Þjóðviljinn - 22.02.1986, Síða 15

Þjóðviljinn - 22.02.1986, Síða 15
ÍÞRÓTTIR Elísabet Þórðardóttir Badminton Elísabet til besta liðs Svía Elísabet Þórðardóttir, lands- liðskona úr TBR, er á förum til Svíþjóðar þar sem hún æfir í fimm vikur með besta félagsliði Svía, Aura í Malmö. Með þessu gerist Elísabct frumherji í röðum íslensks bad- mintonfólks og hún ætti að hagn- ast vel á dvölinni þar sem svíar eru í hópi sterkustu badminton- þjóða heims. Nokkur fyrirtæki hafa styrkt Elísabetu til fararinn- ar og fer hún til Malmö jafnskjótt og keppni lýkur í undankeppni HM í Vestur-Þýskalandi um helg- ina. Úrvalsdeildin UMFN vann úrvalsdeildina Mœtir IBK og Haukar leika við Val Njarðvíkingar tryggðu sér sigur í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik í gærkvöldi. Þeir sigr- uðu granna sína, IBK, í Keflavík, 103-83, og Björn M. Björgvinsson formaður KKÍ afhenti þeim sigurlaunin, eignarbikar frá Ikea eftir leikinn. ÍBK hafnaði í fjórða sæti og liðin tvö mætast því í undanúrslitum deildarinnar. Hitt einvígið verður á milli Hauka og Vals. Njarðvík náði strax undirtök- unum og góðri forystu. ÍBK tókst reyndar að jafna einu sinni undir lok fyrri hálfleiks og standa í Njarðvíkingum fram yfir hlé. En þá gerði UMFN, með Val fremst- an í flokki, 20 stig gegn 4 á skömmum tíma og þar með voru úrslitin ráðin. Valur og Jóhannes voru í sér- flokki hjá Njarðvík og léku báðir mjög vel. Útilokað að gera upp á milli þeirra. Liðið var annars jafnt, Hreiðar þó drjúgur á lok- amínútunum. Guðjón og Sigurður voru í að- alhlutverkum hjá ÍBK. Guðjón skoraði 6 3ja stiga körfur, 18 stig alls, og Sigurður hafði gert 21 stig þegar hann hvarf af leikvelli með 5 villur urn miðjan seinni hálfleik. Hreinn átti góðan lokasprett en Jón Kr. var í daufara lagi, enda á hann við meiðsli að stríða. —SÓM/Suðurnesjum 3.deild íbasli Úrslitin í 3. deildinni í hand- knattleik í gærkvöldi voru öll eftir bókinni. Fjögur toppliðanna léku við fjögur úr neðri hlutanum og þau fyrrnefndu sigruðu. Tæpast var það þó hjá Reyni sem fékk IH í heimsókn, leiknum í Sandgerði lauk 23,21, Rcyni í hag. ÍA vann góðan sigur á Völs- ungi norður að Laugum, 32-21, Týr vann Ögra í Eyjum 31-18 og Þór sigraði Skallagrím á Akur- eyri 30-17. Staðan í 3. deild er þá þessi: IBK..........21 18 0 3 554-392 36 Týr..........20 17 0 3 536-381 34 ÍA...........20 13 3 4 517-417 29 ReynirS.........22 12 5 5 525' Þór A...........20 12 3 5 463' Fylkir..........19 11 1 7 425' Selfoss.........20 8 4 8 421 UMFN............21 7 3 11 514 Hveragerði......20 8 1 11 478- Völsungur.......20 7 1 12 481- IH..............19 5 0 14 433- Skallagrímur.... 20 3 1 16 394- ögri............22 0 0 22 324- 481 29 393 27 375 23 417 20 516 17 538 17 ■500 15 ■521 10 523 7 -621 0 í dag mætast Þór-ÍA, Völsungur-Skallagrímur og Fylkir-Hveragerði. —VS Keflavík 21 .feb. ÍBK-UMFN 83-103 (45-51) 7-18, 19-29, 43-43, 45-51 - 58-66, 62-86, 78-94, 83-103. Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 24, Sig- urður Ingimundarson 21, Hreinn Þor- kelsson 13, Jón Kr. Gislason 9, Magn- ús Guðfinnsson 6, Þorsteinn Bjarna- son 4, Ólafur Gottskálksson 2, Ingólfur Haraldsson 2, Hrannar Hólm 2. Stig UMFN: Jóhannes Kristbjörns- son 28, Valur Ingimundarson 28, Isak Tómasson 14, Kristinn Einarsson 13, Hreiðar Hreiðarsson 10, Helgi Rafns- son 4, Ingimar Jónsson 2, Árni Lárus- son 2, Ellert Magnússon 2. Dómarar: Ómar Scheving og Krist- inn Albertsson — góðir. Menn leiksins: Valur Ingimundar- son og Jóhannes Kristbjörnsson, UMFN. lnnimótið Gróttan vann Framara! Selfoss sigraði tvo Grótta og Selfuss komu heldur bet- ur á óvart í gærkvöldi þegar keppni hófst í 1. deild karla á Islandsmótinu innanhúss. Grótta vann hið sigur- stranglega lið Framara 8-6 í A-riðli og í B-riðlinum unnu Selfyssingar Breiðablik 5-4 og Þrótt R. 5-1. Úrslit í l.deild í gærkvöldi urðu þessi: A-riðill: Grótta-Fram......................8-6 B-riðill: FH-Valur.........................4-3 C-riðill: Selfoss-Breiðablik...............5-4 KR-ÞrótturR......................4-2 Selfoss-ÞrótturR................5-1 KR-Breiðablik....................7-2 Úrslitaleikur KR og Selfoss fer fram kl. 18.16 á morgun, sunnudag. I kvennaflokki eru IA og Breiða- blik, úrslitaliðin í fyrra, komin í und- anúrslit. Leikir höfðu farið þannig þcgar blaðið fór í prentun: A-riðill: Breiðablik-Skallagrímur.........7-1 Fram-Stokkseyri.................3-1 Skallagrímur-Fram................2-2 Breiðablik-Stokkseyri............7-0 Stokkseyri-Skallagrimur..........3-2 Breiðablik-Fram..................8-0 C-riðill: Stjarnan-lBK.....................2-2 (A-Grindavík....................5-1 FH-Stjarnan.....................5-4 iA-IBK...........................6-2 IA-FH...........................4-1 IBK-Grindavík...................7-1 Grindavík-FH.....................3-2 lA-Stjarnan......................6-3 —-Logi/VS Sund Atta unglingamet á KR-mótinu Átta unglingamet voru sett á unglingasundmóti KR og Speedo sem fram fór í Sundhöll Reykja- víkur um síðustu helgi. Mótið var stigakeppni milli félaga og Vestri frá ísafirði sigraði með 229 stig, Ægir hlaut 206 stig og Bolvíking- ar urðu þriðju með 186 stig. Ingibjörg Arnardóttir, Ægi, setti unglinga og telpnamet í 200, m skriðsundi, 2:12,7 mín. Kristján H. Flosason, KR, setti hnokkamet í 50 m bringu- sundi, 50,5 sek. Erna Jónsdóttir, Bolungarvík, setti hnátumet í 50 m bringu- sundi, 47,2 sek. Ómar Árnason, Óðni, setti hnokkamet í 50 m baksundi, 48,3 sek. Sveinasveit Vestra setti met í 4x50 m fjórsundi, 2:43,3 mín, og í 8x50 m skriðsundi, 5:15,0 sek. Meyjasveit Selfyssinga setti met í 8x50 m skriðsundi meyja, 5:32,4 mín, og stúlknasveit Ægis setti með í 8x50 m skriðsundi, 4:07,2 .sek. Keppendur voru 45o frá 19 fé- lögum víðs vegar að af landinu og gekk mótið, hið stærsta sinnar tegundar hérlends, mjög vel fyrir sig. * Badminton Karlarnir í 9.-12. Karlalandsliðið hafnaði í 9,- 12. sæti en kvennalandsliðið í 13.- 16. sæti í undankeppni HM í ba- dminton i V. Þýskalandi. Riðlak- eppninni lauk í gær og þá sigruðu .íslcnsku karlarnir Frakka 5-0 en konurnar töpuðu 2-3 fyrir Nor- egi. Þátttökulið voru 19 í hvorri keppni en þrjú efstu í hvorri kom- ast í úrslit heimsmeistaramótsins. —VS/Reuter Kvennaknattspyrna Gurrí aftur með Guðríður Guðjónsdóttir — komin af stað á ný. Guðríður Guðjónsdóttir lands- liðsmarkvörður í knattspyrnu mun leika með Breiðabliki á ný í 1. dcildinni í sumar. Hún tók sér barneignarfrí í fyrrasumar, en í vetur hefur hún leikið með Fram í handboltanum og er tilbúin í slaginn næsta sumar. Frá Akureyri berast þær fréttir A-keppnin Svíþjóð og Alsír byrja Síðan leika Island-S.Kórea, A. Pýskaland-Kúba og Danir- Ungverjar að Guðmundur Svansson hafi verið endurráðinn þjálfari 1. deildarliðs Þórs. Hann hefur stýrt liðinu undanfarin ár og 1984 léku Þórsstúlkurnar til úrslita um ís- landsmeistaratitilinn undir hans stjórn. Guðjón Þórðarson hefur tekið við þjálfun íslandsmeistara ÍA, a.m.k. til bráðabirgða, en Steinn Helgason, sem hefur þjálfað liðið sl. fimm ár ætlar að taka sér frí í sumar. —MHM Það verða Svíþjóð og Alsír sem leika opnunarleik heimsmeistar- akeppninar í handknattleik sem hefst í Sviss á þriðjudaginn. Leikurinn, sem fram fer í St. Gallen, hefst kl. 16.30 að íslensk- um tíma en kl. 18 hefjast þrír leikir, ísland-S.Kórea, A.Þýskaland-Kúba og Dan- mörk-Ungverjaand. Dagskrá keppninnar er annars sem hér segir: Þriðjudagur 25.febrúar A-riöill: A.Þýskaland-Kúba A-riðill: Júgóslavía-Sovétríkin B-riöill: Sviss-Spánn B-riöill: V.Þýskaland-Pólland C-riöill: ísland-S.Kórea C-riöill: Rúmenía-Tékkoslóvakía D-riðill: Danmörk-Ungverjaland D-riöill: Sviþjóö-Alsír Miövikudagur 26.febrúar B-riðill: V.Þýskaland-Spánn B-riöill: Sviss-Pólland C-riöill: Island-Tékkoslóvakía C-riöill: Rúmenía-S.Kórea Fimmtudagur 27.februar A-riöill: Júgóslavia-Kúba A-riöill: A.Þýskaland-Sovétríkin D-riðill: Danmörk-Alsir D-riðill: Sviþjóö-Ungverjaland Föstudagur 28.febrúar A-riöill: Júgóslavia-A.Þýskaland A-riöill: Sovétríkin-Kúba B-riöill: V.Þýskaland-Sviss B-riðill: Pólland-Spánn C-riðill: Tékkoslóvakía-S.Kórea C-riöill: Rúmenía-lsland D-riöill: Ungverjaland-Alsir D-riðill: Danmörk-Svíþjóö Keppni í milliriðlum hefst á sunnudag og keppt verður áfram á þriðjudag og fimmtudag. Sömu daga verður leikið um neðstu sæti keppninar, sæti 13.-16. Föstu- daginn 7. mars verður leikið um sæti 3 til '10 en á laugardaginn, 8. mars, verður fyrst leikið um 11. sætiðogloks, kl. 15.30að íslensk- um tírna, fer fram sjálfur úrslita- leikurinn. íslenska liðið hélt utan í morg- un, flaug beint til Zurich og nú er bara beðið stóru stundarinnar, hún rennur upp kl. 18 á þriðju- daginn. —VS Landsliðið Allirí Act-skó Skógerðin á Akureyri færði í fyrrakvöld landsliðsstrákununi í handknattleik skó að gjöf, bæði Act-kuldaskó og Act-lakkskó. Þetta gerðu Akureyringarnir til þess að minnast 50 ára afmælis fyrirtækisins og vilja með þessu stuðla að enn betri árangri lands- liðsins í A-keppninni í Sviss. Kuldaskórnir eru sérstaklega taldir heppilegir vegna hinna miklu kulda sem ríkt hafa í Mið- Evrópu undanfarið. —-VS Laugardagur 22. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.