Þjóðviljinn - 01.06.1986, Qupperneq 9
Trúarbrögð á undanhaldi. Konu sem haldin er illum anda er skellt í „trúarlegt bað“.
Voodoo
Trúarstríð á Haiti
Djötullegar trúarathafnir? Dreypt á dýrablóði.
ÁHaiti eru
kaþólikkarog
mótmœlendurnú
sakaðirumað
komaafstað
ofsóknum gegn
Voodoo sem 75%
íbúa trúa ó. Voodoo
prestarnirerunú
sagðirhandbendi
djöfulsins og Papa
Doc
Einn kemur þá annar fer. Að
Baby Doc brottflúnum eru fjöl-
margir Haitibúar nú farnir að
kenna djöflinum um sín aumu
kjör. Hópar fólks fara nú um
eyjuna og brenna og limlesta
Voodoo presta tugum saman.
Fólk hefur nú verið sannfært
um að Voodoo prestarnir á
eyjunni hafi verið í þjónustu
Francois (Papa Doc) Duvalier og
sona hans. í langvarandi sárri fá-
tækt er lífsbaráttan hörð. Fólk
hefur brennt niður hús Voodoo
áhangenda og lagt musterin í
rúst. Þannig hélt hópur fólks uppi
umsátri í tvo sólarhringa um hús
houngans (voodoo prestur) Max
Beauvoir, áður en lögreglunni
tókst að leysa upp fjöldann. „Það
finnast þau svæði þar sem Voo-
doo hefur verið algjörlega
hreinsað burtu,“ segir Beauvoir
þessi. Hann, ásamt fleiri houng-
önum, kennir kirkjunnar
mönnum á Haiti um þessar galdr-
aofsóknir, eins og þær eru nú
nefndar.
Voodoo og
heilög þrenning
Rúmlega 75 % íbúa á Haiti
stunda Voodoo. Þessi trú blandar
saman á sérkennilegan hátt róm-
anskri kaþólsku og afrískri anda-
trú, hin heilaga jómfrú og þrenn-
ingin heilaga eru til dæmis ofar
Voodoo guðunum, loas. Afrískir
prestar sem sendir voru í þræla-
hald til Haiti stofnsettu þessa trú
á eyjunni, hún hefur síðan dreifst
um allar Vestur-Indíur, allt til
New Orleans í Bandaríkjunum.
Hounganarnir saka nú trúboða
rómversk kaþólsku kirkjunnar
og mótmælendatrúboða um að
nota sér heift Haitibúa út í Duval-
ierfjölskylduna til að efna til hat-
ursherferðar gegn Voodoo, til að
koma á kristinni trú á eyjunni.
Kaþólskir prestar hafa löngum
fordæmt Voodoo sem „trúar-
brögð djöfulsins". Og evangel-
ískir kennimenn sem vex nú
óðum fiskur um hrygg í dreifbýl-
inu, láta nú gamminn geisa gegn
Voodooistum og segja þá „syni
Satans“. Verkamenn í Jeremie-
héraðinu sem eru kaþólskrar trú-
ar, lögðu Voodoo hof í rúst fyrir
stuttu á meðan kaþólskur prestur
brenndi trumbur, ker og önnur
tól sem notuð eru við Voodoo
athafnir. Þrettán hounguar björ-
guðu lífi sínu með því að afneita
Voodoo og lýsa yfir innilegum
kristilegum kærleika sínum.
Heilagt stríð
Kirkjunnar menn á Haiti hafa
harðlega neitað að hafa hvatt til
heilags stríðs gegn Voodoo.Þeir
halda því fram að ofbeldið beinist
gegn leifum Duvalier ógnar-
stjórnarinnar og hinum illræmdu
öryggissveitum hennar, Tonton
Macoute. Papa Doc notaði Voo-
doo tákn og trúarathafnir til að
þvinga íbúa til hlýðni og fjöl-
margir í Macoute sveitunum iðk-
uðu Voodoo.
Henry Namphy hershöfðingi,
sá er nú stjórnar á Haiti (til bráð-
abirgða, að því er sagt er), hefur
lítið sem ekkert aðhafst til að
stöðva blóðbaðið sem nú geisar í
þessu trúarstríði. Því er jafnvel
haldið fram að stjórnin taki því
fegins hendi, þeir óttist að annars
hefði hin margra ára innibyrgða
reiði íbúanna út í valdhafa beinst
gegn núverandi stjórn. Haiti er
eitt fátækasta landið á jarðar-
kringlunni. Um það bil helming-
ur vinnufærra manna eru
atvinnulausir, heilbrigðismál og-
menntamál eru langt undir því
sem gerist á Vesturlöndum.
Namphy og stjórn hans hefur
litið undan, það hafa rannsóknar-
menn frá menningarstofnun
nokkurri á Haiti hins vegar ekki
gert. Þeir hafa nú tekið saman
skýrslu sem birtir ófagra mynd. í
þorpinu Pignon á norðurhluta
eyjunnar voru sjö houngan prest-
ar og mambo (kvenprestur)
höggvin í spað af hópi fólks með
sveðjur í febrúar síðastliðnum.
Einn þeirra, Jean Martel Eti-
enne, var drepinn á aðaltorgi
þorpsins á meðan fólk hrópaði
„varúlfur". í Damassin og Lan
Campeche, á suðvestur strönd-
inni voru fjórar mambóur og einn
houngani myrt. 25 manns voru
líflátnir í þorpunum Limonade og
Millot á norðurströnd Haiti. I
Boco, á suðvesturhorni eyjarinn-
ar, voru 5 manns myrtir og 27 hús
eyðilögð.
Afsökun
fyrir ofsóknum
En þeir íbúar á Haiti sem halda
því fram að allir Voodoo prestar
séu hluti gerræðis Papa Doc, hafa
rangt fyrir sér, segir dr. Max
Paul, forstöðumaður Þjóðfræð-
istofnunarinnar á Haiti. Hann
hefur rannsakað ástæður fyrir
þessum morðum og segir að sjálf-
sagt hafi alveg jafn margir prestar
kaþólikka og mótmælenda tengst
gerræðinu eins og Voodoo prest-
ar. „Að tengja voodoo við stjórn-
artíð Duvaliers, var aðeins fyrir-
sláttur,“ segir hann um fjölda-
morðin. „Það er afsökun sem
þeir kaþólikkar og mótmælendur
nota sem vilja gera lítið úr hlut-
verki Voodoo í menningu Haiti.“
í ljósi allra þeirra hörmunga
sem íbúar Haiti standa fyrir, er
trúarstríð það síðasta sem Haiti
hefur þörf fyrir.
—IH/Newsweek
HVAD
VILTU VITA
UMTÖLVUNÁM?
KYNNING Á TÖLVUNÁMI
SUNNUDAG
1.JÚNÍ KL.14 18
ALLT FRÁ NÁMSKEIÐUM
TIL HÁSKÓLANÁMS.
Þátttakendur í kynningunni eru m.a.
framhaldsskólar, Háskólinn, tölvuskólar,
fagfélög, innflytjendur o.fl.
Ef þú ert....
• að taka ákvörðun um námsbraut eða
framtíðarstarf
• að huga að framhaldsnámi hérlendis
eða erlendis
• áhugamaður um tölvur
• að dragast aftur úr í starfi vegna
tæknibreytinga
• hræddur við tölvur
• huga að endurmenntun starfsmanna
.....þá átt þú erindi á þessa kynningu
Kynningin er haldin í Verzlunarskóla
íslands Ofanleiti.
Húi» er öllum opin og aðgangur ókeypis.
NOTAÐU ÞETTA
EINSTAKA TÆKIFÆRI.
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG
ÍSLANDS
Póst- og
símamálastofnuninni
óskar að ráða
Tækniteiknara
sem fyrst.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfs-
mannadeild v/Austurvöll.
...... SunnudaquM. júnM98§ÞJÓÐVJUINN.-SÍOA.9...