Þjóðviljinn - 22.02.1986, Blaðsíða 4
________________LEIÐARI____________
Þeir vantreysta lýðræðinu
í undarlegum leiöara á miðvikudag heldur Morg-
unblaöið því fram, að það hafi verið „þegjandi sam-
komulag meðal ráðamanna í verkalýðshreyfingunni,
að ekki sé efnt til kosninga um stjórnir einstakra
verkalýðsfélaga". Síðan segir Morgunblaðið: „Þegar
alþýðubandalagsmenn sjá sér færi rjúfa þeir þó
þetta samkomulag eins og dæmin sanna, nú síðast í
Iðju. Hlýtur það að vera umhugsunarefni fyrir lýð-
ræðissinna hvort þeir eigi að una þessum starfshátt-
um,“ segir Morgunblaðið orðrétt.
Morgunblaðið virðist ekki vita, að sá listi sem vann
yfirburðasigur í Iðjukosningunum undirforystu Guð-
mundar Þ. Jónssonar var listi stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs félagsins.
Þessi tilvitnaði leiðari Morgunblaðsins lýsir svo
ruddalegum og ólýðræðislegum þankagangi, að er
meðólíkindum. Morgunblaðiðog Sjálfstæðisflokkur-
inn er þarna að lýsa því yfir, að þeim finnist kosningar
óeðlilegar í verkalýðsfélögum. Flestum finnst þó að
kosningakerfi í verkalýðsfélögum sé nógu erfitt og
þunglamalegt þó ekki sé verið að ganga á þann litla
rétt sem fólk þrátt fyrir allt hefur, að geta kosið einu
sinni á áratug eða svo milli tveggja kosta í stjórn
verkalýðsfélags.
Hitt er svo í rrieira lagi umhugsunarvert, að
eitthvert „þegjandi samkomulag" hafi verið gert um
það að efna ekki til kosninga um stjórnir verkalýðsfé-
laga.
Hafi eitthvert slíkt „þegjandi samkomulag" verið
gert um það fyrir áratugum, að efna ekki til kosninga í
verkalýðsfélögunum, þá kemur það launafólki dags-
ins í dag ekkert við. Enginn hefur haft heimild til að
gera samkomulag um afsal mannréttinda þess fólks,
sem skipulagt er í verkalýðsfélög í dag, árið 1986.
Það hefur heldur enginn heimild til að svipta fólk í
dag neinum mannréttindum.
Það er hins vegar fyrir löngu kominn tími til að gera
skipulagsbreytingar á verkalýðshreyfingunni til að
hún verði lýðræðislegri og opnari en nú er. Innan
verkalýðshreyfingarinnar hefur oft verið ályktað um
það atriði og stirðbusalegt kosningakerfi innan
verkalýðshreyfingarinnar er ekki til þess fallið að
Umfjöllun Þjóðviljans í gær um vaxandi vinnu
menntaskólanema með námi vakti mikla athygli. í
úrtakskönnun sem framkvæmd var í Menntaskólan-
um við Sund kom fram að yfir 70% nemenda í fjórða
bekk skólans vinna meðfram náminu og allt að 60%
allra nemenda við skólann.
Segja má, að vaxandi neyslukapphlaup valdi
nokkru um. En hitt er engu að síður Ijóst, að þjóðfél-
agsbreytingar í kjölfar rýrnandi kaupmáttar launa-
fólksins veldur hér miklu. Margir nemendanna segj-
ast þurfa að vinna með náminu til þess að afla fjár
fyrir bókum og til annarra nauðsynlegra hluta. Og
það er Ijóst, að á undanförnum árum dugir vinnu-
framlag eins aðila ekki fyrir nauðþurftum nútíma
heimilis. Unglingar í menntaskólum eiga yfirleitt for-
stuðla að eðlilegri endurnýjun og glaðbeittari baráttu
hennar.
En leiðari Morgunblaðsinservitnisburðurum ann-
að en lýðræði. Morgunblaðið vantreystir lýðræðinu,
- vill ekki kosningar í verkalýðsfélögum. Morgun-
blaðið þarf að fara að átta sig á þeirri staðreynd, að
við búum ekki í Chile, og við búum ekki í Sovétríkjun-
um, við búum ekki í Bandaríkjunum. Við lifum á
íslandi, þarsem réttindi fólks eiga að vera virt og
tryggð í lögum og reglum.
eldra sem vinna báðir á vinnumarkaði, en þegar
foreldrarnir voru sjálfir á skólaaldri var öðru að
heilsa. Þannig hafa orðir breytingar á þjóðlífinu milli
kynslóða.
Þegar litið er aftur til síðustu missera verður þessi
mikla vinna nemendanna meðfram náminu enn
skiljanlegri. Kaupmáttur launanna hefur stöðugt
rýrnað síðustu þrjú árin, þó góðæri sé í landinu. Það
hefur leitt til meiri yfirvinnu og vinnuþrælkunar en ella
í landinu. Andrúmsloft vinnuþrælkunar fjölskyldu-
fólks endurspeglast í niðurstöðum þessarar könnun-
ar meðal menntaskólanema. Þetta yfirvinnuþjóðfé-
lag er orðið sjálfsagður hluti af daglegu lífi unglinga,
sem stunda námið. Er það svona þjóðfélag sem
launafólkið vill? - óg
Endurspeglun vinnuþrælkunar
Ó-ÁUT
DJOÐUIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéöinsson.
Ritstjórnarfuiltrúi: Oskar Guömundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlööversson.
Blaöamenn: Álfheiöur Ingadóttir, Garöar Guöjónsson, Ingólfur Hjör-
leifsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Möröur Árnason,
Sigurdór Sigurdórsson, Víöir SigurÖsson (íþróttir), Þórunn Sigurðar-
dóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útltt: Sævar Guðbjörnsson, Garöar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guörún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Haröarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
ÚtbrelÖ8lustjórl: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríöur Kristjánsdóttir.
Húsmóölr: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 40 kr.
Holgarblöö: 45 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 450 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. febrúar 1986