Þjóðviljinn - 22.02.1986, Side 12

Þjóðviljinn - 22.02.1986, Side 12
Grace Jones ~P R Þ M A N S Grace - Hennar tign - er fædd á Jamaica. Hún segist vera lík afa sínum, sem er 95 ára, en langalangafi hans var frá Fílabeinsströndinni. Myndin er úr safni Jean-Paul Goude, og jafnframt framaná safnplötunni Island Live. D/EGURMÁL Slave to the Rhythm- Þræll ryþmans - nefnist nýjasta hljómplata Grace Jones, og er þar orðið rhythmekki bara í merkingunni hljómfall í músik. Líka er átt við takt tímans í víðastaskilningi, ryþmaal- heimsins, sem allt er háð; og segir enda í titillaginu og þema plötunnar: þið andið við ryþmann, dansið við ryþm- ann, vinnið við ryþmann, lifið við ryþmann, elskið við ryþ- mann, þrælið við ryþmann. Ekki er alveg rétt að segja að Slave to the Rhythm sé plata Grace Jones, heldur frekar um hana enda er undirtitill plötunnar a biography, ævisaga. Þeir sem segja söguna, með þátttöku Gracear, í tali og tónum, er lið frá ZZT-útgáfunni með Trevor Horn í forsæti sem upptökustjóra og einn af höfundum tónlistar- innar, sem er öll hans og hljóð- færaleikaranna Bruce Woolley, Simonar Darlow og Stevens Lip- son. Hún er mjög ljóðræn, en með fjölbreyttum áherslum og auðvitað ákveðnum ryþma sem stýrir traffíkinni. Inn í hana vefj- ast svo ljóðrænar tilvitnanir og heimspekilegar, lesnar af leikar- anum Ian Shane, viðtalsbrot við Grace sem tveir Pálar eiga; annar Cooke útvarpsmaðurCapital Ra- dio; hinn Morley viðloðandi Fra- nkie goes to Hollywood; og svo upprifjuð atvik úr samskiptum hennar og franska listaljósmynd- arans Jean-Paul Goude, sem Grace var gift vann og með þegar hún var að byrja feril sinn sem tískusöngkona, þ.e. að blanda saman listrænni tísku, tónlist og leikrænni athöfn (Jean-Paul hef- ur gefið út heilmikla bók fulla með myndum listrænum mjög af Grace og dæmi sést um hér á síð- unni). Slave to the Rhythm er óvenju- leg plata og kemur manni á óvart við fyrstu kynni. Hún leynir mjög á sér - heimspekin lunkin og skemmtilega sett fram - en Grace Jones er auðvitað miðpunktur- inn, platan gerð henni til dýrðar, og er mjög í anda hennar goðum líka líkama og dularfullu tilveru. Auk þessarar vel heppnuðu og áheyrilegu ævisögu Gracear Jon- es kom út um svipað leyti (fyrir áramót) safnplata með lögum hennar, er nefnist Island Live. Er þar að finna 10 lög af hinum 6 breiðskífum sem með henni hafa komið út (Þrællinn er sú 6.), ágætt úrval fyrir þá sem ekki eiga Grace-safnið. Meðal laga er t.d. Pull up to the Bumper, sem út kom á plötu árið 1981 en klífur nú vinsældalista ytra ... og þá er bara að njóta Gracear, sem tekist hef- ur að koma manni reglulega á óvart þriðja ganginn með straumbreytingu á plötu - fyrst var það skrautlegt, persónulegt diskó, þá reggae á la GraceJones og nú listrænt hugmyndaflug Tre- vors Horn og hans nóta innblásið af Grace Jones - hvað næst? ... ég bíð spennt! A. Heimspekileg ævisaga í tali og tónum Jákvædur tvístígandi Lone Justice er nýleg sveit á kántrýlínunni. Höröustu kántrýunnendum finnst hún þó hafa færst um of í átttil rokksins á, aö ég held, sinni fyrstu breiöskífu sem ber nafn sveitarinnar. Maria McKee er aðalnúmer Lone Justice, aöal laga- og textahöfundurinn, söngvarinn og leikur auk þess ágítar og munnhörpu. Hinirí hljómsveitinni eru Ryan Hedgecock (gítar og bakradd- ir), Marvin Etzioni (bassi, bakraddir og laga- og texta- smiðar) og Don Heffington trommari. Sem söngkonu hefur Mariu McKee verið líkt við bæði Janis 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardac Joplin og Dolly Parton, og á hvort tveggja við rök að styðjast enda þótt telja verði þær Janis og Dolly betri en Mariu, enda engar meðalkvinnur á því sviði sem og öðrum. Hins vegar er þessi sam- líking byr undir báða vængi stjörnuspekinga, þar eð þær Janis og Dolly eru báðar steingeitur, meira að segja fæddar nákvæm- lega sama dag, 19. janúar, Janis 1943, Dolly 1946. Maria mun rúmlega tvítug, ekki vitum vér um fæðingardaginn en spáum því vegna áðurnefnds raddskyldleika að einhver steingeit sé í stúlk- unni... látum ykkur vita ef nánari fregnir berast. Lög Lone Justice eru allt frá því að vera rólegir kántrýsöngvar og upp í hörku stuð, en kántrý 22. febrúar 1986 áhrifin eru til staðar allan tímann og minna á hvaðan rokkið er komið og að kappar eins og Bob Dylan, Tom Petty og fleiri og fleiri eru sér vel meðvitaðir um Love Justice rætur sínar. Þannig minnir þessi unga landamærasveit, sem tví- stígur milli sveitasöngva og borg- arokks (og megi hún tvístíga um ókomna framtíð), á að öfugt við það sem margur heldur er rokk ekki bara tískufyrirbæri, heldur lífkeðja með ýmsum æxlum, ým- ist ill- eða góðkynja, og á sér upp- hafsrætur og vonandi engan endi. Það er þröngsýnt að segja músík gærdagsins gamaldags, með því er músík dagsins í dag dauða- dæmd um leið, og væri reyndar ekki eins og hún er ef hún hefði ekki farið í gegnum þróun sína. Hér passar líklega að segja amen, en þó skal þess getið að Maria McKee samdi A Good He- art fyrir Feargal Sharkey, og Ben- mont Tench, sem svaraði Mariu með You little Thief - líka handa Feargal, - leikur á orgel á plötu Lone Justice og samdi auk þess eitt lag í félagi við Mariu og Little Miami Steven Van Zandt, sem þenur gítarinn í því lagi (Sweet, Sweet Baby (I’m falling )), en Steven litli var gítarleikari Bruce Springsteen og fer nú fremstur í flokki með Sun City plötuna gegn aðskilnaðarstefnu í Suður-Afríku (komin í búðir hér). En niðurstaðan um Lone Just- ice: Þrátt fyrir að útlend blöð hafi sagt að þetta sé venjuleg, sótt- hreinsuð amerísk skífa, finnst undirritaðri skemmtilegur fersk- leikablær yfir henni, þrátt fyrir gamla kántrýhefðina, sem þó er ekki beint hennar lína. A P.S.: Stjörnuspekingur minn giskar á að Maria sé krabbi en segir að Janis hafi verið með rís- andi krabba og að krabbinn sé ekki langt frá tunglinu hennar Dollyar... þannig að eigum við ekki að segja að þær hafi krabba- rödd þar til annað kemur fram...?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.