Þjóðviljinn - 07.06.1986, Síða 2
SJÓMANNADA GURINN
1986
Dagskrá 49. Sjómannadagsins í Reykjavík
7. og 8. júní 1986.
LAUGARDAGUR 7. júní:
Keppni á seglskútum frá Kópavogi til Reykjavíkur.
Kl. 13:00 Forkeppni í kappróðri í Reykjavíkurhöfn.
Margar sveitir keppa í karla- og kvennaflokkum.
SUNNUDAGUR 8. júní:
Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni á skipum í Reykjavík.
Kl. 11:00 Minningarguðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykja-
vík. Sr. Þórir Stephensen dómkirkjuprestur minn-
ist drukknaðra sjómanna og þjónar einnig fyrir
altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H.
Friðrikssonar, dómorganista.
SKEMMTISIGLING UM SUNDIN BLÁ
Kl. 12:30 Skemmtisigling með hvalbátum um sundin við
Reykjavík, fyrir þá sem keypt hafa merki Sjó-
mannadagsins. Börn yngri en 12 ára þurfa þó að
vera í fylgd með fullorðnum.
Farið verður frá Faxagarði í Reykjavíkurhöfn.
Siglingar hefjast kl. 12:30 og síðasta ferð verður
farin kl.15:30. Tveir bátar verða í förum.
Sérstök athygli fólks er vakin á því að vera í hlýjum
fötum.
Ferðirnargetafalliðniður, efveðurermjög slæmt.
ÚTIHÁTÍÐAHÖLD
VIÐ REYKJAVÍKURHÖFN
Kl. 13:00 SiglafélagarísportklúbbnumSnarfarabátumsín-
um inn á Reykjavíkurhöfn.
Síðan sigla seglskútur inn á Reykjavíkurhöfn.
Fallhlífarsveit verður í Reykjavíkurhöfn milli kl.
13:00-14:00.
Kl. 13:30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur létt sjómannalög,
stjórnandi er Stefán Þ. Stephensen.
Kl. 14:00 Samkoman sett. Þulurog kynnirdagsinserHann-
es Hafstein framkvæmdastjóri S.V.F.Í.
ÁVÖRP
A: Fulltrúi ríkisstjórnarinnar, Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, í fjarveru sjávarútvegsráð-
herra.
B: Fulltrúi útgerðarmanna, Valdimar Bragason, út-’
gerðarstjóri, frá Dalvík.
C: Fulltrúi sjómanna, Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags fslands.
D: Garðar Þorsteinsson, framkvæmdatjóri Sjó-
mannadagsins, heiðrar aldraða sómenn með
heiðursmerki Sjómannadagsins.
SKEMMTANIR DAGSINS:
Kl. 14:45 Kappróður í Reykjavíkurhöfn, úrslitakeppni
karla- og kvennasveita, sem kepptu í for-
keppni á laugardag.
BJÖRGUNARSÝNINGAR
Félagar í björgunarsveit S.V.F.Í. Ingólfi í Reykja-
vík, sýna meðferð björgunartækja. Einnig munu
félagar í Ingólfi verða með ýmsar uppákomur í
Reykjavíkurhöfn.
Koddaslagurferfram af ekjubrú Akraborgar. Þátt-
takendur gefi sig fram á staðnum.
Veitingar verða til sölu á hafnarsvæðinu á vegum
Kvenfélags sjómannskvenna.
Einnig fer fram sala á merki dagsins og Sjóm-
annadagsblaðinu 1986.
HRAFNISTA REYKJAVIK:
Kl. 13:00 Verður oþnuð sýning og sala á handavinnu vist-
fólks í föndursal á 4. hæð C-álmu.
Kl. 14:30 Leikur Lúðrasveit Reykjavíkur við Hrafnistu í
Reykjavík. Kaffisala í borð- og samkomusal frá kl.
14:30-17:00. Allur ágóöi rennur til velferðarmála
heimilismanna á Hrafnistu í Reykjavík.
HRAFNISTA HAFNARFIRÐI:
Kl. 10:30 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu
Hafnarfirði.
Kl. 11:00 Sjómannamessa í Kapellu Hrafnistu Hafnarfirði,
prestur verður séra Sigurður H. Guðmundsson.
Kl. 14:30 Kaffisala í borð- og samkomusal. Jafnframt verð-
-17:00 ur sýning og sala á handavinnu vistfólks. Allur
ágóði rennur til velferðarmála heimilismanna
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Ný íbúðarhæð á 5. hæð A-álmu með 13 vistrým-
um verður til sýnis á Sjómannadaginn.
ATHUGIÐ - ATHUGIÐ
Kl. 16:30 Afhjúpaður minnisvarði um drukknaða sjómenn,
höggmyndin „Björgun" eftir Ásmund Sveinsson,
á gagnamótum Frostaskjóls og Ægissíðu, sem
verslunin O. Ellingsen gefur Reykjavíkurborg.
SJÓMENN ATHUGIÐ:
Sjómannahóf verður að Hótel Sögu, Súlnasal,
sunnudaginn 8. júní og hefst kl. 19:30. Miðasala
og borðapantanir verða á Hótel Sögu laugardag-
inn 7. júní frá kl. 17:00 til kl. 19:00.
FRÉTTIR
Flugumferbarstjórar
Þremur vikið af vöktum
Flugumferðarstjórum, sem voru ávaktþegar hœttuatburður átti sér
staðyfir Austfjörðum, settir afvöktum. Gangast undir læknisskoðun
og hæfnispróf að kröfu rannsóknaraðila
eim þremur flugumferðar-
stjórum sem tengjast flugum-
ferðaratburðinum yfír Aust-
fjörðum á dögunum hefur verið
vikið af vöktum að kröfu flugslys-
anefndar og rannsóknarlögregl-
unnar, sem annast rannsókn
málsins.
Er þessum flugumferðar-
stjórum gert að gangast undir
læknisskoðun og hæfnispróf.
Árni Þorgrímsson formaður Fé-
lags flugumferðarstjóra sagði að í
sjálfu sér væri ekkert um þetta að
segja. Svonalagað hefði komið
fyrir áður og félagið hvorki vildi
né gæti sett sig upp á móti þessu.
Það var að kröfu flugslysa-
nefndar og
rannsóknarlögreglunnar sem
annast rannsóknina sem þetta var
eins og áður segir, en fyrst eftir
atburðinn sagðist flugmálastjóri
Pétur Einarsson ekki eiga von á
því að mönnum yrði vikið úr
starfi meðan rannsóknin færi
fram. - S.dór
Heill skógur risinn. „Allt er nú sem orðið nýtt, ærnar, kýr og smalinn..." (Mynd Sig)
Skógrœkt
Skógur
við Þjóðarbókhlöðuna
Skógrœktarfélag Reykjavíkur gefur 125 trjáplöntur í tilefni afmœlis-
ins. Ollum plantað á tveimur dögum
Við Þjóðarbókhlöðuna við
Hringbraut er nú risinn
skógur á ótrúlega skömmum
tíma. Mun Skógræktarfélag
Reykjavíkur hafa gefið borginni
100 sitkagreniplöntur og 25 aspir
ásamt þökum á svæðið í tilefni
afmælis borgarinnar.
Að sögn Helga Gíslasonar
verkstjóra Skógræktarfélagsins
sá borgin um að skipta um jarð-
veg en Skógræktarfélagið um að
planta trjánum og ganga frá
svæðinu. Lundurinn verður af-
hentur borginni í dag og viðhald
hans vera í umsjá borgarinnar
eftir það. Lundinum er plantað
samkvæmt teikningu Reynis Vil-
hjálmssonar landslagsarkitekts
og mun hann hafa tekið mið af
skjólinu sem myndast af kirkju-
garðinum og gamla grenilundin-
um við Suðurgötu annars vegar
og Þjóðarbókhlöðunni hins veg-
ar.
Helgi sagði að starfsmenn
Skógræktarfélagsins sem starfa
við plöntunina hefðu ákveðið að
ljúka þessu í einum hvelli það
væri svo skemmtilegt að sjá
breytinguna gerast svona hratt.
Ing
Neskaupstaður
Myndarlegt sjómannablað
Sjómannadagsráð Neskaupstaðar hefurgefið
útstórt og myndarlegt blað
Undanfarin átta ár hefur Sjó-
mannadagsráð Neskaupstað-
ar gefið út sérlega vandað blað á
Sjómannadaginn og nú er 9. blað-
ið komið út, glæsilegra en nokkru
sinni. Blaðið er 136 síður að
stærð þannig að frekar má kalla
þetta bók en blað.
Efni ritsins er að vanda mjög
fjölbreytt. Frásagnir eins og
„Mótorbátar og slagsmál" eftir
Guðjón Símonarson, „Línu-
róður“ eftir Birgir Stefánsson,
„Ekki partý“ eftir Alexöndru Ki-1
viaru, „Á síldveiðum á Magnúsi
fyrir rúmum 40 árum“ eftir Reyni
Zoega, „Kyndarinn í gúanóinu"
eftir Smára Geirsson, „Hætt
komnir við Hellisfjarðarnes"
eftir Jósafat Hinriksson, „Ágrip
af sögu netagerðar á Norðfirði"
eftir Smára Geirsson.
Hér er aðeins fátt eitt nefnt.
Ritnefnd skipa þeir ^ Guðjón
Marteinsson, Magni Kristjáns-
son og Ragnar Sigurðsson.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. júní 1986