Þjóðviljinn - 07.06.1986, Qupperneq 6
Leikirnir á HM í gær, marka-
skorarar, liðsuppstillingar
og stöður í riðlum:
C-riðill:
Ungverjaland-Kanada 2-0 (1-0)
Iraputao, 6. júní
Dómari: Al-Sharif (Sýrlandi)
Áhorfendur 13,800
1-0 Esterhazy (2.), Detari (76.)
Ungverjaland: Szendrei, Sallai, Varga,
Nagy (Dajka 63.), Garaba, Kiprich, Kar-
dos, Detari, Burcsa (Roth 29.), Esterhazy,
Bognar.
Kanada: Lettieri, Lennarduzzi, Bridge,
Samuel, Wilson (Sweeney 41.), James
(Segota 55.), Gray, Ragan, Norman, Val-
entine, Vrablic.
Staðan f C-riðli:
Sovétríkin..............2 110 7-13
Frakkland..............2 110 2-13
Ungverjaland...........2 10 12-62
Kanada.................2 0 0 2 0-3 0
D-riðill:
Brasilía-Alsír 1-0 (0-0)
Guadalajara, 6. júní
Dómari: Mendez (Guetemala)
Áhorfendur 30,000
1-0 Careca (67.)
Brasilía: Carlos, Edson (Falcao 11.),
Edinho, Cesar, Branco, Elzo, Alemao,
Socrates, Junior, Careca, Casagrande
(Muller 50.).
Alsír: Drid, Medjadi, Mansouri, Meghar-
ia, Guendouz, Kaci-Said, Assad (Bensao-
ula 68.), Benmabrouk, Menad, Belloumi
(Zidane 79.), Madjer.
Staðan í D-riðll:
Brasilia.............2 2 0 0 2-0 4
N.lrland.............1 0 10 1-11
Alsír................2 0 111-21
Spánn................10 0 10-10
F-riðill:
England-Marokkó 0-0
Monterrey, 6. júní
Dómari: Gonzales (Paraguay)
England: Shilton, Stevens(E), Sansom,
Fenwick, Butcher, Wilkins, Robson (Ho-
dge 36.), Hoddle, Waddle, Lineker, Hatel-
ey.
Marokkó: Zaki, Labd, Lemris, Biaz, Bo-
uyahyaoui, Dolmy, Bouderbala, K Merry,
Timoumi, M.Merry, Khairi.
Staðan í F-riðli:
Portúgal................1 10 0 1-02
Marokkó.................2 0 2 0 0-0 2
Pólland.................1 0 10 0-01
England.................2 0 110-11
Leikir um helgina
Laugardagur
B-riðill: Mexíkó-Paraguay
D-riðill: Spánn-N.lrland
F-riðill: Pólland-Portúgal
Sunnudagur
B-riðill: Belgía-lrak
E-riðill: V.Þýskaland-Skotland
E-riðill: Uruguay-Danmörk
Manudagur
C-riðill: Frakkland-Ungverjaland
C-riðill: Kanada-Sovétrikin
ÍÞRÓITIR
1. deild
Sigur-
mark á
6. mín.
Valgeir tryggði ÍA
sigur á FH
ÍA vann verðskuldaðan sigur á FH,
1-0, á Akranesi í gærkvöldi. Skaga-
menn voru mun betri í fyrri hálfleik
og léku þá vel á meðan bitlaus sókn
FH brotnaði jafnan á sterkri vörn
þeirra. FH-ingar voru mun frískari í
seinni hálfleik en ógnuðu sjaldan
Skagamarkinu verulega.
Valgeir Barðason skoraði sigur-
markið strax á 6. mín. þegar hann
fékk sendingu innfyrir vörn FH frá
Júlíusi Ingólfssyni og vippaði boltan-
um yfir Halldór markvörð, 1-0.
ÍA fékk mörg færi í hálfleiknum,
þau bestu Sveinbjörn sem skallaði
yfir á 22. mín, Heimir Guðmundsson
sem skaut í stöng á 33. mín. og Si-
gurður B. Jónsson er átti skalla sem
Guðmundur Hilmarsson bjargaði á
línu á 38. mín. Ingi Björn sóaði besta
færi FH á 25. mín. með því að senda
ekki á dauðafrían samherja.
FH-sóknin í seinni hálfleik skilaði
fáum færum og ieikurinn leystist uppí
óþarfa hörku. Ólafur Hafsteinsson
var of fljótur á sér á 66. mín. þegar
hann skaut í varnarmenn ÍA af mark-
teig. Júlíus átti hinsvegar skot í varn-
armann FH á 75. mín, boltinn fór af
honum í þverslá og yfir. Ólafur Dani-
valsson komst síðan í gott færi við
mark f A á 85. mín. en Birkir Kristins-
son varði skot hans vel.
—SV/Akranesi
ÍA-FH 1-0 (1-0) * *
Akranesvöllur, 6. júní
Dómari Bragi Bergmann *
Áhorfendur 696
1-0 Valgeir Barðason (6.)
Stjörnur ÍA:
Guðbjörn Tryggvason *
Júlíus Ingólfsson *
Ólatur Þórðarson *
Stjörnur FH:
Guðmundur Hilmarsson *
Halldór Halldórsson *
Valur-Fram 1-1 (0-0) * * *
Hlíðarendi, 6, júní
Dómari Magnús Theodórsson *
0-1 Guðmundur Torfason (47.), 1-1
Hilmar Sighvatsson (75.)
Stjörnur Vals:
Ársæll Kristjánsson *
Hilmar Sighvatsson *
Ingvar Guðmundsson *
Sigurjón Kristjánsson *
Valur Valsson *
Stjörnur Fram:
Guðmundur Steinsson * *
Guðmundur Torfason «
Pétur Ormslev *
Viðar Þorkelsson *
1. deild
Hefð-
bundin
úrslit
Það er komin hefð á að Valur og
Fram skilji jöfn eftir góða og spenn-
andi lciki, og var leikurinn í gær-
kvöldi engin undantekning. Hann var
samt nokkuð kaflaskiptur. Framarar
byrjuðu betur og áttu góð færi fyrstu
20 mín. án þess að ná að skora. Þá
tóku Valsmenn við og náðu yfirhönd-
inni á vellinum, án þess að skapa sér
veruiega hættuleg færi.
Framarar fengu hinsvegar óska-
byrjun í síðari hálfleik. Á 47. mín.
snýr Guðmundur Steinsson á varnar-
menn Vals og gefur fyrir þar sem
nafni hans Torfason kemur á fleygi-
ferð og skallar knöttinn í netið, 1-0.
Fallegt mark.
Valsmenn lögðu meira í sóknina
eftir þetta og náðu smám saman yfir-
höndinni því Framarar bökkuðu og
jöfnunarmark Vals var glæsilegt þótt
aðdragandinn væri dálítið vafasamur.
Hæpin aukaspyrna rétt utan vítateigs
Fram og Hilmar Sighvatsson þrumaði
beint í bláhornið, algerlega óverjandi
fyrir Friðrik, 1-1.
Eftir þetta var leikurinn í jafnvægi
en undir lokin varði Stefán Arnarson
markvörður Vals vel skalla frá Arn-
ljóti Davíðssyni.
Leikmenn beggja liða spiluðu
ágætlega á köflum en leikurinn fór
nokkuð úr böndunum í seinni hálfleik
sökum þess að dómarinn missti tök á
honum. —Pv
1. deild
Víðir í
þriðja
sætið!
Fœr enn ekki á sig
mark
Víðispiltarnir úr Garði gera það
ekki endasleppt. Þeir skutust uppí 3.
sæti 1. deildar í gærkvöldi með 1-0
sigri á Breiðabliki í Kópavogi og hafa
nú ekki fengið á sig mark í fjórum
leikjum í röð, eða í 360 mínútur.
Leikurinn var mjög slakur, nánast
ekkert spil sást frá liðunum, einungis
barátta og kýlingar. Blikar fengu sitt
eina umtalsverða færi á 18. mín., Jón
Þórir fékk góða sendingu innfyrir
vörn Víðis frá Ólafi Björnssyni en
Gísli Heiðarsson varði gott skot hans.
Sigurmarkið kom á lokasekúndum
fyrri hálfleiks. Daníel Einarsson átti
langa sendingu og boltinn skoppaði
inní vítateig Blika. Benedikt Guð-
mundsson og Grétar Einarsson
stukku upp, Grétar hafði betur og
skallaði yfir Örn Bjarnason mark-
vörð sem hafði hikað í úthlaupi, 0-1.
Víðismenn fengu þrjú færi til að
bæta við marki í seinni hálfleik. Örn
varði glæsilega frá Klemenzi Sæm-
undssyni af markteig, boltinn barst
út, síðan inn aftur og Grétar skallaði
framhjá. Mark Duffield átti hörku-
skalla framhjá og í lokin komst Helgi
Bentsson innfyrir Blikavörnina en
skaut framhjá.
—E.ÓI
Breiðablik-Víðir 0-1 (0-1) *
Kópavogsvöllur, 6. júní
Dómari Óli Ólsen * *
Áhorfendur 603
0-1 Grétar Einarsson (45.)
Stjörnur Breiðabliks:
Jón Þórir Jónsson *
Magnús Magnússon »
Ólafur Björnsson *
Stjörnur Víðis:
Daníel Einarsson *
Grétar Einarsson *
Klemenz Sæmundsson *
Mark Duffield *
Mexíkó
Falla Englendingar?
Wilkins og Robson útafgegn Marokkó. Brasilía áfram
Englendingar standa frammi
fyrir því stórslysi að komast ekki í
16-liða úrslit heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu eftir 0-
0 jafntefli við Marokkó í gær-
kvöldi. Þeir verða nú að vinna
Pólvcrja til að komast áfram.
Brasilía vann Alsír 1-0 og varð
fyrsta þjóðin til að tryggja sér á-
framhald og Ungverjaland vann
Kanada 2-0.
Englendingar léku með 10 menn
allan seinni hálfleik, Ray Wilkins var
rekinn útaf í lok þess fyrri, og fyrirliði
þeirra, Bryan Robson, meiddist á 36.
mín. og varð að fara útaf. Samt voru
Englendingar mun betri aðilinn í
seinni hálfleik eftir að Marokkóbúar
höfðu verið öllu skæðari í þeim fyrri.
Brasilía sótti nær látlaust allan fyrri
hálfleikinn gegn Alsír en náði ekki að
skora þrátt fyrir fjölmörg góð færi.
Mark var dæmt af Socrates og Julio
Cesar átti hörkuskot í slá. En Alsír
tók mikinn kipp eftir hlé og fékk góð
færi til að ná forystu, það besta þegar
Assad lék á Carlos markvörð en
Edinho bjargaði á marklínu Brasilíu.
Sigurmarkið á 67. mín. var slysalegt
af hálfu alsírsku varnarinnar. Varnar-
maður ætlaði að sleppa boltanum
afturfyrir endamörk en Careca var
snöggur að átta sig og sendi hann í
netið, 1-0.
Martin Esterhazy nýtti sér varn-
armistök Kanadabúa strax eftir 110
sekúndur og færði Ungverjum 1-0
forystu. Kanada sótti síðan stíft og
ungverska markið slapp oft vel. Lajos
Detari tryggði Ungverjum sigur, 2-0,
eftir skyndisókn á 76. mín. og rétt
fyrir leikslok var Mike Sweeney hjá
Kanada rekinn af leikvelli fyrstur
allra á HM eftir gróft brot.
—VS/Reuter
2. deild
r
Knattspyrna
OvæntáHúsavík
Jafntefli á Siglufirði
Völsungur-UMFN 1-2 * *
Stanslaus sókn Völsunga kom fyrir
lítið. Jón Ólafsson skoraði fyrir
Njarðvíkinga á 33. mín. eftir að Þor-
finnur markvörður hafði tvívarið og
Haukur Jóhanncsson skoraði óvænt
mark með bylmingsskoti af 35 m færi
á 65. mín, 0-2. Kristján Olgeirsson
svaraði fyrir Völsung eftir horn á 80.
mín.
Maður leiksins: Sævar Júlíusson,
UMFN
—ab/Húsavík
KS-ÍBÍ 1-1 (1-0) * * *
Gústaf Björnsson skoraði fyrir KS
eftir sendingu Hafþórs Kolbeins-
sonar á 7. mín. en Guðmundur Jó-
hannsson jafnaði fyrir ÍBÍ á 55. mín,
með skoti í varnarmann og í netið.
Leikurinn var opinn, harður og
skemmtilegur, KS átti hættulegri
færi.
Maður leiksins: Hafþór Kolbeins-
son, KS.
—RB/Siglufirði
Rush seldur!
Fer nœr örugglega til Juventus
Ian Rush, velski markakóngurinn frá Liverpool, gengur að öllum
líkindum frá samningi við ítölsku meistarana Juventus nú um helgina.
Féiögin tvö hafa komist að samkomulagi sín á miili og nú er aðeins bcðið
eftir samþykki frá Rush sjálfum.
Kaupverðið er 3 miljónir punda, mctupphæð fyrir breskan leikmann
og tvöfaldar nærri því gamla metið. Juventus er með tvo erlcnda leik-
menn fyrir og því getur allt eins farið svo að Rush verði leigður Liverpool
næsta keppnistímabil, 1986-87, en fari síðan til Juventus þegar samning-
ur Michels Platinis rennur út. Rush segir sjálfur að hann vilji vera kyrr
hjá Liverpool en með því að fara geti hann tryggt fjárhagsstöðu sína og
fjölskyldu sinnar um alia framtíð.
Þór-KR 0-1 (0-0) * *
Þórsvöllur (gras), 6. júní
Dómari Sveinn Sveinsson *
Áhorfendur 1000
0-1 Ásbjörn Björnsson (76.)
Stjörnur Þórs:
Baldvin Guðmundsson *
Júlíus Tryggvason *
Stjörnur KR:
Gunnar Gíslason *
Loftur Ólafsson *
1. deild
Sigur-
gangan
rofin
KR á toppinn í 1.
deild
Þórsarar biðu í gærkvöldi sinn
fyrsta ósigur á heimavelli í 1. deild í
hartnær tvö ár, eða síðan 22. júlí
1984. KR-ingar komu í heimsókn og
unnu 1-0 og eru þar með einir á toppi
1. deildar, Þórsarar sitja aftur á móti í
næstneðsta sæti eftir þennan ósigur.
Fyrri hálfleikur var jafn og í slakara
Iagi. Liðin léku varfærnislega, eink-
um KR-ingar sem greinilega ætluðu
sér að halda stigi. Ásbjörn Björnsson
og Loftur Ólafsson skölluðu yfir
mark Þórs, Baldvin Guðmundsson
varði vel frá Hálfdáni Örlygssyni og
Björn Rafnsson hitti ekki Þórsmarkið
úr upplögðu færi. Siguróli Kristjáns-
son skallaði yfir mark KR úr eina telj-
andi færi Þórs í hálfleiknum.
Þór sótti stíft fyrri hluta seinni hálf-
leiks en KR fékk hættulegt færi á 57.
mín. er Baldvin varði naumlega
skalla Willums Þórssonar. Sigurmark
KR kom á 76. mín. Ásbjörn fékk
boltann úti á kanti, Þórsarar töldu
hann rangstæðan óg hættu, Ásbjörn
brunaði hinsvegar inní vítateig og
skoraði örugglega, 0-1.
Þór sótti mjög í lokin. Stefán Jó-
hannsson varði vel aukaspyrnu Júl-
íusar Tryggvasonar og á 88. mín. var
mark dæmt af Einari Arasyni vegna
rangstöðu, umdeilt því Kristján
Kristjánsson virtist renna boltanum
út til hans.
—K&H/Akureyri
ÍBK-ÍBV 1-0 (0-0) * *
Keflavíkurvöllur, 6. júní
Dómari Gísli Guðmundsson * *
Áhorfendur 634
1-0 sjálfsmark (60.)
Stjörnur ÍBK:
Sigurður Björgvinsson ♦ *
Freyr Sverrisson *
Gunnar Oddsson «
Óli Þór Magnússon *
Stjörnur ÍBV:
Hörður Pálsson * *
Jón Bragi Arnarson *
1. deild
llla farið
með færin
ÍBK vann á sjálfs-
marki
Þrátt fyrir nánast stanslausa sókn
allan leikinn og mýmörg dauðafæri
urðu Keflvíkingar að láta sér nægja
að vinna Eyjamenn 1-0 með sjálfs-
marki Þórðar Hallgrímssonar á 60.
mín. Þórður skallaði þá í eigið mark
eftir að Freyr Sverrisson hafði skallað
fyrir.
Elías Friðriksson fékk eina færi
ÍBV á 19. mín., var þácinn gegn Þor-
steini markverði en renndi boltanum
framhjá. Síðan tóku heimamenn við,
Skúli Rósantsson, Freyr og Óli Þór
Magnússon fengu allir dauðafæri í
fyrri hálfleik, Sigurður Björgvinsson
og Sigurjón Sveinsson í þeim seinni.
Þá eru ótalin fjölmörg færi sem einnig
hefðu getað gefið mörk. Hörður Páls-
son átti stórleik í marki ÍBV, án hans
hefðu Eyjamenn flogið heim með
mun stærri tölur á bakinu.
—SÓM/Suðurnesj um
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. Júní 1986
—VS/Reuter