Þjóðviljinn - 22.02.1986, Qupperneq 1
SUNNUDAGS-
BLAÐ
MENNING
unar
Magnús Guðjónsson bóndi í Hrútsholti.
Aðeins spurning hvenær
ég læt gjaldþrotið tara fram.
Skákin
Sex efstir
Tal stöðvaði Hansen
Daninn Curt Hansen sem hefur
haft forystu í Reykjavíkurskák-
mótinu varð í gær að lúta í lægri
haldi fyrir hinum knáa Tal, - og
eru nú sex jafnir og efstir með 6V2
vinning: Tal, Larsen, Gheorghiu,
Saloff, Hansen og Jóhann Hjart-
arson.
Landar bitust: Jóhann vann
Helga Ólafsson, og Karl Þor-
steins vann Margeir, og mega
þeir Helgi og Margeir herða sig ef
verðlaunasæti á að nást í þeim
tveimur umferðum sem eftir eru.
Miles og Nikolic tefldu biðskák
sína í nótt, og vinni Nikolic er
hann efstur með 7 vinninga, - en
staðan þótti jafnteflisleg.
Af yngri íslendingum: Hannes
Hlífar gerði jafntefli við Jung, -
og Þröstur Þórhallsson er nú
kominn með 5 vinninga eftir sigur
gegn H0i.
Sjá síðu 6 “m/J1
við standa mín mál svona. Spurn-
ingin er aðeins hvenær ég læt
gjaldþrotið fara fram, hvort ég
geri það strax eða dreg það fram
eftir árinu. Eg verð búinn með
minn mjólkurkvóta um miðjan
apríl, þannig að það er í sjálfu sér
ekki eftir neinu að bíða, sagði
Magnús Guðjónsson bóndi í
Hrútsholti í Hnappadalssýslu í
samtali við Þjóðviljann. Og hann
bætti því við að það væri ekki
bara tiann einn, sem þannig cr
ástatt um í bændastéttinni eftir að
mjólkurkvótinn var settur á, allir
ungir bændur, sem hafa verið að
byggja upp að undanförnu eru
gjaldþrota. Búin standa ekki
lengur undir afborgunum og
vöxtum af lánum.
Magnús sagði að hann væri nú
skorinn niður úr 460 ærgilda
mjólkurframleiðslu niður í 341
ærgildi. Hann sagðist hafa verið
hvattur til að endurnýja og
byggja upp fyrir nokkrum árum.
Byggðastefnan var þá í al-
gleymingi. Hann sagðist hafa
byggt upp nýtt fjós og hlöðu og
íbúðarhús fyrir nokkrum árum.
Skuldirnar eru því miklar og á
mörkunum að endar næðu saman
með þeirri framleiðslu sem hann
hafði, en nú eftir niðurskurðinn
liggur ekki nærri að dæmið gangi
upp.
Þá kemur líka til að jörðin er
verðlaus. Enginn kaupir þessa
jörð nteð svo litlum kvóta, enda
stendur framleiðsla ekki undir af-
borgunum af jörðinni. Kýrnar
eru líka verðlausar nema til slátr-
unar. Magnús er með 60 gripi í
fjósi, þar af 24 mjólkandi kýr.
Þá var Magnús spurður hvort
til að mynda loðdýrarækt gæti
ekki komið í staðinn. Hann sagði
það útilokað vegna þess að af-
rakstur loðdýrabús dyggði ekki
til að greiða niður skuldirnar og
það væri útilokað að hefja loð-
dýrarækt nema byggja upp hús
fyrir loðdýr og síðan að kaupa
læður, en jörðin ber ekki þennan
kostnað.
-S.dór
Sjá bls. 2
Hvað mig varðar standa mál
einfaldlega þannig að ég er gjald-
þrota. An breytinga, sem ég á
ekki von á og raunar enginn býst
Bœndakvótinn
Er gjaldþrota
✓
Magnús Guðjónsson bóndi í Hrútsholti: An
breytinga, sem ég á ekki von á er ég gjaldþrota. Ég verð
búinn með minn mjólkurkvóta um miðjan apríl. Jörð-
in mín er orðin verðlaus og kýrnar líka nema til slátr-
Aldraðir
Tvö þúsund manns á biðlista
Könnun á vegum landlœknis. 1500 manns á höfuðborgarsvœðinu og 500 annarsstaðar á biðlistum um
vistrými fyrir aldraða. 65% þeirra eru konur. Meðalaldur um áttrœtt. Einn hundrað ára á biðlista
Um tvö þúsund ellilífeyrisþegar
bíða nú eftir vistrými á
landinu. Þar af eru 1500 einstak-
lingar sem eru á biðlistum á höf-
uðborgarsvæðinu og 500 annars-
staðar á landinu.
Vilborg Ingólfsdóttir, deildar-
stjóri, hefur að undanförnu unn-
ið að könnun á biðlistum ýmissa
þjónustustofnana aldraðra.
Könnun þessi er unnin á vegum
landlæknisembættisins að ósk
heilbrigðisráðherra. Hófst vinn-
an í haust og í gær voru fyrstu
niðurstöðurnar kynntar á ráð-
stefnu á vegum Oldrunarfélags
íslands.
Voru kannaðir biðlistar hjá
rúmlega 50 stofnunum, þar af
voru 15 stofnanir á höfuðborgar-
svæðinu. Enn hafa niðurstöður
könnunarinnar ekki verið full-
unnar en umsóknir á höfuðborg-
arsvæðinu eru þó komnar lengra í
vinnslu.
Um 35% þeirra sem eru á bið-
listum á höfuðborgarsvæðinu eru
karlar og 65% konur. Meðalald-
ur umsækjenda er 79,1 ár. Um
770 eru á aldrinum 65-69 ára. 242
á aldrinum 70-74. 352 á aldrinum
75-79 ára. 380 á aldrinum 80-84
ára. 85 á aldrinum 90-95 ára. 13 á
aldrinum 95-99 ára og 1 hundrað
ára.
Mest er eftirspurnin eftir vist-
rými eða um 1500 umsóknir. 280
sækja um hjúkrarými og 60 um
sjúkrarými. Þá hafa 6 ekki til-
greint hverslags rými þeir óska
sér.
-Sáf
Utanferðir
Ríkið borgar fyrir Bjöm
Björn Bjarnason aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins fór tvœr ferðir til útlanda á
síðasta ári á kostnað ríkissjóðs. Var að rœða „öryggismáT‘ og fagna afmœli
Helsinkisáttmálans. Kostnaðurinn 132.000 krónur
Ríkissjóður hefur á sl. tveimur
árum greitt jafnvirði 185 þús-
unda króna í ferðakostnað og
uppihald fyrir Björn Bjarnason
aðstoðarritstjóra Morgunblaðs-
ins. I fyrra fór Björn tvær ferðir
til útlanda á vegum Geirs Hall-
grímssonar þáverandi utanríkis-
ráðherra og eina ferð 1984. í
ferðunum fékk hann greidda dag-
peninga eins og um starfsmann
stjórnarráðsins væri að ræða.
í nýrri skýrslu um utanlands-
ferðir á vegum stjórnarráðsins
kemur fram að í maí 1984 sat
Björn Bjarnason 7 daga NATO-
fund á kostnað utanríkisráðu-
neytisins. Fargjaldið kostaði þá
19.663 krónur og uppihaldið
20.902 krónur. Miðað við meðal-
hækkun dollars á milli ára kostaði
þessi ferð ríkissjóð 53 þúsund
krónur á verðlagi ársins 1985.
í fyrra greiddi ríkissjóður svo
tvær ferðir fyrir aðstoðarritstjóra
Morgunblaðsins og fékk hann
dagpeninga í 10 daga á því ári. í
janúar fór hann til „viðræðna um
öryggismál" til Lundúna og kost-
aði sú ferð 55 þúsund krónur. í
lok júlí fagnaði Björn 10 ára af-
mæli Helsinkisáttmálans ásamt
þeim Geir Hallgrímssyni og Ólafi
Egilssyni, skrifstofustjóra utan-
ríkisráðuneytisins. Fyrir þá ferð
Björns greiddi ríkissjóður 77 þús-
und krónur.
Sigríður Snævarr, blaðafull-
trúi utanríkisráðuneytisins sagði í
gær að ráðherra hefði tekið
ákvörðun um að senda Björn sem
ráðgjafa sinn í þessar ferðir en
Björn Bjarnason var aðstoðar-
maður Geirs í forsætisráðuneyt-
inu 1976-1978.
-ÁI
Björn Bjarnason aðstoðarritstjóri
Moggans: fékk greiddan ferðakostn-
að og dagpeninga eins og um starfs-
mann ríkisins væri að ræða.