Þjóðviljinn - 27.06.1986, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Hallveig Fróðadóttir er fyrsti kvenmaðurinn sem ræðst til starfa hjá verksmiðjunni um langan aldur, eða svo fullyrti meirihlutakynið, sem virtist ekki kunna því illa að
fá hitt kynið í hópinn. Myndir Sig.
Gunnarsholt
Allt klárt fyrir slátt
Starfsemi heykögglaverksmiðjunnar í Gunnarsholti að hefjast. Samdráttur í
landbúnaði kemur niður á sölu grasköggla og birgðirnar hrannast upp
Starfsmenn heykögglaverk-
smiðju ríkisins í Gunnarsholti
voru í óða önn að gera klárt fyrir
slátt þegar Þjóðviljinn kom þar
við í gær, enda er stefnt að því að
hefja slátt þar um helgina.
„Við ætlum að prufukeyra vél-
arnar á laugardaginn. Verk-
smiðjan hefur yfir 800-900 hekt-
urum lands að ráða, en ég á ekki
von á að við sláum nema lítinn
hluta af því í sumar,“ sagði Björn
Breiðfjörð í samtali við blaðið.
Hann er einn 15 starfsmanna
verksmiðjunnar yfir sumartím-
ann, en á veturna eru þar aðeins
þrír til fjórir. Eftir að sláttur hefst
vinna þeir, eða þau, á þrískiptum
vöktum, því verksmiðjan gengur
allan sólarhringinn. Vertíðin
stendur allt fram í ágúst eða sept-
ember og er þá stöðugt slegið,
meðan vélarnar endast.
Framleiðslan í fyrra var á
þriðja þúsund tonn, en stór hluti
þess er enn óseldur. Eftirspurn
eftir graskögglum hefur minnkað
verulega í kjölfar samdráttar hjá
bændum og góðra heyja síð-
astliðin tvö ár. Það má því búast
við að þeir félagar slái ekki eins
grimmt í ár og í fyrra. -gg
Karl Trausti Einarsson, Jón M. Sigurðsson og Jón Ingi-
mundarson umvafðir framleiðslu síðustu ára.
Björn Breiðfjörð og Hermann Leifsson tylla sér þarna á hina öflugustu maskínu sem bíður þess að
komast út á tún til að hirða upp eftir sláttuvélina, saxa nýslegna töðuna fínt og koma henni síðan
áleiðis á vörubilspall.
Sláttur, heykögglar, dúntekja
og ósköp venjuleg leyni-
greiðsla... Ég heimta alvöru
hneykslismál!
Viðskiptin
Hagstæður
vöruskipta-
jöfnuður
Vöruskiptajöfnuður lands-
manna í maímánuði sl. var hag-
stæður um 870 miljónir króna.
Við fluttum inn vörur fyrir 3.251
miljón en út úr landinu fóru vörur
að verðmæti 4.121 miljón króna.
Ef litið er til fyrstu fimm mán-
aða ársins kemur í ljós að íslend-
ingar fluttu út vörur fyrir 17.373
miljónir en inn í landið fyrir
14.760. Því var vöruskiptajöfn-
urðurinn hagstæður um 2.613
miljónir, en á sama tíma í fyrra
var hallinn á viðskiptunum orð-
inn 378 miljónir króna.
Náttúruskoðun
Kvöldferð
í Þemey
Hið íslenska náttúrufræðifélag
efnir til kvöldverðar í Þerney á
sunnudagskvöldið og verður lagt
af stað frá Kornhlöðunni kl.
20.00 og komið til baka um 23.30.
Leiðsögumenn verða Arni Ein-
arsson, Árni Hjartarson, Snorri
Baldursson og Þóra Ellen Þór-
hallsdóttir.
Það var sl. sunnudagskvöld
sem efnt var til ferðar út í Þerney
og komust færri að en vildu. í
frétt frá félaginu segir að ef ekki
verði stillt veður geti ekki orðið
af ferðinni því ekki er lendandi í
Þemey nema í blíðviðri. Þá er
fólki ráðlagt að mæta í stígvélum
og gjarnan með sjónauka með
sér.
Lœkjartorg
Fimleikar á
útimarkaöi
Fimleikadeild Ármanns heldur
útimarkað til styrktar utanlands-
ferðar meistaraflokka, á Lækj-
artorgi í dag kl. 14-17. Margt
verður þar á boðstólum, m.a.
kökubasar, prútthorn og flóa-
markaður. Fimleikasýningar
verða á hálftíma fresti. Sýnd
verða m.a. dýnustökk og tramb-
ólín.