Þjóðviljinn - 07.06.1986, Qupperneq 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
7
jum
1986
laugar-
dagur
126. tölublað 51. árgangur
HIÚÐWIUIMM
Hvalveiðar
Reagan hótar öllu illu
Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra: Eg telþað stóralvarlegtmál
fyrir vestrœna samvinnu ef Bandaríkjamenn œtla að setja viðskiptabann á
Norðmenn. Tel ekki hœttu á svipuðum aðgerðum gegn okkur
Ef þessar fréttir eru réttar,
þá tel ég það stóralvarlegt
mál ef Bandaríkjamenn ætla að
setja viðskiptabann á einn af sín-
um helstu bandamönnum, Norð-
menn. Slíkur atburður getur haft
mjög alvarlegar afleiðingar í vest-
rænu samstarfi. Mér finnst það
furðuleg skammsýni hjá Banda-
ríkjamönnum að láta sér detta
slíkt í hug,“ sagði Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra
um þær fréttir sem bárust frá
Bandaríkjamönnum í gær, um að
Reagan forseti hafi sagt að vel
kæmi til greina að setja innflutn-
ingsbann á norskar vörur vegna
hvalveiða Norðmanna.
Halldór Ásgrímsson sagðist
ekki óttast svipaðar hótanir eða
aðgerðir gegn okkur íslending-
um, vegna þess að við værum að
framfylgja að öllu leyti sam-
þykktum sem gerðar hefðu verið
í Alþjóða hvalveiðiráðinu. Sam-
kvæmt þeim er heimilt að veiða
hvali í vísindaskyni.
„Ég fæ ekki séð að á meðan við
hlýtum samþykktum ráðsins sé
grundvöllur fyrir einhverjum
refsiaðgerðum gegn okkur og ég
á ekki von á því að það verði
reynt,“ sagði Halldór.
Þessi yfirlýsing Bandaríkjafor-
seta er tekin alvarlega af norsk-
um yfirvöldum og mun málið
verða tekið upp í norska þinginu
eftir helgina. Sjávarafurðir yrðu
mest fyrir barðinu á þessu banni
ef af verður.
Menn hafa haft á orði að það sé
athyglisvert að Reagan forseti er
tilbúinn að beita þjóð viðskipta-
banni fyrir að veiða hval en ekki
þjóð sem misþyrmir og myrðir
blökkumenn tugþúsundum sam-
an.
-S.dór
Þjóðarátak
Heilbrigtiíf
hagur allra
Trimmdagar20. -22. júní
Heilbrigt líf - hagur allra, eru
kjörorð þjóðarátaka sem
Trimmnefnd ISÍ og heilbrigðis-
ráðuneytið gangast fyrir, með
stuðningi ýmissa félagasamtaka,
ferðafélaga, sérsambanda innan
ÍSI, Ungmennafélags íslands og
fleiri aðila.
Trimmnefndin hefur skipulagt
íþróttadagskrá fyrir almenning
dagana 20.-22. júní. Föstudagur-
inn 20. júní ber heitið Dagur
leikfiminnar, laugardagurinn 21.
júní er Dagur sundsins og sunnu-
dagurinn 22. júní er Dagur
gönguferða, skokks og útivistar.
Listahátíð
Dave Brubeck í turnherberginu á Hótel Borg í gær (Mynd Sig.)
og nýtt
Dave Brubeck spilar
góða blöndu annað
kvöld
, Jú, mér líst bara vel á ísland, það
litla sem ég hef séð“ sagði djassistinn
heimskunni Dave Brubeck, þegar
hinni klassísku spurningu íslenskra
blaðamanna til erlendra gesta var
slengt á hann í gær.
Dave Brubeck sagðist ætla að spila
bæði gamalt efni og nýtt á tónleikun-
um annað kvöld. „Ég er alltaf að
semja eitthvað nýtt og er um þessar
mundir að taka upp nýja plötu. Ann-
ars ákveð ég aldrei fyrirfram mína
tónleika."
Brubeck sagðist kunna vel við að
vera á sífelldum ferðalögum og tón-
leikahaldi út um allan heim. Einn
sona hans er með í för, en þess má
geta að þeir feðgar, fjórir og stund-
um fimm, hafa myndað saman
hljómsveit og spilað á tónleikum.
„Þegar strákarnir eru heima þá ger-
um við þetta. Kannski ferðumst við
eitthvað um heiminn í framtíðinni og
spilum. Kver veit?“ sagði Brubeck.
Auk tónleika Dave Brubecks
verða á vegum Listahátíðar unt helg-
ina þrjár sýningar á Fröken Júlíu
Strindbergs í uppsetningu Ingmars
Bergman(aukasýningkl. lóásunnu-
dag), söngvarinn Thomas Lander,
slagverkstónleikar og á mánudaginn
stórviðburður: Claudio Arrau.
-pv.
Melaskólamálið
Skoöanafrelsi á að vera ríkjandi
Sverrir Hermannsson: Skoðanir eru ekki lóð á vogaskálarnar um stöður fyrir fólk
Við búum í lýðfrjálsu landi
og skoðanir manna eru
éíki lóð á vogaskálar fyrir fólk.“
Þetta sagði Sverrir Hermanns-
son menntamálaráðherra þegar
Þjóðviljinn náði tali af honum
vegna Melaskólamálsins stuttu
eftir að hann kom til landsins síð-
degis í gær. Sverrir kvaðst ein-
ungis hafa haft lauslegar fregnir
af málinu og hér væri greinilega
um mikið hitamál að ræða' sem
hann þyrfti að kyiina sér betur
áður en hann tæki opinberlega af-
stöðu.
Menntamálaráðherra kvaðst
gera ráð fyrir að þetta mál kæmi
inn á borð til sín strax eftir helgi
og þá myndi hann skoða það ofan
í kjölinn. En varðandi það grund-
vallaratriði hvort skoðanir fólks
ættu eða mættu ráða ferðinni við
stöðuveitingar áréttaði Sverrir: ,
„Við búum í lýðfrjálsu landi og Sja blS. J
skoðanafrelsi á að vera ríkjandi
hér.“
-g.sv.