Þjóðviljinn - 18.04.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.04.1986, Blaðsíða 1
.Ife I i \ lli I GLÆTAN ÞJOÐMAL UM HELGINA Dagheimili Háskalega langur biðtími Dagvist barna: Meðalbiðtími barna einstœðraforeldra eftirplássi á dagheimili hjá borginni nœr átta mánuðir. Biðlistinn lengdist um 20% milli áranna 1984 og 1985. StellaJóhannsdóttir: Háskalegar staðreyndir. Skortir sárlega dagheimili Meðalbiðtími barna einstæðra foreldra eftir plássi á dag- heimili hjá borginni var í fyrra nær 8 mánuðir segir í skýrslu um dagvistun barna á vegum Reykja- víkurborgar árið 1985. í sömu skýrslu kemur fram að biðlistar eftir plássi á dagheimili lengdust um 20% milli áranna 1984 og 1985. „Þetta eru háskalegar stað- reyndir og raunar það eitt um þær að segja að okkur skortir sárlega fleiri dagheimili. Þetta er óheyri- legur fjöldi sem er á biðlistunum og það eina sem er til úrlausnar er að byggja fleiri heimili með heilsdagsvistun. Maður heyrir þetta allg staðar í kringum sig, fólk er í vandræðum,“ sagði Stella Jóhannsdóttir hjá Félagi einstæðra foreldra þegar Þjóð- viljinn bar þessar tölur undir hana í gær. í skýrslunni sem gefin er út af borginni, kemur fram að fjöldi Evrópuráðið Fordæmir loftárásirnar Strasborg - Evrópuráðið sam- þykkti í gær að fordæma árásir Bandaríkjamanna á Líbýu sem „smánarlegt brot á alþjóða- lögum“. Eftir harðar umræður um mál- ið á fundi Evrópuráðsins var til- laga þessa efnis samþykkt með 154 atkvæðum gegn 148. í álykt- uninni segir að alþjóðaöryggi og friði stafi mikil hætta af árásun- um. í bréfi sem Eduard Shevardna- dze, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna sendi aðalritara Sameinuðu þjóðanna í gær, fór Shevardna- dze fram á neyðarráðstafanir til að stöðva frekari árásaraðgerðir Bandaríkjamanna, eins og hann nefndi það. Stjórnvöld í Líbýu hafa undanfarið þráfaldlega farið fram á aðstoð Sovétmanna og bandalagsríkja þeirra vegna „loftárása Bandaríkjamanna og Nató“, eins og það er orðað í yfir- lýsingum þeirra. IH/Reuter Sjá nánar Heimur bls. 9 Indónesía Grátið til sigurs Semarang, Indónesíu — Fólk gól- aði yfir tapaðri ást, syrgði fráfall- inn ættingja, veinaði í ótta, engd- ist af sársauka og tók andköf yfir grimmd örlaganna. Það var svo Rachmad Setyoko sem vann 26 keppendur í grát- keppni Indónesíu í gær. Hann syrgði móður sína á svo meistara- legan hátt að honum var veittur sigurinn. Þetta er fjórða keppnin sem haldin er með þessum hætti í Indónesíu. í fyrra var „skjallkeppni“, þar áður blísturs- keppni, þar á undan hláturs- keppni. barna í dagheimilum borgarinnar var um áramótin 1.135. Þar af eru 724 börn einstæðra foreldra, eða 65.1%. 168 eru börn háskóla- stúdenta eða 15.1%, en meðal- biðtími þeirra barna eftir plássi var í fyrra nær 15 mánuðir. Þess ber að gæta að þarna er um með- altal að ræða og í sumum tilvikum er biðtíminn mun lengri. Um áramótin 1984-1985 voru 495 börn á biðlista eftir plássi á dagheimili, en ári seinna, um síð- ustu áramót, voru þau orðin 584, sem er um 20% aukning. Biðlistar eftir plássi á leik- skólum hafa einnig aukist. Um áramótin 1984-1985 var 1.121 barn á biðlista, en ári seinna voru þau orðin 1.151. í áðurnefndri skýrslu segir að mestur þungi leikskólabiðlista sé í Seljahverfi, Árbæ og Vesturbæ. -gg-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.