Þjóðviljinn - 11.03.1986, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 11.03.1986, Qupperneq 4
LEIÐARI Afvopnun og hagsmunir Lokiö er þingi Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna og fréttaskýrendur hafa haft ærinn starfa viö aö leggja út af því sem þar var sagt. Og þeir hafa þá ekki síst reynt aö koma sér niður á (Daö, hvaöa afleiðingar það, sem sagt var á þinginu, hefur fyrir afvopnunarhorfur, fyrir hina stiröu sambúö austurs og vesturs. Sovétmenn hafa væntanlega sjálfir haft mestan áhuga á því sem Gorbatsjof flokksritari og hans menn sögöu um breytta stjórn efna- hagsmála, um tæknivæðingu og skipulags- breytingar sem þeir vonast til aö bæti kjör þeirra og dragi úr vöruskorti á ýmsum sviðum. Enda ekki nema von. Sovéskur landbúnaður hefur skilað slælegum árangri á næstliönum tíma og samkvæmt opinberum heimildum Sovétmanna sjálfra hefur hagvöxtur undanfarin ár verið miklu minni en áöur eða um 3%. Og í þeim hagvexti er þá líka aö finna bæöi vaxandi hern- aðarútgjöld og svo þann neysluvarning sem, aö sögn Gorbatsjofs, safnast upp í verslunarkerf- inu og enginn vill kaupa. Nú skrifa menn margt um þaö utan Sovétríkj- anna, hvort Gorbatsjof geti tekist að fylgja fram þessum áformum - margir telja aö hann gangi of skammt í aö hrista upp í ofstýringunni, aö kerfið muni reynast einnig hans kynslóö of þungt í vöfum. En aðrir minna á þaö, sem von- legt er, aö ein helsta forsendan fyrir því aö umbótaáform í Sovétríkjunum skili árangri er blátt áfram sú, aö hægt veröi aö komast hjá því aö enn sé lagt út í nýjan og feiknadýran áfanga í vígbúnaðarkapphlaupinu meö geimvopnakerf- um og ööru slíku. Um þetta segir í leiðara í breska blaöinu Gu- ardian: „Ef Vesturlönd geta dregið af öllu þessu ein- hverjar niöurstööur fyrir sjálf sig, þá eru þær fólgnar í því, að Sovétríkin hafa nú í ríkara mæli en nokkru sinni fyrr í samtímasögu beinan hag af aö komast hjá því aö flækjast í nýja stigmögn- un vígbúnaöarkapphlaupsins.11 Þaö er ekki nema von aö svo sé mælt. Gor- batsjof og hans menn munu vitanlega segja jsem svo, aö hvaö sem vígbúnaðarkostnaði líöur ímuni þeir finna ráð til að framkvæma áætlanir sínar í efnahagsmálum og félagsmálum. En ekkert bendir til þess, aö þaö sé í rauninni svig- rúm til aö gera tvennt í einu:. fjárfesta í dýrum andsvörum viö Stjörnustríðsáformum Reagans og í stóraukinni framleiöslu neysluvarnings. Og því miður sýnir reynsla liöinna ára þaö, að ef til slíkra kasta kemur, þá er vígbúnaðurinn látinn hafa forgang - og gildir þaö í raun bæöi í austri og vestri. í umræðum um vígbúnaöarkapphlaup hafa lengi staöiö deildur um þaö hvort risaveldiö beri á því mesta ábyrgö. Oft er þá bent á þaö að Bandaríkin eigi þá sök aö hafa verið fyrst meö mörg helstu vígbúnaðarkerfin - Sovétmenn hafa svo orðið aö svara þeim. Sovétmenn eru síðan sakaöir um, aö reyna aö bæta sér upp þaö sem á vantar í nýjustu tækni meö feikna- jlegu magni af allskonar eldri vopnum. Þessar 'umræöur eru ekki sérlega frjóar, né heldur vangaveltur um friðarvilja eöa yfirgang hvers og eins. En þaö getur veriö mjög þýðingarmikiö fyrir skynsamlegt mat á stööu mála, aö fá svar viö þessari spurningu hér: Er ætlun Reagans meö Sjörnustríðsáætlun aö þrengja svo aö So- vétmönnum efnahagslega aö þeir megi sig hvergi hræra? Margt bendir til þess að því veröi aö svara játandi - og þá meðal annars sú staða í sovésku efnahagslífi sem áöur var minnst á. Stjörnu- stríðsmenn segjast aö vísu ætla að koma í veg fyrir aö Sovétmenn geti greitt hið svonefnda „fyrsta högg“ í kjarnorkustríöi. En bæöi bilanir í eldflaugum, geimskutlum og fjarskiptabúnaði, sem og upplýsingar um þann fimbulvetur sem allt mannkyn á von á eftir tiltölulega fáar atóm- sprengingar- allt gerir þetta röksemdir um viö- búnaö viö fyrsta höggi einmitt nú enn mark- lausari og fáránlegri en þær áöur voru. áB KUPPTOG Hnípinn maður Formaöur Alþýðuflokksins á ekki sjö dagana sæla. Nú hefur hann ekki opnað munninn elleg- ar drepið niður penna öðruvísi en fara að tala um það, hversu samn- ingarnir séu góðir. Þessi nýja efnahagsstefna sem aðiljar hafa orðið ásáttir um sé ekki annað en efnahagsstefna Alþýðuflokksins fyrr.og síðar. Þessi stjórnlist formannsins er merkileg fyrir margra hluta sakir. Stefna ríkisstjórnarinnar er orðin stefna Alþýðuflokksins. Og þeg- ar formaður Alþýðuflokksins náði sér í fylgi í skoðanakönnun- um í fyrra, þá var það vegna þess að hann þóttist vera með valkost í pólitíkinni, valkost við stefnu ríkisstjórnarinnar. Það er sem- sagt búið. Nú hafa þeir eina stefnu Alþýðuflokkurinn og ríkisstjórnin. I vanda Það er erfitt að sjá hvað felst í þessari herstjórnarlist formanns- ins. Hvað ætlar hann að segja við kjósendur fyrir næstu kosningar? Ekki getur hann sagt að hann sé á móti efnahagsstefnu ríkisstjórn- arinnar eða að Alþýðuflokkurinn bjóði uppá einhvern kost gagnvart þeirri stefnu, þegar hún er sú sama. Formaðurinn er í miklum vanda. Hann fékk fljúgandi fylgi í skoðanakönnunum, sem byggð- ist að mestu leyti upp á því, að hann sjálfur var tiltölulega hress í árdaga formennsku sinnar, sagð- ist vera með nýja og ferska stefnu og afþví hann var svo glaðbeittur hreif hann til sín fólk í svipinn. En það er liðin tíð. Von bráðar fór hann að leika ábyrga manninn, sem elskaði friðinn svo mikið að hann var orðinn sammála öllum hinum hagsmunagæslurasssæris- SKORIÐ mönnunum. Og þá fór hann að verða þreytandi og leiðinlegur. Fylgið rann frá honum eins og kálfar á vorin, enda var meira líf á öðrum bæjum, en í Jóns ranni Baldvins. Ruglast á flokkum Síðan þá hefur Jón Baldvin verið að leita að fylginu. í pólitík- inni hefur hann verið í hugmynd- asamkeppni við Hannes Hólm- stein, en áttar sig þá ekki á því, að hugmyndir Hannesar voru eitt sinn þrátt fyrir allt nýjar og ögr- andi, - en það var líka í „den tid“ og þær eru orðnar lúnar og slæv- andi í dag. Sjálfur hefur formaðurinn því lent á öngstræti fátæklegra hug- mynda og í stað þess að segjast hafa stefnu til samanburðar við aðrar, eitthvað sem hann ætli að berjast fyrir og svo framvegis, þá lýsir hann því statt og stöðugt yfir, að nú sé runninn upp „kjar- asáttmáli, sem byggir á tillögum Alþýðuflokksins“. Formaðurinn gat ekki verið fundvísari á leið útúr vanda sín- um, öngstræti hugmyndaþrots- ins, fylgishruni og málefnafá- tækt: hann trúir á það og treystir því að kjósendur muni ruglast á flokkum. Þetta hefur formaður- inn lesið úr iðrum þjóðarlíkam- ans, og numið af heyrn sinni frá- bærri úr holræsi lýðsins. Sjálfur hefur hann verið með sýni- kennslu í sjónvarpi um það hvar hans eigin flokkur er staddur. Hér og hvar nema vinstra megin við miðju. Þó formaðurinn sé voldugur og allsráðandi í Alþýðuflokknum má glöggt sjá, að flokkssystkini hans hrópa ekki öll halelújá við hugmyndum hans. Sighvatur Björgvinsson er alltaf í skotgröf- unum og skrifaði á dögunum grein í DV gegn samningunum, án þess að minnast á flokkinn sinn einsog venjulega. Uppreisn í Alþýðuflokknum „A kreppuárunum, í atvinnu- leysi, fátækt og eymd tókst verka- lýðshreyfingunni að vinna stór- kostlega sigra og auka kaupmátt taxtakaups. Nú tala menn hins vegar um, að engin staða sé til neinna aðgerða. Nú neyðast menn til þess að semja um því sem næst ekki neitt eftir 25% kaupmáttarhrap samningsbund- inna launa.“ Það er stefna Alþýð- uflokksins sem varaþingmaður- inn er að tala um. Alþyðublaðið í andófi Það er ekki nóg með að Sig- hvatur Björgvinsson vegi að for- manni sínum og flokkssystkinum á alþingi og í verkalýðsforyst- unni, heldur er Alþýðublaðið komið í andóf líka. Blaðinu er greinilega nóg boðið þegar það þarf að birta langlokuræður for- mannsins um efnahagsstefnu Al- þýðuflokksins. Arna Gunnarssyni ritstjóra Al- þýðublaðsins er ekki annað tækt en nota kremlaraðferðina gegn formanninum í blaðinu. Þegar fyrsta grein formannsins var birt undir heitinu: „Kjarasátt- máli sem byggir á tillögum Al- þýðuflokksins," - var lítil klausa á baksíðunni „Hver borgar samn- ingana,“ - og er sagt frá því að kostnaðurinn lendi á fólkinu en ekki atvinnurekendum. Á for- síðu er svo grein í fimmdálk, með fyrirsögninni „Hagstæðir kjara- samningar fyrir atvinnurekstur- inn“. Og þegar næsta grein kom frá formanninum voru samfelldar árásir á forsíðu Alþýðublaðsins: „Forstjórabflárnir lækka hlut- fallslega mun meira“, húsnæðis- hreyfingin „Lýsa miklum von- brigðum með „úrbætur" í hús- næðismálum“. Og þannig verður formannin- um flest að óhamingju og fylgis- tapi, utan og innan Alþýðu- flokksins. Og þegar málgagnið endurspeglar veruleikann, þegar lýðræðishippinn hann Árni Gunnarsson er kominn af stað, þá verður formanni fátt til bjarg- ar. _óg DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufólag Þjóöviljans. Rltstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson. Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing- ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Frið- þjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjórí: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiöslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóöir: ólöf Húnfjörð. Bílstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síöumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaöaprent hf. Verö í lausasölu: 40 kr. Helgarblöð: 45 kr. Áskriftarverð á mánuöi: 450 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 11. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.