Þjóðviljinn - 13.02.1986, Síða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663.
Fimmtudagur 13. febrúar 1986 36. tölublað 51. árgangur
DiOÐVILIINN
Rafmagnsskuldir
Borgartjúum hótaö lokun
Lokunarhótanir sendar til borgarbúa sem skulda nokkrar
þúsundir á sama tíma ogstórfyrirtœkinfá að safna miljóna-
skuldum sem sumar munu aldrei innheimtast.
Guðrún Ágústsdóttir: Fólkfarið að leita aðstoðar Félagsmálastofnunar
r
Asama tíma og Rafmagnsveita
Reykjavíkur leyfir ýmsum
stórfyrirtækjum að safna milj-
ónaskuldum vegna vangreiddra
rafmagnsreikninga eins og skýrt
var frá í Þjóðviljanum í gær, er
beitt hörðum innheimtuaðgerð-
um og lokunarhótunum gagnvart
þeim borgarbúum sem skulda
nokkrar þúsundir fyrir rafmagn
og hita.
„Mér er kunnugt um Reykvík-
inga sem skulda allt því að
nokkra tugi þúsnda fyrir rafmagn
og hita og hafa yfir sér hótanir um
lokun. M.a. veit ég um dæmi þar
sem gengið hefur verið hart að
fjögurra bama einstæðri móður
sem er í vanskilum við veiturnar
og hún hefur ekki séð annað ráð
en að leita aðstoðar hjá Félags-
málastofnun borgarinnar“, sagði
Guðrún Ágústsdóttir borgarfullt-
rúi og fulltrúi í félagsmálaráði í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Frétt Þjóðviljans um miljóna-
skuldir Hafskips, trésmiðjunnar
Víðis og fleiri þekktra fyrirtækja
hjá rafmagnsveitu borgarinnar
hefur vakið mikla athygli, en
þessum fyrirtækjum hefur flest-
um verið gefinn kostur á að semja
sérstaklega um sínar skuldir en
ljóst er að stórskuldir eins og hjá
Hafskip verða aldrei innheimtar.
„Það virðist vera stefnan að sjá
í gegnum fingur sér með stór-
skuldir fyrirtækjanna en einstak-
lingamir fá engan frest, heldur er
hótað með lokun“, sagði Guðrún
Ágústsdóttir.
-•g-
Kennararnir
Þorsteinn
svarar í dag
í dag kl. 14 er boðaður sérstak-
ur fundur í sameinuðu þingi þar
sem Þorsteinn Pálsson fjármála-
ráðherra og Sverrir Hermanns-
son menntamálaráðherra svara
fyrirspurn um afstöðu sína tU
krafna kennarasamtakanna.
Fyrirspurnin sem er frá Hjör-
leifur Guttormssyni hefur tvíveg-
is áður verið á dagskrá sameinaðs
þings en í hvorugt skiptið hefur
Þorsteinn mætt. Hjörleifur spyr
hver afstaða þeirra kumpána sé
til jöfnunar á launum kennara, til
samningsréttar og verkfallsréttar
til handa Kennarasambandi ís-
lands og til lögverndunar á starf-
heiti og starfsréttindum kennara.
Iðja
Kosninga
fundur
íkvöld
Kosningar um nýja stjórn og
trúnaðarmannaráð Iðju félags
verksmiðjufólks hefst á morgun
og stendur fram á laugardag.
Tveir listar eru í framboði. A-listi
stjórnar og trúnaðarmannaráðs
þar sem Guðmundur Þ. Jónsson
varaformaður Iðju er i framboði
til formanns og Hildur Kjartans-
dóttir til varaformanns. Formað-
ur Iðju, Bjarni Jakobsson, og
stuðningsmenn hans hafa boðið
fram á móti stjórn og trúnaðar-
ráði með Bjarna sem formanns-
efni.
í kvöld verður haldinn al-
mennur félagsfundur Iðju í Dom-
us Medica þar sem rætt verður
um samningamálin en vafalaust
munu kosningarnar einnig taka
stóran hluta af umræðunni.
í Þjóðviljanum í dag er að finna
ítarlegt viðtal við Guðmund Þ.
Jónsson um óánægjuna með starf
félagsins á sl. árum og kosninga-
baráttuna.
Sjá bls. 7 oe 8. ~,g-
Á lista stjórnar og trúnaðarmannaráðs, A-listanum, eru í framboði 5 konur til
stjórnar af 10 stjórnarmönnum og 16 konur í trúnaðarmannaráði af alls 20
trúnaðarráðsmönnum Iðju. Þessi mynd var tekin á dögunum af hluta þeirra
kvenna sem eru á lista stjórnar og trúnaðarráðs auk annarra stuðningskvenna.
Frá v. í efri röð: Kristjana Kristjánsdóttir, Ragna Guðvarðardóttir, Jónína Krist-
jánsdóttir, Dýrólína Eiríksdóttir, Bergþóra Sigurjónsdóttir, Hildur Kjartansdóttir,
Valborg Guðmundsdóttir, Ólína Halldórsdóttirog Una Halldórsdóttir. I neðri röð
frá v. eru Kolbrún Guðmundsdóttir, Guðbjörg Þórunn Guðnadóttir, Kristín
Aspar og Helga Brynjólfsdóttir.
- Mynd Sig.
bæklingi um Atlantshafsbandalagið og „friðarbaráttu þess“ er inntökubeiðni í
Varðberg, samtök um vestræna samvinnu.
MR
Nató-pési á hvert borð
„Óhugnanlegsending“, segir nemandi um bœklinginnþarsemNató
er prísað sem helsta friðarbandalag heims!
Mér þótti þetta heldur óhugn-
anleg sending ekki síst þegar
ég sá að krakkarnir skrifuðu sig
unnvörpum inn í Varðberg. Ég
átti ekki von á skflu í skólanum,
sagði nemandi í 5. bekk Mennta-
skólans í Reykjavík um áróðurs-
bækling Nató sem dreift var á öll
skólaborð þar í gær og fyrradag.
Inni í 113 síðna áróðursritinu var
inntökubeiðni í Varðberg, en út-
gefandi er Upplýsingaþjónusta
Atlantshafsbandalagsins i Briissel
og Reykjavík.
Sem dæmi um innihaldið má
taka eftirfarandi: „Nató, stærsta
friðarhreyfingin“, „Nató er
friðarbandalag sem tekist hefur
að varðveita frið“, og „Nató er
forsenda öryggisins"! Þarna er
Atlantshafssáttmálinn og skýr-
ingar við hann, skrá yfir fastafull-
trúa í Atlantshafsráðinu, hermál-
anefndina og æðstu hershöfðing-
ja „friðarbandalagsins" auk ítar-
legs kafla um starfsemi Nató á
sviði hernaðar og borgaralegra
samskipta. í viðauka sem ber
heitið „Annáll Nató“ er upphafið
rakið til undirritunar á sáttmála
Sameinuðu þjóðanna 26. júní
1945! Um þann skelfilega atburð,
hálfum öðrum mánuði síðar, þeg-
ar Bandaríkjamenn sprengdu
kjarnorkusprengjuna yfir Hiros-
hima, segir: „Atómsprengjan
springur í Hiróshima". Svo mörg
voru þau orð og ekki eitt um
Nagasaki.
-ÁI
Kennarar
Skærur áfram
Kennsla mun falla niður í
grunnskólum Reykjaneskjör-
dæmis og á Austurlandi í dag. Þá
er ráðgert að fella niður kennsiu á
Suðurlandi og Norðurlandi
vestra á föstudag. Þetta gera
kennarar til að leggja áherslu á að
fá leiðréttingu á 5% launamis-
réttinum milli félaga í KÍ og HÍK.
Á fundi með fjármálaráðherra
í gær fékkst staðfesting á því að
ráðherra er tilbúinn að veita
Bandalagi kennarafélaga samn-
ingsréttinn fyrir KÍ, þó svo að
HIK geti ekki sameinast BK fyrr
en 1987. - Sáf.