Þjóðviljinn - 07.06.1986, Qupperneq 15
Orð-
laus
Shake-
speare
Listahátíð í Iðnó
SHAKESPEARE: THE WORKS
Nola Rae og John Mowat
Það virðist kannski við fyrstu
sýn undarleg hugmynd að flytja
verk hins mikla meistara orðsins
án þess að nota eitt einasta orð en
sýning þessara ensku látbragðs-
leikara tók fljótlega af öll tvímæli
um að hugmyndin er góð og
framkvæmdin stórsnjöll og
skemmtileg. Þau flytja eins konar
endursagnir eða útúrsnúninga á
fjórum af þekktustu verkum
meistarans: Makbeð, Hamlet, Lé
konungi og Rómeó og Júlíu.
Þetta eru verk sem flestir
leikhúgestir þekkja og skop lát-
bragðsleikjanna byggist mikið á
því að áhorfendur séu nákunnug-
ir verkunum - ekki heyrðist mér
neitt skorta á það hjá áhorfenda-
hópnum í Iðnó sem skemmti sér
konunglega og hyllti leikarana
innilega.
Sýningin hefst á því að við
sjáum Shakespeare sitja við
skriftir, en honum gengur heldur
striðlega, andinn kemur ekki yfir
hann. Þá kemur kona inn og fer
að hamast í húsverkum alls kon-
ar, þetta ergir skáldið í fyrstu en
síðan taka athafnir konunnar að
gefa honum hugmyndir. Hún
hrærir deig í köku og hann sér allt
í einu fyrir sér norn að hræra í
stórum katli - og þar með er kom-
in kveikjan að Makbeð. Og
þannig er haldið áfram.
Skemmtilegasta atriði sýning-
arinnar þótti mér Harmleikurinn
um Handlet, þar sem Nola Rae
flytur Hamlet á einum tíu mínút-
um og notar til þess tvær hendur.
Þarna nýtur sú hugmyndaauðgi
sem einkennir sýninguna alla sín
best. Hún notar mismunandi
hanska fyrir hinar ólíku persónur
- svartan fyrir Hamlet, hvítan
fyrir Ófelíu osfrv. Það er ótrúlegt
hvað henni tekst að gera gang
leiksins skýran með þessu móti -
en auðvitað treystir hún mikið á
að allir þekki söguna.
Daufasta atriðið var um Lé
konung, þar vantaði nægilega
skýra heildarhugsun, þó að ýmis
atriði væru snjöll. Eftir hlé kom
Rómeó og Júlía og var prýðileg
skemmtun, skopfærsla á þessum
harmleik sem fékk fólk til að
engjast af hlátri. John Mowat fór
hér verulega á kostum og brá sér í
ólíklegustu gervi bara með því að
skipta um höfuðfat, var ýmist Júl-
ía, París eða hestur og reyndar
margt fleira. Nola Rae sýndi að
hún er góður dansari og þau
skopfærðu skemmtilega nokkur
ballettatriði.
Sverrir Hólmarsson
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
Deildarmeinatæknir í fullt starf á rannsókna-
stofu Heilsuverndarstöövarinnar. Hlutastörf
koma til greina.
Bókasafnsfræðingur í hálft starf viö bókasafn
Heilsuverndarstöðvarinnar.
Ljósmóðir til afleysinga á mæöradeild.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri heilsu-
gæslustöðva í síma 22400.
Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæö, á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást
fyrir kl. 16.00 föstudaginn 13. júní.
fl IAUSAR STÖÐUR HJÁ
J REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Fóstrur athugið!
1. Á dagheimilið Suðurborg við Suðurhóla
vantar fóstrur nú þegar eöa í haust. Boöiö er upp
á mjög góöa vinnuaðstöðu bæöi hvaö varðar
almennt uppeldislegt starf og séraðstoð.
Upplýsingar gefur forstöðumaöur á staðnum eða
í síma 73023.
2. Á leikskólann Árborg Hlaðbæ 17, vantar
fóstrur viö almenn uppeldisstörf, og fóstrur eöa
þroskaþjálfa til aö sinna börnum meö sérþarfir,
hálft starf.
Upplýsingar gefa forstöðumenn á staönum eöa í
síma 84150.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást
fyrir kl. 16.00 mánudaginn 16. júní.