Þjóðviljinn - 07.06.1986, Page 3
FRETTIR
Meirihlutaviðrœður
Tímamót í Bolungarvík
SamningarA-flokkannaáSiglufirðiá lokastigi. Ragnar Óskarsson
Vestmannaeyjum: Viðræður Abl., Alþýðuflokks ogFramsóknar
langt komnar. Sjálfstœðisflokkurinn í Bolungarvík í kuldanum ífyrsta
sinn. Guðbjartur Hannesson Akranesi: Góðir möguleikar á samstarfi
Abl. og Framsóknar
Melaskólamálið
Kennara-
sambandið
vítir
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða á fundi stjórnar
Kennarasambands íslands sl.
fimmtudag:
Vegna umfjöllunar sem afgreiðsla
Fræðsluráðs Reykjavíkur á umsókn-
um um stöðu yfirkennara við Mela-
skóla hefur fengið vill stjórn
Kennarasambands íslands taka
eftirfarandi fram:
í viðtali við Bessí Jóhannsdóttur,
varaformann Fræðsluráðs Reykja-
víkur í Þjóðviljanum 4. júní sl. er
veist að öðrum umsækjandanum og
reynt að gera hann tortryggilegan.
Bessí segir m.a.: „Mér pesónulega
hefur ekki líkað allt það sem ég hef
séð til hennar“ og „mál geta verið
þannig að það sé ekki heppilegt að
vera með of mikinn opinberan rök-
stuðning. Það gæti verið skaðlegra
fyrir þann sem um er verið að fjalla. “
Skólastjóri Melaskóla verður einn-
ig fyrir ómaklegum aðdróttunum
þegar varaformaður fræðsluráðs
svarar spurningu blaðamanns þess
efnis að skólastjóri treysti þeim um-
sækjanda best til starfans.
Stjórn Kennarasambands íslands
bendir á að órökstuddar dylgjur af því
tagi sem að ofan greinir skaða þann
sem um er rætt. Alítur stjórnin með
öllu óþolandi að umsækjendur um
stöður innan skólakerfisins verði fyrir
slíkum atvinnurógi og ærumeiðandi
ummælum.
í sama blaði er haft eftir Braga Jós-
epssyni fulltrúa í Fræðsluráði Reykja-
víkur að oft sé erfitt að rökstyðja af-
stöðu til ráðninga. Það sé spurning
um smekk.
í málflutningi ofangreindra fulltrúa
fræðsluráðs kemur einnig fram að
skólapólitískar skoðanir annars um-
sækjandans hafa ráðið miklu um af-
stöðu þeirra.
Stjórn Kennarasambands fslands
bendir á að viðkomandi umsækjandi
hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir
samtök kennara, bæði Kennarafélag
Reykjavíkur og Kennarasamband ís-
lands og hefur í því hlutverki túlkað
skólastefnu kennarasamtakanna.
Stjórnin harmar að fulltrúar í
Fræðsluráði Reykjavíkur skuli þann-
ig vinna gegn ákvæðum laga um emb-
ættisgengi kennara og skólastjóra frá
1978, en þar segir í 6. grein um með-
ferð umsókna: „Sæki fleiri en einn
kennari um sama starf og uppfylli allir
umsækjendur þær kröfur sem gerðar
eru skal við veitingu starfsins m.a.
taka tillit til menntunar, starfsaldurs,
starfsreynslu og umsagna um starfs-
hæfni umsækjenda.“
Stjórn Kennarasambands fslands
krefst þess að fjallað sé um allar um-
sóknir félagsmanna þess í samræmi
við lög og reglur og að mönnum í
trúnaðarstöðum, í þessu tilviki fullt-
rúum í Fræðsluráði Reykjavíkur, sé
gert að taka ábyrga afstöðu og rök-
styðja hana á málefnalegan hátt.
Það má segja að það sé búið að
ganga frá þessu. Það er enginn
málefnaágreiningur milli Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks
hér á Siglufirði, sagði Kristján L.
Möller einn bæjarfulitrúa Al-
þýðuflokksins á Sigiufirði þegar
Þjóðviljinn leitaði hjá honum
frétta af myndun meirihluta
bæjarstjórnar þar.
A-flokkarnir hafa átt í við-
ræðum alla þessa viku og að sögn
Kristjáns er sama og búið að
ganga frá málefnasamningi, en
enn er óráðið hver verður bæjar-
stjóri. Kristján sagði í gær að þar
væru ákveðnir menn í sigtinu, en
vildi ekki nefna nein nöfn í því
sambandi. Það sem nýi meirihlut-
inn mun leggja áherslu á er að
koma fjármálum bæjarins í lag,
vinna að gatnagerð, að ljúka
framkvæmdum sem þegar eru í
gangi og fleira.
Víða um land er búið að ganga
frá myndun meirihluta en í
nokkrum kaupstöðum á enn eftir
að ganga frá lausum endum og
viðræður enn í gangi.
Ragnar Óskarsson bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins í Vest-
mannaeyjum sagði í samtali við
blaðið í gær að Alþýðubandalag,
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur hefðu þegar ákveðið að
mynda meirihluta á þessu kjört-
ímabili. „Það verður eitthvað
sérstakt að gerast til þess að þetta
bregðist. Þetta er langt komið og
má segja að aðeins eigi eftir að
skrifa undir. Við höfum leitað
eftir því við Pál Zóphaníasson að
hann taki við bæjarstjóraemb-
ættinu, en ekki fengið endanlegt
svar frá honum. Það sem nýr
meirihluti hér þarf að byrja á að
taka sér fyrir hendur er að leita
leiða til að laga fjárhagsstöðu
bæjarins,“ sagði Ragnar.
Kristinn H. Gunnarsson annar
tveggja bæjarfulltrúa Alþýðu-
bandaiagsins í Bolungarvík sagð-
ist í gær vera sæmilega bjartsýnn
á að Alþýðubandalag, Alþýðu-
flokkur og Óháðir næðu saman
meirihluta. „Við munum halda
viðræðum áfram og ég á von á að
þetta skýrist um helgina. Það er
algerlega óráðið hver verður bæj-
arstjóri,“ sagði Kristinn. Takist
samstarf með þessum flokkum
verður það í fyrsta sinn í sögu
Bolungarvíkur sem Sjálfstæðis-
menn eiga ekki aðild að meiri-
hluta bæjarstjórnar. Þeir hafa
lengst af haft hreinan meirihluta í
bæjarstjórn Bolungarvíkur, en
heldur hefur hallað undan fæti
hjá þeim hin síðari ár. Líklegt er
að Alþýðubandalagið verði for-
ystuafl í nýjum meirihluta, en
þetta er í annað sinn sem flokkur-
inn býður fram á Bolungarvík.
Guðbjartur Hannesson oddviti
Alþýðubandalagsmanna á Akra-
nesi taldi í gær góða möguleika á
að viðræður Alþýðubandalagsins
og Framsóknarflokksins myndu
skila árangri, en þær hafa staðið
síðan á miðvikudaginn. Þessir
tveir flokkar voru í minnihluta á
síðasta kjörtímabili. „Það þarf
eitthvað sérstakt að koma upp á
svo upp úr slitni. Ég á von á að
gengið verði frá málefnasamningi
um helgina, en allar okkar gerðir
eru háðar samþykki félagsfund-
ar,“ sagði Guðbjartur. _____gg
Leiðrétting
Ranghermt var í blaðinu í gær
að Álfgeirsvellir væru í Blöndu-
hlíð. Hið rétta er að auðvitað eru
þeir í Lýtingsstaðahreppi. Biðj-
um við hlutaðeigandi afsökunar.
Reykjavíkurborg
Fegnmanrika
Reykjavíkurborg efnir til fegrunarviku 7.-15. júní
Dagana sjöunda til fimmtánda
júní verður efnt til sérstakrar
fegrunarviku í Reykjavík. Fegr-
unarvikan er liður í því að gera
höfuðborgina sem snyrtilegasta á
200 ára afmælinu.
Laugardaginn sjöunda júní
verður nokkur þúsund plöntum
dreift ókeypis til borgarbúa og
munu borgarfulltrúar annast
dreifinguna sem fer fram á fjór-
um stöðum - við Ársel kl. 10, við
Gerðuberg kl. 11, við Laugar-
dalshöll kl. 13 og í Hljómskála-
garðinum (við syðstu tjörnina)
kl. 14.
Kl. 13-15 frá mánudeginum 9.
júní til föstudagsins 13. júní verð-
ur sérstakur símatími á skrifstofu
garðyrkjustjóra og getur fólk
hringt og fengið upplýsingar og
leiðbeiningar um gróður og rækt-
un.
Hreinsunardeild borgarinnar
mun sækja rusl sem safnað hefur
verið saman út í borgarhverfin,
dreifa ruslapokum ókeypis og
eins hefur ruslagámum verið
komið fyrir á átta stöðum: við
Meistaravelli, Vatnsmýrarveg
neðan Miklatorgs, Grensásveg,
Kleppsveg við Dalbraut, Súða-
vog, Stekkjarbakka, endann á
Breiðholtsbraut og við Ársel við
Rofabæ.
Þá vekur Reykjavíkurborg
einnig athygli borgarbúa á því að
borgin rekur lóðasjóð, sem ætlað
er að aðstoða húseigendur við
frágang á lóðum með þeim hætti
að fólk fær að láni efni frá malbik-
unarstöð borgarinnar, Grjót-
námi og Pípugerð Reykjavíkur.
Eru þessi lán til nokkurra ára og
skal sækja um þau til skrifstofu
borgarverkfræðings.
Fegrunarnefnd borgarinnar
skorar á fyrirtæki að veita sér-
stakan afslátt þessa viku á vörum
sem notaðar eru til fegrunar,
snyrtingar og viðhalds mann-
virkja og lóða. Ing
Krakkar í unglingavinnunni hafa snyrtingu og fegrun borgarinnar að aðalstarfi,
og ganga að því með oddi og egg. (Mynd Sig.)
Aðalfundur Útgáfufélags Þjóðviljans
Yfirlýsing frá Ólafi Ragnari Grímssyni
jóðviljinn birti í gær yfiriýs-
ingu frá Ásmundi Stefánssyni
um aðalfund Útgáfufélags Þjóð-
viljans. Þar kom fram lýsing á at-
burðarás sem virtist samin í
nokkrum flýti því ýmis höfuð-
atriði komu ekki fram. Þar eð Ás-
mundur ijaliaði um minn hlut í
tilraun til að ná samkomuiagi um
stjórnarkjör er rétt að ég greini
frá höfuðatriðum fyrst á annað
borð er farið að fjalla um at-
burðarásina í yfiriýsingum.
Áhugamenn um Þjóðviljann og
sagnfræðingar framtíðarinnar
hafa þá úr meiru að moða.
1. Þegar ég varð var við það
daginn fyrir aðalfund Útgáfufé-
lagsins, að ákveðin öfl voru farin
að smala á fundinn taldi ég rétt að
forystumenn flokksins gerðu til-
raun til að koma á samstöðu um
stjórnarkjör. Alþýðubandalagið
þyrfti á öðru að halda nú rétt eftir
kosningar en hörðum innan-
flokksátökum. Ég ræddi við
Svavar Gestsson um þessi viðhorf
mín, og lagði til að stjórn útgáfu-
félagsins yrði óbreytt að öðru
leyti en reynt yrði að fá mann í
stað Kjartans Ólafssonar, sem
hafði ákveðið að hætta í stjórn-
inni. Þyrfti sá stjórnarmaður að
hafa svipaða tilhöfðun og Kjart-
an. Niðurstaða þessa samtals var,
að við reyndum að vinna að því
að Ragnar Arnalds formaður
þingflokksins kæmi í stað Kjart-
ans Ólafssonar. Sú tilhögun hefði
einnig tryggt að sjónarmið lands-
byggðarinnar væru áfram hluti af
umræðunni í stjórninni.
2. Skömmu áður en aðalfundur
Útgáfufélagsins átti að hefjast
boðaði Svavar Gestsson mig til
fundar með Ásmundi Stefánssyni
og Álfheiði Ingadóttur. Þar kom
fram að Ásmundur og Álfheiður
töldu að gera yrði meiri breyting-
ar á útgáfustjórninni. Gerðu þau
kröfur um að Álfheiður Ingadótt-
ir og Ásmundur Hilmarsson yrðu
1. og 2. varamaður. Taldi ég að
erfitt yrði að koma á samkomu-
lagi um það en lofaði að reyna.
Eftir að hafa unnið í málinu um
nokkra hríð tilkynnti ég um
klukkan 22.00 - fundurinn hafði
þá staðið í eina og hálfa klukku-
stund - að skapast hefði grund-
völlur fyrir því að fallist yrði á
þessa kröfu þeirra. Væri það gert
til að tryggja friðinn og sam-
stöðuna. Kæmi þá Ragnar Arn-
alds í stað Kjartans Ólafssonar og
þau tvö yrðu efst varamanna.
3. Þegar ljóst var, að sam-
komulag gæti orðið, boðuðu Ás-
mundur og Álfheiður hóp fólks
til fundar í sérherbergi og komu
þar meðal annars Ingi R. Helga-
son og Adda Bára Sigfúsdóttir.
Eftir að sá fundur hafði staðið
nokkra stund kom Ásmundur til
mín og tjáði mér að þetta væri
ekki nóg. Sagði Ásmundur að
hópurinn hafnaði því að Ragnar
Arnalds yrði aðalmaður í útgáfu-
stjórn og gerði þá kröfu að Álf-
heiður Ingadóttir tæki það sæti
sern Ragnari var ætlað í
samkomulaginu. Sú krafa hafði
aldrei verið nefnd einu orði í
löngum viðræðum mínum við Ás-
mund Stefánsson og Álflieiði
Ingadóttur fyrr á fundinum, þótt
nefnt hafi verið nafn annars
landsbyggðarþingmanns í stað
Ragnars Arnalds. Ég tjáði Ás-
mundiað égteldi nánast útilokað
að setja formann þingflokksins
og eina fulltrúa landsbygðarinnar
út úr aðalstjórninni. Þó skyldi ég
kanna það. Eftir örfá samtöl var
ljóst að slík krafa sett fram á síð-
ustu stundu þótti næsta furðuleg
og var talin óaðgengileg.
4. Þegar til kosninga kom á
fundinum gerði ég úr ræðustól
grein fyrir því að Ragnar Arnalds
hefði fallist á að taka sæti í út-
gáfustjórninni ef samkomulag
næðist. Ég hefði þó ekki heimild
til að bjóða hann fram í keppnis-
kosningu. Þessvegna gerði ég
ekki tillögu um Ragnar Arnalds í
kosningunum. Harmaði ég jafn-
framt að ekki hefði náðst breið
samstaða, þareð slíkt hefði verið
blaðinu og hreyfingunni okkar
fyrir bestu.
Það hefur ekki verið venja að
greina opinberlega svo ítarlega
frá gangi mála á fundum útgáfu-
félagsins. Vegna þeirra yfirlýs-
inga sem birst hafa í Þjóðviljan-
um taldi ég þó óhjákvæmilegt að
gera það að þessu sinni.
Óiafur Ragnar Grímsson
Laugardagur 7. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3