Þjóðviljinn - 11.03.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 11.03.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsfmi: 681348. Helgarsími: 81663. Þriðjudagur 11. mars 1986 58. tölublað 51. örgangur. DIOÐVIUINN HAB Ovíst um lækkun Staða Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar mjög slœm. Skuldar 1,4 miljarða. Ferfram á viðrœður við stjórnvöld. Verkalýðsfélögin í vanda að er með öllu óvíst hvort gjaldskrá Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar lækkar um 7% eins og gert er ráð fyrir í nýgerð- um kjarasamningum. Staða fyrirtækisins er mjög slæm, það skuldar 1,4 miljarða, og stjórnar- menn sjá ekki möguleika á að lækka gjaldskrána án aðstoðar frá ríkinu. Stjórn fyrirtækisins hefur farið fram á viðræður við fulltrúa fjár- málaráðuneytisins og iðnaðar- ráðuneytisins um hvernig á að mæta þessari lækkun, og ekki er að vænta neinnar niðurstöðu fyrr en í vikulokin. Pað liggur hins vegar fyrir fundum verkalýðsfé- laganna á Akranesi og í Borgar- nesi í kvöld annað hvort að sam- þykkja samningana eða fella þá. „Ég vona að yfirlýsing stjórnar HAB um lækkun liggi fyrir á fundi okkar um samningana. Ég skal ekki segja hvort lækkun verði gerð að skilyrði, en við telj- um það mjög brýnt að gjaldskrá- in verði lækkuð" sagði Jón Agnar Eggertsson formaður Verka- lýðsfélags Borgarness þegar Þjóðviljinn bar þetta undir hann í gær. Ingólfur Hrólfsson hitaveitu- stjóri sagði í gær að hann teldi það ekki óeðlilegt að þeir, sem svo að segja hafi lofað þessari lækkun, geri grein fyrir því hvernig hægt er að standa við lof- orðið. „Ég sé ekki annað en að ef við lækkum núna verði viðskipta- vinir okkar að greiða það hærra verði seinna. Boltanum verður bara velt áfram“, sagði Ingólfur. Ingólfur sagði ennfremur að verði gjaldskrá fyrirtækisins óbreytt út árið sé fyrirsjáanlegt, að fyrirtækið verði að taka lán upp á 25 miljónir króna, en lækki gjaldskráin um 7% hækki þessi upphæð í 33 miljónir. -gg- Bogdan endurráöinn? Þjálfarinn fékk hlýjar móttökur við komuna til Keflavíkur eftir glæsilegan árangur á heimsmeistarakeppninni. Stjórn Handknattleikssambands islands hefur mikinn áhuga á að endurráða Bogdan Kow- alczyck sem landsliðsþjálfara. Viðraeður við hann munu hefjast nú í vikunni, að sögn Jóns Hjaltalíns Magnússonar, formanns HSÍ. Jóhann Ingi Gunnarsson er númer tvö á lista stjórnar HSÍ. Jóhann Ingi hefur náð mjög góðum árangri í Vestur-Þýskalandi undanfarin ár og í vestur-þýsku blaði fyrir helgina var hann nefndur sem einn líklegasti eftirmaður Simons Schoebels, landsliðsþjálfara Vestur-Þjóðverja. -VS Háskólinn Vinstri menn í forystu! Kosningar til SHÍog Háskólaráðs í dag. Birna Gunnlaugsdóttir: Stúdentar geri vinstri menn að ótvírœðuforystuafli Verkalýðsmálaráð AB Sögðu sig úr flokknum Fjórar konur úr stjórn verkalýðsmálaráðs sögðu sig úr Alþýðubandalaginu. Bjarnfríður Leósdóttir heiðursfélagi í Æskulýðsfylkingunni „Hljómgrunnur fyrir harðari verkalýðsbaráttu og breyttari tekjuskiptingu í þjóðfélaginu cr mjög góður meðal almennra fé- laga í Alþýðubandalaginu og það endurspcglast í samþykktum landsfundar og miðstjórnar1*, sagði Bjarnfríður Leósdóttir í samtali við Þjóðviljann í gær. „En þegar kemur að ákvörðun- um hjá verkalýðsforystunni og flokksforystunni bregður nýrra við; afstöðu Alþýðubandalagsins er ýtt til hliðar einsog hún sé ekki til“. Þær Bjarnfríður, Margrét Pála Ólafsdóttir, Stella Hauksdóttir og Dagbjört Sigurðardóttir sögðu sig úr stjórn verkalýðsmálaráðs- ins á aðalfundi þess á sunnudag- inn; sem og úr flokknum. A fundinum tilkynnti Anna Hildur Hildibrandsdóttir að Framkvæmdaráð Æskulýðsfylk- ingarinnar hefði ákveðið að bjóða Bjarnfríði Leósdóttur að gerast heiðursfélagi í Fylking- unni. Bjarnfríður tók boðinu. -óg. Sjá bls. 13 8. mars Kjörin ekki mönnum bjóðandi Harðorð ályktun kvenna „Þeim fjölgar með degi hverj- um sem þurfa að leita eftir fjár- hagsaðstoð félagsmálastofnana. Uppvaxtarskilyrði barna fara hríðversnandi og kjör aldraðra eru ekki mönnum bjóðandi", segir m.a. í harðorðri ályktun frá baráttufundi kvenna á 8. mars í Reykjavík. Sjá bls. 8 að er mjög brýnt að stúdentar leggist nú allir á eitt um það að gera vinstri menn að ótvíræðu forystuafli í hagsmunabarátt- unni. Eg hvet alla vinstri inenn eindregið til að taka þátt í kosn- ingunum í dag, sagði Birna Gunrt- laugsdóttir sjötti maður á lista Fé- lags vinstri manna vegna kosning- anna til stúdentaráðs Háskólans sem fara fram í dag. „Það er númer eitt í þessu sam- bandi að rétt verði á málum hald- ið varðandi lánasjóðinn, og þar er að mínu mati engum treystandi öðrum en vinstri mönnum. Það þarf einnig að þrýsta á ríkisvaldið um að leggja fé í byggingar nýrra garða fyrir námsmenn og auka til muna dagvistarrými fyrir börn námsmanna", sagði Birna í gær. Hörð kosningabarátta er nú háð meðal námsmanna og ganga stóryrtar yfirlýsingar á víxl milli fylkinga. Félag vinstri manna á nú í samstarfi við frjálslyndari arminn í Félagi umbótasinnaðra stúdenta í stúdentaráði, og er bú- ist við að vilji sé fyrir því að halda því samstarfi áfram, en það er þó háð úrslitum kosninganna í dag. Mikil útgáfustarfsemi fylgir þess- ari kosningabaráttu og tekist á bæði um menn og málefni. Kosið verður um helming full- trúanna í stúdentaráði og há- skólaráði. Kjörstaðir verða opnir í dag frá kl. 9 - 18 og verður taln- ingu lokið í kvöld. Allar upplýs- ingar um þessar kosningar er að fá hjá SHI í síma 621080. - gg- Sól hf Svalinn lækkar ekki Davð Scheving: Vonast til að verðið hœkki ekki það sem eftir er ársins. Smjörlíkið hefur þegar lœkkað í verði „Við hækkuðum verðið í feb- rúar eftir að samkeppnisaðilarnir höfðu hækkað sína vöru og ég fæ ekki séð að ég geti lækkað verðið á Svalanum. Framleiðnin er lang mest á sykurlausum Svala og efn- ið í hann er Firna dýrt. Aftur á móti er sykur á lágu verði á heimsmarkaði núna. Ég vonast hinsvegar til að þurfa ekki að hækka verðið það sem eftir lifir ársins“, sagði Davíð Scheving Thorsteinsson forstjóri Sólar hf. er Þjóðviljinn innti hann eftir því hvort hann ætlaði að fara að ósk- um Fél. íslcnskra iðnrekenda og lækka verð á sinni vöru. Davíð sagði að ef til vill væri hægt að selja sykraða Svalann á lægra verði en hann sagðist ekki þora það vegna þess að þá tæki fyrir sölu á þeim sykurlausa. Hann sagðist þegar hafa lækkað verð á smjörlíki. Vegna hag- stæðra innkaupa á hráefni hefði verið hægt að lækka útsöluverð þess um 10% og það hefði verið gert í janúar. - S.dór. Æskulýðsfylkingin Barátta gegn borgara- flokkunum Niðurstaða samninganna nauðsyn þess að taka upp slíka baráttu í verkalýðshreyfingunni „Framkvæmdaráð ÆFAB harmar þá þröngsýni og til- hneigingu til ritskoðunar sem birtist í samþykkt stjórnar verka- mannafélagsins Dagsbrúnar um Þjóðviljann og skrif hans. Sósíal- ískur flokkur hlýtur að stefna að réttlátara þjóðfélagi og tekju- skiptingu, en það er því miður ekki niðurstaða þessa samninga. Þeir sýna nauðsyn þess að taka upp baráttu gegn borgaraflokk- unum í verkalýðshreyfingunni. Framkvæmdaráðið bendir enn- fremur á, að það er ekki heilla- vænlegt að nota borgaralega fjöl- miðla gegn félögum sínum. Það er hlutverk Þjóðviljans að túlka stefnu Alþýðubandalagsins, ekki þverpólitískrar verkalýðshreyf- ingar." Birna Gunnlaugsdóttir: Brýnt að allir leggist á eitt um að gera vinstri menn að ótvíræðu forystuafli í hagsmunabaráttunni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.