Þjóðviljinn - 11.03.1986, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 11.03.1986, Blaðsíða 5
Virkari verkatýðsbaráttu Reinhold Richter, verkamaður skrifar Þá er búið að samþykkja ný- gerða kjarasamninga í Dagsbrún. Það var ekki við öðru að búast þótt allir viti, sem vilja, að þessir samningar eru síður en svo til að húrra fyrir. Á fundinum í Austur- bæjarbíói sagði Guðmundur Joð að þetta væri tilraun og Þröstur sagði þetta áhættu. Ég leyfi mér að tengja þetta saman og kalla þessa samninga áhættutilraun og við launþegar því tilraunadýrin. Þegar þessir samningar eru skoðaðir í rólegheitum, vegnir og metnir eftir kúnstarinnar reglum, hlýtur hver heilvita maður að komast að þeirri niðurstöðu, að áhættan sé fyrir neðan öll raun- sæismörk. Það er hrein heimska, að treysta Þorsteini Pálssyni og Steingrími Hermannssyni fyrir launaumslaginu sínu. Hafa þeir nokkurn tímann sýnt að þeir væru trausts verðir í slíkum efn- um? Ekki ninnumst við verka- menn þess. Ég sagði í upphafi að það hafi ekki verið við öðru að búast, en að þessir samningar yrðu sam- þykktir. Það er velþekkt stað- reynd, að frá tímum þrælahalds (það viðgengst reyndar enn í vinnuþrælkunarþjóðfélagi nú- tímans) að því meir sem herrann kúgar þræl sinn og pínir, þeim mun hlýðnari og þægilegri verður þrællinn herra sínum. En þann dag í dag eru orðin þrælsótti og þrælslund notuð í íslensku og það ekki í neinni yfirfærðri merkingu, einsog ætla mætti árið 1986!! Það viðurkenna einfaldlega allir, að enginn íslendingur, karl eða kona, fjölskyldumaður eða ekki, „Sem dœmi um ástandið má nefna fordæmingu stjórnar Dagsbrúnar á Þjóðviljann. Eina blaðinu semfór ofan í samningana á opinn og heiðarlegan hátt... “ getur lifað af kaupinu sínu einu saman. Það er fræðilega útilok- að. Þess vegna verða íslenskir verkamenn að leggja á sig og fjöl- skyldu sína „gígantíska" yfir- vinnu eða óhóflegt vinnuálag í bónus eða ákvæðisvinnu, þrátt fyrir það berjast þeir í bökkum fjárhagslega. Hinn almenni launamaður er þreyttur, hann er útkeyrður á taugum og á barmi gjaldþrots. Það er ekki hægt að ætlast til að fólk í þessari aðstöðu þori út í baráttu. Þetta vita atvinnurek- endur og leppar þeirra í valda- kerfinu og auðvitað ganga þeir á lagið.Þetta er þeirra hagur og auðvitað reyna þeir að viðhalda þessu ástandi. Þeir vita sem er að meðan þetta ástand varir geta þeir svo til einhliða ráðið því hvernig kaupin ganga á eyrinni. Verkalýðsforystan veit þetta líka. Þess vegna er illmögulegt að skilja hvers vegna ekkert er gert á þeim vígstöðvum til að breyta þessu ástndi. Hvers vegna eru verkfallssjóð- ir ekki styrktir? Hvers vegna gera verkalýðsfélögin ekkert til að efla baráttuþrek og vilja félagsmanna sinna? Dagsbrún og Þjóðviljinn Sem dæmi um hvernig ástandið í þessum efnum er í dag, má nefna fordæmingu stjórnar Dagsbrúnar á Þjóðviljann. Eina blaðinu sem fór í saumana á þess- um samningum á opinn og heiðarlegan hátt, og hrokinn í varaformanninum þegar hann vísaði á Dagsbrúnarfundinum frá tillögu Páls Valdimarssonar um að stjórn Dagsbrúnar dragi þetta til baka. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, leyfði sér að ljúga því blákaldur að Merce- des Benz myndi ekkert lækka í verði eftir að ég hafði sagt að for- stjórar heildsalar og aðrir þeir sem aura eiga, væru þeir einu sem fengju umtalsverðar launabætur út úr þessum samningum. Sam- kvæmt því sem sölustjóri Ræsis segir, lækka þó engir bílar eins mikið og Benz, eða um 337 þús- und krónur, en Lada lækkar að- eins um rúmlega 30 þúsund krón- ur. Hvers konar kjarasamningar eru þetta, og fyrir hverja? - Ég bara spyr. Það er gjörsamlega óþolandi að forsvarsmenn okkar í verka- Iýðsfélögunum skuli Ijúga upp í opið geðið á okkur, hunsa þær tillögur sem við berum upp á fundum, og brjóta niður félags- andann og baráttuþrek þeirra sem þeir eru kosnir til að þjóna. Það var til að mynda ósmekklegt af formanninum að segja fundar- mönnum það, að ef þeir voguðu sér að fella samningana væru þeir svo gott sem að setja íbúðir fjölda fólks á nauðungaruppboð. Guð- mundur veit vel, að tillögur samningaaðila um húsnæðismál- in eru aðeins í athugun hjá Steingrími og þessar 300 miljónir sem á að kasta í þá sem dýpst eru sokknir í vaxtafenið, eru hvort sem er aðeins skammgóður vermir. Við hinir almennu félagar gæt- um breytt þessu ástandi. Þetta er svona í mínu félagi en því miður er mitt félag ekkert einsdæmi, eftir því sem ég hef heyrt. Ég skora því á okkur launa- menn að fjölmenna á fundum í okkar félögum og taka þar virkan þátt, segja okkar skoðanir og vera ekkert að bera virðingu fyrir þessum hrokagikkjum sem eru í forsvari. Við þurfum að koma okkar mönnum í áhrifastöður, mönnum sem eiga hagsmuna að gæta og eru tilbúnir að hvetja og styðja sína menn í virkri baráttu fyrir mannsæmandi lífskjörum. Reinhold Richter er verkamað ur í Landsmiðjunni hf. Greifafötin úr Garðastræti Guðmundur Einarsson skrifar: Ein stærsta blekking kjara- samninganna er sú að nýjar leiðir hafi verið farnar. Samningamenn og ráðherrar éta hver eftir öðrum upp yfirlýsingar um vönduð vinn- ubrögð og raunsætt mat á aðstæð- um. Er það raunsætt mat á aðstæð- um í landinu að halda að það skipti máli hvort maður hafi 20.000 eða 21.600 kr. í mánaðar- laun? Aðstandendur þjóðarsátt- arinnar telja að svo sé, því bjartsýnustu tölvurnar þeirra spá 8 prósent kaupmáttaraukningu þegar allt er talið til. Staðreyndin er sú, að engu máli skiptir hvort kaupið er 20.000 eða 21.600. Það er því miður margt fólk, sem verður að lifa af slíkum launum, en það lifir ekki því lífi, sem hægt er að gera þjóðarsátt um. Nýjar leiðir og ný föt Lítum á leiðirnar við samning- agerðina. • Greiðslugeta atvinnuveganna er gamalt hugtak. Það er fund- ið með því að fara yfir skýrslur um afkomu fyrirtækjanna og búa til meðaltalsgreiðslugetu. Þannig er búið til hengirúm undir öll fyrirtæki, líka þau, sem eru illa rekin. Þau fara inn „Keisarar ríkisstjórnar og verkalýðshreyfingar hafa einfaldan smekk. Þeirganga aðeins ífötumfrá Garðastrœti“. En svo er fólk sem hefur ekki efni á að kaupa bíl. En það neyðist líklega til að kaupa sér dekk til að njóta hinna bættu lífskjara, sem búið er að reikna úti í Garðastræti. • Allir segja að samningar eigi að vera frjálsir og á ábyrgð samningsaðila. Endirinn er þó alltaf sá að ábyrgðinni er velt á ríkissjóð. Þeir hafa einfaldan smekk Keisarar ríkisstjórnar og verkalýðshreyfingar hafa einfald- an smekk. Þeir ganga aðeins í föt- um frá Garðastræti. En það er komið í ljós að keisararnir eru ekki í neinu. í meðaltalið með risnunni og Range Rover forstjórans. Svo er greiðslugetan reiknuð þannig að allar fleytur haldist á floti. Enginn má fara á haus- inn. Slíkt er ekki leyfilegt í ríkiskapítalisma Sjálfstæðis- flokksins. • Lífskjör fólksins eru líka reiknuð. Það er byggt á með- altölum, neyslukönnunum og vísitölum um lífið. Menn reikna öllum svolítið kjöt og mjólkurleka. Einhverja bíl- druslu er reynt að hafa í meðal- talinu og dekk. Á endanum gleyma menn því, að þessar tölur eru vísbending- ar, meðaltöl og mælistikur, en ekki lífskjör. • í samningunum er síðan reynt að láta tölvuútskriftir um greiðslugetu mæta tölvuút- skriftum um lífskjör. Þær út- skriftir geta auðvitað aldrei mæst og þá er samið um að breyta mælistikunum. Samningarnir hætta að fjalla um sjúklinginn en snúast um hitamælinn. Þá er samið um lækkun á dekkjum og bflum því dekkja- og bflakrónan er margfalt þyngri á vísitöluvoginni heldur en matvælakrónan. • Það er samið um lífskjör, sem eru ekki mannsæmandi. • Greiðslugetan er metin á gamla mátann. • Mannlífið er reiknað í prósent- um. • Samningarnir snúast mest um að falsa vísitöluna. • Samið er um „félagsmála- pakka“ eins og í gamla daga. Eru einhverjar nýjar leiðir í þessu? Guðmundur Einarsson er þing- maður og formaður BJ. Þriðjudagur 11. mars1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.