Þjóðviljinn - 07.06.1986, Side 4
LEHDARI
Níunda listahátíðin
Níunda Listahátíð í Reykjavík stendur yfir.
Eins og fyrr og síðar fagna menn ýmsum ágæt-
um gestum sem lyfta huganum og hreinsa til í
sálarkirnunni. Við getum fagnað því að bók-
menntir eiga nokkuð drýgri hlut í hátíðinni en
venja hefur verið - bæði vegna þess að hana
ber upþ á úrslit mikillar smásagnakepþni og svo
vegna þess, að hingað kom einn ágætasti rit-
höfundursem nú eruppi, Doris Lessing. Ingmar
Bergman kemur með Fröken Júlíu og tónsnill-
ingar ágætir koma hingað, einnig útsjónarsamir
látbragðsleikarar og svo mætti áfram telja. Eng-
inn mælir heldur á móti því, að það er merkileg
upplifun að vera umkringdur Picassomyndum í
stórum sal.
Þrjár íslenskar myndlistarsýningar eru haldn-
ar og íslensk nútímatónlist er flutt á tvennum
tónleikum og hálfum betur. Þetta er góðra
gjalda vert, en minnir á gagnrýni sem ýmsar
aðrar listahátíðir hafa sætt: íslenskir listamenn
verða gjarna útundan, kastljósum fjölmiðla-
máttarins er fremur beint að stjörnugestum.
Eins og fram hefur komið er þessi listahátíð
stíluð upp á fremur fá atriði og þá gert ráð fyrir
því að unnt sé að tryggja að hvert fái sæmilega
athygli og aðsókn. En þar með er syndgað á
kostnað fjölbreytninnar, þess óvenjulega, sem
vekur furðu og jafnvel hneýkslan (ef allir eru þá
ekki orðnir svo sljóir að þeir geti ekki einu sinni
hneykslast). Svo geta menn líka saknað þeirra
uppákoma, sem ekki verða hamdar inni í salar-
kynnum en leita út á götur og torg og láta
borgarbúa vita af því, að hátíð sé í gangi.
En það sem er beinlínis ámælisvert við fram-
kvæmd hátíðarinnar nú, er að binda allmörg
atriði hennar við veitingahúsið Broadway með
óþarfri matvælasölu og auglýsingajukki.
Framan af sögu Listahátíðar fór allmikið fyrir
því að nafnkenndir menn og svo dulnefndir færu
með nöldur yfir því .að slíkar hátíðir væru dýrar
og að þær væru fyrir snobba eða eitthvað í þá
veru. Þessar raddir hafa sem betur fer verið á
undanhaldi. Það hefur verið að skapast sæmi-
lega viðunandi samstaða og breið um að lista-
hátíð skuli vera til. Ekki veitir af.
Listahátíð, sem sæmilega tekst, er meira en
nytsamleg röksemd gegn öllum þeim, sem hafa
tilhneigingu til að gera lítið úr hlut lifandi menn-
ingar í samfélaginu. Slík hátíð er vonandi upp-
örvun, hressing, bæði listafólki og listunnend-
um. Hún er andóf gegn yfirgangi færibandaaf-
þreyingar, sem hefur verið að gera sig mjög
breiða á undanförnum misserum og heimtar
mikið fé og fyrirferð. Listahátíð er líka áminning,
sem vonandi sem flestir taki eftir, um einbeittari
metnað í menningarlífi, áminning um að við höf-
um reyndar þörf fyrir menningarstefnu, sem
lætur ekki reka á reiða tilviljana og geðþóttaá-
kvarðana. Heldur sækir gegn þeirri firru, að
hægt sé að afhenda menningarlíf smárrar þjóð-
ar markaðsöflunum að léni, og snýr við þeirri
þróun síðustu ára, að valdhafar láta rýrna þann
litla hluta af ríkisútgjöldum og þjóðartekjum,
sem farið hefur til þess að efla menningarlíf í
landinu.
-ÁB
'W
LJOSOPIÐ Mynd: Einar Ól.
DJOÐVIIJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing-
ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H.
Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Frið-
þjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjömsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríöur Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Jónsson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumonn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síöumúla 6, Reykjavík, síml 681333.
Auglýsingar: Sfðumúla 6 símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verö í lausasölu: 40 kr.
Helgarblöð: 45 kr.
Áskríftarverð ó mánuði: 450 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN | Laugardagur 7. júnl 1986