Þjóðviljinn - 27.06.1986, Blaðsíða 6
LANDSBYGGÐIN
Staða
forstöðumanns
við leikskólann Melbæ á Eskifirði er laus til
umsóknar.
Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofunni í
síma 97-6170.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk.
Bæjarstjórinn á Eskifirði
Staða
aðalbókara
hjá Eskifjarðarkaupstað er laus til umsóknar.
Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofunni í
síma 97-6170.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk.
Bæjarstjórinn á Eskifirði
/iSi\
<4
Útboð
Sjóflutningar
Tilboð óskast í flutninga á áfengi, tóbaki og
iðnaðarvörum fyrir Áfengis- og tóbaksversl-
un ríkisins frá höfnum í Evrópu og Bandaríkj-
unum til íslands. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn
11. júlí 1986, kl. 11.00 f.h.
INNKAJJPASTQENUN RÍKISINS
Borgartuni 7
ffm) Fjórðungssjúkrahúsið
“’á Akureyri
Stéttarsambandið
Nýjar kjötmatsreglur
á næsta leiti
Tekið verði mið afkröfum markaðarins
Vera má að einhverjum fínnist
sumar ályktanir aðalfundar
Stéttarsambands bænda vera
þess eðlis, að þær eigi ekki erindi
fyrir almenningssjónir. Þar er
umsjónarmaður Landsbyggðar á
öðru máli. Auk þess eru þeir
bændur allmargir, sem ekki sjá
að staðaldri annað blað en Þjóð-
viljann. Því birtast hér enn
nokkrar ályktanir aðalfundarins
á Hvanneyri.
1. Aðalfundurinn... samþykkir
að fela stjórn Sambandsins að
kanna hagkvæmni og þörf á að
stofnaður verði sjúkrasjóður á
vegum Sambandsins. Niðurstöð-
ur verði lagðar fyrir aðalfund
1987.
2. Aðalfundurinn felur stjóm
Sambandsins að vinna að því, að
bændur geti tekið lífeyri við 65
ára aldur.
3. Aðalfundurinn... skorar á
Alþingi og ríkisstjórn að efla
Jarðasjóð ríkisins svo honum sé
kleift að kaupa bújarðir á viðun-
andi verði af bændum, sem vilja
hætta búskap.
4. Aðalfundurinn fagnar því,
að reglugerð um kjötmat hefur
verið undirbúin og komi til fram-
kvæmda á þessu ári. Fundurinn
leggur áherslu á að allir kjötmats-
menn fái sem besta þjálfun í starfi
fyrir komandi sláturtíð og mælir
með þeirri hugmynd, að þeir
sinni matsstörfum til skiptis í slát-
urhúsunum, svo að sem mest
samræming verði í matinu. Þá
bendir fundurinn á nauðsyn þess
að verðlagning á einstökum verð-
flokkum taki mið af kröfum
markaðarins á hverjum tíma.
5. Aðalfundurinn telur að enn
skorti nokkuð á að komið hafi
verið nægjanlega til móts við
vanda þeirra mjólkurfram-
leiðenda, sem ekki ná að halda
framleiðslu sinni innan
fullvirðisréttar á yfirstandandi
verðlagsári.
6. Aðalfundurinn... samþykkir
að heimila stjórn Sambandsins að
auka hlutafé þess í Reiðhöllinni
hf. um allt að 250 þús. kr.
7. Aðalfundurinn... heimilar
stjórn þess að veita allt að 80 þús.
kr. til þátttöku í gerð fræðslu-
myndar um breytingar á þróun í
íslensku atvinnulífi. Fundurinn
gerir það að skilyrði að stjórn
Stéttarsambandsins kynni sér
handrit myndarinnar fyrirfram
og samþykki það. -mhg
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga
frá 1. september 1986 á eftirfarandi
deildum:
Lyflækningadeild
Handlækningadeild.
B-deild (elli- og kvensjúkdómadeild)
Sel I
Speglanir (scopiur) 50% starf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22100.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við íþróttakennaraskóla íslands að Laugarvatni.
Við íþróttakennaraskóla íslands að Laugarvatni eru lausar tvær
kennarastöður.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist skóla-
stjóra eða íþróttafulltrúa ríkisins, menntamálaráðuneytinu.
STEFNULJÓS skal jafna gefa
Stéttarsambandið
Jafnvægi á íslenskum
kjötmarkaði
Hagsmunamálframleiðenda jafnt sem
neytenda
Meðal mála, sem síðasti aðal-
fundur Stéttarsambands bænda
fjallaði um var hið umdeilda fóð-
urgjald og heildarstjórn á kjöt-
framleiðslunni. Framleiðendur
nautgripa- og kindakjöts telja
eðlilegt og réttlátt að úr því að
framleiðsla þeirra er háð tak-
mörkunum sé önnur kjötfram-
leiðsla það einnig. Eftir allmiklar
umræður á fundinum var svofelld
tillaga samþykkt:
„Aðalfundurinn telur aðkall-
andi að komið verði á eðlilegu
jafnvægi á íslenskum kjötmark-
aði og að það sé hagsmunamál
bæði framleiðenda og neytenda
þegar til lengri tíma er litið að það
takist. Nú virðist vera meiri von
en áður um að samkomulag takist
um aðgerðir í þá átt og skorar
fundurinn á landbúnaðarráðu-
neytið og fulltrúa fugla- og svína-
bænda að leiða sem fyrst til lykta
þær viðræður, sem þar hafa verið
í gangi.
Fundurinn telur að innflutn-
ingsgjald af kjarnfóðri sé grund-
vallaratriði í þessu sambandi en
leggur til að eftirfarandi breyting-
ar verði gerðar á gildandi reglum:
1. Grunngjald falli niður en
sérstakt gjald hækki að sama
skapi og renni tekjur af þeirri
hækkun í Framleiðnisjóð land-
búnaðarins.
2. Gildandi reglur um niður-
fellingu 60/80 hluta sérstaks
gjalds vegna afurða svína og ali-
fugla verði afnumdar en endur-
greiðslur fari fram gegn framvís-
un innkaupareikninga meðan
keypt magn fer ekki upp fyrir
eðlilega notkun miðað við fram-
leiðslumark hvers aðila.
3. Lagt verði mat á hlutdeild
hrossaeigenda í sérstöku fóður-
gj aldi og við það miðað, að Fram-
leiðnisjóður ráðstafi þeirri upp-
hæð til málefna hrossaræktarinn-
ar.
4. Sett verði reglugerð um
endurgreiðslu sérstaks fóður-
gjalds vegna sauðfjárafurða og
við það miðað, að til endur-
greiðslu komi sá hluti hins endur-
greiðanlega gjalds, sem ætla má
að sú búgrein leggi af mörkurn."
-mgh
Stéttarsambandið
Þrjú ný
orlofshús
á næsta ári
Umsóknir um orlofsdvöl
þrefaltfleiri en unnt var
að sinna
Eins og frá hefur verið skýrt
hér í blaðinu hefur Stéttarsam-
band bænda látið reisa þrjú or-
lofshús fyrir bændafólk. Eru tvö
þeirra í Ásgarði í Grímsnesi og
eitt á Hólum í Hjaltadal. Er það
reist í samvinnu við Bændaskól-
ann.
Eftirspurn eftir dvöl í húsunum
hefur reynst mjög mikil og bárust
þrefalt fleiri umsóknir en unnt
var að sinna. Við úthlutun dvalar
í húsunum var einkum tekið mið
af tvennu: Aldri umsækjenda og
sem jafnastri dreifingu milli
landshluta.
Vegna hinnar miklu eftir-
spurnar heimilaði aðalfundur
Stéttarsambandsins stjórn þess
að láta reisa þrjú orlofshús á
næsta ári. Jafnframt var lagt til að
Tryggingasjóður standi straum af
kostnaði við þessar framkvæmdir
og eigi húsin.
-mhg
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. júní 1986