Þjóðviljinn - 11.07.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
júlí
1986
föstu-
dagur
153. tölublað 51. örgangur
jw
GLÆTAN
HEIMURINN
UM HELGINA
ÍÞRÓTTIR
Arnarflug h.f.
Kært fyrir fjárdrátt
Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefurkœrtArnarflugh.f. til
rannsóknarlögreglunnar fyrir fjárdrátt. Um er að ræða 4 miljónir
króna sem dregnar hafa verið afflugmönnum í eftirlaunasjóð en hefur ekki verið skilað
Félag íslenskra atvinnuflug-
manna hefur kært Arnarflug h.f.
fyrir fjárdrátt, til RLR. Hér er
um að ræða 4 miljónir króna sem
Arnarflug h.f. hefur dregið af
launum flugmanna sinna og
renna eiga í eftirlaunasjóð FIA
(lífeyrissjóð) en Arnarflug h.f.
hefur ekki staðið skil á.
í venjulegum lífeyrissjóðum
greiðir sjóðsfélagi 4% en at-
vinnurekandi 6%. En hjá flug-
mönnum greiðir hver flugmaður
11 % af launum sínum og flugfé-
lagið 11% á móti. Það er það fé
sem dregið hefur verið af launum
flugmanna sem kært er yfir, en
ekki hlutur Arnarflugs h.f. sem
að sjálfsögðu hefur heldur ekki
skilað.
Stjórn Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna telur að lögmað-
ur félagsins hafi ekki staðið sig
nógu vel í að innheimta þetta og
hefur félagið nú skipt um lög-
mann og kært til RLR sem fyrr
segir.
—S.dór
Ve&urguftirnlr halda áfram að gæla vlð geð og limi landsmanna og ekkert sem bendir til þess að lát verði á því í bráð. Spáð er áframhaldandi góðviðri um
landið og líklegt að fleiri geti fylgt fordæmi þessarar meyjar sem spókaði sig í Austurstræti í gær. (Mynd sigmar)
Flugvirkjadeilan
Setið til sátta?
Verkfall skall á á miðnœtti, en deiluaðilar sátu semfastast. Matthías
gafbráðabirgðalög ískyn ígærdag
Verkfall flugvirkja Arnarflugs fundi, þótt líkur á sáttum hefðu
var formlega skollið á á miðnætti heldur dvínað og flest benti til
í gær, en þegar Þjóðviljinn fór í verkfalls.
prentun sátu deiluaðilar enn á Síðla dags í gær fór eitthvað að
Végaeftirlitið
Opið yfir Kjöl
Nú geta ferðalangar loksins ið opnaður viku fyrr. Hjá vega-
farið á Hveravelli, því vegurinn eftirlitinu fékk Þjóðviljinn þær
yfir Kjöl hefur verið opnaður. upplýsingar að í ár hefur verið
Þetta var gert óvenju seint í ár, mikill snjór þarna og því mikið
undanfarin ár hefur vegurinn ver- vatn í ánum. SA.
miða í deilunni, og í gærkvöldi
lögðu Arnarflugsmenn fram til-
boð um að henni yrði vísað í sér-
stakan gerðardóm og að sér-
kjarasamningar yrðu gerðir um
einstök verkefni, til dæmis píla-
grímaflugið.
Flugvirkjar lögðu fram
gagntilboð og að sögn Guðlaugs
Þorvaldssonar ríkissáttasemjara í
nótt höfðu deiluaðilar skipst á til-
boðum og á tímabili hefði litið vel
út með samkomulag.
í þessari deilu höfðu flugvirkj-
ar það tromp á hendi að Arnar-
flugsmenn gátu ekki hótað upp-
sögnum, vegna þess að fyrirtækið
hefur þegar sagt upp öllum starfs-
mönnum sínum. Framan af
deilunni strandaði einkum á
kröfu flugvirkja um afturvirkni
samninganna, en Arnarflug hafn-
aði algerlega kröfu þeirra um að
þeir yrðu virkir aftur til 1. janúar.
Mikla athygli vakti viðtal við
Matthías Bjarnason samgöngu-
ráðherra í hádegisútvarpi í gær,
en þar lét hann í veðri vaka að
ríkisstjórnin myndi gefa út bráða-
birgðalög ef af verkfalli yrði.
-pv
Knattspyrna
Fjöldi
stórleikja
Islenskir knattspyrnuunnend-
ur fá heldur betur eitthvað við sitt
hæfí í haust. Ísland-Frakkland
10. september, Fram-Katowice
16. september, Akranes-Sporting
Lissabon 17. september, Island-
Sovétríkin 24. september og loks
Valur-Juventus 1. október. Allir
fara þessir leikir fram á Laugar-
dalsvellinum og eru liðir í Evr-
ópumótum félagsliða og Evrópu-
keppni landsliða í knattspyrnu.
—VS
Sjá íþróttir bls. 15
BHMR
Kjaradómur
veldur ólgu
Starfsmenn mæta
ekki til vinnu. Fjöl-
margir íhuga upp-
sagnir. Boðað til
fundar í dag kl. 14
Mikil ólga er nú meðal háskól-
amenntaðra ríkisstarfs-
manna vegna þeirra litlu launa-
hækkunar sem Kjaradómur
dæmdi þeim í fyrradag. Mjög
víða mættu menn ekki til starfa í
gær og raskaðist starfsemi ýmissa
stofnana verulega af þessum
sökum.
Á fjölmörgum stofnunum
íhuga menn nú alvarlega að hætta
störfum hjá ríkinu. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans hyggjast
starfsmenn Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins almennt segja upp
störfum ef kjör þeirra verða ekki
bætt frekar. Þá er einnig búist við
því að menn hverfi í auknum
mæli úr stöðum sínum við Há-
skóla íslands, en slík þróun hefur
staðið yfir undangengin misseri.
Hörður Filippusson formaður
Félags háskólakennara sagði í
samtali við Þjóðviljann að dómur
Kjaradóms væri mikið áfall fyrir
Háskólann. Þess væru nú dæmi
að menn tækju ekki þær stöður
sem þeim byðust þegar þeir fréttu
hvernig launakjörum væri hátt-
að. Stofnun sem svona værið búið
að ætti ekki bjarta framtíð.
Þetta eru hrikalegir samningar
sem okkur eru dæmdir, sagði Sig-
ríður Elefsen hjá Félagi íslenskra
náttúrufræðinga. Ég held að
þessi málalok sýni glöggt að Kjar-
adómur á ekki lengur rétt á sér.
Kristján Thorlacius formaður
HÍK sagði að gífurlegum tíma og
fjármagni hefði verið eytt til að
vanda undirbúning þessa máls
fyrir Kjaradómi. Niðurstaða
hans væri hins vegar með þeim
hætti að framvegis ætluðu menn
sér ekki að mæta fyrir honum og
taka þannig þátt í þeim skrípaleik
sem þar færi fram.
Vegna hinnar óvæntu niður-
stöðu Kjaradóms hefur BHMR
boðað til almenns félagsfundar í
dag. Fundurinn verður haldinn f
Hótel Sögu og hefst kl. 14.
G.Sv.
Sjá bls. 2