Þjóðviljinn - 11.03.1986, Qupperneq 9
FRÉTTIR
Verkalýðsmálaráð AB
Lýst yfir vantrausti
Fjórar konur úrstjórn verkalýðsmálaráðs AB segja sig úr
flokknum. Lýsa yfir vantrausti áforystu
verkalýðshreyfingarinnar. Síðustu samningar samtrygging
við atvinnurekendur og óvinveitt ríkisvald. Stefna
verkalýðsmálaráðs sniðgengin
Við undirritaðar, sem höfum
verið í stjórn verkalýðsmála-
ráðs Alþýðubandalagsins síð-
astliðið ár, segjum hér með af
okkur þeim trúnaðarstörfum svo
og öðrum trúnaðarstörfum innan
flokksins um leið og við segjum
okkur úr Alþýðubandalaginu.
Með úrsögn okkar lýsum við van-
trausti okkar á forystu verkalýðs-
hreyfingarinnar, sem Alþýðu-
bandalagsmenn leiða, og þann af-
dráttarlausa stuðning sem flokks-
forystan veitir þeim. Síðustu
samningar sýna svo ekki verður
um villst samtryggingu þeirra við
atvinnurekendur og óvinveitt
ríkisvald. Stjórn núverandi
verkalýðsmálaráðs hefur borið
fram ákveðna stefnu í launa- og
kjaramálum og flutt fjölmargar
ályktanir þar að lútandi í æðstu
stofnunum flokksins. Þær hafa
allar verið samþykktar nær
mótatkvæðalaust, en snið-
gengnar og ónýttar af þeim sem
enn halda völdum í flokknum.
Meðan þetta ástand ríkir teljum
við okkur ekki fært að starfa
innan flokksins.
Þannig hljóðar bókun þeirra
stjórnarmanna sem sögðu sig úr
Alþýðubandalaginu á aðalfundi
verkalýðsmálaráðsins á sunnu-
daginn, þeirra Bjarnfríðar Leós-
dóttur formanns ráðsins, Mar-
grétar Pálu Ólafsdóttur, Stellu
Hauksdóttur og Dagbjartar Sig-
urðardóttur. A fundinum gekk
Elísabct Þorgeirsdóttir einnig úr
flokknum.
- Frá því að þessi stjórn verka-
lýðsmálaráðsins tók við var alveg
ljóst að forysta hinnar skipulögðu
verkalýðshreyfingar, sem þá var í
fýlu við formann flokksins, ætlaði
sér ekkert með þetta verkalýðs-
málaráð. Við mótuðum ákveðna
stefnu í launa- og kjaramálum og
hún hefur í megindráttum verið
samþykkt á ýmsum fundum
flokksins. Hljómgrunnur fyrir
harðari verkalýðsbaráttu,
breytta tekjuskiptingu í þjóðfé-
laginu, er mjög góður meðal al-
mennra félaga í Alþýðubanda-
laginu. Og þessi stefna endur-
speglast í samþykktum lands-
fundar og miðstjórnar. En þegar
kemur að ákvörðunum hjá
verkalýðsforystunni og flokks-
forystunni þá bregður nýrra við,
afstöðu Alþýðubandalagsins er
ýtt til hliðar einsog hún sé ekki til.
Þetta er svo kórónað af þing-
mönnum Alþýðubandalagsins
sem greiða samtryggingarstefn-
unni atkvæði og taka þátt í að
falsa vísitöluna inná alþingi.
- Aðalfundur verkalýðsmála-
ráðsins var í samræmi við þetta,
en verkalýðsforystan mætti þarna
á fundinn með stuðningsliði sínu.
Ég lagði til að hefðbundnum að-
alfundarstörfum væri frestað, og
tekið til við að ræða samningana,
en þá var lögð frarn dagskrártil-
laga um að ræða ekki samningana
á fundinum. Það var eftir öðru,
sagði Bjarnfríður Leósdóttir.
Dagskrártillagan var samþykkt
á fundinum en flutningsmenn
hennar voru þau Ólafur Þ. Jóns-
son, Hansína Stefánsdóttir og
Steini Þorvaldsson. Ólafur Þ.
Jónsson sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær, að sér hafi þótt
fundurinn illa skipulagður, og
orðinn hálfgerður skrípaleikur,
auk þess sem þarna hefðu verið
viðstaddir menn sem ekkert væru
í flokknum. Þess vegna hefði
hann ekki talið ástæðu til að ræða
samningana á fundinum.
Bjarnfríður kvað þær konur
sem sagt hefðu sig úr flokknum
nú ætla að leggja sitt af mörkum í
kjarabaráttunni í Samtökum
kvenna á vinnumarkaði. - óg.
Guðrún Helga Sederholm,
Sjónvarps-
mynd
fyrir
böm
Innlend dagskrárdcild sjón-
varps (I.D.D.) auglýsti nýlega
eftir hugmyndum að handriti að
stuttri sjónvarpsmynd fyrir börn
tólf ára og yngri.
Um tuttugu hugmyndir bárust.
Fyrir valinu varð sagan Elías og
örninn eftir Guðrún Helgu Se-
derholm kennara.
I.D.D. mun nú láta vinna kvik-
myndahandrit á grundvelli þess-
arar smásögu. Kvikmyndun
þessa handrits verður væntanlega
boðin út. Elías og örninn verður
hluti af samnorrænum mynda-
flokki sem sýndur verður á vetri
komanda.
Landbúnaður
Vara við stefnu stjómvalda
Aðaldœlir: Stórfelldfœkkun bændafyrirsjáanleg
r
Itillögu, sem blaðinu hefur bor-
ist frá hreppsnefnd Aðaldæla-
hrepps, er lýst „þungum áhyggj-
um vegna ríkjandi stefnu
stjórnvalda í landbúnaðarmál-
um, sem m.a. felst í stór-
minnkuðum niðurgreiðslum á
búvörum innanlands, afnámi út-
flutningsbóta og áróðri fyrir
fækkun og stækkun búa“.
Varað er mjög eindregið „við
því að gera hvort tveggja í senn
að afnema útflutningsbætur og
skerða stórlega niðurgreiðslur
haldi svofram sem horfi
innanlands á mjólkurvörum og
sauðfjárafurðum og telur nefndin
að ef svo heldur fram, sem horfir,
sé stórfelld fækkun bænda fyrir-
sjáanleg“ með geigvænlegum af-
leiðingum „fyrir sveitir landsins
og þjóðfélagið allt“.
Hreppsnefndin „beinir þeirri
áskorun til stjórnvalda að endur-
meta nú þegar viðhorf sín til þess-
ara mála, sérstaklega með því að
auka niðurgreiðslur á búvörur og
fresta gildistöku 36. og 37. gr. bú-
vörulaganna að því er varðar árin
1987-1990 uns heildarúttekt hef-
ur farið fram á þjóðhagslegu og
þjóðfélagslegu gildi landbúnað-
arins, erlendir markaðir fyrir bú-
vörur kannaðir ítarlega og bú-
vörulögin endurskoðuð í ljósi
nýrra athugana. Verði um öll
þessi atriði haft raunhæft sam-
starf við bændastéttina".
Tillaga þessi hefur verið send
helstu stofnunum og félagasam-
tökum landbúnaðarins.
- mhg.
Blaðburðarfólk
Ef þú ert
morgunhress
Haföu þá samband við afgreiðslu
Þjóðviljans, sími 681333
Laus hverfí:
Laugarnesvegur
Tjarnargata
Álfhólsvegur
Skerjafjöröur
Það bætir heilsu 02 hag
að bera út Þjóðviljann
Tilkynning um lán
vegna bætts aðbúnaðar,
hollustuhátta
og öryggis á vinnustað.
í lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum, er gert ráð
fyrir útvegun fjármagns til lánveitinga til fyrir-
tækja, sem þurfa að bæta aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustað.
Samkomulag hefir verið gert milli Byggða-
stofnunar og félagsmálaráðuneytisins um að
lán þessi verði veitt úr Byggðastofnun af
sérstöku fé, sem aflað verður í þessu skyni.
Umsóknir um lán þessi skulu því sendar
Byggðastofnun, Rauðarárstíg 25, 105
Reykjavík, á umsóknareyðublöðum Byggða-
stofnunar, þar sem sérstaklega sé tekið fram
að um sé að ræða lán vegna bætts aðbúnað-
ar, hollustuhátta og öryggis á vinnustað.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. Endur-
nýja þarf umsóknir, er áður hafa verið sendar
en ekki hlotið afgreiðslu.
Sóknarfélagar -
Sóknarfélagar
Félagsfundur í nýja Sóknarhúsinu Skipholti
50 á fimmtudaginn 13. mars kl. 20.30.
Fundarefni: 1. Nýir kjarasamningar.
2. Önnur mál.
Sýnið skírteini.
Stjórnin.
Þriðjudagur 11. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13