Þjóðviljinn - 11.03.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 11.03.1986, Blaðsíða 15
FLÓAMARKAÐURINN Til sölu skápur og spegill í forstofu, 2 stólar og rennd hilla, eldhúsborö og lítill baöskápur. Selst ódýrt. Upplýsing- ar í síma 46447 eftir hádegi. Gamlir húsmunir til sölu m.a. borðstofuborð og 4 stólar, ga- malt sófaborð (stækkalnegt), gaml- ar hillur (hvítar), eldri gerð af Husq- uarna saumavél, gamalt loftljós, standlampi og borðlampi. Einnig er til sölu unglingakvenreiðhjól, notuð skíði og bindingar fyrir 10-12 ára, dökkteinótt jakkaföt, notaðir hjól- barðar, járnrör og fittings, marmaraplata af gömlu gerðinni. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 40789 eftir kl. 17. Sigurlaug. Til sölu - húsgögn Borðstofuborð og 6 stólar og skenkur. Upplýsingar í síma 75476. Ylræktarbændur athugiö! Ég er 14 ára og óska eftir að komast í vinnu í sumar. Upplýsingar í síma 75990. Til sölu er vandað, kringlótt sófaborð, sér- smíðað. Þvermál plötu er ca 1 m og hæð er 45 cm. Verð aðeins kr. 3500. Upplýsingar í síma 13152. Barnapía óskast til að gæta tveggja barna 2ja og 3ja ára, 1 -2 kvöld í viku. Uppl. hjá Daní- el og Svövu í síma 18795, eftir kl. 18. David Boadella Kunnur breskur sállæknir (psycho therapist) heldur námskeiö í Vax- tarræktinni Dugguvogi 7 helgina 22. og 23. mars frá kl. 9-17 báða dagana. Boadella hefur skrifað fjölda bóka um sálfræði líkamans (somatic psychology) og við mun- um á námskeiðinu kynnast ýmsum hugmyndum og æfingum tengdum tilfinningavinnu meö líkamann. Upplýsingarog skráning hjá Daníel í síma 29006 á daginn og 18795 á kvöldin. Fjöldi þátttakenda er tak- markaður. Húsgögn og fleira til sölu Ódýrt hjónarúm með góðum dýn- um, skápur (skenkur), sængurfata- skápur. Herraföt ný og nýir skór. Sími 32123. íbúð óskast Reglusamur piltur óskar eftir 2-3 herbergja íbúð í miðbæ eða ná- grenni hans. Húshjálp kemur vel til greina ef óskað er. Hef góð með- mæli og býð uppá skilvísar greiðslur. Vinsamlegast hafið sam- band í heimasíma 622118, Jakob. Kaupi og sel vel með farin húsgögn og húsmuni. Fornverslunin Grettisgötu 31, sími 13562. Til sölu Gaggenau blástursofn með grilli, AEG helluborð og AEG vifta - verö kr. 20.000. Upplýsingar í síma 93- 1205. Atvinna óskast - vélritun Tek að mér vélritun í heimavinnu. Vinsamlegast hringið í síma 36452 milli kl. 5 og 6. 1. júní! Fóstra og kennaranemi óska eftir íbúð, 2-3 herbergja, á leigu frá 1. júní. Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar gefnar í síma 11953 eftir kl. 15.30. Sigrún. Barnaleikgrind Óska eftir að kaupa hringlaga barnaleikgrind með neti. Upplýs- ingar í síma 46471. Til sölu - vil kaupa Vil kaupa hnakk, helst íslenskan. Á sama stað er til sölu steypuhræri- vél, járnklippur, sperrutimbur, hurð- ir og eldavél. Hringið í síma 77097. Óska eftir dælu í fiskabúr og notuðum raf- magnsgítar. Upplýsingar í síma 13226 og 672507. Tölva og „rússa“vél Til sölu ACORN ELECTRON tölva ásamt ACORN +I viðbót og AC- ORN segulbandi. Einnig til sölu vél og fylgihlutir úr frambyggðum rússajeppa. Upplýsingar í síma 37197 á kvöldin. Til sölu Notað skrifborð og mjög góður skrifborðsstóll til sölu, ódýrt. Upp- lýsingar í síma 38930. Til sölu Trabant árgerð '79, þarfnast við- gerðar. Selst mjög ódýrt. Upplýs- ingar í síma 672133 e.kl. 19. Lítið ferðasjónvarp Á ekki einhver lítið s/h ferðasjón- varp sem hann vill gefa mér eða selja mjög ódýrt? Þarf að geta gengið fyrir rafhlöðum. Vinsam- legast hringið í síma 681333 fyrir hádegi. Atvinna óskast Ég er 17 ára og bráðvantar vinnu. Helst vil ég starfa sem sendill (hef bílpróf), en önnur störf koma einnig til greina. Uppl. í síma 21611, kl. 13-17. Til sölu Brio kerra, Emmaljunga tvíbura- kerra og bakburðarpoki með grind, ennfremur þrískiptur gamall fata- skápur. Á sama stað óskast bað- ker. Uppl. í síma 681993. Ódýr frystikista 8 ára Helifrost frystikista í mjög góðu ásigkomulagi til sölu á 5 þús- und krónur. Uppl. i síma 37865. Sjónauki Pentax sjónauki 7x35, 6,5 á 2500 krónur. Upplýsingar í síma 44618. Er ekki tilvalið að gerast áskrifandi? --------------DJÖÐVIIJINN-I FRÁ LESENPUM Hún Framsókn er farin í aldanna skaut Bréftil Steingríms Hermannssonar frá snnnlenskum flokksbróður: Á þrettándanum 1986 Á þrettándanum 1986 Sæll og blessaður Steingrímur minn, og Guð gefi þér gleðilegt nýtt ár. Skömmu fyrir jól var frá því sagt í fréttum útvarpsins að þið ráðherrarnir hefðuð í hyggju að ráða til ykkar ráðherraritara, og í tilefni af þessu ætla ég að pára þér fáeinar línur. Þannig er mál með vexti að ég er að hugsa um að bregða búi, og þar sem ég er tal- inn sæmilega vel skrifandi datt mér í hug að biðja þig að útvega mér starf sem ráðherraritari, og helst af öllu vildi ég verða ritari hjá þér eða Geir, því ein- hvernveginn þykir mér matar- meira að vera ritari hjá öðrum hvorum þeirra ráðherra sent eru í mestu áliti hjá almenningi. En hinsvegar tek ég feginshendi rit- arastarfi hjá hvaða ráðherra sem er, ef ég skyldi ekki komast í starfið hjá ykkur Geir, og ef til þess kæmi, sem mér þykir ekki ólíklegt, að aðstoðarráðherrarnir fái einnig ritara þá myndi ég ekki fúlsa við að verða aðstoðarráð- herraritari ef ekki yrði annarra kosta völ. Það hefur flogið fyrir að Geir leggi niður ráðherradóm, en ég trúi ekki öðru en að þú meldir það einhvernveginn Steingrímur minn, að Geir verði ráðherra áfram, því ég tel að við megum alls ekki missa hann úr ríkis- stjórninni. Þetta má ekki skilja svo að ég sé að amast við Þor- steini, því fjárhagur ríkisins hefur færst mjög til betri vegar síðan hann varð fjármálaráðherra, en hjá Alberti var ríkiskassinn grá- götugt óseðjandi gímald. Þá hafa allar yfirlýsingar Þorsteins sýnt og sannað að hann er ekki eitt í dag og annað á morgun. Frá því ég man fyrst eftir mér Steingrímur minn, hef ég verið Framsóknarmaður og einlægur félagshyggju- og samvinnumaður og ég hef aldrei keypt svo mikið sem naglrótarstærð af einu eða neinu í Höfn eða austur á Hellu. Ég er nú farinn að þreytast á búskapnum og vildi því gjarna komast í slitminna starf. En hitt er mér ljóst að það verður ekki sársaukalaust að rífa sig upp með rótum úr blessaðri sveitinni. En án efa verða þó þyngstu sporin aðfara úr hreppsnefndinni. Jóka mín er orðin öllu þreyttari á bú- skapnum en ég, enda hefur hún aldeilis ekki átt þess kost um dag- ana að liggja kyrr eða dorma í náðum, því auk venjulegra bús- umsvifa hefur hún (með smávegis aðstoð frá mér) skilað þjóðinni 17 þegnum sem allir voru Fram- sóknarmenn. En nú hefur dregið ský fyrir sólu og ég verð að segja þér þá sorgarsögu að á tveim síð- ustu árum hafa 8 börn okkar Jóku yfirgefið flokkinn og þar að auk er yngsta barn okkar, sem nú er 16 ára, orðið blcndið í trúnni. Ég er ekki í vafa um að þessum sinnaskiptum barnanna veldur m.a. ábyrgðarlaus áróður fjöl- miðla og gaspur kommúnista. Það veit enginn nema sá sem reynt hefur hversu þung raun það er þegar efnileg og vel af Guði gerð börn turnast til villutrúar. Ég get svo sannarlega tekið mér í munn orð Brynjólfs biskups í Skálholti þegar hann frétti að Ragnheiður dóttir hans hefði eignast barn með Daða Hall- dórssyni: Mala domestica majora sunt lacrimis. Gummi, sonur okkar Jóku, var hjá okkur um hátíðarnar, en hann er í hópi þeirra barna okkar sem hafa yfirgefið Framsóknar- flokkinn. Ég reyndi hvað ég gat að snúa honum til sinnar pólit- ísku barnatrúar, en afraksturinn varð aðeins þras og deilur. En þó keyrði fyrst um þverbak hvernig drengurinn hagaði sér á gamlárs- kvöld. Ég var lengi búinn að hlakka til að heyra áramótaboð- skap þinn í sjónvarpinu, en þegar til kastanna koni naut ég boð- skaparins lítið því þú varst ekki fyrr kominn á skjáinn en Gummi fór að senda þcr tóninn, og varð síðan lítið lát á frammíköllum hansoggjammi. Öðru hvorisneri hann sér að mér með miður þokkalegum athugasemdum, og skal ég nú gefa þér örlítið sýnis- horn af talsmáta lians: „Hvað ertu að segja Steini, er ekki svig- rúni til launahækkana? Þið höfð- ingjarnir fáið þá líklega ekki 37% launahækkuneinsogífyrra... ha, verðbólgan skaðvaldur, já satt segirðu, við pápi höfum fengið smjörþefinn af henni. Allt æðir upp, vöruverð, vextir og opinber þjónusta... nú skulum við hlusta vel pápi, bráðum les hann Faðir- vorið sitt frá 1979: Allt er betra en íhaldið...heyrirðu þetta pápi, nú á líklega að fara að stjórna - svona til tilbreytingar, eins og maðurinn sagði í sjónvarpinu forðum... ætlarðu ekki að minn- ast á verslunarhallirnar Steini, okkur pápa langar fjarska mikið að heyra um þær.“ í þessum dúr lét Gummi dæl- una ganga þar til ávarp þitt var á enda, og um leiö og ásjóna þín hvarf af skjánum spratt hann upp úr sætinu, belgdi sig út og kyrjaði við raust: „Hún Framsókn er far- in í aldanna skaut / og fráleitt hún komi til baka..." Nú varð ég fyrst alvarlega reiður. Ég hljóp gráti nær út á hlað, og urn leið og ég fór út úr stofunni hreytti ég í Jóku mína: „ Að þetta skuli vera undan okkur og það á gamlaársdegin- um." Ég lifi í þeirri von að börnin okkar Jóku sjái að sér og komi aftur í Framsóknarflokkinn. Ég vona einlæglega Steingrímur minn, að pólitískt sótthitaóráð þeirra nú um stund verði ekki Þrándur í Götu þess að ég fái rit- arastarfið. Ég bið kærlega að heilsa Jóni og Þórarni mínum, svo og öðrum í þingflokknum sem kveðju minni vilja taka, en undanskil þó Höllustaðakarlinn. Með flokkskveðju og fyrirbæn- um. Þórður á Þröm. Afmœli 75 ára í gær Kristján Kristjánsson, Máva- hlíð 1 í Reykjavík, varð 75 ára í gær, 10. mars. Hann er kvæntur Elínu Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú börn. Kristján hóf störf á skrifstofu Bæjarútgerðar Reykjavíkur árið 1951 og vann þar óslitiö uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. HVAD ER AÐ GERAST í ALÞYÐUBANDALAGINU? Málefnahópar AB Hópur um jafnréttismál. Fyrsti fundur í kvöld, þriðjudaginn 11. mars kl. 20.30. 1)Rætt um viðfangsefni hópsins. 2) Fæðingarorlof. Fundarstaður Miðgarður Hverfisgötu 105. AB-Kópavogi Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn miðvikudaginn 12. mars kl. 20.30 í Þinghóli. Dag- skrá: 1) Atvinnumál, tómstundamál. 2) Önnur mál. - Stjórnin. Atþýöubandalagiö í Reykjavík Viðtalstímar borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins eru á þriðjudögum frá kl. 17.30-18.30. Þriðju- daginn 11. mars verður Sigurjón Pétursson til viðtals. Sigurjón Alþýðubandalagið Hafnarfirði Félagsfundur Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til almenns félagsfundar miðvikudaginn 12. mars kl. 20.30 í Skálanum Strandgötu 41. Dagskrá: 1) Kynntar tillögur upþstillingarnefndar um framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. 2) Kosningastarfið. 3) Önnur mál. Félagar hvattir til að mæta. Stjórnin AB Selfoss og nágrennis Félagsmála- námskeið Fimmtudaginn 13. mars hefst 5 kvölda námskeið í ræðu- flutningi og fund- arsköþum sem oþið er öllum félögum og stuðningsmönnum Alþýðuþandalags- ins. Kristín Margrét Leiðþeinendur verða Margrét Frímannsdóttir og Kristín Á. Ólafsdóttir. Þátttaka tilkynnist til Önnu Kristínar í s. 2189 fyrir 9. mars. Stjórnin. Mennta- og menningarmálanefnd kemur saman í kvöld kl. 20.30 á Hverfisgötu 105. Þriöjudagur 11. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.