Þjóðviljinn - 22.06.1986, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 22.06.1986, Blaðsíða 19
Skrímslið í Jedi frá tilraunastigi til endanlegs forms. Tölvutæknin gegnir nýju hlutverki í kvikmyndum og leikhúsi. Hér sjáum við hvernig tölvan „teiknar" eftir útlínum leikarans og afraksturinn er fígúran lengst til hægri. í kvikmyndum HRARIK RAFMAGNSVErTUR RlKISINS Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsókn- ar starf fjármálafulltrúa á svæöisskrifstofu Raf- magnsveitnanna á Egilsstöðum. Við erum að leita að viðskiptafræðingi eða manni með sambærilega menntun. Maður vanur fjármála- stjórnun, áætlanagerð og almennu skrifstofu- haldi kemur einnig til greina. Góð vinnuaðstaða. Upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri Raf- magnsveitnanna á Egilsstöðum. Umsóknir ertilgreini menntun, aldur og fyrri störf sendist deildarstjóra starfsmannadeildar fyrir 15. júlí n.k. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík ^srarik RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða rafvirkja með aðsetur í Ólafsvík. Reynsla í rafveiturekstri æskileg. Upplýsingar um starfið veitir rafveitustjóri RARIK í Olafsvík sími 93-6265. Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf sendist rafveitustjóra Rafmagnsveitna ríkisins Stykkishólmi eða starfsmannadeild Rafmagns- veitnanna fyrir 4. júlí 1986. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík Þeir sem stunda kvikmynda- húsin vita að tækni í kvik- myndum hefurgerbreystá fáum árum. Ekki aðeins er beitt sífellt fullkomnari vélum og hljóðupptökutækjum, til að festa atburði áfilmunni, held- urhefurtæknibrellum hvers konar fjölgað svo gífurlega að mörgum þykir nóg um. Nú eru menn verðlaunaðir fyrir „special effects", þ.e. galdra- brögð ýmiss konar sem villa augað og sýna áhorfendum veröld sem kvikmyndagerð- armenn á fyrri hluta aldarinn- ardreymdiekkium. Fyrst árið 1902 Þó er það svo að „special ef- fects“, eða bellibrögð, eins og þau eru stundum kölluð á ís- Íensku, eru ekki alveg ný af nál- inni. Árið 1902 gerði franski kvikmyndagerðarmaðurinn Ge- orges Méliés myndina „A Trip to the Moon“ og braut hún blað í gerð tækni- og vísindakvik- mynda. Næsta afrekið var „King Kong“ árið 1933 og síðan mynd Stanley Kubricks 2001: A Space Odyssey, gerð árið 1968. Á átt- unda áratugnum fór leikstjórinn George Lucas af stað með Stjörn- ustríð (Star Wars) og þar með var hafin ný öld í kvik- myndaiðnaðinum. Nú rekur Lucas fyrirtækið „Industrial Light and Magic“ og er stórveldið í bransanum. Hann réði til sín færustu menn á þessu sviði og auk þess að gera þrjár Stjörnustríðsmyndir hefur hann séð um bellibrögðin í myndum -íþjónustu ímyndunarafls- Ins.eðatilað kœfa það? eins og „E.T.“, „Poltergeist“ og „Raiders of the lost Ark“ (Leitin að týndu örkinni). Meðal nýjustu myndanna sem ILM tók þátt í eru „Cocoon", „Back to the future" (Aftur til framtíðar) „Young Sherlock Holmes" og „Explor- ers", og fyrir þá fyrstnefndu hlaut ILM sjöundu óskarsverðlaunin fyrir „Special effects". Meira að segja mynd eins og „Out of Afr- ica" sem hér var sýnd nýlega undir nafninu „Jörð í Afríku" er ekki alveg laus við tæknibrögð. Lestin sem ekur í gegnum Afr- íkumerkurnar í upphafsatriðinu er aðeins smálest, sem síðar er felld inn í landslagsmynd með sérstakri aðferð. Sú aðferð, er nefnist „krómi“, er notuð, þegar fella á hlut eða mannveru inn í landslag, eða einhvern flöt, sem erfitt er að „festa" viðkomandi á. Sem dæmi má nefna hjólið í ET sem flaug um himininn, þá er barnið á hjólinu tekið á sérfilmu þar sem bakgrunnurinn er allur í bláum lit sem „eyðist" þegar film- an er sett saman við aðra mynd með himninum. Útkoman er barnið á hjólinu fljúgandi um himinhvolfið. „Plottið og persónurnar“ Þá eru oft notaðar mjög snögg- ar klippingar með hægagangs- myndum og einnig er hægt að leika sér með of mikinn hraða til að ná sérstökum áhrifum. Tölvur eru notaðar í æ ríkara mæli í kvikmyndum og leikhús- um. „Leiser“tækni gerir einnig mögulegt að myndgera persónur sem ekki eru á sviðinu eins og nú er gert í nýjustu söngleikjunum. Þeir sem gagnrýna tæknibylt- inguna í kvikmyndum spyrja hvað orðið sé um „plottið og persónurnar", - aðalatriðið hjá góðum kvikmyndagerðar- mönnum. „Hvað hefði Hitch- cock gert við svona tækni í mynd- um eins og „Glugginn á bakhlið- inni?" Guði sé lof að hún var ekki fyrir hendi á þeim tíma,“ segja menn. Aðrir spá því að tækniald- an muna líða undir lok, og innri spenna fái aftur að ráða ríkjum í kvikmyndum í stað spennandi bellibragða. Víst er mikill vandi að nota bellibrögðin rétt, þ.e. í þágu „plotts og persóna". Því eins og meistari George Lucas segir: „Bellibrögðin hafa opnað nýja frásagnartækni, víkkað möguleikana til spennandi frá- sagnar óendanlega. En þau á að nota í þjónustu ímyndunar- aflsins, - ekki öfugt.“ Sunnudagur 22. júni 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 Byggðastofnun Lögfræðingur Byggðastofnun auglýsir starf lögfræðings við stofnunina laust til umsóknar. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytilegt starf sem m.a. felst í ráðgjöf og álitsgerðum ásamt ýmissi aðstoð við fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri á lands- byggðinni, auk innheimtustarfa. Laun greidd skv. kjarasamningi S.Í.B. og bankanna. Skriflegar umsóknir um starf þetta sendist Byggðastofnun að Rauðarárstíg 25,105 Reykja- vík, og mun með allar umsóknir farið sem trúnað- armál. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Vistheimilið Seljahlíð auglýsir störf leiðbeinenda við tómstundastörf heimilins. Menntun og reynsla æskileg. Æskilegt er að umsækjendur geti leiðbeint við hinar ýmsu greinar tómstunda- starfs. Upplýsingar gefur forstöðumaður félagsstarfs sr. Gylfi Jónsson í síma 73633 milli kl. 10.30 og 12.00. Starfsstúlkur vantar í hlutastarf í eldhús. Upplýsingar gefur matsveinn Sigmundur Hafb. Guðmundsson í síma 73633, frá kl. 13-14. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 30. júní.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.