Þjóðviljinn - 01.06.1986, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 01.06.1986, Qupperneq 2
FLOSI REYKJAVK $?7) skammrur $77) 1786-1986 REYKJAVK af Reykjavíkurmasi V 1786-1986 Þegar ég var krakki aö alast upp hérna í Kvosinni voru miklar væringar með vesturbæ- ingum og austurbæingum. Stundum sló í brýnu og þá var barist svona alltaöþví í alvöru suörí Hljómskálagaröi og þótti heldur lítilsviröing aö koma ósár úr þeim vopnaviöskiptum. í bænum bjuggu menn þá fyrir vestan læk, eöa fyrir austan læk og bæjarbúar skiptust í vesturbæinga og austurbæinga. Á meðan gamlar hugmyndir um stéttaskipt- ingu voru enn viö lýöi hérna í Reykjavík reyndu menn í lengstu lög aö leyna því ef þeir bjuggu fyrir austan læk. Og þegar veriö var aö kókítera á Löngustétt, sem seinna hét Austurstræti og var hluti af „Rúntinum", létu dætur Austurbæj- arins sig venjulega hverfa um miðnætti, einsog Öskubuska forðum. Þetta var ekki af skírlífs- hvötum, heldur einfaldlega vegna þess aö þær vildu ekki aö þaö kæmist upp, aö þær byggju fyrir austan læk. Meö vaxandi samskiptum fólks af öllum stig- um hefur afstaðan til austurbæinga gerbreyst. Menn telja sér skylt að hafa þaö hugfast að alltaf var mannlíf í Austurbænum, frumstætt aö vísu en mannlíf samt. Og skylt er að geta þess aö til eru þeir menn upprunnir í Austurbænum sem komist hafa til manns og jafnvel orðið nýtir þjóðfélagsþegnar, þó þess séu að vísu ekki mörg dæmi. Ég er fæddur, og hef alla tíö búiö, vestan lækjar. Þegar gengið er niöur Lækjargötu er maður „á“ farvegi Lækjarins, sem skipti bænum í Austurbæ og Vesturbæ. Rétt er aö staldra hér aöeins viö og rifja upp nokkur atriði um þetta rómaöa vatnsfall, sem búiö er aö renna um bunustokk í rúman mannsaldur. í daglegu tali var þessi lækur aldrei kallaður annaö en „Lækurinn“. Hann kom úr suðurhorni Tjarnarinnar, hlykkjaðist meöfram löndum Skálholtskots og Stöðlakots og síöan rann hann á landamerkjum Arnarhóls og Reykjavíkur til sjávar, og var ósinn rétt vestan viö Arnarhóls- klett. Engum var þessi lækur aö minnsta gagni. Ekki veitti hann svölun, því vatniö í honum var ódrekkandi. Vinnukonur fengust varla til aö þvo í honum þvott, hvaðþá heiðarlegar húsfreyjur. Af læknum var hinsvegar talsveröur ami. í honum flaut stundum eitt og annað sem gat átt þaö til aö stífla hann og þá hljóp hann yfir Austurvöll, svo ekki var hægt aö spásséra í Kvosinni nema í klofháum skinnsokkum. Lækurinn var gruggugur og seinlátur, en aö því leyti öörum lækjum undarlegri, aö hann braut náttúrulögmáliö mánaöarlega minnst og rann þá uppímóti neðanúr sjó og uppí Tjörnina. Þá var hann saltur og bar meö sér þang og þaradræsur, sem úldnuðu síöan í farveginum, þar sem þær festust. Um lækinn segir Árni Óla í einu rita sinna: - Hvorki maður og kona, né piltur og stúlka hafa nokkru sinni setið við þennan fúla læk og hlustað á niö hans, eöa speglað mynd sína í lygnum fleti hans. (Tilv. lýkur). Og nú hefur hann sem betur fer verið lokaöur inní bunustokk undir asfaltþaki Lækjargöt- unnar. í mínum augum er það merkast viö Lækjar- götu aö þar er ég fæddur og í húsinu númer tólf þar sem nú er bílastæði Iðnaðarbankans. Viö Lækjargötu stendur elsta samfellda húsaröð á íslandi og markast af Stjórnarráöinu aö norðan en íþöku og Menntaskólanum aö sunnan. Þar á milli er svo afskaplega umdeild húsasamstæða, Bernhöftstorfan. Framtakssamir reykvíkingar hafa löngum vilj- aö fjarlægja Torfuna og byggja þar hús meö flötum þökum, en afturhaldiö í bænum - mest kommúnistar - vilja að þessi gömlu hús fái aö standa þarna áfram. Andstæðingar Torfunnar hafa kveikt reglu- lega í henni, í von um aö hún yröi eldinum aö bráö, en fylgjendurTorfunnar hafa jafnan slökkt eldinn, tjaslað brunarústunum saman og málaö svo yfir allt. Fyrir neöan Bernhöftstorfuna var til skamms tíma notaleg grasbrekka, en fyrir nokkrum árum var þar steypt risatafl fyrir þá fjölmörgu skáká- hugamenn sem gaman hafa af því að tefla útí náttúrunni. Þarna er notalegt að sitja og tefla í skjóli Torf- unnar fyrir úrsvölum austanvindum. Þaö merkilegasta viö þetta manntafl er tví- mælalaust það að taflmennirnir eru svo þungir að heljarmenni fá þeim ekki bifað. Þetta er gert til þess aö þeir sem skákina tefla leiki síður af sér. Nú er í tísku... Nú er í tísku neyðaróp nú er margur slunginn. Fjölgar í þeim heiðna hóp sem „heldur fast um punginn“. ■ það að sig hefði dreymt það nóttina áður að Jón Þorláks- son fyrrum formaður Sjálf- stæðisflokksins og borgar- stjóri hefði komið á gluggann til sín og kveðiö: lllt er að blanda í ÖHusvatn allt svo drekka megi, því ætl’ég fylgi íhalds sjatn- i á lokadegi. ■ Bókhaldið hans Áma Krata óar nú mjög viö vænt- anlegu uppgjöri Ámunda Ámundasonar, umboðs- manns Bryndísar og Bjarna P. að sögn. Óttast menn mjög að kosningastjórinn hafi fyrir löngu tæmt þá sjóði sem hann hafði til umráða og að bak- reikningar muni streyma til flokksins að kosningum af- stöðnum. Það hefur ekki farið framhjá neinum að Alþýðuflokkurinn hefur verið með mjög mikla auglýsingaherferð í kosninga- hitanum. Daglega birtust heil- síðu litarauglýsingar í Mogg- anum. í útvarpinu var ræki- lega vakin athygli á rás-A, kosningaútvarpi kratanna og í sjónvarpinu var Bryndís óspör á blikkin til að laða að á kosn- ingahátíðina í Gamla-bíó. i Reyndar skiluðu blikkin ekki nægum árangri því bíóið var hálf tómt. Og nú spyrja kratarnir sig: hvernig á að fjármagna þetta? Eina svarið sem Ámundi gef- ur þeim er að hann hafi verið með stórglæsilegt happdrætti og flokkurinn þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af því hann sé með nákvæmt bók- hald. Kratarnir eru því ekki síður spenntir að vita útkom- una úr bókhaldinu hans Áma en að vita hvort auglýsinga- herferðin skilar betri árangri í kjörkassa en á stórfundinn í Gamlabíó.B lllt er að blanda mmmmmmmmmmmmmmmmcammmmmmmmmmmmmm m í Ölfusvatn Stefán Jónsson rithöfundur og fyrrum alþingismaður hitti í gær gamla íhaldskonu í Vest- urbænum. Hún tjáði honum íhaldið má mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm falla frá... Lárus Hermannsson sendi okkur þessa ágætu vísu fulla af sannleik: íhaldið má falla frá fyrir hitt og þetta. Það er gruggugt Granda hjá, grösin hætt að sprettaM Hrossin húnanna Við höfum heyrt þá sögu að þegar verið var að semja um sameiningu BÚR og ísbjarn- arins í fyrra hafi menn staldr- að nokkuð við ýmsa liði í rekstri síðarnefnda fyrirtækis- ins. Þar kom að einn spurði annan hvort það væri satt sem hann hefði heyrt að á launaskrá ísbjarnarins væri einn maður sem ekki sinnti öörum verkum en að annast um hross þeirra ísbjarnar- feöga, Ingvars og húnanna. - Nei, þaðeralrangt, varsvarið, þeir eru tveir.B Menningin ekki fréttnæm Helgarpósturinn segirfrá því í slúðurdálki að Páli Magnús- syni hjá sjónvarpinu hafi ekki T>ótt það frétt við hæfi sjón- varpsins að Norræn leiklistar- hátíð áhugaleikara verður haldin hér skömmu eftir Lista- hátíð. Því má nú bæta við að Eiður Guðnason hafi tekið málið að sér og farið með í útvarpsstjóra og eftir þá með- ferð kom loks frétt um hátíðina í sjónvarpinu. í Ijósi þess að á landinu eru 87 áhugaleikfélög og til landsins koma um 240 erlendir gestir í tilefni hátíðar- innar sem er þar að auki fyrsta hátíð sinnar tegundar hér á landi, verður mönnum á að spyrja hvers eðlis fréttamat sjónvarpsfréttamannsins Páls Magnússonar sé og hvort oft þurfi að berjast svo hart fyrir tilveru menningar- frétta innan ríkisfjölmiðils- ins...B 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. júni 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.