-
hafa sagt upp sínum störfum.
Fundir voru haldnir í skólunum
fyrri part dags í gær og víðast voru
samþykktar ályktanir þar sem
þess er krafist að launamismunur
á kennurum innan KÍ og HÍK
verði leiðréttur tafarlaust og KÍ
fái sjálfstæðan samningsrétt.
í yfirlýsingu frá kennurum í
Æfinga- og tilraunaskóla KHÍ er
skorað á fjármálaráðherra og
menntamálaráðherra að reka af
sér slyðruorðið og sjá til þess að
laun kennara verði jöfnuð, KÍ fái
samnings- og verkfallsrétt, kenn-
arastarfið verði lögverndað og
kjör kennara stórbætt. Kennarar
í Hólabrekkuskóla hafa áskilið
sér allan rétt til frekari aðgerða ef
þeirra mál fái ekki úrlausn. Upp
komu hugmyndir um fjöldaupp-
sagnir kennara í vor eða í haust,
en ekkert hefur verið ákveðið í
þeim efnum. Tilmæli komu frá
fjöldamörgum skólum að að-
gerðum verði haldið áfram eins
lengi og þurfa þykir.
Kennarar á Ákranesi lýstu á
mánudaginn allri ábyrgð á hend-
ur stjórnvöldum á því ástandi
sem skapast hefur. Þeir telja að
stefna stjórnvalda í skólamálum
muni leiða til hruns íslenska
menntakerfisins. Akurnesingar
hafa ennfremur ákveðið að hafi
launamismunurinn ekki verið
leiðréttur í byrjun næstu viku
muni þeir ekki mæta til vinnu.
-gg-
Helgi Árnason
Kennari Seljaskóla:
„Það veitir ekki af 70 þúsund
krónum til að standa við allar
fjárskuldbindingar og önnur
mánaðarleg útgjöld. Við erum
hjónin með tvö börn og dæmið
gengur einfaldlega ekki upp
þannig að ég vinni einn fyrir
heimilinu. Ég er í raun í einni og
hálfri stöðu og hef með því um 50
þúsund.“
Guðrún Helgadóttir
Barnaskóli geðdeildar
Hringsins:
„Liggur ekki ljóst fyrir að vísi-
tölufjölskyldan þarf 50 þúsund
krónur á mánuði til framfærslu?
Ég á að baki háskólanám og eitt
ár í framhaldsnámi og ég hef eftir
þetta u.þ.b. helminginn af þessu,
25 þúsund á mánuði.“
Guðríður Magnúsdótt-
ir Kennari í Breiðagerð-
isskóla:
„Ég myndi halda að ég byggi
við þokkaleg lífskjör ein og sér ef
ég hefði 50 þúsund krónur á mán-
uði. Þá er ég að tala um afborgan-
ir af lánum, húsnæði, fæði og
bara hvað sem er. Sem kennari
hef ég 27 þúsund í föst laun, en næ
að bæta örlítið með yfirtíð.“
Bæklingurínn erkominn...
Við sýnum fólki þá sjálfsögðu og viðeigandi þjónustu að láta verðlistann fylgja
með í nýja sumarferðabæklingnum. Við ríðum á vaðið, fyrst íslenskra ferða-
skrifstofa, bjóðum meistaralega lágt verð og vonumst til þess að aðrir fylgi í
kjölfarið á svipuðum nótum. Þannig stöndum við vörð um það megin-
markmið að gera sem flestum kleift að ferðast. / /
Samvinnuferdir-Landsýn (
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 ^-X
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727
...os'^siistinn
m
eð!
Leiðandi afl í lága verðinu