Þjóðviljinn - 12.02.1986, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 12.02.1986, Qupperneq 9
Seirawan og Miles heldur kátir. öflugustu menn mótsins samkvæmt elóreikn- ingum, en spyrjum aö leikslokum! Bragi Halldórsson bíður eftir leik aldursforsetans Reshevsky. SKÁK_____________________ Aumingja Dlugy! Mannúð, bræðralag ogfriður-nema á skákborðinu í gær seig af stað mesta skákmót sem hingaðtil hefur ver- ið háð á íslandi, að umfangi og styrkleika þeirra sem koma við sögu. 74 þátttakendur frá 14 ríkj- um, 22 stórmeistarar, 20 alþjóð- legir; og allir upplyftir á Hótel Loftleiðum einsog vera ber þegar til leiks eru mætt virðuleg stór- menni af tæinu Tal, Miles, Res- hevsky, Larsen, Geller; krafta- kallar einsog Seirawan, Browne, Gheorghiu, Quinteros, - og að auki ungir menn vísir til alls: Benjamin, Saloff, Hansen og Dlugy... ...aumingja Dlugy. Heims- meistari unglinga og nýorðinn stórmeistari, eitt mesta efni kana, og hafði betur gegn okkar manni, Margeiri nú um helgina, - og verður svo fyrstur til að tapa skák á mótinu með því að láta lítt þekktan landa sinn þrýsta drott- ningunni í höggstokksstöðu. Þetta var rétt um kvöldmatar- leytið og fóru tíðindin einsog raf- straumur um áhorfendasalinn vel setna. Annars fylgdust áhorfend- ur helst með þeim Tal og Larsen, og með íslendingunum; Sævar- Seirawan, Davíð-Benjamin, Róbert-Lein, Haukur- Gheorghiu, Hilmar-Geller... Stórmeistararnir íslensku áttu náðugri dag. Það var líka tals- verður umgangur hjá borðum þeirra Þrastar Árnasonar og Hannesar Hlífars, ungu strák- anna sem nú tefla í fyrsta sinn á stórmóti. Mikið bollalagt framanvið stöðutöflur og sjónvörp, en áhorfendur voru reyndar ekkert síður að skoða gripina: hinn mik- ilúðlegi Geller . reykjandi og rymjandi, kurteislegi argentínu- maðurinn Quinteros, forngripur- inn síungi Reshevsky pínulítill og einbeittur, Saloff frá Sovét, snaggaralegur strákur og alvar- legur einsog nýklipptur úr kvik- mynd um föðurlandsstyrjöldina miklu. Og var þó ýmissa saknað sem áttu að vera með. Fótboltastór- meistarinn norski Simen Agde- stein varð að lúta skólaaga og fljúga heim eftir mótið um helg- ina, og af júgóslövunum kom bara Nikolic. Og kynni þó ýms- um að þykja nóg um hina júgósl- avnesku sveit áður en lýkur. Spenna í loftinu á Loftleiðum þarsem áhorfendur og þátttak- endur leggja undir sig þrjá skák- sali, skýringarsal og ganga. Fyrir- fram ekki búist við stórskákum vegna röðunarkerfis sem á að gefa þeim sterkustu svolítið byrj- unarforskot, - en gerir ekki alltaf, samanber Dlugy, - og undir lokin skelltu viðstaddir sér aftur á lær: sjálfur Miles hniginn í valinn fyrir andstæðingi frá Indó- nesíu. Sumsé: mannúð, bræðralag og fnður- nema á skákborðinu, al- veg einsog ein ræðumanna óskaði sér við setninguna. Næst í dag frá hálf fimm. - m Miðvikudagur 12. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Miles skellt óvænt Landarnir hressir, Larsen baráttuglaður Hvítt: Remlinger Svart: Larsen Nimsoindversk vörn. 1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rc3 - Bb4, 4. e3 - 0-0 5. a3 - Bxc3+ 6. bxc3 c5, 7. Bd3 - Rc6, 8. Re2 - b6,9. e4 - Re8,10. 0-0 - Ba6, 11. f4 - f6. Nú fer baráttan að taka á sig form. Framrás hvíts á kóngsvæng er ekki sérlega hættuleg og svarlur andæfir með því að sækja á c4-reitinn. Það var Lárus Af klaufsku féll niður úr um- fjöllun í gær um skákkeppni Norðurlanda og Bandaríkjanna nafn höfundarins, sem var Lárus Jóhannesson. Lárus og lesendur: fyrirgefið. Mætti á fyrsta Reykjavíkurmótið og nú kominn aftur: kappinn Tal heldur brúnaþungur. Gerði í gær jafntefli við danann Kristiansen. (myndir: Sig) Fyrsta umferð mótsins bauð upp á mikla skemmtun og spennu. Keppendum er raðað þannig að stigaháir skákmenn tefla við menn sem eru lágir að stigum. Þannig gefst minni spá- mönnum færi á að reyna sig við meistarana. í gær urðu nokkur óvænt úrslit og skal fyrst telja að stigahæsti maður mótsins, Miles frá Bret- landi, tapaði fyrir illvígum Indó- nesa, Adianto að nafni. Christi- ansen frá Bandaríkjunum tapaði fyrir Finnanum Pyhala og heimsmeistari unglinga Banda- ríkjamaðurinn Dlugy, lét landa sinn Karklins taka af sér drottn- inguna í byrjun tafls. Sumir ungu mannanna okkar fengu illa útreið hjá stórmeistur- unum en aðrir héldu vel sínu. Da- víð hélt jöfnu við Benjamin frá Bandaríkjunum, Björgvin við Alburt, Halldór Grétar við Ligt- ernik og Jón G. við Yrjola. Sævar Bjarnason átti í höggi við Seirawan frá Bandaríkjunum og tókst að snúa á hann skömmu fyrir bið og vinna mann fyrir tvö 12. Be3 - Rd6, 13. dxc5 - Rxc4, 14. Bxc4 - Bxc4. Hvítum lá ekki á að drepa og hann á eftir að sakna hvítreita biskupsins síðar. Betra var 14. Bf2. Líklega hef- ur hann munað í peð svarts á drott- ningarvæng og talið sig fá færi á d-línunni. 15. Hf2 - f5, 16. Rg3 - Hf7, 17. cxb6 - axb6,18. Dbl - Df8, 19. a4 - Ha6, 20. exf5 - exf5, 21. Hb2 - Dd6. Svartur missir nú peö en það er eðlilegur þáttur í taflmáta Larsens að hætta nokkru til og raska jafnvægi stöðunnar. 22. Hxb6 - Ha5, 23. Dc2 - He7, 24. Hdl - Dg6, 25. Df2 - h5 (Larsen- leikur), 26. Bc5 - He6,27. Hb2 - Hxa4, 28. Rfl - Dg4, 29. Hb-d2 - Bxfl. Það mátti ekki hleypa riddaranum til e3 þótt eftirsjá sé að biskupnum. 30. Hxfl - He-e4, 31. h3 - Dg6, 32. Hxd7 - Hxf4, 33. Dd2 ... Hér leiðir 33. Dxf4, Hxf4,34. Hxf4 líklega til jafnteflis. 33. ... - Hxfl+, 34. Kxfl - f4, 35. Dd5+ - Kh7, 36. Dd3 - He4. Hvítur reynir að einfalda taflið en Larsen tekst snilldarlega að flækja það og nýtir sér tímahrakið til hins ítrasta. 37. Hd6 - Re5. Ef 38. Hxgó Rxd3 og svartur vinn- ur. Eftir að riddarinn kemst í leikinn er hvítur glataður. 38. Dd5 - Df5, 39. Bd4 - f3,40. Bxe5 - fxg2+, 41. Kxg2 - He2+, 42. Kg3 - Df2 Mát. Margeir tapaði illa fyrir Burger en hinir stórmeistararnir okkar unnu sínar skákir, Helgi malaði Áskel með fórnum og látum. Júg- óslavinn Nikolic tefldi áferðar- fallega skák við Dehmelt frá Bandaríkjunum sem gladdi augu stöðuskákmanna. Meistari Tal tefldi hvassa byrjun gegn Danan- um Kristiansen, skemmti áhor- fendum með mannsfórn svo menn fóru að tala um að hann tefldi eins og í gamla daga. En Daninn fékk mótspilsfæri svo Tal varð að þrátefla að lokum. En kannski teflir hann eins hvasst á morgun og hvernig fer þá? f jafn fjölmennu móti eru tefld- ar margar athyglisverðar skákir í hverri umferð sem vissulega væru skoðunarverðar. En hér fer sem mælt er að sá á kvölina sem á völina og verður að láta nægja að birta eina skák. Að þessu sinni skulum við huga að skák Larsens við Bandaríkjamanninn Rem- linger. Larsen teflir alltaf jafn- fjörlega og brá ekki út af þeirri venju sinni í gærkvöldi. Þröstur Árnason, - hitti ofjarl sinn í bandaríkjamanninum Zaltsman. Úr áhorfendahópnum: „og hver er hann eiginlega þessi Karklins?" peð. í tímahrakinu lék hann þó ónákvæmt og á jafnteflislega bið- skák en biðskákir verða tefldar frá klukkan ellefu til eitt eftir miðnætti þannig að úrslit berast ekki áður en blaðið fer í prentun. Skákir i gær Miles(Engl)-Adianto(ldn)......0-1 Sævar-Seirawan (Bdr)......... bið Tal(Sov)-Kristiansen(Danm).... 'h-'h Remlinger(Bdr)-Larsen(Danm) 0-1 Nikolié(Júg)-Dehmelt(Bdr).....1-0 Pyhala (Finnl)-Christiansen (Bdr) 1 -0 Benjamin(Bdr)-Davíð.........'/2-'/2 Karklins (Bdr)-Dlugy...........1-0 Helgi-ÁskellOrn................1-0 Róbert-Lein (Bdr)..............bið Gheorghiu(Rúm)-Haukur.........1-0 Hilmar-Geller(Sov)............0-1 Saloff(Sov)-Jung(Kan)..........1-0 Burger(Bdr)-Margeir............1-0 De Firmian (Bdr)-Benedikt.....1-0 Björgvin-Alburt (Bdr).......'/2-'/2 Quinteros (Arg)-Dan........... bið Herzog (Sviss)-Browne (Bdr)...0-1 Hansen (Danm)-Guðm.Halldórss. 1-0 Leifur-Jóhann..................0-1 Byrne (Bdr)-Lárus..............1-0 Kristján-Jón L................0-1 Fedorowicz-Þröstur Þ...........1-0 ÁrniÁrmann-Guðm.Sigurjónss.... 0-1 Kogan(Bdr)-ÁsgeirÞór.......... bið Bragi Halldórss.-Reshevsky (Bdr) bið Ligternik (Holl)-Halldór G..V2-V2 Haraldur-Sterren(Holl)........0-1 Kudrin (Bdr)-Þorsteinn.........1-0 Tómas-Schussler(Sþj)...........0-1 Welin (Sþj)-Ólafur.............1-0 Jóhannes-Karl..................1-0 Wilder(Bdr)-HannesH............1-0 JonG.-Yrjölá.................V2-V2 Donaldsson (Bdr)-Guðm. Gíslas. 1 -0 ÞrösturÁ.-Zaltsman.............0-1 Hoi(Danm)-Schiller(Bdr).......1-0

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.