Þjóðviljinn - 22.02.1986, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 22.02.1986, Qupperneq 3
FREITIR Hjúkrunarfrœðingaskorturinn Hvattir til að koma heim Heiöurslaunþegar og forsvarsmenn Brunabótafélags íslands við afhendingu launanna. Mynd: Sig Mar. BI Sexhlutu heiðurslaun Brunabótafélag Islands hefur veitt sex einstaklingum heiðurslaun og er þetta sjötta árið sem félagið veitir slík laun. Eru launin veitt til þess að einstakling- arnir geti sinnt sérstökum verk- efnum sem til hags og heilla horfa fyrir íslenskt samfélag, á sviði lista, vísinda, menningar, íþrótta eða atvinnulífs. Um fimmtíu manns sóttu um launin í ár, en eftirtaldir einstakl- ingar hlutu þau: Helgi ívarsson, slökkviliðs- stjóri í Hafnarfirði og Hrólfur Jónsson, varaslökkviliðsstjóri í Reykjavík, fengu þriggja mán- aða laun saman, til að afla sér þekkingar í brunavörnum í Eng- landi. Karl Þorsteins, alþjóðlegur skákmeistari, í tvo mánuði, til að auðvelda honum að afla sér stór- meistaratitils með þátttöku í al- þjóðlegum skákmótum. Lára G. Oddsdóttir, fulltrúi á ísafirði, þrjá mánuði, til að auðvelda henni að kynna sér er- lendis fræðslu i umhverfismálum og náttúruvernd. Óli Valur Hansson, skógrækt- armaður, tvo mánuði, til að skila afrakstri fræ- og plöntusöfnunar hans í Alaska sl. sumar, í hendur þeirra sem starfa að gróðurrann- sóknum og skógrækt á íslandi. Sigríður Asgeirsdóttir, mynd- listarmaður, tvo mánuði, til að gera steind glerverk til sýningar á Edinborgarhátíðinni 1986. -Sáf Bjarnaborg er einstök í sinni röð meðul húsa í Reykjavík. Það hefur mikið sögulegt gildi og það ástand sem það er í í dag rétt- lætir ekki á nokkurn hátt að það verði rifið, sagði Ragnheifíur I>ór- arinsdóttir borgarminjavörður í samtali við Þjóðviljann í gær. Borgarstjórn ákvað í síðasta mánuði að bjóða Bjarnaborg til sölu og hafa tvö tilboð borist í húsið. Hærra tilboðið kemur frá Dögun sf., tæplega þrjár og hálf miljón og áformar Dögun að gera húsið upp og nota til íbúðar. Hvoll hf. sem á lægra tilboðið hyggst hins vegar rífa Bjarnaborg og byggja nýtt hús á lóðinni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvoru til- boðinu verður tekið, en búist er Ragnhildur Helgadóttir heilhrigðis- ráðherra hvetur hjúkrunarfrœðinga erlendis til að koma heim. Býðst til að bera hluta kostnaðar íslenskir hjúkrunarfræðingar búsettir í Svíþjóð h'afa fengið bréf undirritað af Ragnhildi Helga- dóttur heilbrigðisráðherra þar sém þeir eru beðnir uni að koma heim til starfa, og muni ráðuneyti Raghildar til viðtals um að greiða fargjaldið heim, eða hluta þess. Eins og kunnugt er hefur það reynst talsvert erfitt að fá hjúkr- unarfræðinga hérlendis til starfa á sjúkrahúsununt vegna lélegra launa og gífurlegs vinnuálags. Fólk sem hefur menntað sig til þessara starfa kýs heldur að vinna við annað þar sem það fær betri laun. Það skýtur nokkuð skökku við að Ragnhildur skuli nú hvetja hjúkrunarfræðinga erlendis til að koma heim og lýsi sig reiðubúna að bera kostnað við flutninginn. Hjúkrunarfræðingar sem Þjóð- viljinn hefur haft tal af telja það standa ráðherranum nær, að beita sér fyrir því að laun stéttar- innar verði hækkuð, svo sá starfs- kraftur sem þegar er fyrir hendi hérá landi ntegi nýtast. Heimildir Þjóðviljans herma ennfremur að bréfaskriftir Ragnhildar til til Sví- þjóðar hafi vakið hissu viðtak- enda og jafnvel reiði. Dæmi eru þess að viðtakendur hafi flúið land einmitt vegna þess ástands sem nú ríkir hér. Engar fregnir hafa borist um að boði Ragnhild- ar hafi verið tekið. -gg Samningarnir Undmn og hneykslun „Aðalfundur ÆFR 20. feb. 1986 fordæmir harðlcga þær hug- myndir sem fram hafa komið í samningaviðræðum ASI og VSI um nær enga kaupmáttaraukn- ingu fyrir þorra vinnandi fólks. Aðalfundurinn lýsir í senn undrun og hneykslun á því að Al- þýðusambandið skuli í alvöru taka til urnræðu að kauphækkan- ir verði greiddar af fólkinu sjálfu - í gegnum ríkissjóð og lífeyris- sjóði. Verði þessar hugmyndir að veruleika, er kjaraskerðingin frá 1983 staðfest. Slíkt væri óhæfa og engan veginn þolandi, einkum í Ijósi aukins hagvaxtar. Það er löngu tímabært að atvinnurek- endur greiði starfsfólki sínu lífvænleg laun og að þau verði tryggð gegn verðbólgu. Það er öllum Ijóst að til þess hafa at- vinnurekendur efni nóg. ÆFR skorar á verkalýðshreyf- inguna að efla nú upplýsingast- reymi og hvetja fólk til baráttu, svo hlutskipti þess verði ekki niðurlæging á niðurlægingu ofan." Bjarnaborg Niðunif óréttlætanlegt Ragnheiður Pórarinsdóttir borgar- minjavörður: Bjarnaborg einstök ísinni röð. Tvö tilboð hafa borist íhúsið við ákvörðun um það innan tíðar. Borgarntinjavörður hefur hvatt borgarráð til að gefa vand- lcgan gaum þeim tilboðum sem gera ráð fyrir verndun Bjarna- borgar, eins og segir í bréfi henn- ar til borgarráðs. í bréfinu segir að Bjarnaborg hafi mikla sér- stöðu og sé einstök í sinni röð í Reykjavík. Bjarnaborg er byggð úr viði svo kallaðra franskra húsa sem stóðu við Austurstræti á síð- ustu öld, þar sem Hótel Reykja- vík var síðar byggt. Húsið er því að hluta til frá árunum 1832 til 1869. Það er sem stendur í mikilli niðurníðslu en hefur um áratuga skeið verið notað til að hýsa fólk sem leitað hefur á náðir borgar- innar vegna húsnæðisskorts. -gg Spurninaaleikur ÚTSÝNAR Ný sumaráætlun Á undanförnum árum hefur Ferðaskrifstofan ÚTSÝN efnttil skoðanakannana og getrauna fyrir almenning, sem birst hafa í dagblöðum. NÝMÆLl Á FERÐINNI Sunnudaginn 23. febrúar hefst röö 6 nýrra auglýsingafrá Útsýn, sem allarsnerta áhugasvið almennings, sumarleyfiö. í tengslum viö birtingu auglýsinganna í einum útbreiddasta fjölmiðli landsins efnir Útsýn til spurningaleiks fyrir alla fjölskylduna. Leikurinn ervel til þessfallinn aðskerpa athyglisgáfu og upplýsandi um lönd og ferðalög. Laugardagur 22. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3 Hér birtist spurningaformið, og er fólk hvatttil að taka þátt í leiknum, hjálpast að við svörin, fylla út viðkomandi línu eftir hverja birtingu og senda úrklippunatil Útsýnarað viku liðinni, merkt „Spurningaleikur Útsýnar'* pósthólf 1418,121 Reykjavík. >1 Dagar: Spurningar: Sunnudagur: Nafn á nýjum gististað. Mánudagur: Hvaða kynningarverð birtist í auglýsingu? Þriðjudagur: Hvaða stöðuvatn er nefnt í auglýsingu? Miðvikudagur: Á hvaða sögustað endar auglýsingin? Föstudagur: Með hvaða flugvél ferðast fólkið? Laugardagur: Nafn á grískri eyju, sem nefnd var í auglýsingu. Nafn: ________________________________________________ nnr.: _ Heimili: _____________________________________________ Sími: _ Svör:

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.