Þjóðviljinn - 13.02.1986, Síða 13

Þjóðviljinn - 13.02.1986, Síða 13
HEIMURINN Filippseyjar Marcosi færður sigurinn? Manilla - Stuðningsmenn Cor- azon Aquino segjast þess fullvissir að þingið mini lýsa Marcos forseta, sigurvegara kosninganna. Aquino varaði Reagan forseta við því að leyfa Marcosi að komast upp með að „stela sigrinum" frá henni, eins og hún orðaði það. Þessi aðvörun Aquino kom eftir að Reagan hafði sagt að svindl og ofbeldi hefði sett mark sitt á kosningarnar en neitað að láta nokkuð uppi um það hvað Nicaragua bandarísk stjórnvöld myndu gera ef það yrði sannað að Marcos hefði beitt svikum í kosningun- um. Leiðtogar kirkjunnar sögðu að 50 biskupar í landinu myndu hitt- ast í dag og ekki væri ólíklegt að þeir myndu ræða borgaralega óhlýðniherferð sem Aquino hef- ur sagst munu verða í forsvari Amnesty-skýrsla um mannréttindamál ERLENDAR FRÉTTIR INGÓLFUR /— r 11 t r n HJÖRLEIFSSON R fc U1 t R London - I skýrslu Amnesty International sem kom út í gær eru yfirvöld í Nicaragua sökuð um mannréttindabrot og skæruliðar sem studdir eru af Bandaríkjamönnum eru sak- aðir um pyntingar og morð. í skýrslunni segir að stjórnar- andstöðuleiðtogar, lögfræðingar og forystumenn í verkalýðssam- tökum séu oft hafðir í haldi, stutt- an tíma í einu til að skelfa þá. Þá er í skýrslunni vísað til sífelldra fregna af pyntingum, limlesting- um og aftökum fanga sem teknir hafa verið höndum af sveitum sem berjast gegn stjórninni. í skýrslunni segir að hvatt sé til þessara aðgerða í bæklingi sem CIA dreifir. Amnesty International sagði að niðurstöður skýrslunnar byggðust á fjórum ferðum sem farnar hefðu verið til Nicaragua síðan Sandinistar tóku völdin af Somoza árið 1979. Samtökin sögðu að niðurstöður úr rann- sókn, sem gerð hefði verið á meintum morðum á Miskito indí- ánum við landamæri Hondúras í desember 1981, hefðu ekki enn verið gerðar opinberar. Amnesty sagði að vitni stað- festu pyntingar og morð á föng- um sem sveitir andsnúnar stjórn- inni hefðu staðið fyrir og tala fórnarlambanna skiptu hundruð- um. Einnig sagði í skýrslunni að óbreyttir borgarar væru oft teknir höndum og færðir í búðir upp- reisnarmanna í Hondúras, frést hefði að nokkrir þeirra hefðu ver- ið drepnir. fyrir ef hún verður svikin um kosningasigur sinn. Reagan tilkynnti í gær að hann ætlaði að senda sérlegan sendi- mann sinn, Philip Habib, til Fil- ippseyja til að kanna ástandið. Hann á að ræða við alla þá aðila og samtök sem komið hafa ná- lægt kosningunum og vera síðan forsetanum til ráðgjafar þegar næstu skref verða tekin af hálfu Bandaríkjamanna. Reagan lagði í fyrrakvöld áherslu á að Banda- ríkjamenn væru hlutlausir í þessu máli en minnti um leið á mikil- vægi bandarísku herstöðvanna á Filippseyjum. Grikkland Theodorakis hefur að eigin sögn ver- ið útilokaður frá ríkisfjölmiðlum með tónlist sína. Fær ekki vetk sín leikin Theodorakis segir sósíalista hafa gert verk sín útlæg úr öllum ríkismiðlum í Grikklandi Aþena - Gríska tónskáldið Mikis Theodorakis fór til París- ar í gær með fjölskyldu sinni. Þessi ferð hans vakti athygli í Grikklandi vegna þess að sagt hefur verið frá því í fréttum að hann væri að yfirgefa landið í óákveðinn tíma. Theodorakis, sem er þingmað- ur Kommúnistaflokksins í Grikk- landi, hefur undanfarið haldið því fram að sósíalistar sem fara með völdin í Grikklandi hafi komið því svo fyrir að ríkisreknar hljómsveitir leiki ekki verk hans og ríkisútvarpið, hljóðvarp og sjónvarp, leiði verk hans hjá sér. Theodorakis sagði áður en hann fór að ferð hans til Parísar væri venjubundin en bætti við að hann ætti í erfiðleikum með að halda áfram vinnu sinni sem tón- skáld í Grikklandi og að flokkur hans skildi það. Þegar talsmaður kommúnistaflokksins var spurð- ur hvort eitthvað væri hæft í því að Theodorakis væri að yfirgefa landið fyrir fullt og allt, svaraði hann því til að Theodorakis ætl- aði sér að dveljast í París fram eftir vori og ef einhver vandamál kæmu upp varðandi fjarveru hans af þinginu myndi flokkurinn sjá um þau mál. Nýju blóði hleypt í forystuna Ný kynslóð leidd tilforystu íkommúnistaflokknum. Flokksþinginu lauk um helgina Havana - Um síðustu helgi lauk þingi Kommúnistaflokks- ins á Kúbu. Á þinginu voru gerðar umfangsmiklar breyt- ingar í forystuliði flokksins sem fyrst og fremst gengu í þá átt að yngja upp en einnig að bæta við fólki á þann veg að forystan endurspeglaði að ein- hverju leyti það fólk sem i landinu býr. í stað fjögurra leiðtoga úr bylt- ingunni, 1959, gengu nú þrír ung- ir karlmenn og ein kona í fram- kvæmdanefnd miðsjórnar kom- múnistaflokksins. Þeir sem létu af störfum í framkvæmdanefnd- inni voru fyrrum innanríkisráð- herrann, Ramiro Valdés, sem hingað til hefur verið álitinn einn af fimm valdamestu mönnum í flokknum, fyrrum heilbrigðisráð- herra, Sergio del Valle, fyrrum samgönguráðherra, Guillermo García, og hinn aldraði Blas Roca sem var aðalritari í gamla Kommúnistaflokknum, PSO, frá því fyrir byltingu. Nýja fólkið Þau sem tóku við eru vara- varnarmálaráðherrann, Abelar- do Colomé, Vilma Espín, mág- kona Fidels Kastró, sem er for- maður kvennasamtakanna á Kúbu, þá kom Esteban Lazo einnig inn í framkvæmdanefnd- ina (hann er svartur og er aðalrit- ari flokksdeildarinnar í Matanz- as) og loks Roberto Vega. „Áður voru breytingar í for- ystuliði flokksins aðeins táknrænar en nú er þörf á upp- gjöri“, sagði Kastro í lokaræðu sinni á þinginu. Þessi skipti í framkvæmda- nefndinni og miðstjórn koma í kjölfar svipaðra breytinga sem gerðar hafa verið í stjórnkerfinu á síðustu árum. Stór hluti þess hóps sem tók þátt í byltingunni Kastró býður Vilmu Espín mágkonu sína velkomna í æðsta valdahóp kúbanska kommúnistaflokksins. Espín er fyrsta konan sem tekur sæti í framkvæmda- nefndinni. ’59 var látinn víkja fyrir fólki af yngri kynslóðinni, fólki sem alist hefur upp í hinu nýja samfélagi. Á þinginu lagði Kastró áherslu á að þróa þyrfti nýjar atvinnu- greinar svo ekki væri þörf á að reiða sig á sykuruppskeruna. Hann sagði að auka þyrfti við- skipti við Vesturlönd og styrkja ferðamannaiðnaðinn. Eins og önnur Suður-Ameríkuríki á Kúba í erfiðleikum vegna verð- falls á neysluvörum og þeirra geysilegu fjárhæða sem bundnar eru í lánum frá Vesturlöndum, en sú upphæð er nú allt að þremur billjónum dollara. Kastró nefndi einnig þær efna- hagslegu framfarir sem orðið hefðu á Kúbu síðustu fimm ár, þar á meðal 3,5 prósent aukningu hagvaxtar. En hann deildi einnig hart á það sem hann nefndi lítil afköst, sóun og vöntun á samhæf- ingu í iykilþáttum efnahagslífsins eins og landbúnaði og flutning- um. „Við hefðum átt að nýta mun betur krafta okkar og viðleitni. Við erum langt frá okkar besta", sagði leiðtoginn. Kastró lagði áherslu á að laun þyrftu að tengjast framleiðni nánari böndum en verið hefði. Hann tillynnti að stofnuð hefði verið ráðherranefnd sem ætti að fylgjast með stjórnunaraðferðum í efnahagslífinu og leggja fram leiðir til úrbóta. Ný efnahagsstefna Þingið samþykkti meginlínur næstu fimm ára áætlunar þar sem lögð verður fram ný efnahags- stefna, hún verður líklega mótuð endanlega síðar á þessu ári. í fimm ára áætluninni er lögð mikil áhersla á að auka streymi gjald- eyris frá Vesturlöndum inn í landið. Það á að gera með því að auka útflutning til Vesturlanda, og gera ferðamannaiðnaðinn að einni stærstu atvinnugreininni. Þar að auki á að leggja mikla áherslu á óhefðbundna fram- leiðslu um leið og útflutningur verður aukinn á vörum eins og tóbaki, ávöxtum og nikkeli. Loks á að afla gjaldeyris með því að framleiða vörur á Kúbu sem hingað til hafa verið keyptar er- lendis frá. Þetta er ekki nein róttæk breytingáefnahagsstefnunni, hið nýja við þessar breytingar er að fyrrnefndar vörur fá meiri vigt í efnahagslífi landsins en áður var. Þessar breytingar tengjast öðrum mikilvægum þáttum í efnahagslífi Kúbu, nefnilega tengslum lands- ins við Sovétríkin. Þessi tengsl hafa á undanförnum árum verið Kúbumönnum sérlega hagstæð. Sykurverð á alþjóðamarkaði hef- ur fallið niður í 0,3-0,4 dollara, pundið. Sovétríkin hafa hins veg- ar keypt miklar birgðir af Kúbu- mönnum á 0,32 dollara, pundið. Á næstu tíu árum ætla Sovét- menn hins vegar að minnka þennan stuðning sinn um 7-10% af sykurverðinu árlega. Olían Á sama tíma er Kúba í miklum vandræðum vegna hins mikla verðfalls á olíu. Og Sovétmenn hafa stutt Kúbu með því að sjá landinu fyrir mun meira magni af olíu en þörf er fyrir. Þessar um- frambirgðir hafa Kúbumenn selt á alþjóðamarkaði. Á síðustu árum hafa gjaldeyristekjur af þessari olíusölu nálgast það að vera 40% af gjaldeyristekjum Kúbumanna. Nú ætla Kúbumenn að auka svo framleiðslu sína á olíu að árið 1990 gera þeir ráð fyrir að fram- leiða 2 milljónir tunna á dag, svo þeir séu ekki eins háðir Sovét- mönnum og hingað til. Fimmtudagur 13. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Fídel Kastró Hættur að reykja Havana - Fídel Kastró Kúbu- leiðtogi er hættur að reykja. Hann sagðist ekki hafa hætt að reykja af persónulegum heilsufarsástæðum, heldur til að vinna að framgangi heil- brigðisherferðar meðal al- mennings. Hinir feitu Havanavindlar hafa verið eitt af einkennum hins 59 ára gamla Kastrós sem hætti að reykja 26. ágúst síðastliðinn. „Sjálfur var ég ekki nógu ábyrgð- armikill til að gefa vindlana upp á bátinn vegna minnar eigin heilsu, ég gerði þetta í þágu almenn- ings“, sagði Kastró í lokaræðu sinni á þingi kúbanska kommún- istaflokksins sem lauk um síðustu helgi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.