Þjóðviljinn - 22.06.1986, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 22.06.1986, Blaðsíða 20
MENNING Bjartur í Bergmans- mynd? IngmarBergman gerði kvikmyndahand- riteftirSjálfstœðu fólki Halldórs Laxness Eins og sést á myndinni hér aðofan hittust tveirandans jöfrar hér í síðustu viku og fór vel á með þeim. Meðal annars kom upp úr dúrnum að Ing- mar Bergman gerði eitt sinn kvikmyndahandrit uppúr skáldsögu Halldórs Laxness um Bjart í Sumarhúsum - Sjálfstæðufólki. Þvímiður hefur Bergman sagt að hann Halldór Laxness og Ingmar Bergman ræöast við á Bessastöðum um daginn. sé hættur að kvikmynda og sennilega fáum við ekki að njóta samspils þessara tveggja meistara. Að minnsta kosti ekki í leikstjórn Ingmars Bergman. Þetta kemur fram meðal ann- ars í viðtali við Hrafn Gunnlaugs- son í laugardagsblaðinu, þar sem Hrafn er spurður útí nýliðna Listahátíð og þá gagnrýni sem fram hefur komið varðandi hana. Hrafn segir hana hafa tekist vel frá listrænu sjónarmiði og að allar líkur bendi til þess að hún geri það einnig fjárhagslega. Hann viðurkennir að ýmis mistök í framkvæmd hafi átt sér stað og um klúbb Listahátíðar segir Lúðrar Lúðrablástur á Austurvelli Stórtónleikar í Laugardalshöll í dag Landsmót lúðrasveita hófst í gær með miklum blæstri um alla Reykjavíkurborg, þarsem mótið er haldið að þessu sinni. Þettaer 12. landsmót lúðrasveita, en það fyrsta var einmitt haldið í Reykjavík árið 1955. Lúðrasveitirnar byrjuðu að láta til sín taka síðdegis í gær, léku þá meðal annars saman á Austurvelli, og í gærkvöldi var mótið sett í Langholtskirkju. Þar lék lúðrasveit mynduð úr öllum lúðrasveitum S.Í.L. í dag kl. 14.00 verða haldnir tónleikar í Laugardalshöll. Þar munu sveitirnar leika hver um sig, en einnig munu þær leika saman sem Lúðrasveit íslands. Það eru Lúðrasveit verkalýðs- ins og og Lúðrasveitin Svanur sem bjóða til þessa móts. —gg hann: „Saga þessa klúbbs er mikil harmsaga“ og kennir um „þver- girðingshætti í dómsmálaráðu- neytinu“ og því „ótrúlega stein- aldarkerfi“ sem það þjóni. Aðspurður um þá gagnrýni að þessi Listahátíð hafi lagt meira uppúr umgjörð en innihaldi segir Hrafn: „Eg lít nú á þetta sem nöldur. Er ekkert innihald í verk- um Pablo Picassos, Ingmars Bergman eða píanóleik Claudio Arraus? Sumt fólk heldur að for- sendan fyrir því að vera „meðvit- uð þjóðfélagsvera" sé að setja sig aldrei úr færi að nöldra.“ Sjá bls. 7 EUX-LÍFGARVÉUNAVH) Vélsmiðja Laufbrekku 2, 200 Kóp. S-641745. Falleg hús eiga skilið það besta Það skal vanda sem lengi skal standa Smíðum handrið á svalir og stiga. Einnig færibönd, rækjudælur, fisk- þvottakör, hillurekka og borð á hjólum úr ryðfríu stáli og einnig margt fl. Það er opið hjá okkur mánud.-föstudags frá 8-12 og 13-17.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.