Þjóðviljinn - 01.06.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 01.06.1986, Blaðsíða 15
Utvarp Sœtt, súrt og reykt Um síðustu helgi var það einkum tvennt sem mér fannst athyglisvert í útvarpi allra landsmanna, Rás 1. Á sunnudaginn var tveggja tíma löng dagskrá um Afríkuhlaupið svonefnda þar sem tugþúsundir hlupu um landið þvert og endilangt í því skyni að safna fé handa bágstöddum í Afríku. Þessi þáttur tókst í hvívetna með ágætum og tæknimenn stungu okkur í samband við fjölmörg byggðarlög bæði hérlendis og erlendis án þess að nokkrir hnökrar væru þar á. Utvarpinu tókst með þessum þætti að magna upp stemmningu fyrir átakinu svo það hefur vart farið framhj á neinum. Einn af fréttariturum útvarpsins erlendis, Hildur Jónsdóttir í Kaupmannahöfn, bar saman þátttöku í hlaupinu í Danmörku og á íslandi og komst að þeirri niðurstöðu að þátttakendafjöldi í Danmörku hefði samsvarað 4-500 hræðum á íslandi. Helsta ástæðan fyrir þessu sagði Hildur að væri sú hversu lítið væri fjallað um hlaupið í fjölmiðlum, td. heyrðist það varla nefnt í ríkisútvarpinu, Rás 1 og2 þeirradana. í þessu erfólginn sjarmi íslenska útvarpsins. Þegarvel tekst til er það í algerum takti við þjóðlífið og það getur raunar gripið inn í það hvenær sem er og haft á það geysileg áhrif. Skýrast birtist þetta kannski þegar slys eða önnur óáran herjar á þjóðina. Þegar eldgos eru að hefjast má segja aðþjóðin lifi ígegnum útvarpið. Ég óttast að þessi ágæti eiginleiki útvarpsins láti nokkuð á sjá þegar rásunum fer að fjölga. Þá verður Ríkisútvarpið ekki lengur sá samnefnari þjóðarinnar sem það hefur verið í vaxandi mæli á undanförnum áratugum. En því verðum við bara að kyngja og sporna gegn því að svipað ástand skapist í útvarpsmálunum og er á dagblaðamarkaðnum. Hitt sem vakti athygli mína á sunnudaginn var klifun ÞRÖSTUR HARALDSSON fréttastofunnar á „fréttinni" um ungmennin á ísafirði sem lögreglan handtók fyrir hassreykingar. Ég skil ekki alveg tilganginn með slíkum fréttaflutningi, það var ekki einu sinni verið að selja dóp. Ég hélt að hassneysla væri orðin svo hversdagslegur hlutur að ekki þyrfti að virkj a fréttastofuna og her lögreglumanna til að stemma stigu viðhenni. Þaðværigert með því að hamla gegn því að efnið komist á markað. Sá grunur læddist að mér að lögreglan á Isafirði hefði verið að hífa sig upp í almenningsálitinu eftir kynþáttaofsóknirnar gegn grænslensku sjómönnunum um daginn. Én sú spurning vaknaði greinilega ekki á fréttastofunni síðastliðinn sunnudag. Sjónvarp Losa kannski örlítið um...? Það verður ekki merkileg úttekt á dagskrá sjónvarpsins þegar umfjöllunarmanneskjan hefur ekki horft á nema hálfan fréttatíma alla vikuna. Þá er að finna eitthvað til að kenna um að svona fór og fer æ oftar. Orsökin held ég að sé hvað maður er orðinn langþreyttur á kvöldsjónvarpi. Setjast hátt á annan áratug í sama rassfarið kl. tuttugu og standa upp kl. tuttuguogþrjúþrjátíuog..., fara svo að sofa. Kvölddagskrá er og á að vera öðruvísi í útvarpi og sjónvarpi heldur en, bíðum nú við.. .dag- dagskrá. Örlítið hátíðleg, smekklega samansett, soldið einsog að sé verið að halda boð. Ég hlýt að vera orðin þreytt á þessum sparifataútsendingar- tíma og því sem honum fylgir. Það sem sýnt er að kveldi verður alltaf ögn formlegra en það sem væri sýnt klukkan tólf á hádegi. Sumir eru orðnir alvarlega leiðir á: „fréttir, veður, fjörutíumínútna menningar ellegar fræðsluþáttur, dálítið popp fyrir æskulýðinn, loks hálftíma umræðuþáttur." Er ekki orðið tímabært að losa örlítið um þetta? Laugardagar eru ágætlega til þess fallnir að skella inn hversdagsdagskrártilraun og hún væri eitthvað á þessa leið: Barnatími (má gjarnan vera í kennsluformi, ódýr), Svo þáttur um íslenska mófugla (ódýr). Svoþáttursemgætit.d. heitið „járnum sjálf" (kennsla í meðferð hófjárna og blabla.. .gefins), þá þáttur um, segjum undirstöðuatriði í lestrarkennslu barna (ódýr). Sníðakennsla er sígilt sjónvarpsefni, ódýrt. Síðan klukkan þrettán kæmu glæsilegar fréttir stútfullar af fréttamyndum og SIGRÍÐUR HALLDÓRSDs/ umfjöllunum, veðurogTommi og Jenni. Og hvað tæki svo við? Alíslenskur eilífðarframhaldsþáttur í sápuóperustíl. Sá gæti orðið tiltakanlega ódýr og áreiðanlega fullt af fólki sem myndi nenna að semja svona 500-1000 þætti, segjum hundrað krónur fyrir vélritaða síðu. Leikararþyrftuekkiað hafa lokið leiklistarprófi en sæmileg húsmæðraárslaun í boði. Að þessu afstöðnu mætti dagskráin fara úr morgunkjólnum og töflunum (hælkappalausir inniskór, ódýrir) og snara sér í kvöldkjólinn. Framhaldínæsta blaði. Gary Capelin i hlutverki John Osborne í myndinni A Better Class of Person. Sjónvarp Reiður maður Sjónvarpið sýnirmynd um John Osborne, brautryðjanda ungu reiðu mannanna í Bretlandi Á mánudagskvöldið sýnir sjónvarpið okkur nýlega breska mynd sem beróþýð- anlegt heiti, A Better Class of Person. Þettaersjálfsævi- sögulegt verk eftir hinn þekkta leikritahöfund John Osborne. Osborne sló í gegn árið 1956 með leikritinu Horfðu reiður um öxl (Look Back in Anger). Með því verki og öðrum sem eftir fylg- du ruddi Osborne nýrri kynslóð rithöfunda braut í bresku samfé- lagi, þeirri sem ólst upp í stríðinu en var of ung til að fara á vígvell- ina. Ungir reiðir menn voru þeir kallaðir og settu mark sitt á enska þjóðfélagsumræðu og menningu. Margir hafa velt því fyrir sér hvað gerði þessa menn svona reiða og í myndinni reynir Os- borne að svara þeirri spurningu. Drengur í stríði Osborne fæddist árið 1929 en myndin hefst í stríðsbyrjun þegar hann er níu ára gamall. Hann býr ásamt foreldrum sínum í bað- strandarbænum Bognor Regis við Ermarsund. Faðir hans er dauðsjúkur og í því skyni að bæta heilsufar hans flytur fjölskyldan til Isle of Wight þar sem John og faðir hans fylgjast grannt með framgangi stríðsins á öllum víg- stöðvum. Faðirinn deyr og John flytur ásamt móður sinni til Lundúna. Eftir að hafa glímt við veikindi endar hann á heimavistarskóla þar sem hann kynnist fyrstu ást- inni. Þar fer að bera á uppreisnar- eðlinu, reiðinni, og skólavistin endar á því að John er rekinn. Hann hafði forgöngu um að fagna stríðslokunum með því að brenna slaghörpu skólans. I myndinni lýsir Osborne einkar vel þroskaferli sínum, hvernig hann byrjar að skynja heiminn í kringum sig og sam- skipti fólks. Andlát föðurins gerir hann einrænan og hann Ieitast við að loka sig af yfir bókum. Sam- skiptin við móðurina eru erfið enda fær hún ekki sérlega blíða meðferð í höndunr Johns: sín- öldrandi og að farast úr sjálfs- meðaumkvun. Ný kynslóð Myndinni lýkur um leið og stríðinu en Osborne varð það .mvnwu* - áíbÍA’ tS fyrir að spreyta sig á leiksviðinu. Éyrst var hann leikari en svo fór hann að skrifa leikrit og þá sló hann í gegn. Eins og áður segir reisti hann merki nýrrar kynslóð- ar í bresku menningarlífi með Horfðu reiður um öxl árið 1956. Það var frumsýnt í Lundúnum og vakti gífurlega athygli. Margir fögnuðu en öðrum fannst lítið til koma eins og raunar kemur franr í lokaatriði myndarinnar þar sem Osborne stingur sér í samband við nútíðina með því að birtast sjálfur á skerminum. í millitíð- inni hefur hann skrifað fjölmörg leikrit fyrir svið og sjónvarp sem og kvikmyndahandrit. Styrkur hans þykir einna helst liggja í vægðarlausri gagnrýni á viðtekn- ar skoðanir og hræsni sem ræður ríkjum í bresku þjóðlífi. Leikstjóri myndarinnar heitir Frank Cvitanovich, margverð- launaður sjónvarpsleikstjóri sem þykir einkar laginn við að bregða kvunndagslífi bresks almennings á skjáinn. A Better Class of Pcr- son var frumsýnd í breska sjón- varpinu í fyrra og á kviknrynda- hátíðinni í San Francisco í vor vann hún til verðlauna. —ÞH Höfundur Elsku Míó minn, Astrid Lindgren, ásamt drengjunum tveimur sem fara með aðalhlutverkin í myndinni, þeim Christopher Bale (tv.) og Nichoias Pickard. Barnamynd Elsku Míó minn kvikmynduð Enn á að festa Astrid Lindgren áfilmu, þeas. bækur hennar, ekki hana sjálfa. Ronja ræningjadóttir gengur enn hér í Reykjavík en næsta mynd sem við fáum að sjá eftir bók Lindgren verður Elsku Míó minn. Óþarfi er að rekja söguþráð bókarinnar en hún fjallar um sömu aðalpersónu og Bróðir minn Ljónshjarta sem einnig hef- ur verið kvikmynduð, hlutar hennar voru mas. teknir hér á landi. Elsku Míó minn verður hins vegar tekin í Skotlandi, Svíþjóð og Sovétríkjunum. Leikstjórinn er sovéskur, Vladimir Gram- matikof, en framleiðendur eru kvikmyndafyrirtæki í Svíþjóð, Noregi og Sovétríkjunum. Áðal- hlutverkin eru hins vegar í hönd- um enskra og sænskra leikara. Tveir enskir drengir fara með stærstu hlutverkin en af öðrum leikurum má nefna Christopher Lee, Ewu Fröling og Stig Eng- ström. Handritshöfundur er enskur, William Aldridge, en tónlistin er eftir svíann Benny Andersson sem gjarnan er kenndur við ABBA. Ráðgert er að myndin verði frumsýnd á næsta ári. þjj

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.