Þjóðviljinn - 22.02.1986, Síða 9
MENNING
5 GIRA
frá kr.
396.
Tökum vel með
farnar Lada-bifreiðir
upp í nýjar.
Hagstæðir
greiðsluskilmálar.
VERÐSKRA:
Lada 1200 195.000.-
Lada Safír 230.000.-
Lada 1500 skutb. 4 gíra 248.000.-
Lada Lux 4 gíra 259.000.-
Lada 1500 skutb. 5 gíra 268.000.-
Ryðvörn innifalin í verði
Allir okkar bílar
eru árgerð 1986, ryðvarðir og tilbúnir
til afhendingar strax.
Söludeildin
er opin í dag frá kl. 13-
Varahlutaverslunin opin fré
9-12.
KAPPKOSTUM ÁVALLT AÐ BJÓÐA LADA-VARAHLUTI Á SEM LÆGSTU VERÐI.
< BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEILD: 31236
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
1989
Norræn listahátíð
í Gautaborg
Gyllenhammar-nefndin hefur þegar tryggt 25 sænskar
milljónir. Vigdís formaður yfirráðs
Einaf hugmyndum
Gyllenhammar-nefndarinnar til
að efla efnahags- og menning-
arsamvinnu á Norðurlöndum er
að halda gríðarlega lista- og
menningarhátíð í Gautaborg síð-
sumars árið 1989 og hafa nefnd-
armenn þegar tryggt sér drýgst-
an hluta kostnaðarfjár, 25 af 30
sænskum milljónum áætluðum.
Gyllenhammar-nefndin er
hópur viðskiptahölda sem forsæt-
isráðherrarnir norrænu báðu að
huga að norrænni samvinnu árið
1984, er kennd við forstjóra Vol-
vo, og íslendingurinn í nefndinni
er SlS-höldurinn Erlendur Ein-
arsson.
Slitrur úr tilkynningu nefndar-
manna um fyrirhugaða stórhátíð
(því miður á heldur skringilegri
íslensku):
„Hátíðin á að sýna á breiðum
grundvelli stöðu norrænnar
menningar í lok 20. aldar. Stefnt
er að því að hátíðin verði vett-
vangur fyrir nýja listsköpun.
Hátíðin „Norðurlöndin Tðag“ •
miðar að því að fá áhorfendur,
þátttakendur bæði frá Norður-
löndunum og utan þeirra. Sýn-
ingar verða stórar í sniðum,
þ.á.m. sérstakar viðhafnarsýn-
ingar, mannlífslýsingar, sérstak-
ar hátíðir fyrir unga fólkið og
einnig minni háttar sýningarat-
riði.
Hátíðin „Norðurlöndin í dag“
á líka að leggja áherslu á menn-
ingarþætti barna og unglinga.
Drög að tilhögunarskrú:
Gautaborg verður fegruð og
skrýdd:
Mannlíf. Uppákomur, Götuleik-
hús. Göngugötur í miðborginni.
Margir staðir nýttir fyrir
skemmtiatriði:
Konserthuset, Konstmuséet (og
önnur söfn), Statsteatern, stræt-
in, Storan, Folketeatern, Biblio-
teket, Ullevi, Scandinavium, Lis-
eberg, Svenska Mássan, Slott-
skogen, Trádgárden, Tjolöholm,
háskólinn, Gunnebo, kirkjurnar,
Klippan, árbakkarnir, iðnfyrir-
tækin, úthverfin.
Norðurlandaleikhiisin sýni ný
verk:
Óperuverk, ballettverk. Stofnun
barnaleikhúss.
Hljómlistarhátíðum Norðurlanda
verður boðið að flytja tónlist
landa sinna:
„Kammermúsík-seríur“ í hinum
ýmsu salarkynnum.
Rómantískar-seríur með nor-
rænni tónlist eða a.m.k. „mostly
Scandinavian" flutt af færum nor-
rænum söngvurum. Hópum boð-
ið að spila í heimahúsum.
Hugvísindadeild háskólans mun
sjá um dagskrá þar sem umræður
fari fram um norræna hugsun og
norræna hugmyndafræði.
Sérstakir kirkjutónleikar verða
haldnir í kirkjum Gautaborgar,
haldnar myndlistarsýningar ,
kynnt norræn nútímalist, norræn
kvikmyndahátíð með verðlauna-
veitingum, „konur á Norður-
löndum“ fá sinn sess á hátíðinni.
Norrænum fyrirtækjum og stofn-
unum verður boðið að halda að-
alfundi sína í Gautaborg 1989.
Komið verður á fót norrœnni
unglinga-sinfóníuhljómsveit, sem
býður unglinga-hljómsveitum frá
Sovétríkjunum og öðrum Evr-
ópulöndum, ásamt frá Banda-
ríkjunum til Gautaborgar.
Meiri háttar menningarkynning-
ar með 9. symfóníu Beethovens
og 8. symfóníu Mahlers sem
áhersluatriði. Þá verður sérstök
þjóðlagadeild á hátíðinni.
Tónlist sem tengist hafinu - Frá
Sáro til Marstrand. Skerjagarður
við Gautaborg ætti að verða eftir-
sóttur fyrir siglingamenn Norður-
landa í ágúst 1989.
Stórar viðhafnarsýningar á Ulle-
vi „a la Los Angeles.
Fjármögnun
Bráðabirgðaáætlun um kostn-
að hátíðarinnar er 30 milj. SEK
(myndasýning undanskilin).
Til þess að geta sem best skipu-
lagt undirbúningsstarfið, var
i. • —— ........
ákveðið að setja á fót sérstaka
stofnun (stiftelse), eins konar
rekstrarfélag, sem gegni því hlut-
verki að skipuleggja, fjármagna
og tryggja framgang lista- og
menningarhátíðarinnar.
Norrænu járnbrautarfélögin í
Danmörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð, ásamt Flugleiðum á fs-
landi hafa tekið að sér að vera
„sponsors“ og með því tryggja
ákveðna fjármögnun. Borgar-
sjóður Gautaborgar hefur sam-
þykkt að leggja fram myndarlega
fjárhæð. Til viðbótar hafábankar
Fulltrúar Gyllenhammar-nefndarinnar: Björn Simonsen óperustjóri í Osló og
yfirmaður menningarhátíðarinnar, Lars Buer ritari nefndarinnar, Bo Ekman
framkvæmdastjóri Volvo, Erlendur Einarsson forstjóri SÍS. (mynd: EÓI)
og stærri fyrirtæki á Norður-
löndum tekið að sér ábyrgðir ef
meira fjármagn þarf.
Formaður rekstrarfélagsins er
Jörgen Linder borgarstjóri
Gautaborgar. í stjórninni verða
einnig fulltrúar frá öllum hinna
Norðúrlandanna.
Yfir rekstrarfélaginu starfar
sérstakt ráð, sem í eiga sæti full-
trúar frá „sponsors" þ.e.a.s.
ríkisjárnbrautunum og Flug-
leiðum, ásamt embættismönnum
Norðurlanda. Formaður ráðsins
er Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands.
Framkvæmdastjóri fyrir hátíð-
ina hefur verið ráðinn Björn Sim-
onsen, stjórnandi norsku óper-
unnar í Oslo. “